Morgunblaðið - 21.03.1989, Blaðsíða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPn/JÖVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1989
Hugbúnaður
SaniRÁÐ - nýr íslenskur hugbúnaður
VÍKURHUGBÚNAÐUR er um
þessar mundir að hefla markaðs-
setningu á nýjum íslenskum hug-
búnaði. Er hér um að ræða sam-
ofínn hugbúnað, sem saman-
stendur af gangagrunni, töflu-
reikni, ritvinnslu, samskiptafor-
riti og tímaskráningarkerfi.
Hugbúnaðurinn hefúr hlotið
nafnið SamRÁÐ og er fyrsta
kerfið af þessari gerð, sem sér-
staklega er hannað fyrir íslensk-
an markað, að sögn forráða-
manna fyrirtækisins.
Hliðstæð kerfi á ensku eru til á
markaðnum og má nefna Microsoft
Works, Framework og Ability Plus.
Kerfið mun ganga á allar IBM sam-
hæfðar PC:tölvur með hörðum
diski. SamRÁÐ er einnig boðið sem
fylgiforrit í RÁÐ viðskiptahug-
búnaði.
Að sögn forráðamanna Víkur-
hugbúnaðar hafa átt sér stað um-
talsverðar viðbætur á RÁÐ bók-
haldskerfunum, m.a. er komin í
notkun netútgáfa af RÁÐ og hafi
þeir með því haslað sér völl á sviði
bókhaldskerfa fyrir stærri fyrir-
tæki. í netútgáfunni er notuð svo-
kölluð færslulæsing „record lock-
ing“, þannig að margir notendur
geta verið að vinna með sömu skrá
samtímis.
Verðbréfakerfíð Arður á markað
DR. BENEDIKT Jóhannesson og
Gísli Hjálmtýsson hafa hannað
verðbrefakerfið Arð, sem er
fyrsta kerfið á íslenskum mark-
aði, sem vinnur „natvie“, þ.e.
enginn hermibúnaður er notaður
— vélin vinnur sjálf, að sögn
Gísla. Þeir félagar unnu til verð-
launa í hugmyndasamkeppni
IBM fyrir tveimur árum, voru
þá með frumdrög að kerfinu,
sem þeir hafa síðan verið að fúll-
hanna. Fyrir u.þ.b. ári tók fyrsta
fyrirtækið, Almennar trygging-
ar, kerfið í notkun.
Kerfið er notað á millistæðir af
IBM-tölvum, System/36, Sy-
stem/38 og nú síðast á hina nýju
IBM AS/400, þar sem kerfið vinnur
„natvie“ eða sjálft, eins og áður
segir og fullnýtir þar með kosti
vélarinnar. Gísli Hjálmtýsson segir
að Arður sé öflugt innheimtukerfi,
sem hafi ýmsa upplýsingamögu-
leika. Það geri stjórnendum fyrir-
tækja kleift að fylgjast vel með
greiðslustöðu hvers bréfs og hægt
sé að láta kerfið útbúa tilkynnning-
ar og ítrekanir til greiðenda. Sé
bréf sent í innheimtu megi sjá upp-
lýsingar á tölvuskjánum hvar bréfið
sé staðsett, t.d. hvort það sé hjá
Fólk í atvinnulífinu
VSI hefur ráðið starfsmann
til að sinna málefhum EB
VINNUVEITNDASAMBAND íslands hefúr ráðið til starfa Kristján
Jóhannesson rekstrarhagfræðing til að annast málefiii sem snúa að
Evrópubandlaginu. Hann mun serstaklega fylgjast með þróun skatta-
og fjármagnsmáia, auk þess fríverslun með vörur og þjónustu.
Kristján lauk
viðskiptafræði-
námi frá Versl-
unarháskólanum
í Árósum 1987
og rekstrarhag-
fræðinámi í
markaðs- og út-
flutningsmálum
frá sama skóla í
janúar sl.
Kandidatsritgerð
Kristján
hans fjallar um
íslenskan útflutning og innri mark-
að EB. í henni er t.d. fjallað ítar-
lega um hvaða þættir innri markað-
ir bandlagsins geta haft bein og
óbein áhrif á íslenskan útflutning.
Mikilvægur hluti af starfi Kristj-
áns mun fara í þátttöku EB-starfs
Samtaka vinnuveitenda og atvinnu-
rekenda í Evrópu, UNICE, sem
Vinnuveitendasambandið á aðild að.
