Morgunblaðið - 09.06.1989, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989
25
Morgunblaðið/Þorkell
Verðlaun fyrir ostauppskriftir
OSTA-og smjörsalan hefur veitt verðlaun fyrir ljúffengustu réttina í
ostauppskriftakeppni, sem fyrirtækið efndi til í vetur. Alls bárust 528
uppskriftir í keppnina. Fyrstu verðlaun fyrir hátíðafiskrétt hlaut Hugrún
Jóhannsdóttir Onnur verðlaun hlaut Jenetta Bárðardóttir fyrir „Eftirlæti
forstjórans" Tvær uppskriftir hlutu þriðju verðlaun, Það voru „Grasæta"
að hætti Fríðu Garðarsdóttur og „Fisksprengja“ Bergljótar Óskarsdótt-
ur. Á myndinni eru vinningshafamir ásamt Dómhildur Sigfúsdóttur form-
anni dómnefndar.
Birtingarmenn í Alþýðubandalaginu:
Látið verði af yfírlýs-
ingum um klofíiing
Morgunblaðinu hefiir borizt
eftirfarandi yfirlýsing.
I tilefni af ályktun stjórnar ABR
frá 6. júní sl. og vegna ummæla í
fjölmiðlum undanfarið, — allt þess
efnis að hópur félaga í Alþýðu-
bandalaginu hafi eða sé í þann
veginn að kjúfa flokkinn teljum við
nauðsynlegt að eftirfarandi komi
fram:
Árið 1985 var lögum Alþýðu-
bandalagsins breytt á þann veg að
rýmkaðar voru til muna heimildir
til að stofna félög innan flokksins,
jafnt svæðisbundin félög sem félög
bundin tilteknum viðfangsefnum.
Fyrirmyndin að þessu skipulagi var
m.a. sótt til franska sósíalista-
flokksins og fleiri evrópskra
vinstriflokkka. Einnig var heimilað
að óflokksbundið fólk gæti átt að-
ild að málefnafélögunum, en
flokksbundnir félagar hefðu að
sjálfsögðu einir þau réttindi innan
flokksins sem fylgja formlegri
flokksaðild. Þá má geta þess að
samkvæmt lögum flokksins getur
sami einstaklingur verið í fleiri en
einu aðildarfélagi flokksins, þó
þannig að við kjör fulltrúa á lands-
fund og við kjör til kjördæmisráðs
nýtist atkvæði hans aðeins á einum
stað. Hópur félaga í Alþýðubanda-
laginu hefur nú ákveðið, í samvinnu
við ýmsa óflokksbundna vinstri
menn, að stofna málefnafélagið
Birtingu þann 18. júní nk. í drögum
að lögum fyrir félagið sem nú liggja
fyrir, segir m.a. að Birting sé félag
jafnaðar- og lýðræðissinna og sé
aðildarfélag að Alþýðubandalag-
inu, — markmið félagsins sé að
efla hreyfingu vinstri manna og
stuðla að umræðu um framtíðar-
verkefni og samstarf þeirra.
í ljósi þessa er það von okkar,
sem nú undirbúum stofnun hins
nýja félags, að menn láti af yfirlýs-
ingum um klofning flokksins og
taki höndum saman um að efla
hreyfíngu íslenskra vinstri manna
til áhrifa í framtíðinni.
Með bjartri kveðju!
Árni Páll Árnason, Birna
Bjamadóttir, Helgi Hjörvar,
Hrafn Jökulsson, Kjartan Val-
garðsson og Vigfús Geirdal.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 8. júní.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðai- Magn Heildar-
verft verft verft (lestir) verð (kr.)
