Morgunblaðið - 16.03.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1989
27
Inga Elín opnar sýn-
ingu á glerlistmunum
INGA Elin Kristinsdóttir keramik- og glerhönnuður opnar í dag
sina fyrstu einkasýningu á glerlistmunum. Sýningin verður hald-
in í Epal, Faxafeni 7, en á henni eru meðal annars glermunir sem
Inga Elín hefur hannað og Hadeland glerverksmiðjan i Noregi
framleiðir.
Inga Elín Kristinsdóttir er fædd
í Reykjavík 1957, og stundaði hún
fyrst nám í keramik undir hand-
leiðslu Katrínar Briem i Mynd-
listaskóla Reykjavíkur. Hún var
nemandi í Myndlista- og handíða-
skóla íslands í 5 ár og lauk þaðan
kennaraprófi í myndmennt. Inga
Elín starfaði sem myndmennta-
kennari í 3 ár, en 1983 hóf hún
nám við Skolen for Brugskunst í
Kaupmannahöfn og lauk hún
prófi þaðan bæði úr keramik- og
glerdeild vorið 1988, en hún er
fyrsti nemandi skólans sem það
gerir. Hún var í hópi 24 listiðnað-
armanna sem fengu viðurkenn-
inguna „Kunsthaandværkeprisen
af 1879“. Viðurkenninguna fékk
hún fyrir fyrir glös og termo-bolla
úr postulíni, og var sýning á mun-
um verðlaunahafanna haldin í Lis-
tiðnaðarsafninu í Kaupmanna-
höfo síðastliðið sumar.
A sýningu Ingu Elínar í Epal
eru glermunir sem hún hefur blás-
ið sjálf, en einnig eru þar munir
sem hún hefur hannað og danski
glerblásarinn Bent B. Hansen
hefur blásið fyrir hana. Þeir rtiun-
ir eru skreyttir með flókinni tækni
sem fáir glerlistamenn nota, en
aðferðin var fundin upp hjá Orre-
foss glerverksmiðjunni í Svíþjóð.
Þá eru á sýningunni blómavasar
og könnur sem Inga Elín hefur
hannað, en Hadeland glerverk-
smiðjan í Noregi framleiðir og
selur víða um heim.
Sýning Ingu Elínar í Epal er
fyrsta einkasýning hennar, en
áður hefur hún tekið þátt í sam-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Inga Elín Kristinsdóttir
keramik- og glerhönnuður. Á
myndinni eru blómavasar sem
hún hefur hannað en Hadeland
glerverksmiðjan í Noregi fram-
leiðir.
sýningum, og nú á hún muni á
farandsýningu á Norðurlöndum.
Sýningin, sem er sölusýning, verð-
ur opin á opnunartíma Epal til
1. apríl næstkomandi, en munim-
ir frá Noregi verða áfram til sölu
eftir að sýningunni lýkur.
Brúðkaup Fígarós verður frumsýnt laugardaginn 1. apríl í íslensku
óperunni.
Islenska óperan:
Brúðkaup Fígarós
í Islensku óperunni
LAUGARDAGINN1. aprO frumsýnir íslenska óperan Brúðkaup Fíga-
rós eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Sýningar verða um helgar í
íslensku óperunni fram til 5. mai og ráðgerðar eru fjórar sýningar
úti á landi í miðri viku.
Brúðkaup Fígarós er eitt dáðasta
verk tónlistarsögunnar. Söguþráð-
urinn er saminn eftir leikriti Frakk-
ans Meaumarchais sem var stór-
pólitískt verk þegar það var frum-
sýnt í París árið 1784. Ádeiluna
má enn skynja í öllu glensi og gamni
óperutextans sem Italinn Lorenzo
da Ponte skrifaði við tóna Mozarts.
Brúðkaup Fígarós var frumsýnt í
Vínarborg árið 1786.
Þessu sextánda verkefni íslensku
óperunnar leikstýrir Þórhildur Þor-
leifsdóttir. Hljómsveitarstjóri er
Anthony Hose, leikmyndina hann-
aði Nicholai Dragan, búninga teikn-
aði Alexander Vassiliev. Lýsing er
í höndum Jóhanns B. Páimasonar,
stjómandi kórs og æfingastjóri er
Catherine Williams og sýningar-
stjóm annast Kristín S. Kristjáns-
dóttir. Með hlutverk fara: Kristinn
Sigmundsson, Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir, John Speight, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, Viðar Gunnarsson,
Hrönn Hafliðadóttir, Sigurður
Bjömsson, Sigríður Gröndal, Inga
J. Backmann og Soffia H. Bjam-
leifsdóttir.
