Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989
Hefur Guð brugðist?
eftirJóhann
Guðmundsson
Senn eru liðin þúsund ár frá
kristnitöku íslendinga.
Enginn atburður í sögu þjóðar-
innar hefur haft meiri og dýpri
áhrif.
í gegn um aldimar hefur fólkið
sótt þrek og mátt til þess að lifa,
starfa og deyja í trú á Drottin Guð.
Kærleika, manngildi, menntun
og listir flutti trúin með sér.
Rætur íslenskrar tungu sóttu
vöxt sinn og styrk í Guðs orð á
tímum þrenginga, fátæktar og oft
að því er virtist óyfírstíganlegra
erfíðieika, en aldrei var Guð yfirgef-
inn.
Enginn getur sagt um hve mikil
áhrif Passíusálmar sr. Hallgríms
höfðu á íslenskt þjóðlíf, trú þjóðar-
innar og styrk og hafa enn í dag.
Vissulega gjöf Guðs, eitt dýrasta
djásn þjóðarinnar. Þjóðsöngur okk-
ar er sunginn undir þeir áhrifum
sem 90. Davíðs sálmur hafði á sr.
Matthías en upphaf hans hefst með
þessum orðum: „Drottinn, þú hefur
verið oss athvarf fá kyni til kyns.“
Ekki er vafí á því að þær þjóð-
félagslegu breytingar sem orðið
hafa s.l. 50—100 ár hafa haft mik-
il áhrif á trú og trúarlíf íslensku
þjóðarinnar, aldrei hefur verið sótt
eins fast og kerfísbundið að því að
bijóta niður þá trú, sem þjóðin hef-
ur átt frá upphafi kristnitöku og
verður að eiga ef vel á að fara.
Holskefiur ríða yfir, austurlensk
dultrú í mörgum myndum, Búdda-
trú, Baháíar, Mormónar, Anada
Marga, Vottar Jehova, sem afneita
jólunum, þríeinum Guði og banna
blóðgjafir, þrátt fýrir að um líf eða
dauða sé að tefla.
Miðlar, huglækningar, eldganga,
stjömuspeki, sjálfsdáleiðsla,
skyggnilýsingar, innhverf íhugun,
dulvitundarlækningar og margt
fleira. Námskeið í hinu og þessu
sem varðar andlega iðkun, ásamt
kennslugjaldi.
Af hveiju ber allt þetta að, hefur
Guð brugðist, er það sem hér var
upptalið einhvers virði dauðlegum
mönnum?
Hvað segir Guðs orð um það sem
hér er að ske?
„Þegar þú kemur inn í landið,
sem Drottinn Guð þinn gefur þér,
þá skalt þú ekki taka upp svívirð-
ingar þessara þjóða. Eigi skal nokk-
ur finnast hjá þér, sá er láti son
sinn eða dóttur ganga gegnum eld-
inn, eða sá er fari með galdur eða
spár eða flölkynngi eða töframaður
eða gjömingamaður eða særinga-
maður eða spásagnamaður eða sá
er leiti frétta af framliðnum, því
að hver sá er slíkt gjörir er Drottni
andstyggilegur og fyrir slíkar
svívirðingar rekur Drottinn Guð
„Enginn getur sagt um
hve mikil áhrif Passíu-
sálmar sr. Hallgríms
höfðu á íslenskt þjóðlíf,
trú þjóðarinnar og
styrk og hafa enn í dag.
Vissulega gjöf Guðs,
eitt dýrasta djásn þjóð-
arinnar. Þjóðsöngur
okkar er sunginn undir
þeir áhrifum sem 90.
Davíðs sálmur hafði á
sr. Matthías en upphaf
hans hefst með þessum
orðum: „Drottinn, þú
hefur verið oss athvarf
fá kyni til kyns.“
þinn þá burt undan þér. Þú skalt
vera grandvar gagnvart Drottni
Guði þínum.“ (5. Mósebók 18 k.
