Morgunblaðið - 16.03.1989, Blaðsíða 37
em MtAfc .»!■ .fc.t>AGtJfVfMri aia/uidxuaflOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1989
37
Forgangur skattkrafiia falli niður:
Styrkja ber réttarstöðu borgara
- segir Sólveig Pétursdóttir
Sólveig Pétursdóttir (S/Rvk) mælti nýverið fyrir þingmannafrum-
varpi, þess efiiis, að felld verði úr lögrim um staðgreiðslu opinberra
gjalda og lögum um virðisaukaskatt ákvæði um forgang þeirra
skattkrafiia, sem lög þessi fjalla um, í þrotabúum og skuldafrá-
göngubúum.
Skuldafrágöngubú eru dánarbú,
sem sætir ópinberum skiptum, þar
sem erfingjar taka ekki á sig ábyrgð
á skuldum þess.
Sólveig vék fyrst að því að reglur
um skuldaröð hafi fyrst verið lög-
festar með lögum nr. 3/1878.
„Reglur þessar stóðu óbreyttar
fram að setningu laga nr. 32/1974,
en með þeim komu nýjar reglur um
skuldaröð."
Sólveig sagði að með hinum nýju
lögum hafi reglur um skuldaröð
ekki aðeins verið einfaldaðar, held-
ur hafi forgangsréttarkröfum við
búskipti fækkað mikið. Orðrétt
Jóhanna Sigurðardóttir
Húsbréfafrumvarp — stjórnarfrumvarp:
Húsbréf 70% söluandvirðis
Lánsréttur ekki bundinn aðild að lífeyrissjóði
Margumtöluðu stjórnarfrumvarpi til breytinga á lögum um
Húsnæðisstofiiun ríkisins — húsbréfafrumvarpinu — var dreift á
Alþingi í gær. Frumvarpið felur annars vegar í sér breytingar á
gildandi reglum um lánaúthlutun í gildandi húsnæðislánakerfí og
hins vegar nýtt fyrirkomulag: húsbréfamiðlun.
Kaup lífeyrissjóða á
skuldabréfum
Breyting á núverandi kerfi
í greinargerð segir að breyting-
ar á gildandi kerfi séu þrenns
konar:
1) Að lán til einhleypra verði
67% af lánsupphæð hjóna eða
sambýlisfólks, en lánsfjárhæð er
ein og söm nú.
2) Lán til umsækjenda, sem eiga
íbúð fyrir, verður 49% af láni
þeirra sem kaupa eða byggja í
fyrsta sinni. Lánahlutfall viðkom-
andi nú er 70%.
3) Skerða má lán með hliðstæð-
um hætti ef umsækjandi á álíka
mikla eign annarskonar en í íbúð-
arhúsnæði.
Húsnæðissto&iunar
Frumvarpið gerir ráð fyrir því
að kaupskylda lífeyrissjóða lækki
úr 55% í 47% af ráðstöfunarfé
þeirra. Þeir geta uppfyllt samning
um skuldabréfakaup af Húsnæðis-
málastofnun að hluta með kaupum
á húsbréfum.
Ráðherra setur reglugerð til
tveggja ára í senn um skiptingu
skuldabréfakaupa milli húsbréfa
og annarra skuldabréfa af Hús-
næðisstofnun.
Þannig er „gert er ráð fyrir að
lífeyrissjóðirnir verði virkir kaup-
endur á húsbréfamarkaði“.
Húsbréfakerfið
í stað beinna lána frá Bygging-
arsjóði ríkisins til kaupa á eldri
íbúðum býðst sjóðurinn til að
kaupa fasteignaveðbréf, sem gefm
verða út í tengslum við fasteigna-
viðskipti, og innleysi þau með nýj-
um bréfum, húsbréfum, frá Bygg-
ingarsjóði ríkisins. Þessi bréf, sem
vera eiga markaðshæf, geta num-
ið allt að 70% af söluandvirði eign-
ar og að hámarki 70% af bruna-
bótamati að teknu tilliti til
áhvílandi lána.
Lánsréttur eða réttur til að
skipta á skuldabréfum fyrir hús-
bréf verði almennur og ekki bund-
inn aðild að lífeyrissjóði eða eign-
arhaldsformi, „því að hin raun-
verulega fjármögnun gerizt með
frjálsum viðskiptum með húsbréf".
Þá segir í greinargerð að dregið
verði úr þvinguðum lánveitingum
lífeyrissjóðanna til húsnæðiskerf-
isins, eða þær afnumdar að fullu,
a.m.k. þegar fram í sækir.