Þorskur 56,50 49,00 54,73 5,903 323.034
Þorskur(smár) 23,00 23,00 23,00 0,087 1.990
Ýsa 90,00 35,00 66,30 1,163 77.112
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,025 368
Steinbítur 40,00 40,00 40,00 0,275 11.000
Lúða 350,00 70,00 128,48 0,593 76.160
Koli 55,00 55,00 55,00 0,109 5.969
Samtals 60,79 8,153 495.633
í dag verða meðal annars seld 20 tonn af þorski, 2 tonn af ýsu,
5 tonn af karfa, 3 tonn af kola, 2 tonn af skötusel, óákveðið
magn af lúðu og fleiri tegundum úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 65,00 41,00 59,11 17,322 1.023.843
Þorskur(smár) 23,00 23,00 23,00 0.017 391
Ýsa 94,00 20,00 72,86 2,730 198.895
Ýsa(umál) 39,00 39,00 39,00 0,119 4.641
Karfi 40,00 38,00 38,69 2,480 95.960
Ufsi 37,00 35,00 36,92 5,461 201.611
Steinbítur 54,00 40,00 46,75 0,193 9.022
Hlýri 25,00 25,00 25,00 0,103 2.575
Blálanga 31,00 26,00 27,64 0,894 24.714
Lúða 210,00 60,00 187,14 1,247 233.365
Grálúða 53,50 53,50 53,50 0,388 20.758
Skarkoli 53,00 9,00 41,97 1,184 49.693
Keila 23,00 23,00 23,00 0,154 3.542
Skata 74,00 74,00 74,00 0,028 2.072
Skötuselur 82,00 82,00 82,00 0,016 . 1.312
Skötuselsh. 210,00 210,00 210,00 0,027 5.565
■Rauðmagi 62,00 62,00 62,00 0,049 3.038
Samtals 58,05 31,880 1.850.585
Selt var úr Ólafi Bjarnasyni SH og bátum. l’ dag verða meðal annars seld 12 tonn af þorski, 12 tonn af ýsu, 4 tonn af karfa og
4 tonn af ufsa úr Freyju RE, Farsæli SH FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. og bátum.
Þorskur 61,50 29,00 55,83 2,997 167.320
Ýsa 97,00 53,00 65,59 1,563 102.522
Karfi 39,00 15,00 34,69 2,590 89.848
Ufsi 34,50 25,00 32,37 2,372 76.770
Steinbítur 33,50 30,50 30,97 0,203 6.271
Hlýri+steinb. 30,50 30,50 30,50 0,117 3.569
Langa 31,00 30,50 30,75 0,218 6.689
Lúða 210,00 105,00 171,71 0,076 13.050
Skarkoli 43,00 43,00 43,00 0,582 25.026
Skata 40,00 40,00 40,00 0,005 200
Skötuselur 225,00 60,00 148,44 0,081 11.979
Háfur 7,00 7,00 7,00 0,024 168
Öfugkjafta 5,00 5,00 5,00 0,940 4.700
Samtals 43,18 11,767 508.112
Selt var aöallega úr Hörpu GK og Ósk GK. í dag verður selt
óákveðiö magn af blönduðum afla úr bátum.
Skógrækt-
arskátamót
við Úlfljóts-
vatn
Skógræktarfélag skáta við
Úlfljótsvatn er nú að hefja sitt
þriðja starfsár. Markmið félags-
ins er gróðurvernd, uppgræðsla
og skógrækt í landi skáta við
Úlfljótsvatn. Sl. tvö ár hefur fé-
lagið staðið fyrir gróðursetningu
á um 15 þúsund skógarplöntum
auk þess sem unnið hefur verið
að uppgræðslu örfoka svæða
með lúpínu, grasfræi og áburð-
argjöf.
Um næstu helgi, dagana 10.-11.
júní, ætlar félagið að standa fyrir
skógarskátamóti við Úlfljótsvatn.
Dagskrá hefst klukkan 14 á laug-
ardegi með fræðslu um skógrækt
og síðan verður unnið við gróður-
setningu og farið í stutta göngu-
ferð.
Fyrirhugað er að bjóða bömum
í bátsferð og halda grillveislu og
kvöldvöku.