9-13 v.)
Trúin er traust, traust til Drott-
ins, það að leggja líf sitt í hans
hendi og fela honum forsjá allra
hluta, „Jesús, er vegurinn, sannleik-
urinn og lífið.“ (Jóh. 14-6.)
„Hver sem ekki er með mér er
á móti mér.“ (Matt. 12.30.)
Megi Guð varðveita kristna trú
í þjóðarsál okkar íslendinga og
megi hver einstaklingur eignast lif-
andi trú, sem Jesús einn gefur þeim
sem til hans leita.
Hættum að tilbiðja okkur sjálf,
okkur sem vitum ekki hvort við lif-
um þennan dag.
Nýlega las ég frásögn um móður
sem var að hátta dóttur sína, þá
bað bamið mömmu sína um að vera
hjá sér meðan hún sofnaði. Móðirin
átti margt ógert, en hikaði við að
skilja dóttur sna eftir í rökkrinu,
vissi hvað hún var hrædd við að
vera ein. Hún settist á stól við rúm-
ið, tók í hönd dóttur sinnar sem var
þá fljót að sofna. Meðan hún sat
við rúmið hneigði hún höfuð sitt
og bað þessa bæn: „Drottinn, þegar
kvelda tekur í mínu lífí, mætti ég
þá segja með trú bamsins, Faðir
taktu í hönd mína, vertu hjá mér
meðan ég sofna, varðveittu mig í
gegn um dal dauðans og megir þú
vera það sem augu mn fyrst nema
handan hans. Megi ég vakna aftur
í dýrð þinni.“
Guð er kærleikur. Hann þráir að
þú komir með syndir þínar til frels-
ara þíns, Jesú, iðrist og hijótir fyrir-
gefningu, Jesús segir: „Þann sem
til mín kemur, mun ég alls ekki
burt reka.“ „Hjarta yðar -skelfist
ekki, trúið á Guð, trúið á mig.“
(Jóh. 14.1.) Guð hefur ekki brugð-
ist og mun aldrei bregðast, en get-
ur verið að þú og ég höfum bmgð-
ist honum? Ó, að þér í dag vilduð
heyra raust hans.“ (Sálm. 95.7.)
WIKA
Jóhann Guðmundsson
Höfundur er starfsmaður við
Háskóla íslands.
Kvennakórinn Lissy:
Tónleikar 1 Reykja-
hlíðarkirkju
Mývatnssveit.
Kvennakórinn Lissy söng í Reykjahlíðarkirkju mánudagskvöldið
6. júní. Mikið fjölmenni sótti þessa söngskemmtun og voru undir-
tektir viðstaddra frábærar.
Söngstjóri var Margrét Bóas-
dóttir. Einsöngvarar vora Hildur
Tiyggvadóttir og Hólmfríður
Benediktsdóttir. Undirleikari var
Bjöm Steinar Sólbergsson. Á söng-
skránni vora 18 lög eftir innlenda
og erlenda höfunda.
Kvennakórinn Lissy skipa á milli
50 og 60 konur úr Þingeyjarsýslu.
Var hann á sínum tíma stofnaður
til minningar um hina vinsælu
söngkonu Lissy frá Halldórsstöð-
um í Laxárdal. Sem kunnugt er
flutti hún þangað frá Skotlandi
ung að áram og átti síðan heima
í Laxárdal til æviloka.
4 »
Kristján
Allar stæröir og geröir
SölLOilflaWLtlSDWB1
<£t
Vetturgötu .16, tími 13280
Dolmatov sigraði á opna stór-
meistaramótinu í Moskvu
Skák
Margeir Pétursson
Annað opna mót stórmeist-
arasambandsins fór fram í
Moskvu í lok maí og er vafa-
laust jainsterkasta opið mót
sem haldið hefúr verið. Skilyrði
fyrir þátttöku í mótinu voru
mjög ströng og af 128 þátttak-
endum voru 85 stórmeistarar.
