Morgunblaðið - 15.04.1989, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. APRIL 1989
Mat Þjóðhagsstofiiunar á áhrifum BSRB-samningsins:
Launaútgjöld 450 millj-
ónir umfram flárlögin
Fiskvinnsla og veiðar með 10% halla í lok samningstímans verði
almennar launabreytingar í samræmi við BSRB-samninginn
I SVARI sem Þjóðhagsstofnun hefur látíð frá sér fara vegna fyrir-
spurna Vinnuveitendasambandsins og Vinnumálasambands samvinnufé-
laga um áhrif kjarasamninganna milli ríkis og Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja og Reykjavíkurborgar við starfsmannafélag þess kemur
fram að stofnunin telur að launahækkunin frá upphaS tíl loka samn-
ingstímans sé um 9,5% fyrir félaga BSRB og þýði 8,5% hækkim verði
almennar launahækkanir hliðstæðar þeim samningi.
í svari Þjóðhagsstofnunar við fyrstu áhrifa kjarasamninganna tek-
spumingu vinnuveitenda um mat á
hækkun launa í prósentum frá upp-
hafí til loka samningstíma kemur
einnig fram að ýmiss ákvæði séu í
samningnum, svo sem um rýmkun á
bamsburðarleyfum, veikindaforföll-
um og um ráðningarform sem hún
telur sig þó ekki hafa tök á að leggja
mat á en telur ekki um verulegar
fjárhæðir sé þar að tefla.
í svari við spumingu um mat á
útgjaldauka ríkisins vegna samning-
anna ef hliðstæð hækkun gengur á
öll launaútgjöld ríksins kemur fram
að Þjóðhagsstofnun telur þau munu
hækka um nálægt 450 milljónir um-
fram flárlög fyrir 1989.
Þjóðhagsstofnun er einnig beðin
um mat á rekstrarafkomu sjávarút-
vegs og hvemig launabreytingar á
borð við þær sem BSRB-samningur-
inn felur í sér geti komið fram í
rekstrarafkomu fískvinnslunnar. í
svari sínu segir Þjóðhagsstofnun að
miðað við afkomuna án verðbóta á
freðfísk og sérstakri endurgreiðslu
uppsafnaðs söluskatts séu veiðamar
reknar með 4,5% halla og vinnslan
með 3,5% halla og sameiginlega séu
því veiðar og vinnsla reknar með 5,5%
halla. Miðað við 4% hækkun launa
er áætlað að afkoma greinanna
tveggja verði í júnímánuði eftir að
ur að gæta þannig að þær verði rekn-
ar með 7,5% halla. Miðað við 9,5%
hækkun launa eða eins og áætlað er
að BSRB-laun hækki til nóvember-
loka, þá hefur afkoma veiða og
vinnslu enn versnað á þann veg í lok
samningstímans yrði hallinn um 10%.
(Sjá töflu).
Einnig er spurt hvað afurðaverð
erlendis þurfi að hækka mikið til að
jafnvægi náist í rekstri fiskvinnslu
við framangreind skilyrði og óbreytt
gengi krónunnar, svo og hversu mikla
gengibreytingu þyrfti ef ekki kæmi
til hækkanir á afurðaverði. Þjóð-
hagsstofnun svarar því til að almenn
hækkun markaðsverðs botnfísksaf-
urða um 1% leiði til afkomubata um
tæpt prósent í frystingu og um hálft
prósent í söltun, sem stafi af því að
hækkun salfiskverðs dragi úr greiðsh
um verðbóta úr verðjöfnunarsjóði. I
þessu felist því að 1% hækkun afurða-
verðs leiði til þess að afkoma físk-
vinnslu batni um 0,7% auk þess sem
hægar gangi á eignir verðjöfnunar-
sjóðs. Lækkun á gengi krónunnar um
1% leiðir hins vegar til þess að af-
koma fiskvinnslunar batnar um tæpa
þijá fjórðu úr prósenti og er þá reikn-
að með hækkun erlendra aðfanga
vegna gengislækkunarinnar.
