Morgunblaðið - 16.03.1989, Síða 16
16
MQRGUNBLAÐIÐ FJMMTUDAGUJR lfi. .MARZ.1989
„Pianókonsert Beethovens
afar ljóðrænn og fallegur“
— segir Gísli Magnússon, píanóleikan
Gísli Magnússon verður einleikari á elleftu áskriftar-
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói í
kvöld. Að þessu sinni spilar Gísli Píanókonsert nr. 4
eftir Beethoven, en það er einmitt liður í dagskrá hljóm-
sveitarinnar í vetur að flytja alla píanókonserta Beet-
hovens, fímm að tölu.
Gísli Magnússon
Gísli er fæddur á Eskifirði
1929, og ólst þar upp til 10 ára
aldurs. Hann er sonur hjónanna
Magnúsar,Gíslasonar og Sigríðar
Jónsdóttur. Hann segir að tónlist-
aráhuginn hafi vaknað snemma
hjá sér enda hafi verið bæði píanó
og upptrekktur grammófónn á
heimilinu. Gísli segir glettnislega
frá því að þegar hann var þriggja
ára gamall hafi hann verið spurð-
ur að því hvað hann vildi verða
þegar hann yrði stór — hann hafi
svarað því til að hann vildi verða
grammófónn. Síðan flutti fjöl-
skyldan til Reykjavíkur, en þá hóf
hann nám hjá Rögnvaldi Sigur-
jónssyni. Einnig sótti hann tíma
hjá Ama Kristjánssyni.
Hefur spilað 17 sinnum
með
Sinfóníuhljómsveitinni
Um tvítugt fór Gísli til Ziirich
í Sviss og var þar við nám í píanó-
leik í 3V2 ár. Að því loknu var
hann um átta mánaða skeið við
nám í Róm. Það var síðan árið
1951 að Gísli hélt sína fyrstu tón-
leika á íslandi, en þeir voru haldn-
ir á vegum Tónlistarfélagsins.
Þessir tónleikar voru haldnir í
Austurbæjarbíói, en þá hafði
Austurbæjarbíó tekið við af
Gamla Bíói sem tónleikasalur.
Spyijanda lék forvitni á að vita
hvort einhver tónskáld væru í
uppáhaldi hjá Gísla frekar en önn-
ur. Hann sagðist alltaf vera mjög
hrifinn af þeim höfundi sem hann
væri að fást við hveiju sinni, en
eftir umhugsunarfrest viður-
kenndi hann þó að sér fyndist
Bach, Mozart og Stravinsky mest
heillandi. Enda hefur hann flutt
konserta eftir þá alla opinberlega.
Gísli hefur töluvert komið fram
opinberlega. Honum taldist til að
einungis með Sinfóníuhljómsveit-
inni hefði hann komið fram 17
sinnum. Hann hefur unnið mikið
í samvinnu við Gunnar Kvaran,
meðal annars fóru þeir í tónleika-
ferð til Norðurlandanna 1974.
Árið 1979 fóru þeir svo saman til
New York, og héldu tónleika í
Camegie Hall. Nú upp á síðkastið
hefur hann komið fram nokkrum
sinnum með Halldóri Haraldssjmi.
í fyrra léku þeir til dæmis saman
á áskriftartónleikum Sinfóníu-
hljómsveitarinnar verkið Konsert
fyrir 2 píanó „Midi" eftir Jónas
Tómasson.
Lærdómsríkt
að stjórna tónlistarskóla
Eins og flestir tónlistarmenn
er Gísli einnig tónlistarkennari.
En hann er meira en það, hann
er skólastjóri Tónlistarskólans í
Garðabæ. Hann tók við því starfí
1984, en um þær mundir flutti
skólinn í rúmgott húsnæði. Við
skólann eru nú skráðir hátt í 300
nemendur, og kennarar eru 32
talsins. Gísli sagði að hann hefði
gaman af að umgangast ungt
fólk, og þótt starfíð væri kre-
ij'andi, þá væri það lærdómsríkt
engu að síður. Hann segir það
hvatningu fyrir sig að umgangast
þá sem em að stíga sín fyrstu
spor á tónlistarbrautinni.
Hann sagði að það hefði kostað
mikla vinnu að undirbúa þessa
tónleika því Píanókonsert nr. 4
hefði hann ekki flutt opinberlega
áður. Vonandi gefst þó einhvemt-
ímann tækifæri til þess aftur, því
að sögn Gísla er þetta mjög
skemmtilegt verk. Konsertinn er
saminn árið 1805, eða áður en
Beethoven fer að missa heym, og
er afar ljóðrænn og fallegur.
Frábrugðinn öðrum
píanókonsertum
Beethovens
Píanókonsert nr. 4 er saminn á
svokölluðu öðm tímabili af þremur
í ævi Beethovens. Hann er mjög
ljóðrænn og frábmgðinn öðmm
konsertum tónskáldsins. En auk
þess sem Beethoven samdi píanó-
konsertana fimm, þá samdi hann
einnig 32 píanósónötur, og auk
þess fjölda af tilbrigðaverkum og
bagatellum. Á þessum tíma var
píanóið afskaplega vinsælt hljóð-
færi, og þar sem það var í örri
þróun — búið var að víkka út
hljómborðssvið þess — var eðlilegt
að Beethoven skyldi einmitt semja
svo mikið fyrir píanó sem raun
bar vitni. Enda var Beethoven
sjálfur góður píanóleikari og vann
í upphafi fyrir sér sem slíkur.
Höfundurinn, Rafn Jónsson, er
blnðafulltrúi Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar.
Nú gefst einstakt tækifæri til kaupa á góðum skóm.
Þetta eru vandaðir leðurskór í stærðum frá 361/2 -401/2.
Litirnir eru: Hvítt, svart, rautt og blátt.
Verðið er ótrúlegt; kr. 1690,- parið.
3-
Djyx
ytllKUG4RDUR
MARKAÐUR VID SUND
KAUPSTAÐUR
ÍMJÓDD
Búðardalur:
Dalverk hf.
Búðardal.
DALVERK HF. í Búðardal hefúr
farið frarn á gjaldþrotaskipti hjá
skiptaráðandanum í Dalasýslu.
Skuldir fyrirtækisins vom orðnar
talsvert umfram eignir. Ýmissa leiða
hefur verið leitað til að reisa við
rekstur fyrirtækisins, en þær hafa
ekki borið árangur.
Hjá Dalverk hf. störfuðu að jafh-
gjaldþrota
aði 4—5 manns. Atvinna hér hefur
dregist saman og em 6—7 manns
fyrir á atvinnuleysisskrá í Laxárdal.
Dalverk rak bifreiðaverkstæði og
varahlutaþjónustu og allt sem svona
rekstri fylgir. Fyrirsjáanlegt er að
þessa þjónustu verður nú að sækja
í Borgames eða í Gmndarfjörð.
- Kristjana
Skrifstofutækninám
Betra verð - einn um tölvu
Tölvuskóli íslands
S: 67 14 66
Litlu risarnir þvottavél og þurrkari,
fýrir fjölbýlishús og vinnustaði
SUNDABORG 1 S. 688588-688589