Nýbyggingarlán verða óbreytt
fyrst um sinn, en stefnt er að því
að lækka þau verulega eftir því
sem húsbréfamarkaðinum vex
fiskur um hrygg.
sagði þingmaðurinn:
„Eins og segir í greinargerð þá
var breyting þessi í anda löggjafar-
stefnu sem gætt hefur víðast hvar
á Vesturlöndum og hefur í auknum
mæli tekið tillit til sjónarmiða um
jafnræði kröfuhafa, einkum með
fækkum forgangskrafna.
Með þessum lögum nr. 32/1974
sem breyttu skiptalögunum munaði
mestu að forgangsréttur skatt-
krafna og annarra krafna ríkis og
sveitarfélaga var algerlega lagður
af. Þetta löggjafarsjónarmið kemur
skýrt fram í athugasemdum með
frumvarpinu, sem mælti fyrir um
þessar breytingar . . .“
Þetta var skýr vilji löggjafans,
sagði Sólveig, en „síðan hefur það
gerzt að andstæðum ákvæðum hef-
ur að því er virðist verið „bætt“ inn
í lögin um staðgreiðsluna og virðis-
aukaskattinn, án þess að það hafi
vakið athygli manna að því er bezt
verður séð“. Þingmaðurinn taldi
ekki ólíklegt að embættismenn hafi
talið það kerfinu í hag að ákvæði
sem þessi yrðu lögfest til ýta á inn-
heimtu í ríkiskassann.
Sólveig sagði m.a. í lok ræðu
sinnar:
„Það er álit okkar flutnings-
Sólveig Pétursdóttir
manna að hér sé ekki einungis brýn
nauðsyn á að leiðrétta ónákvæma
lagasetningu, heldur sé hér stórlega
vegið að réttarstöðu þegnanna
gagnvart ríkisvaldinu, sem óþolandi
sé með öllu.“
Afgreiðsla ríkisreikn-
ings bíður Qáraukalaga
Þegar kom að atkvæða-
greiðslu um ríkisreikning 1987
í neðri deild Alþingis í gær fór
formaður Qárveitinganefiidar
fram á frestun hennar. Deildar-
forseti varð við beiðninni.
Ástæða: Fjárveitinganefnd
heiúr enn til skoðunar frum-
varp að Qáraukalögum 1987 og
rangt þótti að afgreiða ríkis-
reikninginn fyrr en umsögn
fjárveitinganefhdar um
fjáraukafrumvarpið liggur fyr-
ir.
Sighvatur Björgvinsson (A/Vf)
formaður fj árveitinganefndar
kvaddi sér hljóðs í neðri deild
þingsins í gær þegar deildarfor-
seti hringdi til atkvæðagreiðslu
um ríkisreikning 1987. Minnti
hann á að frumvarp að fjárauka-
lögum fyrir árið 1987 væri enn
til meðferðar hjá fjárveitinga-
nefnd. Ekki væri rétt að sam-
þykkja ríkisreikning þess árs fyrr
en fyrir liggi afstaða fjárveitinga-
nefndar til fjáraukalaganna, ef
gæta ætti samræmis í störfum.
Við tilmælum hans var orðið og
atkvæðagreiðslu frestað.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson.
Guðni Hjörleifsson
Vestmannaeyjar:
Bíórekstur að
heQast að nýju
Vestmannaeyjum
VESTMANNEYINGAR munu
nú, innan skamms, geta farið
að bregða sér í kvikmyndahús,
i Eyjum, á ný. Ekki hefúr verið
starfrækt bíó í Eyjum sl. 2 ár
en um næstu mánaðamót mun
verða breyting þar á.
Guðni Hjörleifsson, sem tekið
hefur að sér rekstur bíósins, var
að vinna að breytingum og endur-
bótum á húsnæðinu þegar Morg-
unblaðið leit við hjá honum. Sagði
Guðni að hann væri að teppa-
leggja, mála og skipta um stóla
auk þess sem hann ætti von á
nýju dolby-sýningartjaldi og betra
hljóðkerfí. Hann sagðist vera
kominn í góð sambönd við kvik-
myndahúsin í Reykjavík og vonað-
ist því til að geta sýnt nýjustu
myndimar hverju sinni.
Stefnt er að því að endurbótum
á bíóinu verði lokið um páska og
munu sýningar he^ast brátt upp
úr því.
Grimur
Fundur MS-
félags íslands
FUNDUR MS-félags íslands
sem átti að vera í febrúar, en
var frestað, verður haldinn i
kvöld, fimmtudagskvöld 16.
mars, í Hátúni 12, 2. hæð,
klukkan 20.00.
Berglind Guðmundsdóttir kem-
ur á fundinn og ræðir um macro-
biotískt fæði.
Einnig verða önnur mál rædd
á fundinum.
Leiðrétting
VEGNA sjónvarpsþáttar um Lúx-
emborg sem sýndur var í Ríkis-
sjónvarpinu 13. mars 1989 vill
stjórn Þjóðdansafélags Reykjavík-
ur taka fram að þjóðdansahópur
sá sem sýndi á Pullman-hótelinu
15. febrúar síðastliðinn var frá
Þjóðdansafélagi Reykjavíkur og
dansstjómandi var Kolfinna Sig-
urvinsdóttir.
