Morgunblaðið - 21.03.1989, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 21.03.1989, Qupperneq 64
[FERSKLEIKI ÞEGAR MESTÁ REYNIR Mil§S $ SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50 VID MIKLAGARÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1989 VERÐ I LAUSASOLU 80 KR. Bæjarráð Hafhar- flarðar samþykkir ‘sorpböggunarstöð BÆJARRÁÐ Hafnarflarðar hefur samþykkt að veita Sorpeyðing- um höfuðborgarsvæðisins bs. vilyrði fyrir 25.000 fermetra lóð í Hellnahrauni undir sorpböggunarstöð. Fjallað hefur verið um umsóknina í náttúruverndar- og heilbrigðisnefiid bæjarins og var mælt með lóðaúthlutuninni i báðum nefndunum, að uppfyiltum ákveðnum skilyrðum, að sögn Guðmundar Árna Stefánssonar bæjarstjóra. í samþykkt bæjarráðs segir: „Bæjarráð samþykkir að gefa Sorpeyðingum höfuðborgarsvæð- isins bs. vilyrði um allt að 25 þús. fermetra lóð í Hellnahrauni fyrir ^•fböggunarstöð. Sorpeyðingum höf- uðborgarsvæðisins bs. skal gerð sérlega grein fyrir eftirtöldu atrið- um auk þeirra, sem fram koma í viðræðum og með hliðsjón af fund- argerðum heilbrigðisnefndar og náttúruvemdamefndar enda náist samkomulag um lausnir þeirra. 1. Mengunarvamir, 2. umferð, og 3. greiðsla gjalda. Endanleg lóðarúthlutun er háð því að samkomulag náist um öll ^^atriði, sem áður greinir, við bæjar- yfírvöld og tilskilin leyfí sfjóm- valda liggi fyrir að verði veitt, þar á meðal staðsetningar- og starfs- leyfí. Byggðasamlagið skal Ieggja fram áíætlun um nýtingu lóðar framgang framkvæmda o.s.frv. áður en til úthlutunar kemur." „Að venju er fyrst veitt vilyrði fyrir lóðinni og væntanlegum lóð- arhafa falið að leggja fram allar þær upplýsingar sem um er beð- ið,“ sagði Guðmundur Ámi. „Það má því segja að búið sé með þess- ari samþykkt að gefa „gult“ ljós fyrir lóð undir böggunarstöð." Frá talningu atkvæða hjá HÍK i gærkvöldi. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Framhaldsskólakennarar saniþykkja að fara í verkfe.ll Tíu aðildarfélög BHMR hafa samþykkt að fara í verkfall HIÐ íslenska kennarafélag hefúr samþykkt að fara í verkfall hinn 6. april næstkomandi og mun þá öll kennsla í mennta- og fjöl- brautaskólum landsins leggjast niður hafí samningar ekki tekist við sljómvöld fyrir þann tíma. Finnbogi Rútur Valdemarsson iátinn FINNBOGI Rútur Valdemarsson, fyrrum alþingismaður og banka- stjóri, lézt sl. sunnudag, 82 ára að aldri. Finnbogi Rútur var þjóðkunnur maður fyrir afskipti sín af stjórnmálum. Hann var ritstjóri Alþýðublaðsins frá 1933 til 1938. Hann sat á Alþingi fyrir Sameiningarflokk alþýðu — Sósíaliatjtflnkkinn — og síðar Alþýðubandalagið frá 1949 til 1963 og bankastjóri Útvegs- banka íslands var hann frá 1957 tfl 1972. Finnbogi Rútur var, ásamt eig- inkonu sinni, Huldu Jakobsdótt- ur, einn helzti forystumaður um anppbyggingu Kópavogs og fyrsti bæjarstjóri þar. Þau hjónin vora kjörin fyrstu heiðursborgarar Kópavogs. Finnbogi Rútur Valdemarsson var fæddur 24. september 1906 að Fremri-Amardal við Skutulsfjörð í Norður-ísafíarðarsýslu. Foreldrar hans voru Valdemar Jónsson bóndi þar og eiginkona hans, Elín Hanni- balsdóttir. Finnbogi Rútur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1927 og lagði stund á alþjóðarétt í París, Genf, Berlín og næstu árin. Hann var búsettur - að Marbakka í Kópavogi frá 1940 til æviloka. Árið 1933, er hann kom heim frá námi, beitti hann sér fyrir stofnun Alþýðuskólans í Reykjavík ásamt Sigfúsi Sigurhjartarsyni, alþingis- manni, en sá skóli starfaði til ársins 1942. Hann gekkst einnig fyrir jitofnun Menningar- og fræðslu- sambands alþýðu, sem gaf út fjöl- margar bækur og var fram- Kennsla í efstu bekkjum grunn- skóla mun einnig verða fyrir ein- hverri röskun, en á tólfta hundr- að félagsmenn eru í HÍK. Þá samþykktu einnig verkfallsboð- un í gær Félag háskólamennt- aðra hjúkrunarfræðinga, Stétt- arfélag lögfræðinga í ríkisþjón- ustu og Sálfræðingafélag ís- lands, en Félag fréttamanna hef- ur eitt félaga, sem hafa efnt til atkvæðagreiðslu, fellt að fara i verkfall. Hjá HÍK voru 1.161 á kjörskrá, en atkvæði greiddu 960 eða 82,7%. Já sögðu 506 eða 52,7% og nei 417 eða 43,4%. Ógild voru 3 atkvæði eða 0,3% og auðir seðlar 34 eða 3,6%. „Ég vil lýsa ánægju minni með það að félagsmenn skuli hafa ákveðið að standa að baki stjóm félagsins," sagði Wincie Jóhanns- dóttir, formaður HÍK, í samtali við Morgunblaðið, þegar þessi úrslit voru kunn á níunda tímanum í gærkveldi. „Það er engin hætta á öðru en að menn standi saman um ákvörðun meirihlutans, en ég geri ráð fyrir að