Morgunblaðið - 16.03.1989, Síða 30
30
MORGU&BIAÐÍÐ FlMMfODAOÚlí /16:. MARZ: 1989
Líbanon:
Beirutbúar
í úlfakreppu
Beirut. Reuter.
Skothríð úr vélbyssum heyrð-
ist öðru hveiju í Beirut í Líbanon
í gær og óbreyttir borgarar voru
við öllu búnir þótt hlé hafi orðið
á stórskotaliðsárásum. Á þriðju-
dag kom í fyrsta sinn til átaka
milli tveggja ríkisstjóma, annars
vegar múslima og hins vegar
kristinna, sem farið hafa með
völd í landinu síðan í september
er þinginu mistókst að kjósa
forseta fyrir alla trúflokka lands-
ins. Við sjúkrahús bandaríska
háskólans í borginni reyndi
hjúkrunarfólk að liðsinna særð-
um; kvalaóp og stunur yfir-
gnæfðu kvein ættingja fómar-
lamba átakanna. 40 féllu og 140
særðust á þriðjudaginn.
Bandaríkin:
Viðskipta-
halli minnkar
Viðskiptahalli Bandaríkjanna
var 9,49 milljarðar Bandaríkja-
dala í janúar og hafði því lækk-
að verulega frá því í desember
er hann var 10,99 milljarðar.
Útflutningur minnkaði um 4,3%
en innflutningur þó enn meira
eða um 6,9%. Viðskiptahallinn
jókst mörg ár í röð og varð
152,12 milljarðar dollara árið
1987 en á síðasta ári lækkaði
hann skyndilega í 119,76 millj-
arða dala.
Kína:
Sovéskt lán
í vændum
Sovétmenn hafa boðið
Kínveijum peningalán á lágum
vöxtum en slíkt hefur ekki gerst
í nær þijá áratugi, að sögn kín-
versks embættismanns í málm-
iðnaði. Soveskur ráðherra, sem
nýlega var í heimsókn í Kína,
bauð Kínveijum sem svarar 126
milljónum Bandaríkjadala (6,5
milljarð ísl.kr.) til að endumýja
jám-og stálsmiðjur í Innri-
Mongólíu. Kínverski embættis-
maðurinn sagði að kannað væri
hvemig féð kæmi að bestum
notum og færi svo að ráðamenn
samþykktu að taka boðinu yrðu
samningar undirritaðir í júní.
Grikkland:
Ráðherra segir
af sér embætti
Aþena. Reuter.
AGAMEMNON Koutsoyorgas, aðstoðarforsætisráðherra Grikklands og
náinn vinur Andreas Papandreous forsætisráðherra, sagði af sér á
þriðjudag. Grískir fjölmiðlar hafa gagnrýnt harðlega framgöngu ríkis-
stjómarinnar í bankahneyksli, sem skekið hefur ríkisstjórn Papandreo-
us um nokkurt skeið. Þetta er í annað sinn sem Koutsoyorgas neyðist
til að segja af sér í ríkisstjóm sósíalista á innan við flórum mánuðum.
í afsagnarbréfi sínu sagði Ko- Koutsoyorgas sagði af sér sem
utsoyorgas að hann hefði stutt máls- dómsmála- og aðstoðarforsætisráð-
meðferð ríkisstjómarinnar varðandi
bankahneykslið og að það væri und-
ir grísku þjóðinni komið að meta
frammistöðu stjómvalda í komandi
kosningum.
Bandaríkin:
Dæmdur fyr-
ir flugrán
Waahington. Reuter.
ÞRÍTUGUR Líbani, Fawaz Yun-
is, hefur verið úrskurðaður sek-
ur um aðild að ráni á jórdanskrí
farþegaþotu árið 1985. Tveir
Bandaríkjamenn vom um borð í
þotunni. Þetta er í fyrsta sinn
sem beitt er í Bandaríkjunum
lögum sem kveða á um réttinn
til að draga erlenda menn fyrir
þarlendan dómstól vegna fiug-
ráns erlendis ef Bandaríkjamenn
em meðal þolenda glæpsins.
