Morgunblaðið - 16.03.1989, Blaðsíða 31
31
Sovétríkin:
Bandarískur embættis-
maður rekinn úr landi
Bandaríkjastjórn íhugar hefndaraðgerðir
Washington, Moskvu. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Sovétríkjunum
skipuðu í gœr bandarískum
embættismanni að hafa sig úr
landi innan tveggja sólarhringa
Júgóslavía:
Ný stjóm
tekin við
Belgrað. Reuter.
NÝ RÍKIS-
STJÓRN undir
forystu umbóta-
sinnans Ante
Markovic tók við
völdum í Jugó-
slavíu í gær.
Stjórnin verður á
næstunni að
kljást við óða-
verðbólgu, átök
milli þjóðabrota og vaxandi and-
stöðu við einræðisstjórn komm-
únistaflokks landsins.
Markovic, sem er Króati og álit-
inn fijálslyndur, hefur 20 ára
reynslu af fyritækjastjórn og er
hann sagður vilja láta ríkisfyrirtæki
fara á hausinn ef þau geti ekki
sýnt hagnað.
í nýju stjórninni eiga 19 menn
sæti en 29 í í þeirri gömlu. Ráð-
herrar Markovic koma jafnt úr röð-
um fijálslyndra sem harðlínu-
manna. Markovic hefur heitið því
að færa efnahagslífið nær markaðs-
kerfinu og leggja þunga áherslu á
aukið svigrúm erlendra fyrirtækja
til að fjárfesta í landinu. Þing Júgó-
slavíu mun taka afstöðu til stjómar-
innar á fimmtudag.
Sænska akademian:
Afsagnir
vegna
Rushdie-
málsins
Daily Telegraph.
SÆNSKU rithöfúndarnir
Kerstin Ekman og Lars Gyll-
ensten sögðu sig úr sænsku
vísindaakademíunni þegar
ljóst varð að hún ætlaði ekki
að taka ekki afstöðu til morð-
hótana írana i garð Salmans
Rushdies sem skrifaði hina
umdeildu bók, Söngvar Sat-
ans. Visindaakademían, sem
veitir bókmenntaverðlaun
Nóbels, hefúr sætt miklu
ámæli í sænskum Qölmiðlum
fyrir að halda til streitu þeirri
stefnu að blanda sér ekki i
stjórnmáladeilur.
Afsögn þeirra Ekmans og
Gyllenstens á sér engin fordæmi
í yfir tveggja alda sögu vísinda-
akademíunnar. „Ég er ákaflega
leið og vonsvikin yfir því að við
skyldum ekki bera gæfu til að
taka afstöðu í þessu máli,“ sagði
Ekman. „Akademían hefði átt
að lýsa yfír stuðningi við Rush-
die því málið snýst um tjáningar-
frelsi," bætti hún við.
A fundi akademíunnar 23.
febrúar síðastliðinn var ákveðið
að breyta í engu þeirri stefnu
stofnunarinr.ar að forðast pólit-
ískar yfirlýsingar.
þar eð hann hefði orðið uppvís
að framferði sem ekki hæfði
stöðu hans. Svo er að jafnaði
komist að orði þegar sendi-
mönnum er vísað úr landi fyrir
njósnir. Embættismenn í banda-
riska utanríkisráðuneytinu
sögðu hugsanlegt að þessa yrði
hefnt með einhverjum hætti.
Gennadíj Gerasímov, talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins,
skýrði frá því í gær að Daniel
Francis Van Grundy, hermálafull-
trúa við bandaríska sendiráðið í
Moskvu, hefði verið veittur
tveggja sólarhringa frestur til að
koma sér frá Sovétríkjunum. Hefði
maðurinn verið staðinn að því að
ljósmynda hernaðarmannvirki auk
þess sem hann hefði freistað þess
að komast inn á svæði sem lokað
væri útlendingum. í máli tals-
mannsins kom fram að þetta væri
svar Sovétstjórnarinnar við þeirri
ákvörðun Bandaríkjamanna í
síðustu viku að vísa sovéskum
embættismanni úr landi en hann
var einnig sakaður um njósnir.
Embættismenn í Washington
sögðu þessa ákvörðun ráðamanna
í Kreml illskiljanlega. Ekki væri
unnt að leggja þessi tvö mál að
jöfnu þar eð sovéski embættismað-
urinn, Júrí Paktúsov, hefði verið
gripinn glóðvolgur. í síðustu viku
kváðust bandarískir embættis-
menn ekki búast við hefndarað-
gerðum af hálfu Sovérstjórnarinn-
ar þar eð slíkt tíðkaðist ekki þegar
sendimenn væru staðnir að njósn-
um.
Þetta er í fyrsta skipti frá því
í október árið 1986 að bandarískur
sendimaður er rekinn frá Sov-
étríkjunum. Þá var fimm embætt-
ismönnum skipað að hafa sig á
brott en áður höfðu Bandaríkja-
menn rekið 55 Sovétmenn úr landi.
Reuter
Eldur í efhaflutningaskipi
Óttast er að 23 menn hafi farist er eldur kviknaði á þriðjudag
í flutningaskipi suður af Tókíó-flóa, nærri ströndum Japan. Eld-
ur logaði enn í skipinu í gær og sprengingar kváðu við. Höfðu
björgunarmenn ekki komist um borð af þeim sökum. Skipið sem
neftiist „Maasgusar" var á leið til Yokohama og Kawasaki í Jap-
an frá Houston í Texas-ríki í Bandaríkjunum. Skipið var í efiia-
flutningum og óttast menn mjög mengun sjávar í kjölfar þessa.
Skipið var skráð í Líberíu en áhöfiiin var ft-á Filippseyjum og
Bretlandi.
Til móts við draum
Frá fimmtudegi 16. mars til
fimmtudagsins 23. mars verður
verslunin Pelsinn með tilboð á
eftirtöldum vörum, sem erfitt er
að hafna:
AIIHÆÐ
★ Pelsar
★ Hattar og húfur
★ Kvenkápur úr leðri í öllum stærðum
★ Kvenfatnaður úr leðri, kápur, buxur,
pils, dragtir og kjólar
★ Minkapelsar og aðrir pelsar á
sértilboði í litlum númerum
★ Angórupeysur
★ Ullardragtir
30% útborgun
og afgangurinn á 10 mánuðum
vaxtalaust
PELSINN
Kirkjuhvoli, sími 20160.