Dagskrá lýkur klukkan 16 á
sunnudag. Allir skógarskátar og
velunnarar Úlfljótsvatns eru vel-
komnir. Góð aðstaða er fyrir tjald-
búa, það má renna fyrir silung í
vatninu og náttúran skartar sínu
fegursta við Úlfljótsvatn á þessum
árstíma.
Messað í
Viðeyjarkirkju
MESSUR verða í Viðeyjarkirkju
aðra hveija helgi í sumar. Mess-
urnar verða að jafnaði kl. 14.
Fyrsta messa sumarsins verður
næstkomandi sunnudag, 11. júní.
Þá messar sr. Hjalti Guðmundsson
dómkirlquprestur kl. 14. Viðeyjar-
feijan Maríusúð fer sérstaka ferð
út í eyju með messugesti kl. 13.30.
Önnur messan verður á Jóns-
messu, laugardaginn 24. júní kl.
14. Þá er jafnframt hátíð Viðey-
ingafélagsins. Sr. Þórir Stephen-
sen, staðarhaldari í Viðey, messar.
Gunnarshólmi:
Nikkur þandar
í gríð og erg
Sumarfagnaður Harmonikkufé-
lags Rangæinga verður haldinn
í Gunnarshólma að kvöldi 10.
júní n.k. og hefst hann með því
að gömlu góðu lögin verða tekin
með tilþrifum. Nikkur verða í
tonnatali á staðnum og er reikn-
að með söng eftir því fram eftir
nóttu með tilheyrandi sveiflu.
Rósa Ingólfs-
dóttir sýnir í
Slunkaríki
RÓSA Ingólfs-
dóttir opnar
sýningu á
grafikmyndum
laugardaginn
10. júní \ Slunk-
aríki á ísafirði.
Rósa útskrif-
aðist frá auglýs-
ingadeild MHÍ
1968 og nam
einnig leiklist
og söng á árunum 1969-1971.
Hún hefur starfað sem teiknari
hjá ríkissjónvarpinu síðan 1978 og
einnig á fyrstu árum þess.
Ýmsar stofnanir og fyrirtæki
eiga verk eftir Rósu þ. á m. Seðla-
bankinn, Reykjavikurborg, Land-
læknisembættið, Krabbameinsfé-
lagið, Fjármálaráðuneytið, sjón-
varpið, Landsbankinn, Fjárfesting-
arfélagið og fl.
Á sýningunni í Slunkaríki verða
nokkrar myndraðir sem hún hefur
unnið fyrir sjónvarp og eru þær
allar til sölu.
Þetta er önnur einkasýning lista-
konunnar en hún hélt sögusýningu
á myndröð í Viðeyjarnausti í Viðey
sl. sumar er ijallar um miðaldasögu
Viðeyjar og sem er í eigu
Reykjavíkurborgar.
Sýningin í Slunkaríki stendur
yfir til sunnudagsins 25. júní og
er opin fimmtudaga til sunnudaga
klukkan 16.-18. Sýningin er styrkt
af menntamálaráðuneytinu.
Vitni vantar
Slysarannsóknadeild lögregl-
unnar lýsir eftir vitnum að um-
ferðaróhappi á Klappaprstíg
rétt ofan Laugavegar fimmtu-
daginn 11. mai, síðastliðinn um
klukkan 17.50.
Ekið var aftan á svarta Ford
Escort bifreið og skemmdist hún
nokkuð. Tjónvaldurinn fór af staðn-
um áður en þess að segja til sín
eða ræða við tjónþola.
Númerabreyt-
ing- á 95-svæði
AÐFARANÓTT fimmtudagsins
8. júní var númerum í eftirtöld-
um símstöðvum breytt:
Brú, Hólmavík, Hvammstanga,
Reykjum, Trékyllisvík. Aðfaranótt
laugardagsins 10. júní breytast
númer í þessum símstöðvum:
Blönduósi, Bólstaðarhlíð, Hofsósi,
Sauðárkróki, Skagaströnd og
Varmahlíð.
