Morgunblaðið - 16.03.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1989
Eitt horn eða tvö?
Leiklist
Friðrika Benónýs
Leíkfélag Menntaskólans við
Hamrahlíð:
Nashyrningar
Höfundur Eugéne Ionesco
Þýðandi Erna Geirdal
Leikstjóri Andrés Sigurvinsson
Búningar Rósberg G. Snædal
Grímur Hera Ólafsdóttir
Leikmynd Magnús Loftsson
Ljósameistari Alfreð S. Böðv-
arsson
Tónlist Hilmar Orn Hilmarsson
og Óli Jón Jónsson
Leikfélag Menntaskólans við
Hamrahlíð ræðst ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur með því
að setja upp Nashymingana eftir
Ionesco. Þetta magnaða verk þar
sem alvaran og fáránleikinn tog-
ast á og háðið kraumar í grafal-
varlegri dæmisögu um örlög
síðasta mennska mannsins á jörð-
inni.
Nashymingamir vora fyrst
settir á svið í París 1960 og hafa
síðan verið sýndir víða um lönd í
ýmsum útfærslum. í uppsetningu
Leikfélags MH hefur leikstjórinn
valið þá leið að stílfæra persón-
umar og láta Berenger vera eina
„venjulega" manninn allt frá upp-
hafí. Ahorfandinn veit allan
tfmann að hann mun ekki breyt-
ast í nashyming einsog hinir,
hann er utangarðs og nær ekki
sambandi við aðrar persónur,
jarðbundinn og feiminn. Sigurður
H. Pálsson túlkar hann á hófstillt-
an og næman hátt og era hann
og Benedikt Erlingsson, sem leik-
ur Jón, að öðram ólöstuðum
stjömur kvöldsins. Framsögn
þeirra er skýr og leikurínn sann-
færandi og þeir ná báðir að skapa
eftirminnilegar og heilar persón-
ur.
Aðrir leikendur standa sig einn-
ig með ágætum, einkum Magnús
Jóhann Guðmundsson í hlutverki
Botards. Breki Karlsson og Anna
Sóley Þorsteinsdóttir era dálftið
óöragg í hlutverkum Dudards og
Daisyar, en skila þó sínum hlut
áfallalaust. Önnur hlutverk era
smærri, svipmyndir fremur en
persónur en kostulegir búningar
Rósbergs G. Snædals undirstrika
sérkenni hverrar persónu fyrir sig.
Litagleðin og hugarflugið era alls
ráðandi í búningunum og leggur
það sitt að mörkum til að gera
sýninguna líflega og skemmtilega
á að horfa. Tónlist Hilmars Amar
Hilmarssonar og Óla Jóns Jóns-
sonar er markviss og skemmtileg
og fellur vel að anda verksins og
leikmynd Magnúsar Loftssonar
er hugvitsamleg og falleg. Andrés
Sigurvinsson, leikstjóri, leggur
áherslu á að virkja áhuga og leik-
gleði Ieikendanna, þeir era allir
þátttakendur allan tímann, dreifð-
ir út um sal, eða sprangandi um
sviðið. Áhuginn og krafturinn
skila sér til áhorfenda sem
skemmta sér konunglega um leið
og vaktar era upp áleitnar spum-
ingar um einstaklinginn og hóp-
sálina, hugsjónir og flokkaveldi.
Og með gleði og þakklæti f huga
gengur áhorfandinn út í vetrar-
myrkrið með þá ósk f bijósti að
þessir kraftmiklu og skapandi
unglingar verði ekki að nashym-
ingum þegar þeir eldast.
snyrtivörukynning
í Kaupstað í Mjódd í dag kl. 14-19.
Förðunarfræðingur á staðnum.
CoverGirl-umboðið, sími 688660.
ÚTSAIA
á kuldaúlpum og skíðaanórökum.
Helmings afsláttur.
Don Cano-búðin,
Glæsibæ, sími 82966.
Nýtt -Nýtt
Páskavörurnar eru komnar.
Glæsilegt úrval.
Glugginn,
Laugavegi 40 (Kúnsthúsinu).
hetst í rlgqkl. 13.00
Opið daglega kl. 13-18. Laugardaga kl. 10-16.
prr || |K | SkóverslunKópavogs, |U
LlJ V/1 >1 Hamraborg 3, sími 41754.
//
HI
v/Laugalæk, sími 33755.