Morgunblaðið - 16.03.1989, Síða 55
»(»i fcíJAM öf flUf)AfJlJTMMT? ®0A48HUO8OM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1989
£g
55
Hrefha S. Bjarna-
dóttir — Kveðjuorð
Fædd 21. september 1924
Dáin 16. febrúar 1989
Það er skammt stórra högga á
milli hjá vinum mínum í Ólafsvík
og nú er Hrefna horfin yfir móðuna
miklu, burt frá veikindum, inn í
frið Guðs sem linar alla sjúkdóma.
Mér er ljúft að minnast sérstakrar
mannkostakonu.
Hrefna Sigríður Bjamadóttir var
elst fjögurra bama hjónanna
Vigdísar Sigurgeirsdóttur og
Bjama Sigurðssonar vélsmíða-
meistara er nam iðn sína á Þing-
eyri við Dýrafjörð, en þar fæddist
Hrefna ásamt systkinum sínum sem
öll eru mikið sómafólk eins og þau
eiga kyn til. Árið 1943 fluttist fjöl-
skyldan til Ólafsvíkur um líkt leyti
og Hrefna lauk námi frá Kvenna-
skólanum í Reykjavík.
Hrefna giftist Þórði Magnússyni
kennara frá Miklaholti á Snæfells-
nesi og eignuðust þau fjögur böm
sem öll hafa verið mér mjög kær,
allt frá bamæsku til þessa dags,
enda heimili þeirra hjóna í
Reykjavík mitt annað heimili sem
alltaf var-mér opið. Þau Hrefna og
Þórður slitu samvistir árið 1958 og
fluttist Hrefna þá að nýju til
Ólafsvíkur. Hún hóf störf hjá Hrað-
frystihúsi Ólafsvíkur, en starfaði
einnig við fjölskyldufyrirtækið, Vél-
smiðjuna Sindra.
Hrefna giftist Ólafl Kristjánssyni
yfirverkstjóra Hraðfrystihúss
Ólafsvíkur 1963, miklum ágætis-
manni. Hún lagði stund á margs-
konar störf í heimabæ sínum, var
framarlega í verkalýðsmálum,
söngkona var hún frábær og söng
um 30 ára skeið með kirkjukór
Ólafsvíkurkirkju.
í minningunni um H.refnu kemur
mér helst í hug minning mín af
móður minni. Stór orð, segir ein-
Þuríður Arnadóttir
Akranesi—Minning
Fædd 24. mars 1925
Dáin 18. janúar 1989
Þú lifir þar sem ljósið eilíft skín,
þú lifir þar sem böl og harmur dvín,
og gullnum skrúða guð þig lætur skarta.
í geisladýrð þú syngur sólarljóð,
svo sætt og blítt með drottins englaþjóð,
og frelsarinn þig faðmar sér að hjarta.
(R.B.)
Það er alltaf sárt þegar sam-
ferðaarfólk og vinir kveðja þennan
heim. Maður áttar sig ekki á því,
fyrr en eftir langa stund, að vinur
er horfinn. Ekki bara um stundar-
sakir, heldur að eilífu. Já, að eilífu,
en þá fara minningar um liðnar
stundir að streyma um hugann.
Minningar sem verða geymdar en
ekki gleymdar. En svona er lífsins
gangur. Maður kemur og maður
fer. Og hún Þura í Mörk er farin
frá okkur, farin til landsins þar sem
blómin blómstra að eilífu. Blómin
sem hún unni svo heitt, hvort sem
það var blóm í stofuglugga, eða úti
í garði. Lítill blómangi varð að stóru
fallegu blómi eftir hennar umönn-
un.
Við vinkonur dóttur hennar, Þóru
Betu, fengum smjörþefinn af
blómastússi Þuru, á heimili hennar
í Heiðargerði 7. En þar vorum við
heimagangar í mörg ár. Heima-
gangar sem komu á hinum ýmsu
tímum sólarhringsins. Alltaf jafn
velkomnar.
