Morgunblaðið - 16.03.1989, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1989
41
Skólastjóri
misþyrmir
staðreyndum
eftir Gunnlaug
Þórðarson
Frá því að hið gerræðislega sam-
komulag í Sturlumálinu var gert,
fyrir þrem mánuðum, hafa margir
fordæmt það, opinberlega.
Ammundur Backmann, hæsta-
réttarlögmaður, hefur einn varið
samkomulagið. Hann var þar með
að veija eigin gerðir, sem leiddi
til þess að mér var nauðugur einn
kostur að stinga niður penna til
leiðréttingar á nokkrum missögn-
um hæstaréttarlögmannsins. Nú
eftir að þeirri grein var lokið og
afhent til birtingar, fékk Am-
mundur óvænt liðsmann, er skrif
Sverris Pálssonar, skólastjóra á
Akureyri, fv. undirmanns fræðslu-
sljórans, birtust hér í blaðinu laug-
ardaginn 25. f.m. Er óhjákvæmi-
legt að vílga sérstaklega örfáum
orðum að þeim.
Skólastjórinn telur upp í grein
sinni nokkra, sem deilt hafa á ráð-
herrana Svavar Gestsson og ólaf
Ragnar Grímsson í flölmiðlum fyr-
ir að koma í veg fyrir að Sturlumál-
ið svokallaða fengi endanlega með-
ferð fyrir Hæstarétti, en skrif hans
em mestmegnis svívirðingar um
þessa menn. Sverrir Pálsson er
samt ekki djarfari en svo að hann
þorir ekki að nefna þann, sem sendi
frá Bretlandi snörpustu ádeiluna,
er birst hefur í fjölmiðlum, er
skáldið Þórarinn Eldjám tætti
samkomulag ráðherranna, Svavars
og Ólafs, í sundur í háði hér í blað-
inu 29. des. sl., „Bjart framundan".
Skólastjórinn fellur í þá freistni
að misnota staðreyndir málsins
blygðunarlaust, slæmum málstað
til framdráttar. Það er ótrúlegt að
sjá hvemig þessi uppalandi ungs
fólks á Akureyri hyggst bæta
málstað fræðslustjórans með fá-
dæma meinbægni í garð fyrrv.
menntamálaráðherra og yfirboð-
ara síns, Sverris Hermannssonar,
og að uppnefna starfsfólk mennta-
málaráðuneytisins fyrir að vilja
rælga skyldur sínar. Af því tilefni
hefði þurft að rifja upp sérstaklega
fyrir skólastjóra örfá atriði úr for-
sendum dómsins, en nægja verður
að vísa til greinar minnar hér í
blaðinu 1. febrúar sl. Þess ber að
gæta, að það fær ekki dulist nein-
um, að dómendur í héraði fóru
mildari höndum um mál fræðslu-
stjórans en fær staðist. Það er að
snúa staðreyndum við að halda því
fram að fræðslustjórinn hafí verið
alsaklaus í málinu.
Afstaða skólastjórans til Hæsta-
réttar ber vott um skilningsleysi
hans á þýðingu dóma. Hann áttar
sig ekki á því, að það er ekki við
hæfi að vitna til dóms, sem beitt
hefur verið löglausum bolabrögð-
um við að hindra að fengi endan-
lega umfíöllun fyrir æðsta dómstól
landsins.
Skólastjórinn stærir sig af þeirri
Gunnlaugur Þórðarson
„Þess ber að gæta, að
það fær ekki dulist
neinum, að dómendur í
héraði fóru mildari
höndum um mál
firæðslustjórans en fiaer
staðist.“
fáheyrðu misnotkun á þjóðfánan-
um, er hann varð ber að og er
óafsakanleg hegðun. Skoðanir
Sverris Pálssonar, skólastjóra á
Akureyri, á mér, snerta mig ekki.
Hitt er ótrúlegt að skólastjórinn,
sem skreytir sig með aðdáun á
Cicero, skuli hafa löngun til að
gera lítið úr menntaframa. Allt eru
þetta vandamál Sverris Pálssonar
skólastjóra.
Höfundur er hsestaréttarlögmað-
ur.
00® sá**
^IraÍÍon
- MEIRI ORKA
. MINNI MENGUN
. ÖRUGGUSTU ORKUKAUPIN
UCAR hef ur f ramieitt nýjar gerðir af alkaline
rafhlöðum, sem eru undir mörkum skandinavískra staðla
um eiturefni (þungmólar) og teljast því ekki menga um-
hverfið.
Metsölublað á hverjum degi!
Fæst hjó FOKUS í Lækjorgötu 6b, TÝLI í Austurstræti 6 og TÝLI í Kringlunni 4 og BECO í Borónsstíg 18.
Útsölustaðir óskast
um allt land.
Einkaumboð á íslandi:
rU i Kringlunni 4 og
Sími 10966 í Austurstræti og 621808 í Kringlunni 4.
TÍBNIBREYTAR FRÁ
HITACHI
FVRIR RIÐSTRAUHSMÓTORA
HHZEKNIVAL h.f.
Grensásvegi 7-128 Reykjavík
Pósthólf 8294 - Sími 91-681665
NÚ
SFÖRUMVIÐ
PENINGA
og smíðum sjálf!
Við eigum fyrirliggjandi flest það efni, sem til þarf þegar
þið smíðið sjálf. Til dæmis efni í fataskápa, eldhús-
innréttingar, húsgögn, hvers konar vegghillur o.fl. Enn-
fremur loftbitaefni, viðarþiljur, límtré og spónaplötur.
Þið getið fengið að sníða niður allt plötuefni í stórri sög
hjá okkur.
Við veitum fúslega
allar nánari upplýsingar
í síma 621566.
BJORNINN HF
Borgartún 28 —
sími 621566 — Reykjavik.
Og nú erum við í Borgartúni 28