Morgunblaðið - 15.04.1989, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1989
Skagaströnd:
Tveir brunar á þrem-
ur árum hjá Marki hf.
Skagaströnd.
Tugmilljóna tjón var í plastverksmiðju Marks hf. aðfaranótt
föstudagsins 14. apríl. Brunnu þar til kaldra kola mót, plastbátar
á ýmsum byggingarstigum, lager, tæki og áhöld, auk verksmiðju-
hússins sjálfs.
Það var um klukkan 3.30 um
nóttina sem slökkvilið Skaga-
strandar var kallað út að verk-
smiðjuhúsinu. Mikill eldur var í
húsinu þegar slökkviliðið kom á
staðinn og skömmu eftir að
slökkvistarf hófst féll vestasti
hluti hússins.
Um tíma var nærliggjandi hús
í hættu en slökkviliðinu tókst að
veija það. Slökkvistarfið tók um
tvo og hálfan klukkutíma en að
því loknu var nánast allt brunnið
í húsinu sem brunnið gat.
í húsinu var einn 15 tonna
bátur í smíðum og var búið að
steypa hann að mestu leyti. Einn-
ig var í húsinu annar bátur ca.
10 tonn sem var verið að vinna
við. Þriðji báturinn stóð upp við
vegg hússins utanverðan og brann
hann það mikið að hann er ónýt-
ur. Þá brann megnið af bókhalds-
gögnum fyrirtækisins ásamt lag-
ervélum, tækjum og verðmætum
plastmótum.
Þetta er í annað sinn sem stór-
bruni verður hjá Marki hf. því
ekki eru liðin full 3 ár síðan plast-
verksmiðjan brann til grunna. Þá
var fyrirtækið í leiguhúsnæði og
var annar aðaleigandinn hætt
kominn er hann lokaðist inni í
eldinum og komst ekki út fyrr en
sprenging inn í verksmiðjunni
kastaði honum út um gluggann.
Síðan hafði fyrirtækið byggt yfír
starfsemi sína 480 fm stálgrinda-
hús og verið rekið þar af krafti.
Eðvarð Ingvason annar aðal-
eigandi Marks hf. sagði að það
væri hörmulegt að kóma að fyrir-
tækinu í rúst í annað sinn á þrem-
ur árum, sagði hann allt óljóst
með framtíð fyritækisins og væru
menn enn að reyna að átta sig á
aðstæðum.
Hann sagði að þegar menn
hefðu hætt vinnu klukkan fímm
á fimmtudag, hefði allt verið í
stakasta lagi í verksmiðjunni og
kunni hann engar skýringar á
eldsupptökum.
- Ó.B.
Allt brann, sem brunnið gat og töluverð hætta var á spreningum
vegna gashylkja, sem í húsinu voru.
Hagnaður Landsvirkjunar
á síðasta ári 186 milljónir
Eigið fé 17 milljarðar
HAGNAÐUR af rekstri Lands-
virkjunar var 186 milljónir króna
á síðasta ári, og er það fímmta
árið í röð, sem rekstur fyrirtæk-
isins er jákvæður. Eigið fé fyrir-
tækisins nam um 17 miiyörðum
króna um áramótin. Það eru
36,4% af heildareign fyrirtækis-
ins, sem er um 46 milýarðar, og
er meira en hjá nokkru öðru
fyrirtæki eða stofhun hér á Iandi.
Þetta kom meðal annars fram í
skýrslu Halldórs Jónatanssonar,
forstjóra Landsvirkjunar, á árs-
fundi fyrirtækisins í Viðey í gær.
Raforkuverð Landsvirlqunar til
almenningsveitna lækkaði enn á
árinu 1988; um 1,2%. Að sögn
Halldórs Jónatanssonar hefur verð-
ið þá lækkað alls um 32% að raun-
gildi miðað við byggingarvistölu frá
árinu 1984. Verð til Aburðarverk-
smiðju ríkisins lækkaði einnig um
10,9%, en hækkaði um 24,6% til
ísal og um 8,9% til Járnblendifé-
lagsins.
Landsvirkjun greiddi 838 milljón-
ir króna í afborganir af langtíma-
lánum á síðasta ári. Nýjar lántökur
vegna framkvæmda voru hins vegar
573 milljónir króna, og lækkuðu
skuldimar því um 265 milljónir.
