Morgunblaðið - 31.05.1989, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAI 1989
37
Reykingar kvenna
eru áhyg’gjuefiii
eítir Almar Grímsson
Einhveijum kann að finnast verið
að bera í bakkafullan lækinn þegar
nú er efnt til alþjóðlegs dags gegn
tóbaksnotkun. Ollum er líklega í
fersku minni 12. apríl sl. sem helgað-
ur var baráttunni gegn tóbaksnotk-
un á íslandi. Var mjög myndarlega
staðið að verki þann dag af hálfu
Tóbaksvarnanefndar í góðri sam-
vinnu við fjölmiðla landsins, en aðild
að nefndinni eiga fulltrúar frá
Krabbameinsfélagi íslands og
Hjartavemd, auk fulltrúa Heilbrigð-
isráðuneytisins.
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin,
WHO, hefur nú riðið á vaðið með
mjög ákveðnar aðgerðir og tilmæli
til aðildarríkja sinna um tóbaksvarn-
ir og hefur meðal annars ákveðið
að 31. maí ár hvert verði helgaður
baráttunni gegn tóbaksnotkun í
heiminum. Alþjóða heilbrigðismála-
stofnunin ákvað í samráði við ráð-
gjafanefnd sína um tóbaksvarnir að
tileinka daginn að þessu sinni barát-
tunni gegn tóbaksnotkun kvenna
sem hefur aukist víða um heim, en
annars staðar hefur dregið minna
úr tóbaksnotkun kvenna en karla.
Þannig sýna kannanir hérlendis
að þótt reykingar fullorðinna hafi
minnkað hafa konur ekki náð sama
árangri og karlar. Er nú svo komið
að jafnmargar konur og karlar
reykja daglega. Þá er ljóst af könn-
unum meðal ungmenna að fleiri
stúlkur reykja en piltar. Þar við
bætist að sígarettureykingar, sem
taldar hafa verið skaðlegasta tób-
aksneyslan, eru mun algengari hjá
konum en körlum á ölium aldri.
Segja má þess vegna að reykingar
kvenna séu orðnar sérstakt áhyggju-
efni sem bregðast þarf við af alefli.
Tengsl milli lungnakrabbameins
og reykinga voru áþreifanlegá sönn-
uð fyrir meira en 25 árum. Eins og
áður er getið hefur vissulega margt
snúist til hins betra, bæði eru
reykingamenn færri en áður og vax-
andi tillit er tekið til þeirra sem ekki
reykja. Hins vegar er lungnakrabba-
mein nú orðið mannskæðasta
krabbameinið hér á landi. Er það
fyrst og fremst skýrt með auknum
sígarettureykingum á fimmta og
sjötta áratug aldarinnar.
Tölurnar tala sínu máli. Síðustu
tvö árin greindust 95 ný lungna-
krabbamein að meðaltali á ári, fyrir
einum áratug voru þau nær helm-
ingi færri eða um 49 á ári og fyrir
tveimur áratugum 28 á ári. Talið
er að níu af hveijum tíu lungna-
krabbameinum séu af völdum
reykinga.
Krabbameinsfélagið hefur einkum
beitt sér á undanfömum ámm að
fræðslu í skólum og hefur þar náðst
mikill árangur. Með þessu er félagið
að reyna að byrgja bmnninn áður
en bamið dettur ofan í hann því
vissulega er það mikilvægast af öllu
að uppvaxandi kynslóðir forðist tób-
ak og komist hjá því að nota það.
Auðvitað hafa foreldrar einnig vera-
leg áhrif á það hvort böm hefja
Almar Grímsson
„Þannig sýna kannanir
hérlendis að þótt
reykingar fullorðinna
hafi minnkað hafa kon-
ur ekki náð sama ár-
angri og karlar. Er nú
svo komið að jafn-
margar konur og karl-
ar reykja daglega."
reykingar. Þess vegna verður að
skírskota mjög eindregið til foreldra,
sérstaklega yngri foreldra, að hafa
ekki fyrir bömunum þennan ósið og
taka fullt tillit til þeirra þannig að
þau fái að njóta þess sjálfsagða rétt-
ar að lifa í reyklausu umhverfi.