Eldhúsið hennar Þuru var aðal-
samkomustaður okkar. Þar var
skrafað saman og gert að gamni
sínu. Glettinn hlátur Þuru smitaði
út frá sér, svo eldhúsið ómaði af
glöðum hlátri. Og úr búrinu töfraði
hún Þura þessar fínu tertur og
heimabakað brauð, með svo þykku
smjöri, að matvælafræðingar hefðu
fengið áfall. Þegar Þuru fannst við
ekki nógu fínar til samkvæmishalds
þá bara setti hún blóm í hár okkar,
svona blóm hér og þar. Svona var
Þura, full af gáska og glettni. Heim-
ilið var hennar yndi, hreint og fág-
að. Blóm hér og blóm þar og blóm
alls staðar. Og þar er Þura í blóma-
hafi hins eilífa lífs.
Að leiðarlokum þökkum við fyrir
allt og allt. Blessuð sé minning
hennar.
Elsku Dúddi, Þóra Beta, Matti,
Valdi, Auður og aðrir ástvinir, við
vottum ykkur okkar dýpstu samúð.
Svala og Mumma, Akranesi.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúö
og vinarhug við andlát og útför
PETRU JÚLIUSDÓTTUR,
Brekastfg 31,
Vestmannaeyjum.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda,
Björgvln Magnússon.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns og föður,
HAFSTEINS BERGS JÓNSSONAR,
Hamarsgötu 23, Fáskrúðsfirði.
Kristfn Eide,
Elfn Agnes
og aðrir aðstandendur.
hver, ekki of stór í garð Hrefnu,
því mér detta engar tvær konur í
hug sem eiga jafn margt sameigin-
legt. Það þarf ekki mörg orð þar
um, þeirra aðalsmerki var kærleik-
urinn. Sagðí ekki Kristur að kær-
leikurinn væri það dýrmætasta sem
nokkur gæti eignast?
Eg vil að endingu, um leið og
ég bið Guð að hugga Ólaf í harmi
hans, senda honum, bömum Hrefnu
svo og öðrum aðstandendum inni-
legar samúðarkveðjur.
Ég þakka Guði fyrir það lán að
hafa fengið að kynnast Hrefnu.
Hvíli hún_ í friði.
Ásgeir H.P. Hraundal
Enn hefur sá gengið um garð er
engum hlífír og nú varð það mág-
kona mín, Hrefna Bjamadóttir, sem
varð fyrir ljáfari hans. Líf og dauði
haldast ætíð í hendur rétt eins og
gleði og sorg.
Mér er ljúft að minnast mágkonu
minnar eftir rúmlega þtjátíu ára
samveru í leik og starfi, þar sem
aldrei bar skugga á og ætíð var
hún tilbúin að aðstoða þar sem
hjálpar var þörf.
Hrefna fæddist 21. október 1924
og ólst upp í foreldrahúsum við al-
menn sveitastörf, hún var elst sinna
systkina og gætti þeirra ætíð af
mikilli ábyrgðartilfínningu. Það var
sá eiginleiki sem snemma kom í ljós
í fari hennar og nýttist við öll þau
miklu ábyrgðarstörf er henni vom
falin í gegnum árin og alveg var
sama að hverju Hrefna starfaði,
allt var gert af fyllstu vandvirkni
og alúð.
Foreldrar Hrefnu vom merkis-
og myndarhjónin Bjami M. Sigurðs-
son og Vigdís L. Sigurgeirsdóttir.
Þau hjónin höfðu mikinn hug á
menntun barna sinna og fór Hrefna
í Kvennaskólann og lauk þar námi
með glæsibrag.
Ung að ámm giftist hún Þórði
Magnússyni og áttu þau fjögur
böm, Bjarna, Kristínu, Erlu og
Magnús, þau slitu samvistir.
