Morgunblaðið - 13.06.1989, Síða 16
\h
MORGUNBIAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989
“-7
Skil ó staðgreiðslufé:
EINDAGINN
ER 15.
HVERS MÁNAÐAR
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reikn-
uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin
skulu gerð eigi síðar en 15, hvers mán-
aðar.
Ekki skiptir máli í þessu sambandi
hversu oft í mánuði laun eru greidd né
hvort þau eru greidd fyrirfram eða
eftirá.
Með skilunum skal fylgja greinar-
gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila-
greinum“, blátt eyðublað fyrir greidd
laun og rautt fyrir reiknað endurgjald.
Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó
svo að engin staðgreiðsla hafi verið
dregin af í mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera í heil- f
um krónum. i
Gerið skll tímanlega I
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
«*£?«**
nrt. b\á #'ð'
a'"liss\öös
Sk,Saarein^tZ%%%dsalna
Sendibréftil Árnesinga:
Jógúrt sem ber
nafti með rentu I
eftir Önnu S.
Snorradóttur
Það er enginn smáhópur sem ég
ávarpa, allir Árnesingar, þótt að
sjálfsögðu séu þeir færri, sem ég á
erindi við. í raun aðeins þeir, sem
standa að Mjólkurbúi Flóamanna á
Selfossi, en er það fólk ekki um
alla sýslu?
Það hefði verið alveg óþarfi að
skýra nýju jógúrtina ykkar eðaljóg-
úrt, því að hún er í raun sú eina,
sem ber nafn með rentu. Um langt
skeið höfum við haft jógúrt á mark-
aðnum, sem undirritaðri hefir aldrei
þótt eiga skilið að bera þetta nafn
og alltaf fundist það lap vera ein-
hvers konar súrmjólk með sultu.
Vonandi særi ég engan, því varan
er ágæt á sinn hátt. En ég varð
aiveg himinlifandi, þegar ég rakst
á þessa nýju, og minntist þess þá,
að fyrir mörgum árum skrifaði ég
svolitla grein þar sem grátbeðið var
um slíka jógúrt, en henni hafði ég
kynnst í tveim sumarleyfum í Júgó-
slavíu og Iíkað fádæma vel. Og nú
hafið þið tekið frumkvæðið, og ég
spái því að þessi jógúrt eigi eftir
að gera stormandi lukku, eins og
eitt sinn var sagt. Þið eigið skilið
margfaldar þakkir fyrir framtakið.
Engan skyldi samt undra, því að
löngum hafa Ámesingar verið
framfarafólk og margt gott og
merkilegt frá þeim komið.
Þegar ég keypti fyrstu baukana,
eins og sagt var oft fyrir norðan
um svona smádósir, sagði búðar-
maðurinn við mig, að ég ætti að
hræra upp í dósinni, það besta
væri á botninum. Er heim kom og
skeiðin snerti jógúrtina glaðnaði
heldur betur yfir mér en ég ákvað
samt strax að njóta þess að borða
hana hreina. Þegar ég kom niður
á botn rakst ég á sultuna, sem
margir landsmenn virðast ekki geta
verið án. Það er annars merkilegt
fyrirbæri og verðugt rannsóknar-
efni. Tengdamóðir mín, sem lengi
bjó í Keflavík, sagði frá því, að eitt
sinn hefði hún haft mann í fæði,
sem bað um sultu með öllum mat,
líka steiktum fiski!