í tilefni þessa dags, sem eins og
áður segir er helgaður baráttunni
gegn tóbaksnotkun kvenna, verður
því að skírskota sérstaklega til
íslenskra kvenna um að taka sér
tak. Þær hafa sýnt samtakamátt
sinn í mörgum góðum málum síðustu
áratugi. Eg hvet konur til að sýna
þennan mátt sinn enn í verki með
því að hvetja til reykbindindis á
heimilum, vinnustöðum og hvar-
vetna til þess að virða rétt þeirra
sem hafna reyk og þá einkum rétt
bama til reyklauss umhverfis.
Að lokura vona ég að tölur um
reykingar íslendinga á næstu ámm
sýni áfram veralega fækkun tób-
aksneytenda og vil ég þá sérstaklega
vonast til þess að konur snúi þeirri
öfugþróun við sem hér hefur verið
getið um.
Heimildir: Sigurður Árnason og Jónas
Ragnarsson: Lungnakrabbamein orðið
mannskæðasUi krabbameinið. Heilbrigð-
ismál 3/1985. Sveinn Magnússon:
Reykingar kvenna líkjast farsótt. Heil-
brigðismál 1/1986. Jónas Ragnarsson og
Þorsteinn Blöndal: Reykingavenjur
1985-1988. Heilbrigðisskýrslur, fylgirit
1989 nr. 2. Tóbaksvamanefnd og Land-
læknisembættið. Skýrsla 1989. Krabba-
meinsfelagið.
Höfundur er apótekari í Hafhar-
Brði, formaður Krabbameinsfé-
lags íslands og formaður ráðgjafa-
nefndar um tóbaksvamirá vegum
Alþjóða heilbrigðismálastofaunar-
innar í Evrópu.
Frá samsöng þriggja kóra aldraðra af höfuðborgarsvæðinu í
Fella- og Hólakirkju síðastliðinn laugardag.
Góð aðsókn að
samsöng aldraðra
ÞRIR kórar aldraðra af höfuðborgarasvæðinu sungu saman í
Fella- og Hólakirkju í Breiðholti síðastliðinn laugardag, og var
það í annað sinn sem kórarnir syngja saman. Að loknum sam-
söngnum héldu kóramir til Keflavíkur, en þar var efiit til
skemmtunar fyrir eldri borgara á Suðumesjum.
Kórarnir sem þátt toku í sam- var góð aðsókn að samsöng kó-
söngnum era Kór félagsstarfs ranna í Fella- og Hólakirkju, en
aldraðra í Kópavogi, stjórnandi efnt var til hans í tilefni af lokum
Kristín Fjetursdóttir, Kór félags- ^vetrarstarfs kóranna. „Þettatókst
starfs aldraðra í Reykjavík, á allan hátt mjög vel, og stóðu
stjórnandi Sigurbjörg Hólmgríms-
dóttir, og Söngfélag Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni,
sijórnandi Kristín Pjetursdóttir. I
Söngfélagi FEB er einnig tvöfald-
ur kvartett.
Að sögn Kristínar Pjetursdóttur
kórfélagamir sig með miklum
ágætum, en meðalaldur þeirra er
77-78 ár. Þá var skemmtunin í
Stapa einnig mjög vel sótt, en hún
endaði með sameiginlegum dans-
leik. “
GERNI JET TURBO
HREINSITÆKI
Hreinsun verður leikur einn
GERNI JET, ný gerð af háþrýsti-
hreinsitæki með Trubo spíss.
Mjög handhæg — létt og af-
kastamikil.
Aðeins 18 kg á þyngd og með
allt að 120 BAR þrýsting.
Ýmsir fyigihlutir, t.d. fyrir sand-
blástur.
Þú sparar tíma, fé og fyrirhöfn
með GERNI JET.
Skeifan 3h - Sími 82670
Einnig traktorsdrifnar.
Rútuferðir Sögu hafa svo sannarlega
slegið í gegn - enda þægilegar ferðir
með þrautreyndum fararstjóra.
Italía 13/6 18 dagar 2 sæti laus
Frakkland 6/7 15 dagar 10 sæti laus
Austur-Evrópa 76/7 15 dagar 16 ueti laus
Austurríki-Ungverialanú 18/8 15 dagar 6 sæti laus
Fararstjóri: Árni G. Stefánsson
FERDASKRIFSTOFAN