Til Ólafsvíkur flytur hún árið
1959 með bömin sín hálfstálpuð
og fór þá að vinna í Hraðfrystihúsi
Ólafsvíkur hjá Gunnari Bjamasyni
bróður sínum. Hún var afburðadug-
leg og öllum bömum sínum kom
hún til mennta.
Árið 1963 giftist hún Ólafi Krist-
jánssyni, reglusömum sæmdar-
manni, og var sú sameining gæfu-
spor beggja. Þau ólu upp Guðmund
son Kristínar.
Hin létta lund Hrefnu bjargaði
henni frá hinum mörgu boðum er
á vegi hennar urðu í lífinu og ómet-
anlegt var að eiga hana að vini og
félaga.
Með trega kveð ég mágkonu
mína sem nú er laus undan þeim
sjúkdóm sem heltók hana á skömm-
um tíma.
Bið ég blessunar eiginmanni
hennar, bömum og öðmm vanda-
mönnum.
Sigurdís Egilsdóttir
Mig langar að minnast frænku
minnar, Hrefnu S. Bjamadóttur, í
fáum orðum og votta aðstandend-
um samúð mína og fjölskyldu
minnar.
Hrefna var í mínum huga góða
frænkan sem alltaf var hægt að
leita til þó minna væri gert af því
hin síðari ár. Mynd af frænku í
fallegum grænum kjól með kolsvart
hár, geislandi augu af gleði, er allt-
af í huga mínum, er ég sem telpu-
hnokki fékk að skjótast upp til afa
og ömmu og óska Hrefnu og Óla
til hamingju með brúðkaupsdaginn.
Hrefna hafði yndislega söngrödd
er hljómaði yndislega í Ólafsvíkur-
kirkju. Ég naut þess að hlusta á
og var hreykin af að eiga frænku
með þessa fögm söngrödd og verða
þess svo aðnjótandi síðar meir að
syngja við hlið hennar í kirkjukór
Ólafsvíkur. Allar stundir er ég átti
í Ásbergshúsi, Skálholti 15 og í
Smiðjunni og kaffítímunum í Hjarð-
artúni 7, með Hrefnu, eru fallegar
endurminningar er aldrei gleymast.
Ég þakka frænku minni.
Vigdís Björg Sigurgeirsdóttir
SNYRTIVÖRU-1
KYNNING
fimmtud. 16. mars
kl. 10-18 og
föstud. 17.mars
kl. 10-18
\£j
&
JötAyj
PARIS
SNYRTIVÖRUR
SEM FAGFOLKIÐ VELUR
AMARÓ
AKUREYRI
snyrtivörudeild
t
Hjartans þakkir og vinarkveðjur sendum við öllum þeim sem auð- sýndu okkur samúð við andlát og útför eiginkonu minnar, dóttur okkar og tengdadóttur, HJÖRNÝJAR FRIÐRIKSDÓTTUR.
Lifið heil í guðsfriði. -
Friðrik Ottósson, Jón Hilmar Björnsson, Elfnborg Sigurðardóttir, Ingibjörg Stephensen.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður minnar, tengdamóður og ömmu okkar,
SIGRÍÐAR ÁSMUNDSDÓTTUR
saumakonu,
Vesturströnd 29,
Seltjarnarnesi.
Auður Aradóttir, Kjartan Norðfjörð,
Sæmundur Norðfjörð, Sigrfður Norðfjörð,
Guðrún Norðfjörð, Hildur Norðfjörð.
t
Við þökkum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð, hlýhug og
vináttu við andlát og útför
GUÐMUNDAR HANSSONAR,
Hæðargarði 2.
Sigrfður Axelsdóttir,
Jón Steinar Guðmundsson, Sigrún Guðmundsdóttir,
Gunnar Sverrir Guðmundsson,
Marfa Helga Guðmundsdóttir, Þórarinn Jónsson,
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, Reynir Halldórsson
og barnabörn.
BMberar
oskast
Símar 35408 og 83033
SKERJAFJORÐUR
Einarsnes 36-78 o.fl.
Bauganes
Baugatangi