Morgunblaðið - 21.03.1989, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1989
SævarBjarnasonefstur á vel
skipuðu Skákþingi Rvíkur
Skák
Margeir Pétursson
Sævar Bjarnason, alþjóðleg-
ur meistari, varð hlutskarpast-
ur á Skákþingi Reykjavíkur,
sem lauk í sl. mánuði. Sigur
Sævars kom mjög á óvart, þvi
mjög margir af okkar beztu
skákmðnnum af yngstu kyn-
slóðinni voru á meðal þátttak-
enda. Alþjóðlegu meistaramir
Hannes Hlífar Stefánsson og
Þröstur Þórhallsson eru t.d.
tðluvert hærri í stigum en Sæv-
ar. Þótt Sævar sé ekki kominn
á bezta skákaldurinn, aðeins
35 ára gamall, var hann á með-
al elstu og reyndustu keppenda
á mótinu. Eftir að hnnn vann
sér titil alþjóðameistara árið
1985 hefur ekki farið sérlega
mikið fyrir honum við skák-
borðið og héldu jafhvel sumir
að hann teldi nóg komið þegar
þeim á&nga var náð.
Þetta Skákþing Reykjavíkur er
væntanlega það síðasta sem hald-
ið er í núverandi húsakynnum
Taflfélags Reykjavfkur á Grensás-
vegi 44-46. I samræmi við stór-
aukna starfsemi og kröfur félags-
manna hefur TR í félagi við Skák-
samband íslands fest kaup á efri
hæð hússins Faxafens 12 f
Reykjavík. í þessu nýja húsnæði
er hátt til lofts og vítt til veggja
og ætti að vera mögulegt að halda
þar flest aiþjóðleg skákmót. Þá
ættu böm og unglingar ekki leng-
ur að þurfa frá að hverfa vegna
aðstöðuleysis á hinum geysivin-
sælu laugardagsæfíngum. Slfkum
æfíngum ætti einnig að vera hægt
að fjölga, þvf hægt verður að
hafa tvenns konar starfsemi í
gangi f einu f nýja húsnæðinu.
Úrslit á Skákþinginu:
1. Sævar Bjamason 9 v. af 11
mögulegum. 2.-3. Snorri Bergs-
son og Þröstur Þórhallsson 8V2
v. 4.-7. Þröstur Ámason, Dan
Hansson, Jón Garðar Viðarsson
og Tómas Bjömsson 8 v. 8.-13.
Hannes Hlífar Stefánsson, Héðinn
Steingrímsson, Róbert Harðarson,
Áskell Öm Kárason, Daði Öm
Jónsson, og Jóhannes Ágústsson
7V2 v. 14.-22. Davíð Olafsson,
Andri Áss Grétarsson, Ragnar
Fjalar Sævarsson, Haraldur Bald-
ursson, Siguijón Haraldsson,
Sverrir Öm Bjömsson, Helgi Áss
Grétarsson, Eiríkur Bjömsson og
Láms Jóhannesson 7 v. o.s.frv.
Það skal tekið fram að í þess-
ari upptalningu er keppendum
sem jafnir em að vinningum ekki
raðað upp eftir stigum.
Þátttakendur í opna flokknum
vom 105 og tefldu 11 umferðir
eftir Monrad-kerfi. Svo sem sjá
má af upptalningunni vom marg-
ir kunnir skákmenn á meðal þátt-
takenda og er þetta eitt sterkasta
Skákþing Reykjavíkur um árabil.
Vonandi er þetta vfsbending í þá
átt að breiddin hér sé að aukast.
Auk Sævars kom árangur
Snorra Bergssonar mikið á óvart,
en hann var úrskurðaður í annað
sætið á stigum á undan Þresti
Þórhallssyni. Snorri hefur tekið
stórstígum framfömm upp á
síðkastið, en hann hefur oft verið
býsná mistækur. Hannes Hlífar
er hins vegar sá sem veldur mest-
um vonbrigðum eftir að hann varð
f þriðja sæti á Skákþingi íslands
í september og vann yfírburðasig-
ur á Haustmóti TR stuttu síðar.
