Morgunblaðið - 16.03.1989, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1989
Athugasemdir
við grein biskups
eftirAra Halldórsson
í sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins (þann 12. febrúar sl.) ritar dr.
Sigurbjöm Einarsson, biskup, grein
-^undir fyrirsögninni „Innhverf íhug-
un og heimsfriðurinn" þar sem hann
telur meðal annars að hafa megi
fagn af íhugun ef rétt sé að farið.
msar upplýsingar um Innhverfa
íhugun eru þó á misskilningi byggð-
ar og ber að leiðrétta.
1. Eins og allir vita sem lært
hafa Innhverfa íhugun er ekki um
trú að ræða í neinum skilningi og
iðkun tækninnar byggir ekki á trú-
arlegum forsendum. Innhverf íhug-
un er einföld, huglæg tækni sem
byggir á því sem öllum mönnum
er sameiginlegt eðli hugar og
líkama. Við iðkun Innhverfrar íhug-
unar skapast huglægt ástand sem
einkennist af innri ró og vökulleika.
Þetta á sér lífeðlisfræðilega sam-
svörun, meðal annars í einstæðu
samræmi heilasveifla (EEG) meðan
á íhuguninni stendur og að henni
lokinni (1). Þessi aukna samvirkni
í starfsemi heilans stendur í beinu
sambandi við aukinn árangur iðk-
enda tækninnar á prófum sem
mæla greind, minni, sköpunargáfu
og siðferðisþroska (2). Það er með-
al annars slík atriði sem átt er við
þegar talað er um „hærra vitundar-
stig“ einstaklinga og að það sé for-
♦ílenda aukins friðar í heiminum.
Innhverf íhugun er iðkuð af millj-
ónum manna um allan heim sem
eru ólíkrar trúar. í þeim hópi er að
finna kristið fólk, kaþólska sem
lútherska presta, fólk sem er mú-
hameðstrúar, búddatrúar eða
hindúatrúar. Þetta fólk á það sam-
NÝLEGA fór fram doktorsvöm
'*íð Tækniháskólann í Þránd-
heimi í Noregi þar sem Norðmað-
ur varði doktorsritgerð um eigin-
leika kísiljámkerfisins.
Höfuðandmælandi við vöraina
var dr. Þorsteinn Ingi Sigfusson
eðlisftæðingur við Háskóla ís-
lands en við Háskólann hafa ver-
ið stundaðar rannsóknir á kísil-
járni í samvinnu við íslenska
járablendiféiagið undanfarin ár.
í samtali við Morgunblaðið frá
Þrándheimi sagði Þorsteinn að
eiginlegt að fá einstæða líkamlega
hvfld þær tuttugu mínútur sem
íhugunin varir að morgni og aftur
síðari hluta dags (3). í líkama þess-
ara iðkenda Innhverfrar íhugunar
losnar um spennu og streitu sem
skilar sér í aukinni starfsorku,
lífsgleði og árangri í daglegu lífí.
Þeir sem iðka tæknina vita að hún
er heilsusamleg og hefur ekkert
með trú að gera.
2. Dr. Sigurbjöm staðhæfir að
þau hljóð eða „möntrur" sem notuð
eru við iðkun Innhverfrar íhugunar
séu „nöfn á indverskum guðdómi".
Þetta er rangt. Innhverf íhugun
byggir á því að veita huganum
reynslu af hljóðum stigum hugsana
og til þess eru notaðar tilteknar
hugsanir eða hljóð sem hafa þann
meginkost að hafa enga merkingu.
Möntrumar eru hljóð án merkingar
sem valin eru vegna hljóðáhrifa
sinna. Þessi áhrif eru uppbyggileg
fyrir hugann og líkamann. Það sam-
ræmi í heilasveiflum sem myndast
með réttri notkun þessara hljóða á
sér ekki stað ef einhver önnur hljóð,
valin af handahófí eru notuð.
3. Innhverf íhugun byggir á æva-
fomri þekkingu sem varðveist hefur
óslitið fram á okkar dag innan veda-
hefðarinnar á Indlandi. Þegar Inn-
hverf íhugun er kennd framkvæmir
kennarinn tveggja til þriggja
mínútna athöfn, þar sem minnst er
helstu fulltrúa þessarar hefðar frá
öndverðu. Athöfnin er ekki trúar-
legs eðlis og sá sem Iærir tekur
ekki þátt í henni. Tilgangur athafn-
arinnar er að viðhalda órofa tengsl-
um kennarans við uppruna tækn-
innar þá hefð sem hún á rætur f.