Hlutur Landsvirkjunar í heildar-
skuld þjóðarinnar erlendis hefur
Iækkað úr um 30% árið 1983 í 20%
um síðustu áramót. Vegna hinnar
hagstæðu rekstrarafkomu verður
eigendum Landsvirlq'unar greiddur
um 4% arður. Þar af fær ríkið 26,2
milljónir, Reykjavíkurborg 23,3
milljónir og Akureyrarbær 2,8 millj-
ónir.
Jóhannes Nordal, stjómarform-
aður Landsvirlqunar, sagði í ræðu
sinni að hann hefði miklar efasemd-
ir um tillögu, sem lögð hefði verið
fram á Alþingi, um að Rafmagn-
sveitur ríkisins sameinuðust Lands-
virkjun. „Landsvirkjun er æði stórt
fyrirtæki á íslenzkan mælikvarða
þegar í dag, og tæpast hollt að
stefna í átt til enn meiri samþjöpp-
unar í þessum efnum en þegar er
fyrir hendi," sagði Jóhannes. „Þar
að auki tel ég æskilegast, að skipu-
lag aforkudreifingar sé með svipuð-
um hætti alls staðar á landinu og
frekar sé stefnt að aukinni aðild
sveitarfélaga á hveijum stað að
þeirri starfsemi en aukinni miðstýr-
ingu. Út frá þessu sjónarmiði virð-
ist það vænlegri kostur að stefna
að sameiningu dreifíveitna í ein-
stökum landshlutum með eignarað-
ild ríkis og sveitarfélaga, eins og
þegar hefur átt sér stað á Vest-
fjörðum og Suðumesjum."
Jóhannes sagði að ef ekki yrði
stefnt að frekari sameiningu raf-
veitna en orðið væri, kæmi annað
hvort tii greina að Landsvirkjun
keypti eða leigði flutningslínur og
aðveitumannvirki af RARIK , eða
að dreifíveitumar yfírtækju sjálfar
þessi mannvirki og kæmust þannig
í beint samband við Landsvirkjunar-
kerfíð. Hann sagði að Iðnaðarráðu-
neytið hefði fyrir nokkmm dögum
óskað viðræðna við Landsvirkjun
um þessi mál. Jón Sigurðsson iðnað-
arráðherra fagnaði afstöðu Jóhann-
esar, er hann ávarpaði fundinn.
Hagsmunum
best borgið
með leigu
-segir búsljóri
um gjaldþrot Sigló
BÚSTJÓRI þrotabús Sigló á Sigl-
ufírði, Guðmundur Kristjánsson
hdl, segir að hagsmunum þrota-
búsins hafi best verið borgið með
því að leigja Siglunesi hf rekstur-
inn. Leigusamningurinn sé búinu
hagstæður og tryggingar séu
metnar fullnægjanndi. Samning-
urinn gildir til 6. nóvember og
segir Guðmundur að á skipta-
fíindi verði efíii hans gert opin-
bert en þangað til sé um trúnaðar-
mál leigjenda og þrotabúsins að
ræða, bæði hvað varðar leiguverð
og tryggingar.
Jón Guðlaugur Magnússon hlut-
hafí í Siglunesi og fyrrum formaður
Sigló segir að þar sem um leigu-
samning sé að ræða sé ekkert því
til fyrirstöðu að aðrir kaupi verk-
smiðjuna á samningstímanum eða
að honum liðnum. Hins vegar sé
ólíklegj, að nokkrum öðrum aðilum
hefði verið mögulegt að koma verk-
smiðjunni í rekstur svo fljótt. Jón
Guðlaugur segir skýringuna á því
þá, að hluthafar Sigló hafí verið í
persónulegum ábyrgðum gagnvart
dönsku kaupleigufyrirtæki sem eigi
framleiðslutæki verksmiðjunnar.
Þeir hafí persónulegan samning við
danska fyrirtækið sem heimili þeim
afnot af tækjunum og ekki hefði
veirð fallist á framsal þess réttar til
annarra nema á móti kæmi yfírtaka
þeirra ábyrgða. Hann sagði að þegar
væri heimilt að auka hlutafé úr 2
milljónum í þijátíu og með samþykkt
stjómar sé hægt að auka hlutafé enn
frekar. Hann segir að ekki hafí ver-
ið talið rétt að leggja of mikið í hlut-
afé fyrr en ljóst yrði hvort fyrirtæk-
ið fengist leigt. Hann sagði hugsan-
legt að stefnt yrði að kaupum á
verksmiðjunni. Aðspurður sagði Jón
Guðlaugur Magnússon að leigu-
samningurinn væri trúnaðarmál að
ósk bæjarfógeta en frá sinni hendi
væri ekkert því til fyrirstöðu að gera
efni hans opinbert.