Hannes var stigahæsti keppand-
inn, en það er ekld ástæða til að
hafa þungar áhyggjur af því þótt
hann nái ekki sfnu bezta á hveiju
einasta móti. Skákmenn sem em
aðeins 16 ára eiga fullan rétt á
því að eiga sína slæmu daga.
Unglingameistari Reylqavíkur
varð Helgi Áss Grétarsson, sem
hlaut 8V2 v. af 9 mögulegum, en
Ragnar Fjalar Sævarsson varð
annar með 7V2 v.
Hraðskákmeistari Reykjavíkur
varð Þröstur Þórhallsson. Skák-
stjóri var Ólafur Ásgrímsson.
Mikilvægustu sigrar nýbakaðs
Reykjavíkurmeistara vom að
sjálfsögðu gegn alþjóðlegu meist-
umnum á mótinu, þeim Þresti
Þórhallssyni og Hannesi Hlffari.
Við skulum líta á þær skákir, sem
em býsna ólfkar. Sævar náði að
yfirspila Hannes á nokkuð sann-
færandi hátt, en átti lengi í vök
að veijast gegn Þresti. I tíma-
hraki snerist skákin hins vegar
við og fljótlega upp úr því tókst
Sævari að krækja sér f skiptamun
sem nýttist honum til sigurs í
endatafli.
Hvítt: Sævar Bjamason
Svart: Hannes Hlífar Stefáns-
son
Drottningarbragð
1. d4 — Rf6 2. c4 — e6 3. Rf3
- Bb4+ 4. Bd2 — Be7 5. Rc3 -
d5 6. Bg5 - Re4 7. Bxe7 -
Dxe7 8. Dc2 — Rxc3 9. Dxc3 —
0-010. g3 - b611. Bg2 - Ba6
Hannes hefur að veiýu teflt
byrjunina frumlega, en Sævar
lætur hann ekki rugla sig í
ríminu. Með þessum uppskipt-
nm og síðan þvi að hundsa
þrýsting svarts á e2-peðið legg-
ur hann grunninn að stððuyfir-
burðum sinum í miðtaflinu. Þar
sem svartur treystir sér ekki
til að drepa peðið í framhaldinu
verður hann að breyta um áætl-
un og hefur þá eytt dýrmætum
tíma tíl einskis.
12. cxd5 — exd5 13. 0-0 — He8
14. Hacl- c6 15. Hfel - Dd6
16. Rd2 - Bb7 17. e4 - Ra6
18. e5 - Df8 19. f4 - c5? 20.
Rc4!
Vinningsleikurinn með yfír-
burði f rými og þennan riddara á
d6 er eftirleikurinn auðveldur fyr-
ir Sævar.
20. - Rb4 21. Rd6 - Ba6
22. Da3 - Hed8 23. Bxd5 -
Rxd5 24. Dxa6 - Rc7 25. Dc4
- Re6 26. dxc5 - bxc5 27. Dd5
- Hab8 28. b3 - De7 29. Hc4
- Hb6 30. Hfl - Ha6 31. Hf2
- h6 32. Kg2 - Ha5 33. fa -
Rc7 34. De4 - Re8 35. Rb7 og
svartur gafet upp.
