Morgunblaðið - 31.05.1989, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 31.05.1989, Qupperneq 24
24 'iw;!nfófrGÚNBLAÐIÐ ’MÍEÍ^ÍftftjSKÖfeWíðV.0081^1989 Mesta efiiahagskreppa í sögu Argentínu: Stjómin lýsir yfir neyð- arástandi vegna óeirða Buenos Aires. Reuter. STJÓRN Argentínu lýsti á mánu- dagskvöld yfir 30 daga neyðar- ástandi í landinu eftir að óeirðir höfðu brotist út vegna mestu efnahagskreppu í sögu landsins. Að minnsta kosti flórir hafa beð- ið bana og 41 særst í óeirðunum. Hafa stjómvöld sakað vinnstri- sinna um að hafa kynt undir óeirðunum. Lögreglan sagði að 800 manns hefðu verið handteknir fyrir að láta greipar sópa um matvöruverslanir, einkum í höfuðborginni, Buenos Aires, og í Rosario, næststærstu borg landsins. ERLENT Argentínumenn eiga við mikla efnahagskreppu að stríða; stjórn- völd hafa misst öll tök á verðbólg- unni, kaupmáttur launa er nú ein- ungis þriðjungur kaupmáttarins í _ febrúar og mikill skortur er á nauð- synjavörum og lyfjum. Jose Ignacio Lopez, talsmaður Rauls Alfonsins Argentínuforseta, sagði að boðað hefði verið til neyð- arfundar á þinginu, þar sem rætt yrði hvernig bregðast skuli við óeirðunum í landinu. Þingið hefur áður afnumið nokkur lýðréttindi, til að mynda heimilað stjómvöldum að láta taka menn höndum án hand- tökuheimildar og banna fjöldasam- komur. Alfonsin hefur boðað fund hjá þjóðaröryggisráði landsins, sem komíð var á laggirnar fyrr á árinu eftir árás vinstrisinnaðra skæruliða á búðir hermanna. Alfonsin hefur einnig kynnt neyðarráðstafanir sem stjóm hans hyggst grípa til vegna efnahagsástandsins. Stjómmálaskýrendur segja að Argentínustjórn njóti ekki lengur trausts almennings og sé ekki fær um að grípa til nauðsynlegra efna- hagsaðgerða. Flokkur Alfonsins, Róttæki flokkurinn, galt mikið af- hroð í forsetakosningunum 14. maí og frambjóðandi peronista, Carlos Menem, hlaut hreinan meirihluta atkvæða. Peronistar eiga sam- kvæmt stjómarskrárlögum að taka við völdunum eftir nokkra mánuði. Reuter Lögreglumenn handtaka nokkra íbúa Rosario, næststærstu borgar Argentínu, í gær, eftir að hundruð manna höfðu látið greipar sópa um verslanir borgarinnar. Lýst var yfir neyðarástandi í landinu er óeirðir brutust út vegna óánægju með efnahagsaðgerðir, sem Arg- entínusljórn boðaði um helgina. Aldrei fleiri Danir verið hlynntir aðild að NATO STUÐNINGUR Dana við aðild landsins að Norður-Atlants- hafsbandalaginu, NATO, hefúr aldrei verið meiri en nú. Tæp- Fresta smíði endur- vinnslustöðvar Vestur-þýsku orkufyrirtækin, sem staðið hafa að smíði end- urvinnslustöðvar fyrir kjarn- orkuúrgang í Wackersdorf í Bæjaralandi, hafa ákveðið að fresta framkvæmðum við hana um óákveðinn tíma. Umhverf- isvemdarmenn hafa fagnað þessum tíðindum en mikill styr hefur ávallt staðið um stöðina. Þessi ákvörðun þýðir hins veg- ar, að Bretar og Frakkar verða að hlaupa undir bagga með Þjóðveijum í endurvinnslunni. Myndin er af stöðinni í Wac- kersdorf. Reuter lega þrír af hveijum fórum kjósendum eru fylgjandi aðild- inni, en aðeins 16% eru henni andvígir, að því er fram kemur í frétt í mánudagsblaði Berl- ingske Tidende um nýlega skoðanakönnun Gallup-stofh- unarinnar. NATO-aðild hefur yfirleitt notið stuðnings 50-60% danskra kjós- enda, en fyrir utan niðurstöðurnar úr nýjustu könnuninni hefur hag- stæðasta hlutfall stuðningsmanna bandalagsins í Danmörku mælst tæp 70%. Það var 1983. í fyrra var það, samkvæmt skoðanakönn- un Gallups, 59%. Athyglisvert þykir, að stuðning- ur við aðildina hefur ekki minnkað þrátt fyrir slökun síðustu missera og afvopnunartillögur Mikhails Gorbatsjovs Sovétleiötoga, auk innbyrðis deilna NATO-landanna um skammdrægar eldflaugar. „Gorbatsjov hefur síður en svo dregið úr tiltrú fólks á NATO- aðild,“ hefur Berlingske Tidende eftir Asger Schultz, framkvæmda- stjóra Gallups. Niðurstöður skoðanakönnunar- innar leiða eftirfarandi í ljós: Með- al stuðningsmanna borgaraflokk- anna nýtur aðildin að NATO 87% fylgis, en 8% eru henni andvíg. Meðal jafnaðarmanna eru 75% meðmæltir, en 14% á móti. Meðal kjósenda, sem eru til vinstri við Jafnaðarmannaflokkinn, eru 37% hlynntir aðild, en 56% á móti. Noregur; Hjartans þakkir til allra þeirra, er minntust mín á 80 ára afmœlinu mínu þann 18. maí sl. og geröu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Guðlaug Guömundsdóttir, Víkurbraut 26, Höfn. Höföar til „fólks í öllum starfsgreinum! Tölvuþrjótar angra norsk fyrirtæki Norinform. NORSKU lögreglunni tókst á síðasta ári að afla víðtækra upp- lýsinga um starfsaðferðir er- lendra tölvuþijóta. Með aðstoð háþróaðs aðgangskerfis voru alls 120.000 upphringingar skráðar í tölvu sem lögreglan hafði sett upp. Ljóst þykir að erlendir tölvuþijótar noti norsk SKYNDISALA Um er að ræða ameríska toppvöru á algjöru botnverði! 4 tegundir sláttuvéla, allar með Briggs & Stratton motor. Opið 10-19 í dag. Greiðslukjör. Vorleikur'89 hinn eini og sanni ÁRMÚLA 16 - SÍMI: 686204 & 686337 tölvukerfi til að bijótast inn í gagnagrunna í öðrum löndum. í kjölfar innbrots í tölvu norsks fyrirtækis komu lögreglan og norska símafélagið Televerket upp samskonar tölvu og brotist hafði verið inn í og tengdu hana við háþróað aðgangskerfi í eigu norska hersins. Með því móti tókst lögreglunni að skrá allar tilraunir tölvuþijótanna til að komast inn í tölvukerfið og bárust böndin að tölvuþijótum í Vestur-Þýskalandi, Frakklandi, Ástralíu og Banda- ríkjunum. Tölvuþijótar hafa reynt að bijót- ast inn í tölvukerfi 11% allra nor- skra fyrirtækja sem hafa 200 starfsmenn eða fleiri á launaskrá. Þetta kom fram í könnun sem Stjórnunarskólinn í Noregi stóð fyrir. Bankar urðu oftast fyrir barðinu á tölvuþijótum og er talið að þeir dragi sér fé í hverri viku frá stærstu bönkum Noregs. Fer inn á lang flest heimili landsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.