Morgunblaðið - 16.03.1989, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1989
61
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Glæpsamlegir
hrossaflutningar
Viktoría hringdi:
Það er eftirtekarvert að það er
kona sem vekur máls á glæpsam-
legri framkomu hrossaflutninga-
manna í Morgunblaðinu 23. fyrra
n.ánaðar, Halldóra Gunnarsdóttir,
hafi hún þökk fyrir.
Mín fyrsta hugsun var er mynd
frá þessu var sýnd í sjónvarpi; eru
virkilega til svona dýraníðingar á
íslandi? Hvemig eru þeir menn
gerðir sem senda hryssu sem
komin er að því að kasta í slátur-
hús eða til útflutnings? Svo vil ég
spyija? Er búið að breyta lögum
um dýravemd, en ég hef undir
höndum lög frá 1957? Og svo
önnur spuming: Em dýravemd-
unarsamtök íslands ekld til leng-
ur? Ég hef fylgst með málum er
varða dýr í áratugi, en oft orðið
býsna hissa á máttleysi dýra-
vemdunarlaga. T.d. hef ég hvergi
séð hiðurstöður mála er gæsir
vom skotnar á hreiðmm morður
í Eyjafirði. Né er kindur vora
skotnar á færi vestur á íjörðum.
Við þekkjum því miður alltof
margar ljótar sögur af samskipt-
um manna við dýr, en þessi
hrossaflutningar em með því ljót-
asta og grimmdarlegasta er
heyrst hefur. Því er krafíst að
menn þessir verði látnir sæta
ábyrgð.
Sleði fannst í Breiðhoiti
Birna hringdi:
Sonur minn fann svartan stýri-
sleða f skíðabrekkunni fyrir ofan
Jaðarsel í Breiðholti. Sleðinn var
á kafí í snjó og því líklega búinn
að vera þama í nokkra daga.
Nánari upplýsingar f síma 71966.
Hver ók á Escort?
Svava Marteinsdóttir
hringdi:
Sá sem ók á hvítan Escort,
R-16140, fyrir utan Staðarsel 3
aðfaranótt 12. marz sl. er vinsam-
legast beðinn um að gefa sig fram
við lögregluna.
Ekki eftir Einar Ben.
Ragnheiður Brynjólfsdóttir
hringdi:
Það birtist nýverið gáta í Vel-
vakanda sem ég tel að sé ekki
eftir Einar Benediktsson heldur
afa minn, Indriða Jonsson frá
Ytri-Ey á Skagastrond. Þó Einar
sé mikið skáld hefur hann aldrei
ort gátur. Mig langar því til að
spyija Siguijón hvaða heimildir
hann hafí fyrir því að gátan sé
eftir Einar. Ég er að verða níræð
og er búin að kunna gátuna síðan
ég var bam. Auk þess var hún
ekki rétt í blaðinu.
í gleði og súr, hef ég gildi tvenn.
Ti! gagns menn mig hljóta, til fagnaðar
njóta.
Er hafður í reiða, um hálsa ég renn.
Til höfuðs ég stíg, en er bundinn til fóta
Úrtapaðist
Stállitað og gyllt orient-úr með
svartri skífu tapaðist sl.
föstudagskvöld milli Hálsasels og
Hryggjarsels í Breiðholti.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 51603.
Góð leiksýning í MH
Sveinn Ólafsson hringdi:
Mig langar til að þakka
Menntaskólanum við Hamrahlíð
fyrir mjög góða leiksýningu, sem
ég sá hjá þeim á laugardaginn.
Þau em að sýna leikritið Nas-
hymingamir eftir Ionesco og
standa sig svo vel að þetta er
næstum eins og atvinnuleiksýn-
ing. Búningar, sviðsmynd og leik-
ur, allt er þetta mjög vel gert.
Það er langt sfðan ég hef skemmt
mér svona vel og vil ég eindregið
hvetja fólk til að sjá sýninguna.
