Morgunblaðið - 21.03.1989, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJTJDAGUR 21. MARZ 1989
Nýr Herjólfur:
Valdbeiting ráðherra
gegn Vestmamiaeyingaim
Eftir Árna Johnsen
Valdbeiting núverandi ríkis-
stjómarflokka og ódrengskapur í
garð Vestmannaeyinga varðandi
smíði nýs Heijólfs er með ólíkind-
um. Tvisvar sinnum hefur Alþingi
afgreitt á lánsflárlögum fjármagn
til nýs Hetjólfs og það hefur aldrei
farið á milli mála að um nýsmíði
yrði að ræða , því slík er sérstaðan
í þörfum og aðstæðum á leiðinni
Vestmannaeyjar-fastalandið.
Stjóm Heijólfs hefur unnið mjög
mikla og góða undirbúningsvinnu
vegna nýs skips, mun meiri en hef-
ur tíðkast í svipuðum tilvikum hér
á landi og stjóm Heijólfs hefur
samþykkt niðurstöðu. Sama er að
segja um bæjarstjóm Vestmanna-
eyja. Samgönguráðherra ríkis-
sýómar Þorsteins Pálssonar svo og
forsætisráðherra sjálfur vildu
hrinda af stað þá þegar útboði á
smíði nýs Heijólfs samkvæmt nið-
urstöðum rétt kjörinna aðila, stjóm-
ar Heijólfs og bæjarstjómar Vest-
mannaeyja. En Jón Baldvin Hannib-
alsson þáverandi fjármálaráðherra
dró lappimar í málinu og setti
stöðvunarmerki, rautt ljós. Hann
krafðist þess að kannaðir yrðu
möguleikar á því að kaupa gamalt
skip erlendis frá til þess að þjóna
þjóðveginum Þorlákshöfn-Vest-
mannaeyjar. Að því fullreyndu
kvaðst Jón Baldvin vera tilbúinn til
þess að heimila útboð á nýju skipi.
Niðurstaða könnunar á sl. ári leiddi
í ljós að óhagstætt og óömggt
væri að kaupa gamalt skip í stað
Heijólfs, en þáverandi fjármálaráð-
herra sat áfram á málinu og ekki
tók betra við þegar Ólafur Ragnar
Grímsson settist í stól ijármálaráð-
herra. Stjómvöld landsins hafa því
svikið Vestmannaeyinga í málinu
og láta geðþóttaákvarðanir á
pólitfskum gmndvelli ráða, en ekki
vilja Alþingis, sem tvívegis hefur
verið samþykktur og verður undir-
strikaður í þriðja sinn innan
skamms ef ríkisstjómin kemst til
þess að afgreiða lánsfjárlög fyrir
1989.
Heimamenn vit^ hvað
þeim kemur best
Á þeim tíma sem málið hefur
verið tafíð í ráðuneytum hefur
smíðaverð skipa hækkað um tugi
prósenta vegna mikillar eftirspum-
ar á nýjum skipum í heiminum.Á
sama tíma er mönnum það æ ljós-
ara að núverandi Heijólfur býr
langt frá því yfír því öryggi sem
VOLKSWAGEN
M. AFLSTÝRI^VV
BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG
VERD FRA
KR. 865.000.-
[hIHEKIAHF
■ Laugavegi 170-172 Simi 695500
Mimtmhw
I TAKT VIÐ TIMANN
Viltu skara fram úr á hörðum
vinnumarkaöi?
Við bjóðum þér upp á hagnýta j jfl
kennslu í viðskipta- og tölvu- s |ggj
greinum, ásamt því helsta sem ■
gerir þig að hæfum og dugandi ■
starfskrafti. ;
Þú getur valið um morgun- eftir-
miðdags- eða kvöld tíma, eftir því féwní
sem þér hentar.
Að námskeiðinu loknu útskrifast
þú sem skrifstofutæknir.
Innritun og allar nánari upp-
lýsingaf færðu í símum 68 75 90
og 68 67 90.
Við urum
við símann til
kl. 22 í kvöld.
Heiða Heiðarsdóttir
skrifstofutæknir, útskrifuð í desember
'88.
„Námið hjá Töjvufræðslunni kom mér
skemmtilega á óvart. Kennararnir eru
mjög góðir og námið í heild vel skip-
ulagt og skemmtilegt.
Ég lít á þetta sem góða fjárfestingu
sem á eftiraðskila sér margfalt til baka“.
Tölvufræðslan
Borgartún 28
er grundvallaratriði í dag, tvær eða
fleiri vélar til þess að knýja skipið.