Með því móti eru minni líkur á að
tæknin glatist í tfmans rás. Athöfn-
ánægjulegt væri fyrir Háskóla ís-
lands að vera beðinn um þetta hlut-
verk en Háskolinn hefur aðeins lagt
stund á þessar rannsóknir síðastlið-
in fjögur ár. Það væri ef vil vill
sönnun þess að íslendingar væru
fljótir að tileinka sér þekkingu og
tækni með rannsóknum. Samstarf
Háskóla íslands og Jámblendifé-
lagsins hefur orðið til þess að sum-
ar tækninýjungar hafa veirð teknar
upp hér á landi fyrr en í Noregi
þótt Norðmenn séu mjög framar-
lega á þessu sviði.
in og notkun hljóðanna er rækilega
útskýrð á undirbúningsfyrirlestri
sem öllum stendur opinn og haldinn
er áður en kennsla fer fram. Það
er því rangt að yfir þessu hvíli ein-
hver leynd.
4. Einn rótgrónasti misskilningur
á eðli og tilgangi íhugunar er sú
hugmynd að til þess að bytja
ástundun hennar þurfi svo og svo
mikinn þroska eða „hollan innri við-
búnað" eins og það er orðað í grein
dr. Sigurbjöms. Innhverf íhugun
er til þess að auka alhliða þroska.
Nýlega birtist í einu þekktasta
læknatímariti Bandaríkjanna,
„Psychosomatic Medicine", rann-
sókn sem staðfesti að iðkendur Inn-
hverfrar íhugunar em að jafnaði
mun heilbrigðari en aðrir (4). Skýr-
inganna er m.a. að leita í því að
„innri viðbúnaður" líkamans, við-
gerðar- og ónæmiskerfi hans, ná
hámarks virkni við þá djúpu hvfld
sem íhúgunin veitir.
5. Dr. Sigurbjöm minnist á áætl-
un sem kynnt var hér á landi um
að kenna nægilega mörgum íslend-
ingum svonefnt „sidhi-kerfi" til
þess að hafa áhrif á efnahagsvanda
þjóðarinnar. Á sínum tíma var talið
að það mundi kosta um 60 milljón-
ir króna. Þetta var áður en núllin
tvö hurfu aftan af krónunni svo að
í dag samsvarar þessi upphæð ein-
ungis um 6,5 milljónum króna.
Áætlunin byggði á þeirri kenningu
Maharishi að efnahagslegur vandi
þjóða eigi sér ekki efnahagslegar
orsakir, heldur endurspegli hann
fyrst og fremst ósamræmi þjóðar-
vitundarinnar, þ.e.a.s. ósamræmi í
vitund þeirra einstaklinga sem þjóð-
ina mynda. Því miður var áætlunin
ekki framkvæmd.
Dr. Þorsteinn Ingi Sigfusson.
Maharishi
„Eins og- allir vita sem
lært hafa Innhverfa
íhugnn er ekki um trú
að ræða í neinum skiln-
ingi og iðkun tækninn-
ar byggir ekki á trúar-
legum forsendum.“
6. Maharishi telur að þjóðfélags-
ástand hvers lands endurspegli ná-
kvæmlega samstillingu þjóðarvit-
undarinnar. Þetta á auðvitað jafnt
við um Indland og önnur lönd.
Þekkinguna á Innhverfri íhugun og
Sidhi-kerfinu hefur hann orðið að
kynna frá grunni á Indlandi (þar
sem hann er nú búsettur) lfld og
hér á Vesturlöndum.
7. Dr. Sigurbjöm Einarsson telur
að fríðurinn í heiminum eigi langt
í land. Um það má auðvitað deila.
Það er hins vegar margt fleira en
minni spenna í samskiptum stór-
veldanna sem bendir til aukins frið-
ar í heiminum. Árið 1988 var ein-
stakt friðarár. Eins og menn muna
var samið um vopnahlé í hinu skæða
stríði trúarfylkinga í íran og írak.
Sovétríkin ákváðu að draga heri
sína til baka frá Afganistan og víet-
namskir hermenn fóru frá Laos og
Kambódseu. Líbýa lýsti yfír enda-
lokum Chad-stríðsins. Kúbumenn
bjuggu sig til brottfarar frá Angóla
og Suður-Afríkumenn frá Namibíu.
