Morgunblaðið - 16.03.1989, Blaðsíða 29
. .MQRftWff LApifl imfmrmwM-t ,m>
29
Olían á uppleið
London. Reuter.
FAT af olíu frá Brent-vinnslusvæðinu í Norðursjó, sem höfð er til
viðmiðunar i olíuviðskiptum, hækkaði í 17,60 dollara á mörkuðum
í Evrópu í gær og hefur olíuverð ekki verið hærra í 15 mánuði.
Samtök olíuframleiðslurílqa,
OPEC, náðu samkomulagi um
lækkun framleiðslukvóta í október
og hefur verðið verið á uppleið
síðan. Til samanburðar var verð á
fati af Brent-olíu komið niður í 11
dollara í október sl. Olía hækkaði
í verði í gær þegar Saudi-Arabar,
stærsta olíuútflutningsþjóð í heimi,
lýstu því yfir að þeir ætluðu að
draga saman olíuvinnslu enn frekar
en áætlað var. Lækkun oliubirgða
í Bandaríkjunum, bráðabirgða-
stöðvun olíuvinnslu Norðmanna á
Ekofisk-svæðinu í Norðursjó og
fyrirhugaður 30% samdráttur á sölu
óunninnar olíu frá Saudi-Arabíu til
Japans ýtti enn frekar undir verð-
hækkanir.
Ítalía:
Oþarfa tafir í ferþega-
flugi eða mannrán?
Sassari. Reuter.
Reuter
Starfsmaður stórverslunar í Montreal í Kanada átti annasaman dag við að umstafla vínbeijum og öðr-
um ávöxtum frá Chile í gær eftir að kanadíska ríkissljórnin bannaði sölu á þeim. Allt bendir til þess
að önnur mikilvægasta útflutningsgrein Chilebúa verði fyrir gífurlegum skakkaföllum vegna blásýru-
eitrunar sem fannst í chileskum vínberjum í Fíladelfíu í Bandaríkjunum á mánudag.
Blásýrueitrun í ávöxtum frá Chile:
Stöðva útflutning
í þrjá sólarhringa
Santiago, New York. Reuter. Daily Telegraph.
VÍNBER og aðrir ávextir frá
Chile voru Qarlægðir úr versl-
unum í Bandarikjunum og
Kanada á þriðjudag þegar blá-
sýra fannst í chileskum vínberj-
um sem skipað var upp í Fílad-
elfíu í Bandaríkjunum. Samtök
útflytjenda í Chile lýstu því yfir
á þriðjudag að pökkun og út-
flutningur á ávöxtum hefði ver-
ið stöðvuð í þrjá sólarhringa á
meðan unnið væri að rannsókn
málsins. Hernan Felipe Erraz-
uriz, utanríkisráðherra, og Ja-
ime de la Sotta, landbúnaðar-
ráðherra Chile, voru væntan-
legir til Washington aðfarar-
nótt miðvikudags til fundar við
fulltrúa bandaríska matvæla-
og lyfjaeftirlitsins, FDA.
Ávaxtaútflutningur Chilebúa,
sem nemur 600 milljónum Banda-
ríkjadollara á ári, um 31,2 mill-
jörðum ísl. króna, stöðvaðist
skyndilega á mánudag þegar FDA
lýsti því yfir að blásýra hefði fund-
ist í tveimur vínþrúgum í Fílad-
elfíu í Bandaríkjunum. Skömmu
síðar varaði FDA neytendúr við
að leggja ávexti frá Chile sér til
munns. „Við ráðum fólki frá því
að neyta ávaxta sem ekki er vitað
hvaðan eru upprunnir,“ sagði
Frank Young, yfirmaður FDA.
Ríkisstjórn Augusto Pinochets,
forseta Chile, hefur sakað komm-
únistaflokk landsins, sem er bann-
aður, um að standa að baki eitrun-
unum og valda þannig efnahag
landsins ómældum skaða. Tals-
menn kommúnistaflokksins neita
hins vegar að hafa átt hlut að
máli. Leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar fordæmdu verknaðinn og
sögðu hættu á því að holskefla
atvinnuleysis riði yfir þjóðina.
Engin stjórnmálasamtök hafa
lýst sig ábyrg fyrir eitruninni.
Bandaríska sendiráðið í Santiago
var tvívegis varað við eitrunum
af þessu tagi frá því 2. mars síðast-
liðinn.
Rannsóknir leiddu í ljós að eitr-
uðu vínþrúgurnar sem fundust í
Fíladelfíu reyndust innihalda 3
míkrógrömm af blásýru, sem er
langt undir hættumörkum.
I höfuðstöðvum Evrópubanda-
lagsins í Brussel voru aðildarríkin Hong Kong-búar sendu til baka
vöruð við að flytja inn ávexti frá ávaxtafarma sem borist höfðu frá
Chile og Þjóðverjar, Danir og Chile.
ÍTALSKUR lögfræðingur hefur kært Alitalia-flugfélagið fyrir
mannrán sökum tafa er hann varð fyrir á leið heim frá Mílanó
til Alghero á Sardiníu.
Flugvélin tafðist um tvær
klukkustundir á flugvellinum í
Mílanó en í stað þess að lenda í
Alghero var henni beint til Cagl-
iari sökum veðurs. Þaðan varð
lögfræðingurinn, Dino Milia, að
taka áætlunarvagn til Alghero.
Ferðalagið tók alls níu klukku-
stundir en venjulega er flugtíminn
tvær klukkustundir og 20 mínút-
ur.
Að sögn Milia sagði flugmaður-
inn að ekki væri unnt að lenda í
Alghero sökúm þoku en lögfræð-
ingurinn fullyrðir að flugbrautin
og ljósin við hana hafi sést greini-
lega úr flugvélinni. „Þetta kvöld
var ekki ský að sjá á himni,“ seg-
ir hann. Mannránsákæruna
hyggst hann rökstyðja með tilví-
sun til þessa en ekki hefur verið
ákveðið hvort málið verður tekið
fýrir.
Alitalia-flugfélagið hefur sætt
vaxandi gagnrýni að undanfömu
en verkföll og tafir, einkum á flug-
leiðum innanlands, hafa farið
mjög í skapið á viðskiptavinum
þess. í síðustu viku brutust út
slagsmál á Linate-flugvelli í
Mílanó er öskureiðir farþegar á
leið til Rómar réðust á aðra far-
þega, flugvallarstarfsmenn og ör-
yggisverði þegar tilkynnt var, eft-
ir langa bið, að flugið hefði verið
fellt niður.
'AfMÆLISVERÐ
/
I uAG
Kjúklingar frá Alifuglasölunni
1/4 pönnukjúklingur............kf. 160,-
Pönnuborgari...................kl. 120,-
Pönnufiskur....................kr. 90,-
Franskar kartöflur.............kr. 90,-
Salat..........................kf. 25,-
Sósur..........................kr. 25,-
Gos(meðmat).....................kl. 0,-
IPHR
ALIFUGLASALAN sf.
URÐARHOLTI 6 • 270 MOSFELLSBÆR - S 667650
_ NeslifflLarí
puritan maid Arnarbakka 4-6
— transkar kartöílur sími 71500
S.Ósk.ussoiit.Co
Garri hf.^r
KJOn'INNSLAN
Nóatúni 17. 2-72-52
lll.ll I )S \ i \
Franskar kartö
7 ára í daa
SvARTA
PANNAM
Hraórétta veitingastaóur
f Á HORNITRYGGVAGÖTU
OG POSTHÚSSTRÆTIS
SÍMI16480