Jógúrt þarf ekkert skraut
Það hefði mátt sleppa sultunni í
þessari nýju jógúrt, því það er hæg-
ur vandi fyrir þá, sem ekki geta
verið án sætinda, að bæta þeim við
sjálfir. Hefði ekki mátt spara ögn
með því? Sama er að segja um
umbúðimar. Þessi marglita og
myndskreytta plast-dolla, hlýtur að
gera vöruna dýrari en ella. Ekta
jógúrt þarf ekkert skraut til að selj-
ast, og kannski mætti spara eitt-
hvað með því að hafa umbúðirnar
í einum lit? Ég hefi lengi unnið við
Helen Caldecott
eftir Bryndísi
Brandsdóttur
Einn ötulasti friðarsinni heims,
Helen Caldecott, mun dvelja hér
dagana 18,—24. júní í boði íslensku
kvennasamtakanna sem stóðu að
Norræpú kvennaráðstefnunni í
Osló síðastliðið sumar. Helen held-
ur erindi í Þjóðleikhúsinu á
Kvennadaginn 19. júní kl. 20.30.
í tengslum við heimsókn hennar
verður kvenna-friðarmessa í Lang-
holtskirkju á sólstöðum, 21. júní.
Helen Caldecott hefur verið nefnd
móðir baráttunnar fyrir frystingu
kjarnorkuvopna. Hún er fædd í
Ástralíu, þriggja barna móðir, og
barnalæknir að mennt. Hún átti
frumkvæðið að stofnun Samtaka
lækna gegn kjarnorkuvá og var
fyrsti forseti samtakanna, en þau
fengu friðarverðlaun Nóbels 1985.
Hún stofnaði einnig samtök
kvenna sem beijast fyrir kjarn-
orkuafvopnun, Women’s Action for
Nuclear Disarmament.
Rödd Helenar Caldecott er rödd
boðberans sem opinberar okkur
þann hildarleik sem vígbúnaðar-
kapphlaupið er um leið og hún
hvetur okkur til þess að grípa í
taumana áður en það verður um
seinan. Við eigum bara eina Jörð,
móðuijörð okkar allra. Vígbúnaður
kjarnorkuveldanna ógnar öllu
jarðlífi. Röksemdir stórveldanna
fyrir auknum kjarnorkuvígbúnaði
dynja í eyrum okkar daginn út og
inn. Fullkomnari flaugar, síðustu
ára, hafa þegar leyst af hólmi
margar gömlu eidflaugarnar sem
nú er verið að taka niður, undir
yfirskini afvopnunar. Kjarnorku-
veldin eiga í dag nægar birgðir
vopna til að eyða öllu lífi á jörð-
inni, mörgum sinnum. Svo getur
farið að öllu lífi verði eytt vegna
bilunar í sjálfvirkum tölvubúnaði,
sem stjórnar kjarnorkueldflaugum.
Ein slík flaug getur borið margar
kjarnorkusprengjur, á mismunandi
skotmörk. Hver sprengja er margf-
alt öflugri en sú sem eyddi Hiros-
hima.
Viltu lifa með sprengjunum?
Lokaðu augunum og ímyndaðu þér
að ein slík sé á leiðinni til þín. Hún
lendir á Miðnesheiðinni eftir 10
mínútur. Hvað ætlarðu að gera?
Hvert ætlarðu að fara? Hvar eru
börnin þín og ástvinir? Hvað gaf
lífi þínu gildi? Hugsaðu um fram-
tíðina sem þú glatar. Veistu hvern-
ig Reykjanesið mun koma til með
að líta út eftir að sprengjan fellur?
Veistu hvernig dauðdaga þú átt í
vændum? Veistu hvert geislavirkn-
in berst? Veistu hvað geislavirkni
er?
Þetta getur gerst. Hvað get-
um við gert til að koma í veg
fyrir það?
Höfundur er félagi í Samtökum
islenskra eðlisfræðinga gegn
kjamorkuvá.
VATNSLEKI ?
THORO á svarið við vandræðum vegna vatns-
leka.
THOROSEALer upplagt til að bera á t.d. sökkla.
Það fyllir og lokar steypunni en andar þó til
jafns viö steypuna. WATERPLUG þenst út viö
hörðnun og rýrnar ekki. Það stöðvar vatns-
leka.
Kynntu þér kosti THORO — ef nanna og hafðu
samband við Steinprýði. Við hjálpum þér.
!i steinprýði
Stangarhyl 7, simi: 672777.