Morgunblaðið - 13.06.1989, Side 31

Morgunblaðið - 13.06.1989, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JUNI 1989 Morgunblaðið/Einar Falur Prófessor Eugene Braunwald lyartasérfræðingur á 12. þingi nor- rænna hjartalækna í Reykjavík í sl. viku. irir í istíflu 3n þriðjung í Bandaríkjunum frá því hámarki er varð 1966. Þetta er rakið til þess hversu rík áhersla hefur verið lögð á að draga úr áhættuþáttum meðal almennings með varnaðarorðum vegna reykinga, breyttu mataræði og lyfj- um.“ í erindi sínu fjallaði prófessor Braunwald um brátt hjartadrep, en hann hefur mikið rannsakað þann sjúkdóm í seinni tíð og hyggst gera það enn frekar. Brátt hjartadrep er lífshættulegt sjúkdómSástand í hjartavöðva. í því felst bráð blóðþurrð í hjartavöðvan- um, sem leiðir til dauða hluta hans. Benda má hér á, að hjartavöðvinn hefur ekki nema afar takmarkaða möguleika til endurnýjunar. Bráðir kransæðasjúkdómar í formi skyndi- dauða og bráðs hjartadreps (auk fylgikvilla þess í mynd langvinns blóðþurrðarsjúkdóms í hjarta) valda dauða um 20-30% fólks á Vestur- löndum. Tíðni hjartadreps fylgir : stigi æðakölkunar og dánartíðni j vegna þessa nær hámarki í 55-64 ára körlum og konum á áttræðis- aldri. Körlum er í heild um þrefalt ' hættara við hjartadrepi en konum, en sexfalt hættara á aldrinum 33-55 ára. Hlutfallið verður hins vegar 1:1 í hárri elli. Rétt er að minnast þess, að brátt hjartadrep tekur fyrst og fremst til vinstra slegils hjartans, en hann dælir súrefnisríku blóði um ósæð til vefja líkamans. Um er að ræða tvenns konar drep. Annars vegar er heilþykktardrep, en þá verður ; vefjadauðinn í allri veggþykkt sleg- ilsins. Hins vegar er undirþelsdrep, en þá nær skemmdin aðeins að hluta til niður í hjartavöðvann. Meingerð hins fyrra er almennt talin vera blóðtappi, sem myndast á æðakölkunarskellu kransæða. Meingerð hins síðara hefur vafist nokkuð fyrir mönnum og talin vera fjölþátta. „Allt frá 3. áratugi þessarar ald- ar og fram á þann áttunda ríkti allnokkur ringulreið í læknisfræð- inni varðandi brátt hjartadrep af heilþykktargerð þar eð meinafræð- ingum tókst ekki alltaf að sýna fram á blóðtappa í kransæð fórnar- lamba sjúkdómsins. í þekktri grein, sem birtist í New England Journal of Medicine árið 1980, var sýnt fram á, að 88% þeirra, sem rannsak- aðir voru með hjartaþræðingu innan 4 klst. frá upphafi einkenna, höfðu blóðtappa í kransæð. Þessi tala lá hins vegar á bilinu 65-70% ef hjartaþræðing fór fram 6-12 klst. frá upphafi einkenna. Þetta sýndi, að blóðtappi er hér þungamiðjan. Á milli 4. og 12. klukkustundar leyst- ist tappinn hreinlega upp. Á hinn bóginn sást blóðtappi í aðeins um 40% þeirra, sem hafa merki um undirþelsdrep. í raun er það svo, að ræða má um tvo hópa kransæðasjúklinga á sjúkrahúsum. Annars vegar eru gamlir einstaklingar með langa sögu um hjartaöng og lyfjameðferð vegna langvinns blóðþurrðarsjúk- dóms í hjarta. Þessir sjúklingar hafa oft á tíðum aldrei fengið hjartadrep þrátt fyrir mjög kalkað- ar og þröngar kransæðar. Hins veg- ar eru yngri sjúklingar, sem koma með brátt hjartadrep, en eru oft án fyrri hjartasögu. Áhættuþættir geta verið til staðar. Þeir koma á sjúkrahús með brátt hjartadrep. Við hjartaþræðingu getur verið um minniháttar æðaskemmdir að ræða. Kölkun kransæða er sameiginlegur grunnur beggja sjúkiingahópanna. Hins vegar er hinn fyrri með stöð: ugar og vaxandi æðaskemmdir. í seinni hópnum er um það að ræða, að skemmd verður á þeli kransæð- anna með myndun blóðtappa og bráða blóðþurrð í kjölfarið. Hér er um óstöðuga skemmd að ræða. Hér að ofan kemur skurðaðgerð með