bágt ástand heimilanna sé ein ástæðan fyrir að margir eru tregir til átaka. Við erum búnir að vera með lausa samninga svo lengi að margir eru komnir í mjög miklar fjárhagskröggur. Önnur ástæða er að það er búið skipulega að fótum- troða rétt okkar og möguleika á félagsstarfi og það hefur áhrif á viðhorf fólks. Fyrst erum við dregin á asnaeyrum í marga mánuði í við- ræðum og síðan var skellt á okkur lögum. Við höfum slæma reynslu af samningum. Ýmsar nefndir hafa verið settar á fót til þess að bæta hag kennara og út úr því hefur ekkert komið," sagði Wincie enn- fremur. Aðspurð um hvort hún eigi von á átökum, sagði hún það undir fjár- málaráðherra komið og hvort hann léti sína umboðsmenn fara að vinna af meiri alvöru að því að ná samn- ingum. „Við vonum það mjög að það þurfí ekki til verkfalls að koma. Kennarar eru ekki sá hópur manna, sem vill vera í verkfalli, og það eru nemendur sem verða fyrir barðinu á því að við þurfum að fara í hart til þess að sækja okkar rétt í kjara- málum," sagði hún að lokum. Hjá Félagi háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga voru 127 á kjör- skrá og 123 greiddu atkvæði eða 96,9%. 72 sögðu já eða 58,5% og nei sögðu 49 eða 39,8%. Auðir seðlar voru 2 eða 1,6%. Félagsmenn sem starfa hjá ríkinu eru einkum á Landspítalanum og á heilsugæslu- stöðvum víða um land. Hjá Stéttarfélagi lögfræðinga í ríkisþjónustu voru 130 á kjörskrá og 101 sem greiddi atkvæði. 61 sagði já og 39 nei og einn seðill var auður. Félagsmenn starfa í dómskerfinu og hjá ýmsum ríkis- stofnunum. Aðildarfélög Bandalags hákóla- menntaðra ríkisstarfsmanna eru 23 samtals. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa tíu samþykkt að fara í verkfall 6. apríl, eitt hefur fellt, að minnsta kosti þijú fara ekki í atkvæðagreiðslu og atkvæða- greiðsla stendur ennþá yfir í nokkr- um félögum eða það er ekki búið að telja. Félögin sem samþykkt hafa auk ofantaldra eru: Félag bókasafnsfræðinga, Félag íslenskra fræða, Félag íslenskra náttúru- fræðinga, Félag íslenskra sjúkra- þjálfara, Iðjuþjálfafélag íslands og Matvæla- og næringarfræðingafé- lag íslands. Finnbogi Rútur Valdemarsson kvæmdastjóri bókaútgáfu MFA frá 1938 til 1944. Á Alþingi beindust störf Finn- boga Rúts ekki sízt að utanríkismál- um. Hann átti sæti í utanríkismála- nefnd Alþingis frá 1949-1963 og í landhelgisnefnd sat hann frá 1957- 1974. Hann var einn af fulltrúum íslands á hafréttarráðstefnunni í Caracas 1974. Finnbogi Rútur Valdemarsson kvæntist árið 1938 Huldu Dóru Jakobsdóttur, fyrrverandi bæjar- stjóra í Kópavogi, og lifír hún eigin- mann sinn. Sjá minningarorð forseta sameinaðs þings á bls. 37. Ríkinu boðinn til kaups 20% hlutur í Flugieiðum ÁKVEÐNIR hluthafar Flugleiða, sem eiga um 20% í félaginu, hafa boðið rikinu sinn hlut til kaups á fíórföldu na&iverði. Gangverð hlutabréfa í Flugleiðum er um þrefalt nafiiverð þannig að bréfín eru 150-200 milljón króna virði en tilboðið hljóðar upp á talsvert hærri upphæð. Þetta hefúr Morgunblaðið eftir áreiðanlegum heim- ildum, en samkvæmt upplýsingum Steingríms J. Sigfússonar sam- gönguráðherra og Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra hefúr engin ákvörðun verið tekin um hvort tilboðinu verður tekið eða ekki. Aðalfúndur Flugleiða verður haldinn i dag ,Við höfum vitað það um all- langa hríð að talsvert stór hluti hluthafa í Flugleiðum er reiðubú- inn að selja sinn hlut,“ sagði sam- gönguráðherra í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru í forsvari fyrir þessa hluthafa þau Kristjana Milla Thorsteinsson, Éin- ar Árnason og Dagfínnur Stefáns- son sem öll tengjast gamla Loft- leiðaarminum. Samgönguráðherra sagði að rætt hefði verið um þetta tilboð innan ríkisstjómarinnar út frá því sjónarmiði hvort ekki væri skyn- samlegt að ríkið gerðist eignarað- ili að Flugleiðum á ný einkum ef Flugleiðir yrðu eina millilandaflug- félagið á nýjan leik. „Ég er þeirrar skoðunar að það hafi verið algjör mistök af hálfu ríkisins að selja sinn hlut í Flugleiðum á sínum tíma,“ sagði Steingrímur J. Sigfús- son. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði: „Ég veit að ákveðnir hluthafar Flugleiða hafa boðið þetta, en málið er ( höndum ijármálaráðherra og hefur ekki komið til kasta ríkisstjómarinnar í heild." Forsætisráðherra kvaðst einnig telja að það hefði verið vanráðið hjá Albert Guðmundssyni sem íjár- málaráðherra að selja hlut ríkisins í Flugleiðum á sínum tíma við jafn- vægu verði og raun bar vitni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.