Hreinn hagnaður sem hiutfall af tekjum,
m.v. 6% ávöxtun stofnfjár
Grunndæmi Dæmi I I)æmi 2 Dæmi 3
1 g 1 Ánverðbóta Ánverðbóta Ánverðbóta
áfreðfisk á freðfisk á freðfisk á freðfisk
% % % %
Veiðarogvinnsla •j-3 +Sé +7y* +10
Veiðar +4fi +4y2 +5y2 +7
Vinnsla +y2 -r3/2 +5 +7
Frystíng +2 +7 +8y2 + lff/;
Söltun 2 iy2 + 1
Taflan sýnir mat Þjóðhagsstofnunar á áhrifum BSRB-samninganna á
afkomu veiða og vinnslu gangi þeir yfir allan vinnumarkaðinn. Fremstí
dálkur sýnir ástandið nú en sá næstí afkomuna eftir að verðbótum og
endurgreiðslum uppsaihaðs söluskatts Iýkur. í dæmi 2 sést afkoman
eftir að fram er komin 4% hækkun launa eftir að fyrstu áhrifa hjara-
samninganna gætir í júnímánuði og 3 dæmið ástandið undir lok samn-
ingstíman þegar launahækkunin er öll komin fram.
Þórarinn V. Þórarinsson um niðurstöðuna:
Kemur mér ekkert á óvart
„ÞESSAR niðurstöður koma því
miður ekki á óvart,“ segir Þórar-
inn V. Þórarinsson framkvæmda-
stjóri VSÍ. „í fyrsta lagi er það
orðið bert að launasamningar
Ásmundur Stefánsson:
Geng’isfell-
ing er ekki
einalausnin
„ÞAÐ LIGGUR fyrir nýleg úttekt
Þjóðhagsstofiiunar á stöðu sjávar-
útvegs. Þessi nýja skýrsla er í
meginatriðum útfærsla á þeirri
áætlun. Það er þessvegna fátt
nýtt í henni og getur hún því tæp-
lega komið mjög á óvart. Það
hefiir áður verið staðfest að sjáv-
arútvegurinn stendur frammi fyr-
ir erfiðleikum en hins vegar er
rétt að árétta að stórfelld gengis-
felling er ekki eina lausnin," sagði
Ásmundur Stefánsson forseti Al-
þýðusambands Islands um skýrslu
Þjóðhagsstofiiunar um samninga
BSRB og rikisins.
Ásmundur taldi að ekki væri
ágreiningur á milli foiystu ASÍ og
vinnuveitenda að kauphækkanir til
ASÍ-fólks gætu ekki orðið minni en
fólk innan BSRB fengi. „Ég held að
það sé mjög nauðsynlegt að atvinnu-
rekendur bregðist við á þann hátt
að hefja samningaviðræður við okkur
enda er ákveðinnar þreytu farið að
gæta i okkar röðum.“ Bjóst Ásmund-
ur við að samningaviðræður hæfust
um eða strax eftir helgina. „Ef þær
viðræður skila ekki fljótlega árangri
þá hljóta okkar aðildarfélög að verða
að búa sig undir að veita frekari
þrýsting," sagði Ásmundur;
ríkisins við BSRB eru ekki innan
ramma fjárlaga eins og fjármála-
ráðherra hefur stöðugt hamast á.
Þar munar um hálfum milljarði
króna. f annan stað Iiggur það
fyrir samkvæmt þessum gögnum
að ef þessar launahækkanir
gengju yfir fiskvinnsluna þá
mundu þær setja veiðar og vinnslu
úr því sem er í reynd í dag fimm
og hálft prósent tap, sem þó er
niðurgreitt um eitthvað tvö og
hálft, í tíu prósent halla.“
„Skilaboðin frá ríkisstjóminni sem
marka efnahagsramann eru dulítið
misvísandi þessa dagana. Annars
vegar segir fjármálaráðherra að at-
vinnurekendur hljóti að haga samn-
ingum sínum við launafólk í sam-
ræmi við sitt bú, sem þýðir í reynd
það, að við ættum að ganga til verka-
lýðsfélaganna og kalla eftir launa-
lækkun. En hins vegar segir forsæt-
isráðherrann á fundi í Kópavogi í
gær, að augljóslega hljóti þessi
launahækkun að verða að koma til
framkvæmda á almennum vinnu-
markaði," sagði Þórarinn.
