Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 34
M- MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPri'AIVINNyLÍr ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989 Fyrirtæki Aðalfandur skipasmíða- stöðvarinnar Skipavíkur AÐALFUNDUR skipasmíða- stöðvarinnar Skipavíkur hf. í Stykkishólmi var nýlega hald- inn. Var hann fjölmennur. Ellert Kristinsson forseti bæjarstjórn- ar stýrði fundi, skýrslu sljórnar flutti Sigurður Krisljánsson stjórnarformaður, en reikninga skýrði Ólafur Krisljánsson framkvæmdasljóri. Margt var IMámskeið Góð þátttaka ínámskeiði um loftstýritækni NÝLEGA stóð fyrirtækið AVS Hagtækni fyrir námskeiði á sviði loftstýritækni sem er stýritækni fyrir sjálfvirkni ýmiskonar véla og er þetta í fyrsta sinn sem slíkt námskeið er haldið af einkaaðila. Þátttaka í námskeiðinu var góð og segir í frétt frá fyrirtækinu að greinilegt sé að þörfin fyrir slíka fræðslu sé mikil í atvinnulíf- inu. í fréttinni segir að námskeiðið hafi sótt starfandi fagmenn úti í atvinnulífinu. Tilgangurinn hafi verið að auka þekkingu þeirra á loftstýritækni ásamt því að sýna þá miklu notkunarmöguleika sem loftstýringar gefi á sjálfvirkni véla. Þá segir að fiskiðnaður, umbúðaiðn- aður, tréiðnaður ásamt öðrum iðn- aði hafi notað þessa tækni í mörg ár. í öðrum greinum hafi menn komist einnig upp á lagið með að nóta loftstýringar í auknum mæli. Þetta hafi gefið möguleika á að auka sjálfvirkni á hagkvæman og ódýran hátt. AVS Hagtækni hyggst í framtíðinni bjóða upp á námskeið af þessu tagi sem skipt er í grunn- námskeið í loftstýringum og tölvu- stýrðum loftstýringum. rætt á fundi þessum og það kom fram að í júlí sl. tók Skipavík við rekstri byggingarvörudeild- ar Kaupfélagsins sem þá var í höndum Kaupfélags Hvamms- Qarðar og hafði ekki borið sig. Þessa 6 mánuði var hún svo rekin með einhveijum hagnaði. Eftir að hafa lesið og skýrt reikninga fyrirtækisins og umræð- ur höfðu. orðið verulegar, skýrði forstjórinn frá því að Skipavík hefði nú fengið það verkefni að sjá um alla gúmmibátaþjónustu hér á Snæfellsnesi og þarf því ekki lengur að sækja hana suður á bóginn. Er verið að vinna að því að koma henni fyrir í húsakynnum félagsins. Eins og áður hefur verið minnst á í fréttum Morgunblaðsins er bagalegt að hér í Stykkishólmi er nú svo til engin viðgerðarþjón- usta bifreiða, þrátt fyri mikla fjölgun bíla hér og hefir undanfar- in ár orðið að sækja þessa þjón- ustu allt til Reykjavíkur. Var um það rætt hvort Skipavík gæti ekki verið í fararbroddi að koma þess- ari þjónustu á með stofnun félags og þá myndu nægir fást til að taka þátt í slíkum rekstri. Auk þess sem atvinnutækifæri yrðu fleiri. Þá sagði forstjórinn að fyrir- tækið hefði nú fest kaup á sand- blásturstækjum, til að auka fjöl- breytni í rekstrinum og bæta þjón- ustuna fyrir bátaflotann. Reksturinn hjá Skipavík gekk sæmilega á árinu, þrátt fyrir ýmsa erfiðleika. En skuldir viðskiptavina jukust og er það umhugsunarefni, því það er staðreynd að útgerð hér á í vök að veijast. — Arni ■>HIIIU.Il.hUU Nýir starfshættir hjá Gjaldeyriseftirlitinu NÝIR starfshættir verða teknir upp við eftirlit með útflutningi hjá Gjaldeyriseftirliti Seðlabankans. Auk venjulegra upplýsinga þurfa útflytjendur að skrá yfirfærslunúmer en þessar breytingar eru liður í stærri skipulagsbreytingum i gjaldeyrismálum, sem