Það var Gary Kasparov, heims-
meistari í skák og forseti stór-
meistarasambandsins, sem
hafði veg og vanda af skipu-
lagningu mótsins, sem fór mjög
vel fram. Aðbúnaður keppenda
mun aldrei áður hafa verið jaih-
góður í Sovétríkjunum og á
þessu móti.
Sovétmenn áttu góðan meiri-
hluta þátttakenda, 76, og af 50
stigahæstu keppendunum vora
tveir þriðju hlutar sovéskir. Það
fór því eins og búist var við,
heimamenn vora mjög sigursælir
og hinn þrítugi stórmeistari frá
Moskvu, Sergei Dolmatov, vann
verðskuldaðan sigur. Hann kom
hingað til íslands í fyrra og tefldi
á tveimur mótum, en náði ekki
sérlega góðum árangri. Skákstíll
hans er mjög traustur og minnir
nokkuð á Ánatoly Karpov, fyrram
heimsmeistara, þótt Dolmatov
hafí reyndar aðstoðað Gary Ka-
sparov í síðasta einvígi hans við
Karpov. Röð efstu manna á mót-
inu varð þessi:
1. Dolmatov (Sovétríkjunum) 7
v. af 9 mögulegum. 2.-7. deFirm-
ian (Bandaríkjunum), Akopjan,
Vladimirov, Gavrikov, Halifman
og Timoshenko (allir Sovétríkjun-
um) 6,5 v. 8.-10. Pigusov, Chem-
in og Vyzmanavin (allir Sovétríkj-
unum) 6 v. 11.-40. Margeir Pét-
ursson, Curt Hansen (Danmörku),
Cvitan og Popovic (Júgóslavíu),
Azmaparasvhvili, Dorfman,
Tukmakov, Dreev, Tunik,
. Ubilava, Bareev, Kaidanov, Rash-
kovsky, Goldin, Tivjakov, Piskov,
Dautov, Romanishin, Sveshnikov,
Jurtaev, Gelfand, Smagin, Mina-
sjan, Timoshchenko, Vaiser, Jud-
asin, Lemer, Razuvajev, Anasta-
sjan og Shirov (allir Sovétríkjun-
um) 5,5 v. 41.-50. Smejkal
(Tékkóslóvakíu), Lobron (V-
Þýzkalandi), Panno (Argentínu),
Dlugy og Lein (Bandarílq'unum),
Psakhis, G. Kuzmin, Haritonov,
Titov og Makariehev 5 v.
Helgi og Hannes Hlífar vora á
meðal þeirra sem hlutu 4,5 vinn-
ing og urðu í 51.-77. sæti.
Sjö efstu menn komast áfram
í úrslitamót fyrir heimsbikar-
keppnina 1991-92. Reyndar átti
að tefla um átta sæti, en Pigusov
hafði einnig náð að komast áfram
í Belgrad og samkvæmt reglum
keppninnar geta aðeins átta efstu
komist áfram úr hveiju móti. Eini
Vesturlandabúinn sem komst
áfram var Bandaríkjamaðurinn
Nick deFirmian. Margir þeirra
sem komu frá .Vesturlöndum á
mótið voru brottfluttir Sovét-
menn, má þar á meðal nefna þá
Dmitri Gurevich, Lein, Murey,
Dlugy, Shamkovich og Gutman.
Þeir áttu auðvitað erfitt með að
einbeita sér að skákinni undir
þessum kringumstæðum, orkan
hjá sumum fór meira í að hitta
vini og ættingja sem þeir höfðu
ekki séð í mörg ár.