Gömul skip geta verið góð og Heij-
ólfur er ágætis skip út af fyrir sig,
en úrelt og vanbúið í ljósi reynslunn-
ar, því það er lán sem hefur valdið
því að bilanir hafa orðið við hagstæð
skilyrði. Enn einu sinni hefur fjár-
málaráðherra sýnt Vestmannaey-
ingum dónaskap með því að taka
fullkannað mál enn á ný til endur-
skoðunar hjá annars ágætri nefnd,
sem ráðherra skipaði á síðasta ári
til að endurskoða tillögur stjómar
Heijólfs og_ bæjarstjómar Vest-
mannaeyja. Ákvörðun fjármálaráð-
herra var því óþörf. Nefndin hafði
fjallað um möguleika á ákveðnu
notuðu skipi, sem reyndar var held-
ur stærra en það skip sem nú er á
teikniborðinu. Skipið var hins vegar
ekki falt og önnur skip reyndust
ekki hagstæð til verkefnisins. Menn
geta endalaust deilt um það hvort
nýr Heijólfur á að vera 10 metmn-
um lengri eða styttri, en það skipt-
ir ekki máli. Það sem skiptir máli
er að fá skip sem hægt er að treysta
og þjónar því verkefni sem það á
að vinna. Með það grundvallarsjón-
Arni Johnsen
armið í huga vann stjóm Heijólfs
að framgangi málsins. Kröfur vom
gerðar til ákveðins ganghraða, að-
búnaðar um borð fyrir farþega og
skipshöfn, bfla, kojur sem skipta
miklu máli og stærð skips sem hent-
aði inn í næstu framtíð. Taka þarf
tillit til þess að sjóleiðin milli lands
og Eyja er um úthaf Atlantshafs-
ins, um þriggja tíma ferð, en þrír
tímar á sjó em langur tími ef á
reynir. Þó ekki sé nema af þeim
ástæðum er harla ólíklegt að feijur
milli hafna í Evrópu dugi milli lands
og Eyja svo eitthvert vit sé í, enda
byggðist hönnun nýja Heijólfs á
staðrejmdum varðandi sjólag, veður
og vinda, innsiglingar í Þorlákshöfn
og Vestmannaeyjar þar sem Þor-
lákshöfn getur verið mjög erfíð að
sigla inn í. Skipið má ekki rista
nema takmarkað og verður að hafa
mikið afl á hliðarskrúfum.
Hve lengi á að hundsa
vilja Alþingis?
Víða um land er verið að gera
vemlegt átak í samgöngumálum,
bæta vegi og hvarvetna er verið
að bæta þjónustu og aðstöðu með
margs konar byggingum. Það er
verið að grafa göng í gegn um Ól-
afsfjarðarmúla, byggja feiju upp á
nokkur hundmð milljónir fyrir
Breiðafjörð og það er fyllilega kom-
inn tími til þess, en þegar kemur
að endumýjun á opinbem þjónustu-
tæki við Vestmannaeyjar fer allt í
hund og kött hjá framsóknarmönn-
um, alþýðubandalagsmönnum og
alþýðuflokksmönnnum. Á fáum
stgðum á landinu er eins góð nýting
og á opinbemm húsakosti í Vest-
mannaeyjum og stjómvöld ættu að
vita af langri reynslu að Vest-
mannaeyingar gera ekki kröfur
nema að þeir hafí pottþétt rök í
máiinu. Þessi stærsta verstöð lands-
ins með innan við 2% íbúa lands-
ins, en leggur þjóðarbúinu yfir 10%
þjóðartekna á annað skilið en valdn-
ILKI ERÐ íðslu og dónaskap af hálfu stjóm- valda. Það er til háðungar að tals- menn stjómmálaflokka tali tungum tveim í þessu máli og það er einnig til háðungar að þessu máli skuli vera stillt upp pólitískt þótt sjálf-
íed >pa 1 Ferming á Sauðárkróki
r Síðastl. sunnudag, pálmasunnu- dag, fór fram fermingarmessa í
Veldu Kópal
med gljáa við hæfi.
Sauðárkrókskirlqu. Prestur sr.
Hjálmar Jónsson.
Fermd vom:
Arna Dröfn Bjömsdóttir,
Öldustíg 4.
Gunnar Andri Gunnarsson,
Raftahlíð 48.
Helga Margrét Pálsdóttir,
Birkihlíð 35.
Hulda Björg Jónsdóttir,
Skagfírðingabraut 10.
Ingibjörg Huld Þórðardóttir,
Víðihlíð 25.
Jóhannes Atli Hinriksson,
Raftahlíð 13.
Linda Elínborg Friðjónsdóttir,
Grenihlíð 2.
Linda Kristfn Friðjónsdóttir,
Grenihlíð 2.
Sigríður Hjálmarsdóttir,
Víðihlíð 8.
Sigrún Amardóttir,
Freyjugötu 50.
Snjólaug Stefanía Jónsdóttir,
Hólavegi 14.
Stefán Álfsson,
Brennigerði.