Hvítt: Þröstur Þórhallsson
Svart: Sævar Bjamason
Frönsk vöm
1. d4 - Rf6 2. c4 - d6 3. Rc3
- Rbd7 4. e4 — e5 5. Rf3 — g6
6. Be2 - Bg7 7. 0-0 - 0-0 8.
Dc2 - c6 9. Hdl - He8 10. d5
- c5 11. a3 - Hf8 12. b4 - b6
13. Rb5 - Re8 14. Be3 - h6
15. Bd3 - Rdf6 16. Habl - Rh5
17. Dd2 — Kh7 18. De2 - De7
19. h3 - Bd7 20. Bc2 - f5?1
Hvítur hefur búið sig vel undir
það að mæta þessari árás svarts
á miðborðið. Eðlilegra virtist
Rh5-f4 nú, eða í 19. leik
21. exf5 — gxf5 22. bxc5 —
bxc5 23. Bd2
Ekki 23. Rxe5?? - Bxe5 24.
Dxh5 a6 og Rb5 er innilokaður.
23. - e4 24. Rh2 - Df7 25. g4!
- RhfS 26. f3 - Kh8 27. gxf5
- Bxf5 28. fxe4 — Bxh3 29.
Hb3! - Bc8 30. Dg2 - a6 31.
Rc3 - Rd7 32. Re2 - Re5 33.
Hfl — Rf6 34. Rf4 — Bd7 35.
Hg3 - Hg8 36. Rg6+ - Kh7
37. Rxe5 — dxe5
Sævar Bjarnason
Hvíti hefur með öflugri tafl-
menr „ í miðtaflinu tekist að
byggja upp álitlega stöðu. Hér eða
í næsta leik var Khl sjálfsögð
varúðarráðstöfun, en í tímahraki
verður Þröstur of bráður og fer
að tefla upp á að leika Rg5+.
Sævar hefur aldrei verið þekktur
fyrir að fá vinninga með brellum
í tímahraki, en lætur nú ekki happ
úr hendi sleppa og nær frum-
kvæðinu:
38. Rf3 — De7 39. Dh2? - Rg4!
40. Dh5 - BfB 41. Khl - Hg6
42. Hfgl - Dg7 43. Rh4 -
Rf2+ 44. Kh2 — Hxg3 45. Hxg3
- Bg4!
Vegna afkáralegrar staðsetn-
ingar hvítu drottningarinnar á h5
kemst hvítur nú ekki hjá skipta-
munstapi og endataflið er auðvit-
að vonlaust.
46. Df5+ — Bxf5 47. Hxg7+ —
Bxg7 48. Rxf5 - Hb8 49. Bc3
- Rg4+ 50. Kg3 - h5 51. Kh4
- Bf6+ 52. Kxh5 - Hg8 53.
Bd2 — R£2 54. Be3 — Hg2 55.
Bxf2 - HxS 56. Re3 — Hf3
57. Rf5 - Hxa3 58. Rd6 - Hg3
59. Ba4 - Bd8 60. Rf7 — Bf6
61. Rd6 - Be7 62. Rc8 - Bc8
63. Bc6 - a5 64. d6 - Hg5+
65. Kh4 - Hgl+ 66. Kh5 - Hal
67. d7 - a4 68. Rd6 - a3 69.
Rf7 - a2 70. Rxd8 - Hhl+ 71.
Kg5 - al=D 72. Re6 - Dfl 73.
d8=D - Hgl+ 74. Kh4 - D£2+
og hvítur gafst upp.
Áslaug Guðjóns-
dóttir - Minning
Fædd 13. júlí 1902
Dáin 13. mars 1989
í dag verður kvödd hinstu kveðju
frá Fossvogskirkju góð vinkona mín,
Áslaug Guðjónsdóttir, er lést á Dval-
arheimili aldraðra, Hrafnistu, Hafn-
arfirði, 13. mars sl., en þar hafði hún
dvalið í þijú ár og undi þar vel hag
sínum.
Áslaug heitin var fædd í Bratts-
holti f Stokkseyrarhreppi 13. júlí
1902, en ólst upp að Hólmi í sömu
sveit. Hún var elst fjögurra bama
hjónanna Jóhönnu Jónínu Jónsdóttur
og Guðjóns Jónssonar. Þá átti hún
einnig tvær hálfsystur er voru eldri.