framhjáhlaupi (“bypass“- aðgerð) að notum hvað snertir ein- kenni undirliggjandi hjartasjúk- dóms. Slík aðgerð drægi aftur á móti ekki úr tíðni hjartadreps. Þá kann að vera, að unnt sé að nota magnýl til varnar." Prófessor Eugene Braunwald hefur mikið rannsakað gildi sega- leysandi meðferðar við bráðu hjartadrepi. Ýmis lyf eru nú þegar í notkun (m.a. hér á landi) sem eru þeim kostum prýdd að megna að leysa upp blóðtappa. Segaleysandi lyf hafa sannað gildi sitt og eru mikil framför í meðferð kransæða- stíflu. „Sennilega er ekki unnt að einfalda málið með þeim hætti, að það verði klippt og skorið hveijir sjúklinga með brátt hjartadrep skuli settir á segaleysandi meðferð og hveijir ekki. Hér mun að líkindum ávallt þurfa að koma til klínisk reynsla læknis og mat hans á ástandinu. Hér þarf m.a. að huga að því hversu langt er um liðið frá upphafi einkenna. Rætt er um það, að ekki tjói að gefa segaleysandi lyf til að opna kransæð á nýjan leik sé lengra liðið frá upphafi ein- kenna en 4 klukkustundir. En við enduropnun verða einnig ákveðnar skemmdir á hjartavöðva samfara því að blóðflæði til hans kemst á að nýju. Hér þarf að koma til stuðn- ingsmeðferð vegna þessa. Þessa þætti þarf að rannsaka enn frekar sem og kosti einstakra segaleysandi lyfja umfram önnur. Hins vegar er segaleysandi meðferð nú þegar föst í sessi. Lyf eins og rt-PA og streptókínasi hafa sannað gildi sitt. 10-20% sjúklinga, sem fá slíka meðferð, eiga á hættu að viðkom- andi æð lokist að nýju á næstu mánuðum. Mikilvægt er að þróa einfalda aðferð til að greina þessa sjúklinga, sem þá væri unnt að fylgja eftir og jafnvel grípa til rót- tækari aðgerða til að halda viðkom- andi kransæð opinni. Ekki þarf að gera kransæðaþræðingu nema klínískt mat bendi til þess, að sjúkl- ingur sé ekki í stöðugu ástandi. Ef svo er, þá þarf að þræða krans- æðamar með þann kost í huga, að víkka þær (gera „angioplasty"). Bærilegt áreynslupróf er forsenda útskriftar af sjúkrahúsi.“ Ég spurði prófessor Eugene Braunwald að lokum um gildi lýsis gegn hjartasjúkdómum, sem hann vildi lítt tjá sig um og vísaði til þeirra rannsókna sem í gangi em. Ég minntist einnig á nokkuð, sem er okkur íslendingum ofarlega í huga, nefnilega hjartaígræðslu. Prófessor Braunwald sagði mannshjartað vera besta kostinn í dag. Hugsanlega yrði unnt í fram- tíðinni að nota hjörtu annarra dýra- tegunda til ígræðslu. Hins vegar væri gervidæla, sem sett væri í sjúkling í nokkum tíma, kostur sem verið væri að kanna. Væri með því móti unnt að halda sjúklingi lifandi meðan leitað væri hjarta, sem sam- rýmanlegt væri líkama sjúklingsins. „Enn er verið að rannsaka gervi- hjörtu, en ekkert gefur til kynna að þau verði varanleg lausn. Hins vegar lifa sjúklingar með ígrætt mannshjarta eðlilegu lífi.-Þeir rísa upp úr gríðarlegum veikindum og stíga á ný inn í heim hversdagslífs- ins. Þeir þarfnast þó stöðugrar ónæmisbælandi lyfjameðferðar, en hættan á höfnun er mest fyrstu 3 mánuðina. Um 90% sjúklinga em á lífi 1 ári frá aðgerðinni þar sem ég þekki til og 75-80% 3 árum frá aðgerð. Hins vegar hefur nýr vandi skotið upp kollinum hjá hjartaþeg- um 4-5 ámm frá aðgerð, en það er hjartaáfall. Svo virðist sem höfn- un á æðaþeli kransæða hins nýja hjarta valdi þessu. Þá má einnig geta þess, að sé um hjarta- og lungnaígræðslu að ræða, þá getur orðið höfnun á öðm líffærinu en ekki hinu svo áhættan eykst tölu- vert.“ - ing. Nemendur úr Ölduselsskóla læg- færa örfoka barð. Á myndinni sést hve landið er illa farið. Unglingarnir eru um alla hlíð að rækta hana upp,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.