hafa verið að eiga sér stað frá árinu 1979, í tilkynningu frá Gjaldeyriseftir- litinu segir að vinnuferill við út- flutningsskýrslur verði hér eftir þannig að útflutningsskýrsla verður í fyrsta lagi útfyllt á hefðbundinn hátt með yfirfærslunúmeri og af- hent tollyfirvöldum. Varan er síðan flutt út en með greiðslu erlenda aðilans skal fylgja yfirfærslunúmer sendingarinnar. Einnig þarf að gefa upp hvort um heildar-, hluta- eða lokagreiðslu sé að ræða og gefa upp nafn eða kennitölu. Yfirfærslunúmer þurfa að vera 7 tölustafa númer þar sem aftasti tölustafurinn er síðasta tala þess árs sem flutt er út á. Útflytjandinn býr sjálfur til þessi yfirfærslunúmer og ræður hann gerð þeirra en í til- kynningunni segir að áríðandi sé að hvert yfirfærslunúmer sé aðeins á einni vörusendingu, en á öll gjald- eyrisskil af henni sé hún greidd í mörgu lagi. Þá segir að þar sem þetta kerfi snerti marga aðila verði það tekið upp í nokkrum þrepum til þess að skapa nægan aðlögunartíma. SKIPAVIK — Nýlokið er aðalfundi skipasmíðastöðvarinnar Skipavíkur. Þar kom m.a. fram að verkefni eru næg næstu fjóra mánuði. Nú starfa hjá félaginu um 30 manns. Kringlan Aðalkosturinn að versla undirþaki Skoðanakönnun um áhrif yfirbyggingar verslunarsvæðis í SKOÐANAKÖNNUN sem gerð var á vegum tímaritsins Arkitektúr og skipulag og tengdist viðfangsefni blaðsins „Vetrarborgir" kom í ljós, að 55% aðspurðra töldu aðalkost Kringlunnar vera þann að þar væri hægt að versla undir þaki og 45% aðspurðra tóku fram að þar væri hægt að fá allt á sama stað. Varðandi helstu ókosti Kringlunnar fannst 13% aðspurða verslanir vera of dýrar, 10% fundu enga galla og 6% kvörtuðu um of mikinn hávaða. Tilefni könnunarinnar var að komast að því, hvaða áhrif yfirbyggðar götur hefðu á íslendinga. I könnuninni var reynt að hafa jafna dreifingu milli kynja og aldurs- hópa og þeir ekki spurðir sem voru yngri en 20 ára. Markmið könnunar- innar var aðllega að athuga hvort fólk fengi innilokunarkennd í svona rýmni, hvernig því liði þar og hvort íslendingar séu á réttri braut varð- andi þessi efni. í ljós kom, að flestir koma á einkabíl eða 81% og frá Reykjavík komu 79%. 41% aðspurðra fannst ytra umhverfi og aðkomu vera ábótavant, 36% fannst hún vera sæmileg og 23% svöruðu skemmti- leg. Þeim sem voru óánægðir fannst vera mengun af bílum, langt í stræt- Fjárlagahallinn brúaður með fyrsta veðrétti íþorskstothinum eftir Bjama Sigtryggsson Ýmsir þeir bændur sem hyggjast bregða búi um þessar mundir verða fyrir þeirri dapurlegu reynslu að komast að raun um það að þau verðmæti, sem þeir hafa talið sig byggja upp með eign í jarðnæði, húsum, vélum og bústofni eru lítils virði. Spamaður ævistarfsins hefur brunnið upp, rétt eins og spariféð gerði á dögum óraunvaxtanna. Þama skipta bókfærðar tölur litlu máli, jafnvel vandað viðhald. Það sem skiptir máli er eftirspurn. í dag er lítil sem engin eftirspurn eftir bújörðum, nema þeim fylgi sérstök hlunnindi, eins og til dæmis veiði- réttur. Þetta er hinn blákaldi veruleiki, sem ekki hefði þurft að verða svo sársaukafullur, ef leiðtogar bænda- stéttarinnar hefðu ekki fylgt þeirri stefnu að ofvemda stétt sína gegn þróun markaðarins. Og margir bændur vom of lengi hvattir til að framleiða of mikið og þeim var tryggt of hátt verð fyrir. Fyrir- bragðið em of margir þeirra of illa settir í