-UNICE eru mjög öflug hagsmuna-
samtök sem hafa veruleg áhrif á
ýmsa þætti og málefni EB.
Kristján er 27 ára að aldri,
kvæntur Jóhönnu Júlíusdóttur og
eiga þau þrjár dætur.
Nýr markaðsstjóri hjá
Frjálsu framtaki
FRJÁLST framtok hf. hefur ráðið Harald Hjartarson í storf markaðs-
stjóra fyrirtækisins.
Haraldur
er
41 árs að aldri.
Hann stundaði
nám í Iðnskólan-
um í Reykjavík á
árunum
1965—’69, var
við ensku- og
viðskiptanám í
Richmond í Lon- Haraldur
don á árunum
1981 og 1982 og stundaði nám við
The Norwegian Institute of Market-
ing and Export á árinu 1986. Auk
þess hefur hann sótt námskeið m.a.
hjá Scali Mc. Cable Sloves Inc. í
New York og Time-Life.
Haraldur starfaði sem verslunar-
stjóri hjá Byggingavörudeild SÍS á
árunum 1976—80, var markaðs-
stjóri hjá Velti hf. á árunum
1980—85, framkvæmdastjóri Máts
árið 1976 og framkvæmdastjóri
markaðssviðs hjá Kristni Guðnasyni
hf. á árinu 1987.
Haraldur Hjartarson er kvæntur
Jenny Irene Sörheller og eiga þau
tvö börn.
Iögfræðingi, í banka eða annars
staðar. Með kerfi sé unnt að útbúa
greiðslu- og/eða innheimtuáætlan-
ir. Með því móti geti fjármagnseig-
endur gert áætlanir um hvemig
ráðstafa megi innheimtufjármagni.
Þá fylgist kerfið með skuldastöðu
einstakra greiðenda og sýni heildar-
skuld greiðandans, hvort sem er í
krónum eða í hlutfalli af heildar-
eign. Einnig bjóði hugbúnaðurinn
upp á að reikna raunávöxtun ein-
stakra bréfa eða alls bréfasafnsins.
Þannig sé hægt að fylgjast með
raunverulegum árangri af fjármála-
stefnu fyrirtækisins.
Iðnaður
íslensktraf-
eindakerfí
í verksmiðju
íEyjum
PÓLS tækni hf. á ísafírði hefiir
hannað rafeindakerfi, sem mælir
þunga í stórum tönkum. Hefúr
fyrsto kerfið verið sett upp í
Fiskinyölsverksmiðjunni í Vest-
mannaeyjum. Þar hefiir kerfið
verið tengt við Qóra tanka, en
hægt er að tengja kerfið við allt
að tíu tanka.
PÓLS tankamælirinn notar
skynjara, sem komið er fyrir í undir-
stöðum tankans. Skynjarinn mælir
síðan þunga/þrýsting þess magns,
sem er í tankanum á hvéijum tíma.
Aflestrarstöðvum er hægt að koma
fyrir hvar sem er, t.d. hjá verk-
stjóra á lager eða annars staðar.
Til að fá uppgefið magn í tanki
þarf viðkornandi að slá inn númer
tanksins. Á aflestarskjánum kemur
þá tala frá 0-10, sem sýnir magn-
innihald.
SNYRTIVÖRU-J
^YNNING
A MORGUN
miövikud. 22. mars
kl. 14-19
\JL/
íá
JðMyj
PARIS
SNYRTtVÖRUR
SEM FAGFOLKIÐ VELUR
KAUPSTAÐUR
í MJÓDD
snyrtivörudeild
í PÁSKAVIKUNNI
VERÐA VERSLANIR OPNAR
SEMHÉRSEGIR:
Þriðjudaginn 21.mars frá kl. 10-19
Miðvikudaginn 22. mars frá kl. 10-20
Matvöruverslun frá kl. 10-21
Laugardaginn 25. mars frá kl. 10-16
KRINGWN
-VERSLUN OG SKEMMTUN í EINNIFERÐ!
í KRINGLUNNI ER ALLTAF GOTT VEÐUR OG ÞAR
ERU NÆG ÓKEYPIS BÍLASTÆÐI. ÞAÐ GERIR
PÁSKAINNKAUPIN AUÐVELD OG ÁHYGGJULAUS.