Morgunblaðið - 16.03.1989, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1989
VOLKSWAGEN
1989
M. AJFLSTÝKI
BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG
IhIHEKIAHF vtiu> nt
f'* " Laugavegi 170-172 S.mi 695500 |{J|_ 865.000.-
Skurðgröfuvinnu-
brögð duga skammt
bæjarstjóri góður
Lokasvar vegna athugasemda Kristjáns
Guðmundssonar bæjarstjóra Kópavogs
FERDAHÁ TÍD
nTCCKVTKC
v gleðidagskrá með
ri léttúð og lausung!!
Gleði- og gáskadrottníngin EJsa Lund riður á vaöið og laetur gamminn geysa ásamt flokki valinkunnra
gleðimanna í skammdegissprengju ársins. Sérstakjr gestir okkar heittelskufkr^Elsu eru m.a. galsa-
bræðurnir Halll og Laddi; raltæknirinn og stuögjafinn Skúli Amper OhmárssorttSmari „sjarmör"
Sjutt, skóari; Magnús. jjöndi; Valgeröur Meller og Leifur óheppni. .
Undir og yfir og allt lim kring er svo stórsöngvarinn og feröagrínarinn Egill Ófafsson ásamt hinni
tón- og söngelsku hljómSVeit Magnúsar Kjartanssonar. Og síðast en ekki sist: gleðigjafinn Nadia
Banine. Stjórnandi og sperinygjafi: Eglll Eðvarösson.
v' Þríréttuö veislumáltíó að haetti Elsu Lund. Húsiö Opnat kl. 19.00. ..
V Boröapantanir daglega í simum 23333 og 23335...—r Elsat iíöetra er aö gripa s/ma 1 -
Enginn býður betur en Þórscafé í vetur.
eftirSigurð
Helgason
Þann 7. mars sl. birtist í Morgun-
blaðinu furðuleg grein eftir bæjar-
stjórann, þar sem hann forðast
málefnalegar umræður, en reynir
þess í stað á gróflegan hátt að
sverta mannorð undirritaðs. Er
greinilegt að bæjarstjórinn gerir sér
ekki grein fyrir að hann á að koma
fram sem virðulegur embættismað-
ur, en þess í stað svarar hann með
dylgjum og skætingi líkt og lélegur
stjómmálamaður með gjörtapaðan
málstað.
Um hvað er deilt?
í stuttu máli þá kærðum við feðg-
ar málsmeðferð bæjaryfirvalda
Kópavogs til Félagsmálaráðuneytis.
En byggingamefnd Kópavogs hafði
samþykkt stórhýsi við Sunnubraut
54 sem var í engu samræmi við
skipulag hverfisins og nær allir íbú-
ar þar höfðu mótmælt, svo og út-
hlutaði bæjarráð einhliða viðbótar-
Ióð úr grænu útivistarsvæði, en
mótmælum okkar var ekki svarað.
Kröfur okkar í kærunni vom: 1)
Að framangreind samþykkt bygg-
ingamefndar verði felld úr gildi og
allar framkvæmdir stöðvaðar. 2)
Að lagt verði fyrir bæjarstjóm
Kópavogs að leggja erindi um
stækkun lóðarinnar Sunnubraut 54
um 5 metra í vestur fyrir skipulags-
stjóm ríkisins.
Félagsmálaráðuneytið leitaði
umsagnar skipulagsstjómar ríkis-
ins og byggingamefndar. Var síðan
kveðinn upp af félagsmálaráðherra
og ráðuneytisstjóra svofellt ÚR-
SKURÐARORÐ: „Byggingarleyfi á
lóðinni nr. 54 við Sunnubraut, sem
samþykkt var í byggingamefnd
þann 13. okt. sl. er fellt úr gildi."
Jafnframt var lagt fyrir bæjarstjóm
Kópavogs að leggja fram deiliskipu-
lag fyrir umrætt svæði, eins og
skipulagslög gera ráð fyrir. Kröfur
okkar voru því að öllu leyti teknar
til greina.