Hljómsveit íslensku óperunnar
er að þessu sinni skipuð þijátíu og
einum hljóðfæraleikara og tólf af
kórfélögum íslensku ópemnnar
taka þátt í sýningunni.
Sala aðgöngumiða hefst þriðju-
daginn 21. mars klukkan 16.
Norræna
barnahjálp-
in opnar hér
skrifstofii
SÆNSKI vakningapredikarinn
Sigvard Wallenberg kom til ís-
lands um helgina til að koma hér
á fót útibúi Norrænu barnahjálp-
arinnar sem hann veitir forstöðu.
Yfir 60 læknar, hjúkrunarfræð-
inga og félagsráðgjafar á vegum
Norrænu barnahjálparinnar,
Scandinavian Childrens Mission,
hafa á undanförnum árum hjálpað
mörg þúsund börnum sem hafa
alist upp á ruslahaugum Manilu,
höfuðborgar Filippseyja.
Sigvard Wallenberg sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að Norræna
bamahjálpin hefði verið stofnuð fyrir
5 árum og hún ynni að þverkirkjulegu
hjálpar- og björgunarstarfí í fátækra-
hverfum Manilu.
Norræna bamahjálpin er með
skrifstofur á öllum Norðurlöndunum
og Rut Glad veitir íslensku skrifstof-
unni forstöðu.
Sigvard Wallenberg heldur hér
á bibliu með merki Norrænu
barnahjálparinnar, Scandinavian
Childrená Mission.
Fundur Varðbergs og SVS:
Yfirmaður varnar-
liðsins flytur erindi
SAMTÖK um vestræna samvinnu (SVS) og Varðberg halda sameigin-
legan hádegisfúnd í Átthagasal (Hótel Sögu, suðurenda) laugardag-
inn 18. mars. Salurinn verður opnaður klukkan 21.
Gestur félaganna og framsögu-
maður á fundinum er Eric A. Mc-
Vadon, flotaforingi, yfírmaður
vamarliðsins á íslandi. Hann mun
flytja erindi á íslensku og fjalla um:
Vamarliðið á íslandi og vamir ís-
lands.
Hann svarar síðan fyrirspumum
og tekur þátt í umræðum. Fundur-
inn er opinn félagsmönnum í SVS
og Varðbergi, svo og gestum þeirra.
Eric A. McVadon hefur verið
yfirmaður vamarliðsins síðan' 10.
október 1986. Á ámnum 1982-
1984 gegndi hann störfum á
Keflavíkurflugvelli og var meðai
annars formaður hins bandaríska
hluta vamarmálanefndar.
Eric A. McVadon
ÆTIARÞU
AÐ VEITA
VEÐLEYFI
í ÞINNI
IBUÐ?.
Haföu þá í huga, aö ef lántakandinn greiðir ekki af
láninu, þá þarft þú aö gera þaö. Getir þú þaö ekki, gæti
svo fariö að þú misstir þína íbúö á nauðungaruppboð.
Um slíkt eru fjöimörg dæmi.
VEÐLEYFI ER TRYGGING
Meö því aö veita veðleyfi í íbúö, hefur eigandi hennar
lagt hana fram sem tryggingu fyrir því að greitt veröi af
láninu, sem tekiö var, á réttum gjalddögum.
ÞÚ GÆTIR ÞURFT AÐ BORGA
Greiði lántakandinn ekki af láninu á tilskildum
gjalddögum, þá þarf íbúöareigandinn
aö gera þaö, eöa eiga á hættu
aö krafist veröi nauðungar-
uppboös á íbúö hans.
Haföu eftirfarandi hugfast
áöur en þú veitir vini
þínum eöa vandamanni
veöleyfi í íbúö þinni:
GETUR ÞÚ GREITT AF LÁNINU
EF LÁNTAKANDINN GETUR ÞAÐ EKKI?
Viö leggjum til aö þú fylgir þeirri reglu aö veíta aldrei
öðrum veöleyfi í íbúð þinni fyrir láni sem þú getur ekki
sjálfur greitt af, nema þú sért viss um að lántakandinn
muni standa í skilum.
FÓLK HEFUR MISST ALEIGU SÍNA VEGNA
VINARGREIÐA.
HAFÐU ÞITT A HREINU
^ RAÐGIAFASTOÐ
HÚSNÆÐISSTOFNUNAR