Morgunblaðið/Sverrir
Einar G. Baldvinsson verður heiðursgestur á sýningu Listmálara-
félagsins.
Listmálarafélagið sýnir á Kjarvalsstöðum:
Ekki alltaf hægt að
hjakka í sama fari
-segir Einar Baldvinsson, heiðursgestur sýningarinnar
FIMMTÁN listmálarar af liðlega tuttugu í Listmálarafélaginu
opna samsýningu i vestursal Kjarvalsstaða í dag klukkan 14.00.
Listmálarafélagið var formlega stofnað árið 1982 og hefur það
síðan sýnt reglulega. Þeir listmálarar, sem nú sýna, eru: Ágúst
F. Petersen, Benedikt Gunnarsson, Björn Birnir, Bragi ÁsgeirS-
son, Elias B. Halldórsson, Einar Hákonarson, Einar Þorláksson,
Einar G. Baldvinsson, Hafsteinn Austmann, Hrólfur Sigurðsson,
Jóhannes Geir, Jóhannes Jóhannesson, Karl Kvaran, Pétur Már
Pétursson og Sigurður Sigurðsson.
Heiðursgestur sýningarinnar er akademíunni í Kaupmannahöfn
Einar G. Baldvinsson, sem verður
70 ára þann 8. desember nk.
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við Einar þegar hann var
að koma myndunum sínum fyrir
á veggjum Kjarvalsstaða nú í vik-
unni. „Ég hef líklega fengið áhug-
ann á málaralistinni 10 ára gam-
all. Eldri bróðir minn var þá í iðn-
skóla og var mjög flinkur í teikn-
ingu. Eg fór þá að sækja mál-
verkasýningar hjá ungum lista-
mönnum, sem þá voru að stíga
sín fýrstu skref á listabrautinni,
svo sem Snorri Arinbjamar, Jó-
hann Briem, Þorvaldur Skúlason
og fleiri slíkir. Þessar sýningar
höfðu geysilega mikil áhrif á mig
og eitthvert undarlegt aðdráttar-
afl.“
Eftir bamaskólanám fór Einar
í héraðsskóla á Laugarvatni vetr-
arlangt og síðan var hann fjögur
ár í Iðnskólanum, sem þá var
kvöldskóli. Með Iðnskólanum fór
hann að stunda Handíða- og
myndlistarskólann og lauk hann
þar námi árið 1945 undir leiðsögn
Þorvaldar Skúlasonar og Kurts
Zier. Þá fékk Einar inni i Kunst-
þar sem hann var frá 1946-50.
Eftir heimkomuna kenndi Ein-
ar teikningu við Kennaraskólann
og Gagnfræðaskóla Vesturbæjar.
„Ég kom mér upp smá húsnæði
inn í Laugamesi og fluttist þang-
að árið 1950. Ég hef unnið ýmis-
leg störf um ævina, var til dæmis
við höfnina hjá Eimskip og fékkst
síðan við almenna húsamálun.
Maður varð jú að vinna fyrir sér
í þá daga. Menn lifðu ekki aldeil-
is af listinni einni saman. Ég var
í Laugarnesinu til ársins 1969,
en þá útvegaði ágætur maður mér
risíbúð vestur í bæ og þar hef ég
búið síðan og unað mér ágætlega.
Þá gat ég fyrst farið að gera eitt-
hvað að viti. Þá gat ég fyrst farið
að mála í alvöru,“ sagði Einar.