Dylgjum bæjarstjóra svarað
1. Sýnd er í umræddri grein af-
stöðumynd af deiliskipulaginu, en
hann setur sjálfur inn nýtingartölur
og segir hana o.4—0.5 fyrir Sunnu-
braut 54. En í umsögn skipulags-
stjómar ríkisins segir orðrétt. „Það
verður að teljast vafasamt að
byggja 655 fm einbýlishús á 936
fm lóð. Nýting verður 0.7, en með-
Tjöld
Létt og meðfærileg göngutjöld, 1-3
manna, á verði frá kr. 7.990,-
Einnig vinsælu íslensku fjölskyldu-
tjöldin, 3-5 manna, í miklu úrvali.
Við hjálpum við val á réttu tjaldi.
Mundu að ráðleggingar okkar eru
byggðar á reynslu.
-SMRAK FRAMmR
SNORRABRAUT 60 SÍM112045
Sigurður Helgason
„En ég tek undir að ég
tel þennan úrskurð
marka tímamót o g hafí
aukið hróður félags-
málaráðherra og ráðu-
neytis hans.“
an eðlileg nýting einbýlishúss er
0.2—0.4.“ Bæjarstjóri á því að mót-
mæla þessari niðurstöðu þeirra, ef
hann telur að um rangar tölur sé
að ræða, en það þorir hann ekki.
2. Þá segir hann okkur feðga
hafa nýtingarhlutfall 0.49, en við
eigum hvor sitt parhúsið við Þing-
hólsbraut 53A og B. Ég festi kaup
á umræddri eign 1969, en þá er
aðeins helmingur hússins reistur,
en fyrir lá samþykkt teikning fyrir
öllu húsinu. Um lengri tlma gat ég
byggt viðbótarbygginguna án
greiðslu gatnagerðargjalda en mér
fannst það ekki viðeigandi. Það var
svo árið 1982, sem sonur minn Stef-
án og fjölskylda hans byggja sjálf-
stætt parhús svipað að stærð og
leyfð stækkun, en hann greiddi að
sjálfsögðu full gatnagerðargjöld.
Skipulagsyfírvöld Kópavogs fögn-
uðu þessari ákvörðun enda þéttist
byggðin. Hefðum við ásælst græna
útivistarsvæðið, þá tel ég sennilegt
að við hefðum fengið lóðina stækk-
aða.
3. Bæjarstjóri birtir lítinn hluta
úr bréfi mínu til byggingamefndar
sem hann síðan rangtúlkar gróf-
lega. Tekið skal fram að bæjar-
stjóm ber nú að láta kanna af hlut-
lausum aðila, hvort ennþá sé hægt
að hagnýta græna útivistarsvæðið
meðfram Kársnesinu. Komi i ljós
við þessa könnun að vegna m.a.
rangra lóðaúthlutana sé þessi
möguleiki ekki fyrir hendi og skipu-
lagsstjóm ríkisins fellst á þetta
sjónarmið einnig. Þá leyfi ég mér
sem Kópavogsbúi í yfir 20 ár að
sækja um þessa lóð fyrir lítið ein-
býlishús á einni hæð, en mér hefur
aldrei veirð úthlutuð lóð, enda þótt
lóðaumsókn hafi legið inni i 8 ár.
Hún var dregin til baka þegar ég
festi kaup á Þinghólsbrautinni.
4. Kristján gerir mikið úr því
að ég hafí ekki komið tvívegis á
boðaðan sáttafund. Ég man eftir
að við reyndum að hittast einu
sinni, en ljóst var að ég væri mjög
vant við látinn, en ég bjó þá á Seyð-
isfirði. Enginn tími var tiltekinn,
en reynt að stefna að fundi, sem
vegna anna minna gat ekki orðið.
Við höfðum samband skömmu síðar