Silfurarmband tapaðist
Silfurarmband, breytt og gam-
alt með útflúri, tapaðist á Hótel
Borg eða fyrir utan, 18. desember
sl. Finnandi vinsamlegast hringi
í síma 71536. Fundarlaun.
Veski tapaðist
Rauðbrúnt veski frá Etienne
Eigner tapaðist í nágrenni við
skemmtistaðinn Glæsibæ laugar-
daginn 4. mars. í veskinu vom
m.a. skilríki, peningar og snyrti-
vömr, en það em fyrst og ffernst
skilríkin og veskið sem saknað er.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 691155.
Mmning Appólóníu svívirt
Eldri kona hringdi:
Ég var að horfa á fréttirnar í
sjónvarpinu á mánudagskvöldið
þar sem verið var að segja frá
leikritinu Haustbrúði. Ég varð
ákaflega særð fyrir hönd konunn-
ar Appólóníu, sem leikritið fjallar
um, og fannst sem verið væri að
lítilsvirða minningu hennar. I
fréttinni var sagt að hún gengi
enn um á Bessastöðum sem
draugur eða afturganga. Þetta
em orð sem ekki ætti að nota um
látið fólk. Mér fannst þetta vera
skuggi á fréttinni og áhugi minn
á að sjá þetta leikrit minnkaði
mikið.
íslenskukennsla í
sjónvarpi
Kristjana Þorvaldsdóttir
hringdi:
Ég var að lesa frétt í Morgun-
blaðinu í morgun um tillögu sem
lögð hefur verið fram á Alþingi
um íslenskukennslu í sjónvarpinu.
Ég fagna þessari tillögu og er
rejmdar alveg undrandi á því að
þetta hafí verið gert fyrr. Það er
ekki vanþörf á að fara rækilega
í gegnum notkun á málinu.
Vísa án höfuðstafa
Ingþór Sigurbjömsson
hringdi:
Ég sá f Velvakanda í morgun
vísu til Hermanns Ragnars. Vísan
er án höfuðstafa og er ég alveg
hissa á Morgunblaðinu að leyfa
birtingu á slíkri vísu. Þetta er
hættulegt fyrir íslenska þjóðtungu
og á ekki að hafa fyrir fólki.
Góð þjónusta
Halldóra hringdi:
Mig langar að þakka fyrir góða
þjónustu- og gott viðmót af-
greiðslufólksins hjá Hans Peters-
en í Kringlunni.
AÐALFUNDUR
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis verður haldinn á
Hótel Sögu (Arsal), kl. 16.00, föstudaginn 17. mars 1989.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi sparisjóðsins á árinu 1988.
2. Lagður fram til staðfestingar endurskoðaður ársreikningur
sparisjóðs fyrir árið 1988.
3. Kosning stjórnar.
4. Kosning skoðunarmanna.
5. Tillaga um ársarð og ráðstöfun tekjuafgangs.
6. Tillaga um þóknun stjórnar og skoðunarmanna.
7. Tillögur til breytinga á samþykktum fyrir sparisjóðinn./
8. Önnur mál.
— SPARISJÓÐSSTJÓRNIN.
SRRÍÍN
Sparisjóöur Reykjavikur og nágrennis
Fermingarfötin í ár
fást í
Kringlunni
s. 689991
Laugavegi
621666
s.
Keflavík
s. 92-15970
ÞEIR, SEM KOMA EKKI
í DAG, KOMA ÖRUGG-
LEGA Á MORGUN
Vegna þess að nú vita þeir að hjá okkur er að
fá yfir 160 tegundir af sófasettum.
ÞETTA ER EITT ÞEIRRA!
VIÐEIGUM:
VENJULEG SÓFASETT, ÓVENJULEG SÓFA-
SETT, ÓDÝR'SÓFASETT, DÝRSÓFASETT,
FALLEG SÓFASETT, STERK SÓFASETT.
SEM SAGT ALLSKONAR SÓFASETT!
Húsgagn&höllin
REYKJAVI'K