Morgunblaðið - 16.03.1989, Blaðsíða 64
Fróöleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
SAGA CLASS
í heimi hraða og athafna
FLUGLEIDIR
FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1989
VERÐ I LAUSASOLU 80 KR.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Félagar í Vöku fögnuðu sigri í félagsheimili sínu við HverSsgötu þegar úrslit lágu ljós fyrir á
ellefta tímanum í gærkvöldi.
Vaka með meirihluta í
fyrsta sinn síðan 1965
VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, fékk hreinan meirihluta
í Stúdentaráði i kosningunum í Háskólanum í gær. Er þetta í
fyrsta sinn síðan 1965 sem Vaka hlýtur hreinan meirihluta í hefð-
bundnum stúdentaráðskosningum. Hlutu Vökumenn 50,7% at-
kvæða i kosningum til Stúdentaráðs en Röskva, samtök félags-
hyggjufólks, 39,9%. í kosningum til Háskólaráðs hlutu Vökumenn
53,1% atkvæða en Röskvuliðar 39,6%. í fyrra munaði 32 atkvæð-
um á fylkingunum tveimur.
Á kjörskrá voru 4.422. Þar af
greiddu 2.469 atkvæði, eða
55,8%, sem er hæsta hlutfall í
mörg ár. Úrslit urðu þau að í
kosningum til Stúdentaráðs hlaut
Vaka 1.253 atkvæði, Röskva 986,
en auðir seðlar og ógildir voru
230. í kosningum til Háskólaráðs
hlaut Vaka 1.311 atkvæði,
Röskva 978, en auðir og ógildir
voru 181. Þessi úrslit þýða að
fylkingin fékk sinn hvom Há-
skólaráðsliðann, sem jafnframt
sitja í Stúdentaráði, og Vaka sjö
stúdentaráðsliða en Röskva sex.
Þar sem Vaka hafði átta menn
fyrir í Stúdentaráði er staðan þar
því orðin 16-14 Vöku í vil.
„Þetta eru virkilega ánægjuleg
úrslit og sýna að við höfum verið
á réttri braut í starfi okkar í Stúd-
entaráði í vetur," sagði Lárentínus
Kristjánsson, formaður Vöku, í
samtali við Morgunblaðið. „Við
Vökumenn höfum lagt áherslu á
hagsmunamál stúdenta frekar en
einhveija almenna pólitiska um-
ræðu og teljum að barátta okkar
hafi skilað árangri. Kosningamar
snemst ekki síst um hvert ætti
að vera eðli Stúdentaráðs og sýn-
ist mér stúdentar hafa fellt ótví-
ræðan dóm í þeim efnum. Starfið
hefur verið mjög líflegt í vetur
og sífellt fleira fólk bæst inn í
félagslífið. Ég vil að lokkum
þakka stúdentum það traust sem
þeir hafa sýnt okkur og því fólki
sem hefur starfað í þessari kosn-
ingabaráttu.“
Ekki náðist í neinn fulltrúa
Röskvu í gærkvöldi.
Viðræður ASÍ VSÍ og VMS halda áfram í dag:
Áhugi á að gera samn-
ing fram í september
Samningane&idir Alþýðusambands íslands, Vinnuveitendasam-
bands íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna hittast á
fnndi klukkan 16 í dag til þess að ræða möguleikana á kjarasamn-
ingi ófaglærðs fólks innan ASÍ til skamms tíma eða til haustsins, en
til þess tíma gilda samningar flestra félaga iðnaðarmanna. Gera
má ráð fyrir að það skýrist innan fárra daga hvort möguleiki er á
slikum samningi.
Þessir samningar iðnaðarmanna
gefa þær forsendur, sem líklegt er
að gengið verði út frá í viðræðunum
um skammtímasamning. Þeir voru
gorðir í skugga setningar bráða-
birgðalaganna í fyrra og fólu meðal
annars í sér tilfærslu á 2,5%
áfangahækkun 1. september, sem
bráðabirgðalögin afnumu. Þá eiga
tvær áfangahækkanir samnings
iðnaðarmanna eftir að koma til
framkvæmda, 2% 1. maí næstkom-
andi og 1,5% 1. ágúst. Verkalýðs-
féiögin munu viija að slíkur
skammtfmasamningur gildi til 1.
september, eins og samningar iðn-
aðarmanna, en vinnuveitendur
munu vilja teygja samningstímann
fram á haustið.
Framkvæmdastjóm Verka-
mannasambands íslands og for-
menn svæðasambanda hafa verið
boðaðar til fundar fyrir hádegið í
dag til að ræða stöðuna og samn-
inganefnd Alþýðusambandsins mun
funda fyrir sameiginlega fundinn
með vinnuveitendum. Þess sjónar-
miðs hefur gætt innan VMSÍ að
samningar til skamms tíma leysi
tæpast þann vanda sem verkafólk
eigi við að glíma, þó skammtíma-
samningur sé ekki útilokaður.
Ástandið geri kröfu um samning
til lengri tíma, sem gefi tækifæri
til víðtækra viðræðna við stjórnvöld,
og telja sumir að langtímasamning-
ur hafi ekki verið fullreyndur.
