Morgunblaðið - 21.03.1989, Page 42

Morgunblaðið - 21.03.1989, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1989 Eric A. McVadon flotaforingi: Vamarliðið á íslandi egnir hvorki né ógnar VIÐ í Keflavík erum hreyknir af nafninu „háborg kafbátavarn- anna“, ekki aðeins vegna þess hve oft við þurfum að leita sovéskra kafbáta, heldur einnig vegna þess hve vel okkur tekst til. Ég hef ekki reynt að taka saman tölur, en yrði ekki hissa þó að þessi eina Orion-flugsveit hér finni fleiri sovéska kafbáta heldur en allar aðr- ar kafbátaleitar-flugsveitir bandaríska flotans samanlagt. Þannig komst Eric A. McVadon, yfirmaður vamarliðsins á íslandi, að orði >í erindi sem hann flutti á íslensku á fundi Samtaka um vestræna samvinnu (SVS) og Varðbergs síðastliðinn laugardag. Flotaforinginn minnti á að Kóla- skaganum í Sovétríkjunum hefði oft verið lýst sem stærsta víghreiðri veraldar. Menn í hans stöðu hlytu alltaf að hafa í huga hvers slíkur ógnarlegur herafli væri megnugur sem andstæðingur á hættutímum eða í stríði. Lýsti hann ferðum sov- éskra flugvéla og skipa í nágrenni íslands. Fyrir starfsmenn vamar- liðsins sem stæðu daglega frammi fyrir þessum sovéska herafla, væri hugtakið fælingarmáttur mjög raunverulegt, þótt það væri oft misskilið á íslandi og líklega víðar. '-i'Vamarliðinu væri mikið í mun að þeir sem ákvarða stefhu Sovétríkj- anna og hemaðaráætlanir hefðu engar ranghugmjmdir um markmið og getu liðsins, sem vildi með að- gerðum sínum fæla hugsanlegan andstæðing í átökum frá hættuleg- um áformum sínum. Þegar hann lýsti hlutverki F-15 orrustuþotnanna, ratsjárvéla, elds- neytisvélar og ratsjárkerfisins, sagði Eric A. McVadon meðal ann- ars: „ Loftvamimar og eftirlitið með flugvélum fer fram með sam- vinnu flugvéla og ratsjárstöðva og er þetta starf leyst vel af hendi með nýtísku flugvélum. Til þess að tryggja bestu nýtingu þessara full- komnu flugvéla fer nú fram end- umýjun stjómkerfisins og ratsjár- stöðvanna. Þess má geta til gamans að orrustuflugvseit vamarliðsins ber kennsl á fleiri sovéskar flugvél- ar árlega heldur en allar hinar orr- ustuflugsveitir bandaríska flug- hersins samanlagt. Flugsveitin var valin sú besta í flugher Banda- ríkjanna í fyrra og hefur verið til- nefnd til þessa heiðurs enn einu sinni í ár.“ Samskipti við íslendinga í ræðu sinni ræddi yfirmaður varnarliðsins af hlýhug um dvöl sína á íslandi en hann er á förum héðan eftir tvo mánuði. Alls hefur McVa- don varið nær fimm árum af starfs- ferli sínum sem yfírmanns hér á landi. Fyrst sem yfirmaður flota- stöðvarinnar í Keflavík og síðan eftir nokkurra ára fjarveru sem yfírmaður vamarliðsins. Sagðist hann iíta á ísland á vissan hátt sem sitt annað land. Lýsti hann ítarlega viðhorfum sínum til samskipta Is- lendinga og vamarliðsmanna. Morgunblaðið/Þorkell Eric A. McVadon, yfirmaður varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, flyt- ur erindi sitt á fundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs. SVHIN6ARHHGI ASBFOSSI 23. TIL 27. MARS KL. 13-18 Um helgina sýnum við marga einingaframleidda sumarbústaði við verksmiðjur okkar að Gagnheiði á Selfossi. Einingahús gefa þér kost á stærð og innréttingum að eigin ósk og þau er fljótlegt og auð- velt að reisa. Núna er einmitt tíminn til að láta drauminn um sumarbústað rætast - komdu því og kynntu þér þá ótal möguleika sem eininga- framleiðslu fylgja. Athugaðu að við höfum opið virka daga kl. 9-17, en þú getur einnig komið og skoðað sumarbústaðina á kvöldin - látirðu okkur vita í tíma. SG Einingahús hf. GAGNHEIÐ11 - 800 SELFOSS EYRARVEGI37 - 800 SELFOSSI SÍMI98-22333 SÍMI98-22277 SAMTAK5FI HUSEININGAR LJ Margt hefði verið gert til þess að gera vamarstöðina að byggilegri stað. Rúmlega níu hundruð vamar- liðsmenn byggju þar með íjölskyld- um sínum. A hinn bóginn hefði þá lengi skort meira en 500 fjölskyldu- íbúðir, sjötti hver vamarliðsmaður hefði ekki getað fengið fjölskyldu sína hingað af þessum sökum og margir þyrftu að bíða í allt að ár eftir fjölskyldunni. Eftir ítrekaðar tilraunir til að fá fjárveitingar væru þeir nú að byggja nær 250 íbúðir og vonuðu að á næstu ámm gætu þeir byggt um 300 til viðbótar. Hann taldi ekki ofmælt að allir vamarliðsmenn álitu starf sitt þess virði að færa nokkrar fómir svo tryggja mætti að ísland, Bandaríkin og öll Vesturlönd nytu friðar og öryggis. Margir Bandaríkjamenn finndu þó til óþæginda vegna tak- markana sem þeim væru settar með samningum milli ríkisstjóma ís- lands og Bandaríkjanna, og þeim þætti þeir ekki alltaf mjög velkomn- ir. Sumir leiddu rök að því að það væru gildar ástæður til að leyfa Bandaríkjamönnum ekki að búa í byggðarlögunum utan vamarsvæð- isins, eða fyrir útivistarbanni, og ströngum tollareglum. Vamarliðs- menn vildu þó gjaman sjá þessar reglur afnumdar eða mildaðar. ^Mér þykir miður að sjá að sumir Islendingar mynda sér skoðanir um Bandaríkin og Bandaríkjamenn sem byggjast kannski á litlu öðm en grínþáttum í sjónvarpi og rokk- sljömum, í stað viðkynningar við Bandaríkjamenn sem nágranna, vini, eða í það minnsta kunningja," Þegar þú vilt láta ferskleikann njóta sín ... Þegar kartöflu- og/eða grænmetissalat, kaldar sósur- eða ídýfur eru á matseðli dagsins er MS sýrði rjóminn, 10%, betri en enginn. Sannaðu til - fátt gefur meiri ferskleika. Hitaeiningar MS sýrður rjómi Majónsósa 10% (Mayonnaise) 1 tsk (5 g) 5.7 37 1 msk (15 g) 17 112 100 g 116 753

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.