í Nicaragua varð einnig friðvæn-
legra. í leiðara Dagblaðsins í janúar
síðastliðnum segir Jónas Kristjáns-
son: „Reiknimeistarar hafa skýrt
frá, að blóðugum ófriðarbálum á
hnetti mannkyns hafi fækkað eða
sé að fækka úr 26 í 14 í fyrra og
í upphafi hins nýja árs.“ Á fundi
með blaðamönnum fyrir nokkrum
árum, þar sem Maharishi var að
gera grein fyrir því að heimsfriður
yrði óhjákvæmilegur vegna aukinna
samstillingaráhrifa um allan heim,
spurði blaðamaður hvenær það
mundi gerast, þá svaraði Maharis-
hi: „Það komið þið blaðamenn til
með að segja mér!“ Á nýliðnu ári
gat að líta algerlega nýja tegund
fyrirsagna á forsíðum heimsblað-
anna: „Ó, hvflkur friðarheimur!"
stóð á forsíðu Economist þann 30.
júlí, „Friður breiðist út um allan
heim“ stóð í fyrirsögn Wall Street
Journal þann 29. júlí og Newsweek
birti fyrirsögn með stríðsletri 2.
janúar síðastliðinn: „Ár krafta-
verka“, „Árið sem friðurinn braust
út“.
Að lokum þetta: Áætlun Mahar-
ishi til að skapa heimsfrið byggist
meðal annars á því að mennta eins
marga og mögulegt er í iðkun Inn-
hverfrar íhugunar og Sidhi-kerfis-
ins, þar sem iðkendurnir hafa gífur-
leg samstillingaráhrif á umhverfið.
Iðkun Sidhi-kerfisins í hópum sem
telja þúsundir manna er einsdæmi
í mannkjmssögunni. Hvort menn
svo trúa því að þessir hópar hafi
áhrif á friðinn í heiminum skiptir
harla litlu máli hjá þeirri staðreynd
að friðurinn „brýst út“ og lætur
engan ósnortinn.
Það verður að bíða betri tíma að
útskýra í smærri atriðum í hveiju
samfélagsleg áhrif Innhverfrar
íhugununar eru fólgin og hvemig
menn geta fullyrt svo mikið um
þau. Hjá íslenska íhugunarfélaginu
sem lögum samkæmt er ópólitískt
og ótrúarlegt félag, er hægt að fá
allar skýrslur og rannsóknir sem
þetta varðar.
Hcimildin
1. M.C. Dillbeck og E.C. Bronson,
„Short-Term Longitudinal Effects of the
Transcendental Meditation Technique on
EEG Power and Coherence,“ International
Joumal of Neuroscience (1981):
147-151.
Banquet, J.P. „EEG and Meditation,"
Electroencephalography and Clinical
Nerophysiology, Vol. 33,00.449—458,
1972.
2. M.C. Dillbeck, D.W. Orme-Johnson og
R.K. Wallace, „Frontal EEG Coherence,
H-Reflex Recovery, Concept Learning and
the TM-Sidhi Program," Intemational Jo-
umal of Neuroscience 15 (1981):
151-157.
3. M.C. Dillbeck og D.W. Orme-Johnson,
„Physiological Differences Between Trans-
cendental Meditation and Rest, „American
Psychologist 42 (1987): 879-881.
4. D.W. Orme-Johnson, „Medical Care
Utilization and the Transcendental Medit-
ation Program", Psychosomatic Medicine
49 (1987): 493-507.
Höfundurinn er kennari i Inn
hverfri íhugun.
Spunanámskeið
í Kramhúsinu
ANNE Kristíne Tischendorf frá
Noregi og Martin Kloft frá Dan-
mörku halda spunanámskeið í
Kramhúsinu dagana 17. mars til
2. aprfl.
Anne Kristine lærði dans og
spunavinnu í Noregi og Hollandi
og er útskrifuð frá „School for New
Dance Development“ í Amsterdam.
Martin Kloft er menntaður
iþróttakennari, en hefur undanfarin
ár unnið með kvikmynd og mynd-
band í tengslum við dans og leikhús.
(Úr fréttatilkynningu)
íslendingnr andmælir
doktorsvörn um kísiljárn
RAUÐARÁRSTÍG 18 Sími 623350
JJ0TBL UjW
kr.
Ljúffengir pastaréttir meó súpu, brauði og
kaffi á aöeins 490 kr.
Frítt fyrir börn innan 6 ára aldurs og
hálft gjald fyrir börn innan 12 ára.
Slepptu eldamennskunni af og til og
líttu inn í Lindina.
Þar færöu fullkomna máltíð á frábæru veröi.
Hótel Lind er staóur fyrir alla fjölskylduna.
i