Á uppvaxtarárunum á Stokkseyri
vandist Áslaug öllum algengum
störfum, sem til féllu, en réðst síðan
til Vestmannaeyja til vinnu við heim-
ilisstörf og dvaldi þar um tfma.
Til Reykjavfkur fluttist Áslaug
síðan árið 1923 og hér í boig átti
hún heimili síðan, eða allt til þess
tíma, er hún flutti á Hrafnistu.
í Reykjavík sinnti hún einnig
heimilisstörfum, réð sig í vist, eins
og það var kallað. Lengst starfaði
hún á heimili þeirra hjóna Jóns Páls-
sonar bankagjaldkera og konu hans,
Önnu Adólfsdóttur.
Mat hún þau hjón mikils og minnt-
ist þeirra með hlýhug. Hinn 3. jan-
úar 1931 var hamingjudagur í lffí
Áslaugar, en þá giftist hún Oddi
Halldórssyni, sem fæddur var að
Reykjadalskoti í Hrunamannahreppi
12. febrúar 1890. Oddur lést hér í
borg 14. maí 1965, mikill öðlingur
og hvers manns hugljúfí.
Hjónaband þeirra var einstaklega
farsælt og mikið ástríki með þeim
hjónum.
Þeim varð þriggja sona auðið:
Halldór Gfsli, skipstjóri, er lést 5.
mars 1987, langt um aldur fram, 53
ára gamail. Var hann ókvæntur.
Guðjón, kaupmaður, kvæntur Gfslínu
Kristjánsdóttur, og Bjarni, veggfóðr-
arameistari, kvæntur Elsu Friðjóns-
dóttur. Bamabömin eru sex og eitt
bamabamabam.
Ungur að ámm varð ég þeirrar
gæfu aðnjótandi að kynnast þeim
hjónum, Ásiaugu og Oddi, en elsti
sonur þeirra, Halldór Gísli, og undir-
ritaður voru jafnaldrar og æskuvinir.
Þær urðu því margar heimsóknimar
á heimili þessara elskulegu hjóna,
og þar mætti ég ævinlega einstakri
hlýju og vinsemd, sem mér fannst
alltaf einkenna dagfar þeirra beggja.
Sérstaklega eru mér minnisstæðar
tfðar heimsókr.ir mínar á Laufásveg
59, meðan heimili þeirra stóð þar,
og ég í skóla í næsta nágrenni.
Mikið var þá notalegt að skreppa
til Áslaugar og sníkja kaffísopa, þeg-
ar kennslustund féll niður. Það sem
öðru fremur einkenndi Áslaugu var
frábær gestrisni og höfðingskapur.
Hún var með afbrigðum myndarleg
húsmóðir í öllum verkum sínum og
snyrtimennska í blóð borin.
Eftir því var einnig tekið, hversu
vel hún fór með alla hluti og nýtti
vel. Er ekki ólíklegt að þar hafí
gætt áhrifa uppvaxtaráranna á
bemskuheimili hennar, þegar oft var
þröngt í búi, eins og víðast hvar
annars staðar á fyrstu áratugum ald-
arinnar.
Áslaug var hreinskilin f öllum sam-
skiptum, var ekki myrk í máli, ef
því var að skipta, en sanngjöm í
dómum um menn og málefni. Ég
minnist þess, ,að oft urðum við ósam-
mála og hún undraðist ungæðislegar
skoðanir mínar, hér á árum áður, en
aldrei skyggði það á trausta og góða
vináttu hennar. Lítilmagnar, menn
og málleysingjar, áttu í henni góðan
liðsmann. Þegar ég nú lít yfír farinn
veg, og kynni mín af Áslaugu, er
bjart yfir minningunum.
Áslaug var gæfumanneslga. Hún
átti umhyggjusaman og tryggan
lífsförunaut.
Synimir þrír erfðu alla góða kosti
elskulegra foreldra, mannkostamenn
f bestu merkingu þess orðs.