Refsing mannsins hefur ekki
verið ákveðin.
Kviðdómur úrskurðaði Yunis sek-
an um samsæri, flugrán og gísla-
töku en sýknaði hann af ákæmm
um árásir á farþega og áhöfn ásamt
aðild að eyðingu þotunnar með
sprengju. Sjálfur sagðist Yunis hafa
litið svo á að hann ætti í stríði þar
sem hann var félagi í Amalsveitum
Shíta-múslima, honum hefði því
borið að hlýða skipunum yfirboðara
sinna. Enginn týndi lífi í flugráninu.
Starfsmenn bandarísku alríkis-
lögreglunnar (FBI) lokkuðu í Yunis
í gildru á Kýpur árið 1987 með því
að segjast vilja ræða fíkniefnavið-
skipti við hann. Manninum var flog-
ið til Washington og hefur síðan
verið í haldi.
herra 11. nóvember á síðasta ári
þegar grískir fjölmiðlar sökuðu hann
um að bera ábyrgð á hvarfi fjár-
glæframannsins George Koskotas
frá landinu. Koutsoyorgas var út-
nefndur aðstoðarforsætisráðherra að
nýju 16. nóvember síðastliðinn þegar
Papandreou gerði breytingar á ríkis-
stjóm sinni í því skyni að auka traust
almennings á henni.
Reuter
Taba-ströndin afhent
Taba-ströndin við Rauðahaf, sem ísraelar tóku af Egyptum árið
1967, var afhent þeim aftur í gær og var myndin tekin þegar
egypski fáninn var dreginn að hún. Hótelið í baksýn reistu Israel-
ar og guldu Egyptar fyrir það sem svarar 1.850 milljónum ísl. kr.
EFTA-fúndurinn í Osló:
*
Island samþykkti loka-
ályktun á síðustu stundu
Vinnuregla um meirihlutavald innan EFTA
Ósló. Frá Krístófer Má Krístinssyni, fróttaritara Morgunblaðsins.
ÍSLENSKA sendinefndin á leiðtogafundi Fríverslunarsamtaka Evr-
ópu (EFTA) hér I Ósló hafði fyrirvara á samþykki við lokaályktun
fúndarins þar til skömmu fyrír blaðamannafúnd í fúndarlok. Byggð-
ist fyrirvarinn á því, að ekki tókst að ná samkomulagi um fríverslun
á fiski innan EFTA fyrr en á skyndifúndi forsætisráðherranna rétt
fyrír blaðamannafundinn. „Ég tilkynnti, að við myndum ekki standa
að yfirlýsingu fúndarins nema frjáls verslun með fisk fengist viður-
kennd,“ sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra.
Að lokum náðist samkomulag um Svía, eftir gagnvart Finnum og
fríverslun með fisk (18. gr. lokaá
lyktunarinnar) með neðanmálsgrein
um gildistöku hennar frá 1. júlí
1990 og fyrirvara Finna vegna
síldar og lax í Eystrasalti. Fyrir 1.
janúar 1993 eiga Finnar að leggja
fram áætlun um afnám sérréttinda
sinna.
Á síðasta stigi málsins gaf Ing-
var Carlsson, forsætisráðherra
Stortonleikar í
Hin frábæra hljómsveit
The Men They Couldn't Hang
í kvöld kl. 23.00.
’TfóiáavenÁ adeivi& f OOO, -
Norðmönnum og hjó þannig á hnút-
inn. Voru Norðmenn orðnir þykkju-
þungir yfir því, að íslendingar
kynnu að eyðileggja fundinn fyrir
Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra sínum.