Sjá fréttaskýringu á bls. 26.
Könnun á kjötfarsi og kjöthakki:
Þriðja hver verslun
með ósöluhæft fars
vegna gerlainnihalds
ÞRIÐJA hver verslun er með
ósöluhæft fars vegna of mikils
gerlainnihalds, samkvæmt
könnun sem Neytendasamtökin
stóðu fyrir og kynntu í gær, á
alþjóðlegum degi neytenda.
Rannsökuð voru sýni af kjöt-
farsi og kjöthakki frá 32 versl-
unum af höfuðborgarsvæðinu
og landsbyggðinni. Verst var
útkoma verslana í Vestmanna-
eyjum, Qórar af fimm voru með
ósöluhæft fars og þrjár með
ósöluhæft hakk. Níu af 16 versl-
unum á höfuðborgarsvæðinu
voru með gallað eða ósöluhæft
fars.
„Neytendur eiga kröfu á því,
ef verslanir sýni slíkan fádæma
sóðaskap, verði þeim sýnd mikil
harka. Það verður beinlínis að
vera með innsiglið á lofti," sagði
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, þegar hann
kynnti niðurstöðumar. Hann
minnti á fyrri kannanir, sem gerð-
ar voru 1983 og 1984 og sagði
að þá hefði mátt sjá viðbrögð versl-
unareigenda fyrst eftir að niður-
stöður voru kynntar. Þá hafi verið
tekið verulega á í hreinlæti. Hann
sagði augljóst af niðurstöðum
þessarar athugunar, að nauðsyn-
legt sé að vera á verði og birta
niðurstöðurnar, það veiti nauðsyn-
legt aðhald.
Alvarlegasta mengunin kom
fram í kjötfarsi þegar mælt var
saurkólígerlainnihald þess. Fjórð-
ungur sýnanna reyndist vera yfir
hættumörkum. Jóhannes kvað
slíka gerlamengun vera ótvírætt
merki um sóðaskap við meðhöndl-
un matvörunnar.
Sjá nánar á bls. 26.
Landsvirkjun:
Hagnaður
186 millj-
ónir ífyrra
Rekstrarhagnaður
Landsvirkjunar nam alls
186 milljónum króna í fyrra.
Afkoman varð neikvæð um
157 milljónir á tímabilinu
janúar til september en
snérist verulega til betri
vegar á síðasta ársfjórð-
ungi.
Greiðsluafkoma Landsvirkj-
unar var hagstæð um 762
m.kr. og hefur aldrei verið
betri en á síðasta ári. Skýrist
það af auknum tekjum af stór-
iðjunni og minni afborgunum
en gert hafði verið ráð fyrir.
Heildareign Landsvirkjunar í
árslok var 46,1 milljarður en
þar af nam eigið fé 16,8 millj-
örðum.
Sjá nánar Bl.
Ríkisstjórnin:
Amarflugsmálið til
lykta leitt á morgun
RÍKISSTJÓRNIN mun á fundi sínum í fyrramálið ræða málefni
Arnarflugs og er þess vænst að á þeim fundi verði tekin ákvörðun.
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, er væntanlegur til
landsins í dag, en samgönguráðherra hefur sagt að erfitt væri að
ganga frá þessu máli, að honum fjarstödduin.
„Við höfum enn ekki séð að hlut-
hafamir í Amarflugi hafí Iagt fram
fyrirheit eða áform um nægilega
aukningu eiginfjár,, sem dugi til
þess að það sé forsvaranlegt að
•eggja enn fram fjárhagslegan
stuðning frá ríkinu, svo hægt verði
að halda rekstrinum áfram,“ sagði
Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra,
er hann var spurður hver afstaða
þingflokks Alþýðuflokksins væri til
þessa máls.
Steingrímur J. Sigfússon, sam-
gönguráðherra, sagði það ákveðið
að ríkisstjómin leiddi Amarflugs-
málið til lykta á fundi sínum á
morgun. Hann kvaðst efins um að
tillaga Steingríms Hermannssonar,
forsætisráðherra, um afskrift á 150
milljóna króna skuld Arnarflugs og
200 milljóna króna láni yrði sam-
þykkt.
Togarar moka upp þorski
MJÖG góð þorskveiði hefur verið
við Suðausturland að undan-
förnu, að sögn Þorbjörns Sig-
urðssonar, skipstjóra á togaran-
um Sólbergi OF. Þorbjörn sagði
í samtali við Morgunblaðið að
hann hefði fengið þar 150 tonn,
þar af 140 tonn af um góðum
þorski, frá síðastliðnu föstudags-
kvöldi til hádegis á þriðjudag.
Þorbjöm sagði að undanfama
daga hefðu 10 til 15 skip verið á
þorskveiðum á svæðinu frá Skrúð
og suðurundir Fót. „Þetta er slóðin
sem loðnan gekk yfir og þorskurinn
er í afganginum af henni," sagði
Þorbjöm Sigurðsson. Hann sagði
að einnig hefði fengist mjög góður
þorskur, 2,60 til 2,70 kg, á Látra-
grunni og í Víkurál að undanfömu.