„Flestar myndanna eru eins-
konar sjávarlífsmyndir enda hef
ég haft gaman af svoleiðis mótív-
um. Ég var í abstraktinni fyrir
um 20 til 30 ámm og langar mik-
ið til að fara út í hana aftur á
meðan ég bý við sæmilega heilsu.
Það er ekki alltaf hægt að hjakka
í sama farinu," segir Einar.
Skýrsla utanríkisráðherra:
Æfingar 1000 manna varafiðs
verða hér á landi í sumar
- talið nauðsynlegt að hersveitin híjóti þjálfiin við íslenskar aðstæður
í SKYRSLU um utanríkismál sem Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra Iagði fram á Alþingi í gær kemur fram, að í sumar, eft-
ir 17. júní, er fyrirhuguð 1000 manna æfing varaliðs bandaríska
landhersins á íslandi. Til viðbótar verða hér um 200-300 manns úr
landher, flugher og flota vegna annarra þátta æfingarinnar og tíl
að fylgjast með henni. Notuð verða um 45 ökutæki á hjólum (ekki
beltum), þar á meðal fimm tonna flutningabílar og nýjasta gerð af
heijeppum. Æfingarnar fara fram á vamarsvæðum. „Eg tel nauðsyn-
legt, að hersveitin hljóti þjálfun við íslenskar aðstæður," segir ráð-
herrann í skýrslu sinni.
Utanríkisráðherra segir, að í ljósi
þeirra umræðna, sem orðið hafí á
Alþingi um æfíngar varaliðs banda-
ríska landhersins hér á landi, telji
hann ástæðu til að gera ítarlega
grein fyrir æfíngunum. Fyrir tæp-
um tveimur vikum kom til harðra
deilna á Alþingi vegna þessa máls
og lýsti Páll Pétursson, formaður
þingflokks Framsóknarflokksins,
sig andvígan- æfíngunum ásamt
með stuðningsmönnum ríkisstjórn-
arinnar í Alþýðubandalaginu.
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra komst þannig að orði,
að hann liti á æfíngarnar sem
1 „tímaskekkju“.
í skýrslu utanríkisráðherra segir
meðal annars um þetta mál:
„Fyrirhugað er að halda „North-
ern Viking“ æfinguna í síðari hluta
'júm'' og-"fyrstu - tvo dagana í júlf.
Fyrstu sveitimar koma til landsins
eftir 17. júní. Hér er um að ræða
venjubundna æfingu á flutningum
liðsauka til íslands. Á þessu ári
felst æfíngin aðallega í eftirfarandi:
- Æfíngu, í smáum stíl þó, allra
þriggja stiganna í framkvæmd
fyrstu vama á landi. Fyrsta stig
er það lið sem er nú þegar í
Keflavík, annað stig sá liðsauki sem
kemur strax frá Bandarílqunum og
þriðja og lokastigið varalið ARICE
[US Army Forces Iceland].
- Allra fyrstu varnir á landi.
Um 500 liðsmenn á Keflavíkurflug-
velli munu annast þær. Flestir
þeirra hafa önnur föst verkefni, en
hafa hlotið þjálfun til að annast
fyrstu vamir á jörðu niðri.
- - ■ — Aðstoð og liðsauki við- liðs-
mennina sem annast fyrstu vamirn-
ar. í æfingunni verða það 240
manns úr stórfylki landhersins
(Active Infantry Division) frá Kali-
forníu (ekki varalið).
- Sveitir úr varastórliðsfylki
ARICE frá Nýja Englandi, sem
hafa aðalstöðvar í Massachusetts,
munu leysa sveitir landhersins (Ac-
tive Infantry Dvision) af hólmi á
þremur dögum, þótt í æfingunni sé
látið svo sem það eigi að gerast á
mun lengri tíma. Fastasveitin, sem
er framvarðasveit, setur einnig á
svið flutnings til annars staðar og
dregur sig síðan til baka.
- Auk þess verður æfð þjálfun
sjúkraliðs og þar verða m.a. notað-
ar þrjár litlar sjúkraþyrlur.
- Nauðsynleg fjarskipti verða
•ehmig'æfð:" --------——