Jón Guðlaugur segir að hluthaf-
amir muni tapa stórfé á gjaldþroti
Sigló. „Hveijir tapa á gjaldþrotum?
Kröfuhafar, eigendur og starfs-
menn,“ sagði hann.
Ibúar Garðabæjar taldir
verða um 8.600 árið 2005
Landnýtingarkort borið í hús á næstunni
REIKNAÐ er með, að 1300 íbúð-
ir verði byggðar í Garðabæ fram
til ársins 2005 eða að jafnaði 65
íbúðir á ári. Kom þetta fram á
fréttamannafundi í gær, þar sem
Verkfa.il BHMR:
Engin áhrif
á útflutn-
ing’lagmetis
VERKFALL BHMR hefur ekki
áhrif á útflutning lagmetis frá
landinu. Verksmiðjur tengdar
Sölustofnun lagmetis hafa til
skamms tíma leitað til Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins til að fá
metin gæði afíirða sinna. Nú hefur
SL komið á fót eigin tæknideild
og annast hún gæðaúttekt á afurð-
unum í stað RF.
Theodór S. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Sölustofnunar lagmet-
is, sagði í samtali við Morgunblaðið,
að SL hefði stofnað eigin tæknideild
árið 1987 og hefði hún smám saman
verið að taka yfír útgáfu gæðavott-
orða vegna útflntnings'íiite^ríiétit * 14tfeá>æja*tóaíiðins tfræðáBtnáh i i atnrt i mai i sét3ttaíU landnýtingar-
Ingimundur Sigurpálsson, bæjar-
sljóri og Arni Ólafiir Lárusson,
formaður skipulagsnefíidar
gerðu grein fyrir aðalskipulagi
bæjarins. Stefíit er að því, að
halda sömu einkennum á nýrri
byggð í bænum og þeirri, sem
fyrir er, þannig að mestur hluti
fyrirhugaðra íbúða verður í ein-
býlis- og raðhúsum, enda þótt
einnig sé gert ráð fyrir Qölbýlis-
húsum.
Á sviði atvinnumála er stefnt að
því, að álíka mörg störf verði í
Garðabæ og íbúafjöldi bæjarins
krefst. Verður þannig þörf á nýjum
störfum fyrir 3000 manns til loka
skipulagstímabilsins. Atvinnusvæði
verða víða um bæinn og má þar
helzt nefna iðnaðarsvæði við Amar-
vog og á vestanverðu Hraunsholti,
iðnaðar og þjónustuhverfí í Moldu-
hrauni við Reykjanesbraut og fyrir-
hugaðan Alftanesveg og síðast en
ekki sízt miðbæjarsvæði Garðabæj-
ar við Vífilstaðaveg, þar sem gert
er ráð fyrir margvíslegum verzlun-
ar- og þjónustufyrirtækjum og
stofnunum.
Auk fyrrgreindra þátta tekur
aðalskipulagið til og markar stefnu
í ýmsum málaflokkum, sem snerta
Morgunblaðið/Júlíus
Aðalskipulagið var kynnt á ftindi með fréttamönnum í gær. Til
vinstri á myndinni eru höfundar skipulagsins, Einar Ingimarsson
og Pálmar Olason, arkitektar og skipulagsfræðingar, en til hægri
eru Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garðabæ og Arni Olafíir
Lárusson, formaður skipulagsnefndar.
félags-, menningar- og heilbrigðis-
mál, samgöngur, umhverfi, útivist
og opinbera þjónustu. Við gerð að-
alskipulagsins er stuðst við íbúaspá
Jóns Erlings Þorlákssonar trygg-
ingafræðings og er þar gert ráð
fyrir, að íbúar Garðabæjar verði um
8600 árið 2005.
Aðalskipulagið, sem nær yfír 20
ára tímabil, verður kynnt bæjarbú-
korti, sem borið verður í hvert hús
í bænum á næstunni. Skipulagið
var samþykkt í bæjarstjóm Garða-
bæjar 12. marz 1987 og síðan sam-
þykkt í skipulagsstjóm ríkisins og
staðfest af félagsmálaráðherra 12.
maí 1987. Það er fyrsta staðfesta
aðalskipulag Garðabæjar, en höf-
undar þess em arkitektamir og
skipulagsfræðingarnir, Pálmar Óla-
son, Gestur Olafsson og Einar Ingi-
marsson___________________________