Við Helgi Ólafsson náðum ekki
okkar bezta á þessu móti, en
Hannes Hlífar var í banastuði
framan af mótinu. Hann vann
stórmeistarana Oleg Romanishin,
Sovétríkjunum, Eric Lobron, V-
Þýzkalandi og Istvan Csom, Ung-
veijalandi, hina tvo síðastnefndu
á mjög sannfærandi hátt, en skák-
in við Romanishin var mjög um-
töluð í Moskvu. í henni náði Hann-
es fyrst að byggja upp yfírburða-
stöðu auk þess sem Sovétmaður-
inn hafði eytt næstum öllum tíma
sínum. En á síðustu mínútu Ro-
manishins lék Hannes öllu af sér
og var heilum hrók undir í enda-
tafli þegar Sovétmaðurinn féll á
tíma í 38. leik. Þegar tvær um-
ferðir vora eftir nægði Hannesi
einn vinningur til að ná áfanga
að stórmeistaratitli, en þá tapaði
hann fyrst fyrir Vyzmanavin. 1
síðustu umferð lagði hann allt
undir gegn sovézka stórmeistar-
anum Lemer og hafði um tíma
unna stöðu, en með seiglu tókst
Lemer að snúa taflinu við og
vinna.
Eins og áður sagði var aðstaða
á mótinu mjög góð, einu gallarnir
vora töluverður hávaði af fjöl-
margum áhorfendum í þeim sal
þar sem obbi þátttakenda tefldi
og það að teflt var frá tólf á há-
degi til sex að staðartíma, sem
er allt of snemmt, sérstaklega
fyrir þá sem koma frá V-Evrópu.
Fyrir okkur Islendinga þýðir þetta
taflmennsku frá kl. átta fyrir há-
degi til tvö e.h. að íslenskum tíma,
þegar heilastarfsemi skákmanna
er í algjöru lágmarki. Þessi óhent-
ugi tími þýddi að um undirbúning
okkar fyrir skákir var vart að
ræða, því um andstæðing í hverri
umferð var ekki vitað fyrr en kl.
níu að morgni samdægurs.
Við skulum nú líta á mjög sann-
færandi sigur Hannesar yfír næst-
sterkasta skákmanni V-Þjóðveija
um þessar mundir. Hannes beitir
skandinavísku vörninni, sjald-
gæfri byijun sem .hann og félagi
hans, Þröstur Þórhallsson, hafa
oft notað til að slá sprenglærða
erlenda andstæðinga út af laginu:
Hvítt: Lobron (V-Þýzkalandi)
Svart: Hannes Hlífar Stefáns-
son
Skandinavísk vöm
1. e4 — d5 2. exd5 — Rffi 3. d4
Lobron reynir ekki að halda í
peðið með 3. c4, en þá hefði hann
fengið á sig „íslandsbragðið“ 3.
- e6!? -feitt 3. - Rxd5 4. Be2 -
g6 5. Rf3 - Bg7 6. 0-0 - 0-0
7. Hel — c5 8. dxc5 — Ra6 9.
Bxa6 — bxa6 10. c3?!
Betra var 10. Re5! og hvítur
stendur betur, en þannig lék Dol-
matov gegn Jóni G. Viðarssyni á
alþjóðlega mótinu á Akureyri
1988. 10. - Bb7 11. Rd4 - Dc7
12. c6 - Bc8! 13. Df3 - Hd8 14.
Rd2 - e5 15. Rc2 - Dxc6 16.
c4? - Re7 17. Dxc6 - Rxc6 18.
Re4 - f5 19. Rc5 - Bf8 20. Ra4
- f4! 21. Rc3 - Bf5 22. Re4?
Eftir þessi mistök í erfiðri stöðu
tapar hvítur liði. 22. — Bxe4 23.
Hxe4 - Rb4! 24. Rel - Hdl-i-
25. Kfl — Rd3 26. Ke2 - Hxcl
27. Hxcl - Rxcl 28. Kd2 -
Rxa2 29. He5 - Hd8 30. Kc2 -
Rb4 31. Kb3 - Hb8 32. He4 -
Rd3 33. Kc2 — Rxb2 og nú loks
gafst hvítur upp