Ekki er til neinn danshópur
Lilju Ásgéirsdóttur, en hún er
formaður félagsins og fór með
hópnum, sem dansari og farar-
stjóri og leiðréttist það hér með.
Árnagarður:
Helgamámskeið
í hugleiðslu
FRÍTT helgarnámskeið í jóga
og sjálfsvitund verður haldið i
Ámagarði við Suðurgötu dag-
ana 17.-19. mars. Námskeiðið
er á vegum Sri Chinmoys-set-
ursins, leiðbeinandi er Ey-
mundur Matthíasson.
Námskeiðinu er skipt niður í
hluta eftir efnisþáttum og í fyrsta
hluta á föstudagskvöld verður
meðal annars fjallað um sjálf-
straust og sjálfsaga. Á laugardag
verða kenndar hagnýtar aðferðir
í hugleiðslu og fjallað um hvemig
skapandi listir geta átt þátt í upp-
götvun sjálfsins. Á sunnudag
verður meðal annars rætt mikil-
vægi íþrótta fyrir andlega og
líkamlega heilsu.
Hægt er að sækja einn hluta
eða alla eftir vild. Nánari upplýs-
ingar í síma 13970 eða 25676.
Allir velkomnir — ókeypis að-
gangur.
Lýsing í
listasöftium
Ljóstæknifélag íslands held-
ur í samvinnu við Listasafii ís-
lands fræðslufund um lýsingu
í listasöfhum. Fundurinn verð-
ur haldinn í dag, fimmtudaginn
16. mars, klukkan 16-18 í húsa-
kynnum Listasafns íslands,
Fríkirkjuvegi 7, Reykjavík.
Fmmmælendur verða: Viktor
Smári Sæmundsson, forvörður,
Listasafni íslands, Garðar Hall-
dórsson, húsameistari ríkisins, og
Daði Ágústsson, framkvæmda-
stjóri Rafhönnunar hf.
Fundarstjóri er Aðalsteinn
Guðjohnsen, formaður Ljóstækni-
félagsins.
Suðureyri:
Bretti hrundu
á fólksbifreið
Suðureyri.
FÓLKSBIFREIÐ varð undir
brettastæðu sem hrundi af
vörubíl, þegar var verið að
landa úr togaranum Elínu Þor-
bj arnardóttur.
Engin slys urðu á fólki, en bif-
reiðin skemmdist talsvert.
- R. Schmidt
Bókasafii Kópavogs:
Edwin Kaber
með sýningu
EDWIN Kaaber sýnir nú í
marsmánuði málverk i Bóka-
safiii Kópavogs. Edwin, sem er
Kópavogsbúi, er áhugamálari,
en hefur sótt námskeið i málun.
Myndimar á sýningunni, sem
em 19 að tölu, era málaðar með
olíupastellitum, acryl, gvass og
vatnslitum síðastliðin tvö ár og
em allar til sölu.
Sýningin er opin á sama tíma
og bókasafnið, mánudaga til
föstudaga klukkan 10-21 og laug-
ardaga klukkan 11-14. Enginn
aðgangseyrir og allir era vel-
komnir.
Fyrirlestur um
visnu og mæði
DR. VALGERÐUR Andrésdótt-
ir flytur í kvöld, fimmtudags-
kvöld, 16. mars, fyrirlestur í
Odda, stofii 101. Fyrirlesturinn
nefiiir hún Erfðir visnu og
mæði.
Á síðustu árum hafa lentiveirur
verið mjög í sviðsljósinu vegna
eyðnisjúkdómsins, sem orsakast
af lentiveirunni HIV.
í fyrirlestrinum verður fjallað
um rannsóknir á erfðaefni visnu
og mæði sem unnið er að á Keld-
um. Greint verður frá samanburði
á erfðaefni ýmissa visnu- og
mæðistofna þar sem í ljós kom
að mikill munur er á erfðaefni
visnu og mæðiveira.
Valgerður lauk BS-prófí í
líffræði frá Háskóla íslands 1972
og doktorsprófí frá Edinborgar-
háskóla 1981. Hún starfar nú sem
sérfræðingur á Keldum.
Miklu stolið
í innbroti
BROTIST var inn i matvöru-
búðina í Grímsbæ í Fossvogi
aðfaranótt þriðjudagsins. Það-
an var stolið tóbaki fyrir um
150 þúsund krónur og um 40
þúsund krónum í peningum.
Þjófamir virðast hafa komist
inn í verslunina með því að aka
bíl á vöruafgreiðsluhurð á austan-
verðu húsinu. Rannsóknarlög-
regla ríkisins vinnur að málinu.