Breytingin er þannig að hjá
meirihluta notenda bætist einn
stafur fyrir framan númerið, hjá
öðrum koma tveir stafir fyrir fram-
an þrjá síðustu sem eru óbreyttir.
Lissyarkórinn
syngurá
Húsavík
Húsavík.
KVENNAKÓRINN Lissy, sem
skipaður er um 60 konum
víðsvegar úr Þingeyjarsýslu,
hélt tónleika í Húsavíkurkirkju
fimmtudaginn 1. júní við góða
aðsókn og undirtektir.
Stjómandi kórsins er Margrét
Bóasdóttir, einsöngvari Hólmfríður
S. Benediktsdóttir sópran, og und-
irleikari Björn Steinar Sólbergsson.
Á efnisskrá voru kórlög, m.a.
eftir Pál ísólfsson, Áma Thor-
steinsson, Mozart og Hándel. Kór-
inn hyggst syngja víðar á Norður-
landi nú á næstunni.
- Fréttaritari
Eyrarbakki:
Elfar Guðni
framlengir
málverkasýn-
ingu
Elfar
Guðni
Þórðarson
listmálari í
Sjólyst á
Stokkseyri
hefur fram-
lengt mál-
verkasýn-
ingu sína i
Samkomu-
húsinu
Stað á Eyrarbakka um eina viku
, eða til sunnudagskvöldsins 11.
júní.
Elfar Guðni sýnir 60 myndir á sýn-
ingunni, og hefur aðsókn verið
mjög góð, eða um 500 manns.
Sýningin er opin til kl.22 á kvöldin.
Hilmar og
Anna í Dans-
húsinu
Hljómsveit Hilmars Sverrissonar
mun skemmta gestum Dans-
hússins í Glæsibæ ásamt söng-
konunni Önnu Vilhjálmsdóttur á
föstudags- og laugardagskvöld-
um á næstunni. A fimmtudags-
og sunnudagskvöldum munu
síðan Hilmar og Anna halda
uppi Qörinu fyrir gesti Ölvers.
I hljómsveit Hilmars, sem sjálfur
leikur á hljómborð og syngur, eru
Ólafur Kolbeinsson trommuleikari
og Sigurður Árnason sem spilar á
bassa.
Dagana 10., 16. og 17.júníkem-
ur svo Einar Júlíusson fram í Dans-
húsinu í Glæsibæ en hann og Anna
hafa ásamt hljómsveit Hilmars sett
saman dagskrá sem spannar allt
frá rokktímabilinu til dagsins í dag.
Hin góðkunna hljómsveit Finns
Eydals mun aftur skemmta gestum
Danshússins í Glæsibæ helgina 23.
og 24. júní.
(Fréttatilkynning)
Tónleikar
Smekkleysu
SMEKKLEYSA sm h/f efiiir til
tónleika í Casablanca í kvöld,
föstudagskvöld, klukkan 23.
Hljómsveitimar Daisy Hill
Puppy Farm og Mental Hackers
skemmta. Hljómsveitin Mental
Hackers er frá Svíþjóð og er Christ-
ian Falk, uptökustjóri Bubba Mort-
hens meðal meðlima.
Húsið opnar klukkan 22. Miðar
kosta 800 krónur.
Atriði úr myndinni „Hið bláa volduga".
Bíóborgin sýnir
„Hið bláa volduga“
BÍÓBORGIN hefur tekið til sýninga myndina „Hið bláa volduga“
Með aðalhlutverk fara Rosanna Arquette og Jean-Marc Barr. Leik-
stjóri er Luc Besson.
Jacques Mayol og Enzo Molinari
hafa stundað dýfingar og köfun frá
æsku og eru fremstu menn í því
efni, enda eiga báðir heima við
Miðjarðarhaf, þar sem skilyrði em
ákjósanleg til að stunda íþrótt
þessa. Þeir hafa verið keppinautar
árum og saman og heims/neistarar
til skiptis m.a. í því, hve lengi þeir
geti haldið í sér andanum í kafi.