Og nú er komið að kveðjustund.
í dag verður Áslaug lögð til hinstu
hvíldar við hlið eiginmanns og elsta
sonar.
Ljúf samfylgd þeirra allra og trygg
vinátta er þökkuð og minning þeirra
blessuð.
Hugheilar samúðarkveðjur flyt ég
þeim Guðjóni, Bjama og fjölskyldum
þeirra og bið þeim allrar blessunar.
Tómas Sturlaugsson
í dag, þriðjudaginn 21. mars, er
lögð til hinnar hinstu hvílu amma
mín, Áslaug Guðjónsdóttir. Hún var
dóttir hjónanna Jóhönnu Jónsdóttur
og Guðjóns Jónssonar. Bemsku sinni
eyddi hún á heimili foreldra sinna
að Hólmi á Stokkseyri ásamt þremur
systkinum sfnum. I þeirra hópi var
amma elst, næstur í röðinni var Páll,
en hann lést fyrir allmörgum árum.
Þar á eftir Hólmfríður, hún hefur
allan sinn búskap búið í Vestmanna-
eyjum. Yngstur er Sigurgestur bú-
settur í Kópavogi. Amma átti einnig
tvær eldri systur, þær Sólborgu og
Guðrúnu, sem báðar eru látnar.
Saman áttu systkinin ánægjuleg
uppvaxtarár, þar sem bömum var
snemma kennt að taka til hendinni
f leik og starfí. Sjálfsagt hefur
íslenska þjóðfélagið sjaldan gengið í
gegnum eins miklar breytingar á
þjóðfélagsháttum eins og f kringum
árin 1920—1940 þegar fólk flyst til
Reykjavikur í miklum mæli og
Reylgavíkurbær breytist f stórborg á
skömmum tíma. Eftir að vera búin
að vinna fyrir sér sem kaupakona á
ýmsum stöðum flyst amma til
Reykjavfkur 1923 og vinnur fyrir sér
sem vinnukona. Vafalítið hefur það
verið konu á þessum tíma góður og
lærdómsríkur skóli. Enda bar heimili
hennar ávallt vott mikillar atorku og
hreinlætis.
1931 giftist amma afa mínum,
Oddi Halldórssyni, en hann lést árið
1965, þau bjuggu sinn búskap í
Reykjavík. Saman varð þeim þriggja
sona auðið. Halldór Gísli fæddur
1932, en hann lést fyrir aldur fram
aðeins 52 ára gamall. Annar sonur
þeirra Guðjón fæddur 1939, giftur
Gíslínu Kristjánsdóttur. Yngstur er
Bjami fæddur 1947, giftur Elsu B.
FYiðjónsdóttur.
Amma bjó manni sinum og sonum
hlýtt og traust heimili, sem vafalítið
hefur verið það besta veganesti sem
hún gat látið þeim í té.
Sfðustu búskaparárin bjó amma
að Háaleitisbraut ásamt elsta syni
sfnum er reyndist henni alveg ómet-
anleg hjálparhella. Sfn sfðustu ár
dvaldi hún í góðu yfírlæti á Dvalar-
heimili aldraðra, Hrafnistu, Hafnar-
fírði.
Ég á ömmu minni margar og
ómetanlegar stundir að þakka og er
mjög þakklát fyrir að hafa kynnst
henni eins vel og ég gerði.
Ég veit að henni er tekið opnum
örmum á góðum stað sem við öll
munum hverfa til en minningin um
góða ömmu lifir.
Mig langar til að kveðja hana með
kvöldbæn sem hún kenndi mér sem
lítilli stelpu.
Nú legg ég augun aftur
6 guð, þinn náðar kraftur
mfn veri vöm í nótt
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfír láttu vaka,
þinn engil,
svo ég sofi rótt“
(Sveinbj. Egilsson)
Blessuð sé minning hennar.
Jóhanna Margrét
Guðjónsdótdr