Fyrirvari veldur
ekki tortryggni
Fyrir utan baráttuna fyrir
fríverslun á fiski, sem staðið hefur
lengi, lagði Steingrímur Hermanns-
son áherslu á það í málflutningi
sínum, að íslendingar gætu ekki
sætt sig við að lúta yfirríkjastofn-
un. í samtali eftir fundinn taldi
hann að fyrirvari af þessu tagi
ætti ekki að gera íslendinga tor-
• tryggilega, þegar þeir taka við for-
England:
Tedrykkju-
hefðin
reyndist
varasöm
London. Reuter.
Tveim breskum fongum,
sem tókst að flýja úr fang-
elsinu en ekki frá breskum
hefðum, voru handteknir á
laugardag við síðdegiste-
drykkju.
Þeim Ian Oppenshaw og
John Corbett var náð í húsi,
sem var í um það bil eins og
hálfs kílómetra fjarlægð frá
Dartmoor-fangelsinu í Devon
á Suðvestur-Englandi. Að
sögn lögreglu fóru fangamir
strax eftir flóttann að húsi og
báðu um bolla af tei. Konan
hellti á ketilinn og hringdi
síðan í lögregluna.
mennsku í ráðherranefnd EFTA
síðar á árinu. Á hinn bóginn hvíldi
þá sú skylda á fulltrúa Islands að
gæta hagsmuna heildarinnar. Hafa
ætti hugfast, að menn bæru hlýjan
hug til Islendinga og þætti gott að
hafa þá svolítið sérstæða og sér-
vitra langt úti í hafi.
Þegar rætt var um fyrirvara ís-
lands við Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra, sem tekur við
formennsku í ráðherranefnd EFTA
síðar á árinu, minnti hann á að
ályktun Óslóar-fundarins hefði ver-
ið samþykkt einróma. íslendingar
ætluðu að taka fullan þátt í umræð-
um um þau atriði, sem þar bæri
hæst svo sem fijálsræði fyrir fjár-
magn, þjónustu, vinnuafl og vörur.
Þeir yrðu einnig fullir þátttakendur
í könnunarviðræðum við Evrópu-
bandalagið (EB) um nýja skipan á
samstarfí EFTA og EB. Á hinn
bóginn væri unnt að minna á fyrir-
vara, ef íslendingum þætti gengið
of langt á einstökum sviðum.
Ný vinnuregla
Utanríkisráðherra sagði að á
EFTA-fundi í Brussel á sunnudag,
sem hann situr, yrði sett fram hug-
mynd um vinnureglu innan EFTA,
er byggðist á því að meirihluti at-
kvæða ráði innan samtakanna en
ríki sem ekki sætti sig við niður-
stöðu meirihlutans geti skorist úr
leik á tilteknu sviði. Almennt mætti
segja að að öll þátttaka í alþjóðlegu
samstarfí fæli endanlegá í sér ein-
hvers konar afsal á fullveldi. íslend-
ingar áskildu sér að draga marka-
línu í þessu sambandi og hún væri
ekki alltaf ljós. Þeir væru til dæmis
ekki reiðubúnir að sætta sig við þær
meirihlutaákvarðanir í EFTA, sem
þem væru ekki sammála.
í lok samtalsins sagði Jón Bald-
vin að Óslóar-fundurinn hefði mark-
að tímamót í tvennum skilning.
Spár um að ágreiningur kæmi í veg
fyrir sameiginlega niðurstöðu hefðu
ekki ræst. 19 ára baráttu íslendinga
fyrir fríverslun með físk hefði lokið
með fullum sigri þeirra.
Jón Baldvin Hannibalsson hélt
frá Ósló í gær með konu sinni
Bryndísi Schram til Kaupmanna-
hafnar, þar sem þau eru í hálf-
opinberri heimsókn þar til á hádegi
í dag, fimmtudag, en fer síðan til
Brussel, þar sem ráðherrann situr
fundi með EFTA og EB fram í
næstu viku.