dag. Eignir sem hverfa Það lögmál gildir um allar eign- ir, framleiðslutækin sem aðra auð- legð, að þær em aðeins þess virði sem menn em reiðubúnir að greiða fyrir. Bóndi sem telur sig eiga 12 milljóna króna verðmæti í jörð sinni og húsum kann að þurfa að sætta sig við þriðjung þess við sölu. Ævi- sparnaðurinn eyðist þegar eftir- spumin hverfur. Þá skiptir engu hversu mikið hefur verið í eignina lagt, né hvað menn trúa að kunni að gerast í framtíðinni. Þess em líka mörg dæmi að bændur sem hafa ráðist í miklar endurbætur skuldi meira en nemur markaðs- verði allra eigna þeirra. Þannig kann að vera komið fyrir íslenska þjóðarbúinu. Löng erlend lán íslendinga stefna í það að vera orðin 135 milljarðar króna. Það nálgast að vera matsverð alls íbúð- arhúsnæðis á landinu. Húsbygg- ingaþjóðin íslendingar hafa því, þegar öllu er á botninn hvolft, reist sér kastala fyrir annarra manna fé og á eftir að endurgreiða það allt saman. Raunverulegur þjóðarauður? Þjóðarauður íslendinga er nú talinn nema allt að 700 milljónum króna, þannig að við skuldum fimmtung þjóðarauðsins, að frá- töldum óveiddum fiski, óvirkjaðri Með síðustu hallalánum ríkissjóðs voru þúsund bújarð- ir veðsettar til viðbótar þeim 27 þúsund sem við skuld- um . . . orku og óbeisluðu hugviti. En hvers kyns eign er það sem við eigum þá á móti skuldunum? Líkt og bújörð, hús, vélar og bústofn bóndáns, þá er hér um að ræða opinbert mat en ekki raun- verulegt markaðsverð. Hætt er við því að raunverulegt verðmæti eigna okkar fari einkum eftir tvennu; stofnstyrk nytjafiska og heims- markaðsverði á orku. Finnist ný, ódýr orkulind eða komi slys fyrir fiskistofna okkar, þá er hætt við að annar þjóðarauður okkar yrði lítils virði. Nýlega hefur fjármálaráðuneytið tekið tvö stór erlend lán, samtals um fimm milljarða króna, til að greiða með halla á rekstri ríkis- sjóðs. Samkvæmt upplýsingum fasteignasala er algengt markaðs- verð fyrir bújörð liðlega fimm millj- ónir króna. Með hallalánunum erum við því að veðsetja þúsund íslenskar bújarðir. Fyrir skuldum við andvirði 27 þúsund bújarða. Svo mörg býli hafa aldrei verið hér á landi, þann- ig að nú eru allar sveitir landsins og dijúgur hlúti sjávarþorpanna komin í hendur veðlánara japanskra banka. Landið veðsett - miðin næst? A dögunum birti NBC sjónvarps- stöðin bandaríska frétt um skuldir Bandarílqamanna við Japani. Til skýringar á stærð skuldarinnar var birt kort af Kaliforníufylki, og nefnt að með erlendum skuldum sínum væru Bandaríkjamenn raunveru- lega búnir að veðsetja alla Kali- forníu en héldu samt áfram að brúa fjárlagahallann með erlendri skuldasöfnun. Brátt myndi jap- anska eignarhaldið ná til fleiri fylkja. Hætt er við að íslendingar séu nú þegar búnir að veðsetja landið sitt allt og fari brátt að slá út á miðin. ísvagn, drungalegt og þröng. Af niðurstöðum má draga þá ályktun að fólki líður yfirleitt vel í almenningsrými Kringlunnar. Helstu gallar eru þrengsli á annatímum, hvavaði og skortur á fjölbreytni í almenningsrýminu. Utanríkisviðskipti Viðskipti Islands og Tékkóslóvakíu hafa minnkað VIÐSKIPTI milli íslands og mlisTékkóslóvakíu hafa minnk- að talsvert ef litið er til lengri tíma. Þannig voru viðskiptin um 2—3% af utanríkisviðskiptum Islendinga á sjötta áratugnum, en hafa verið um 0,1% af heild- arútflutningi og 0,3—0,4% af heildarinnflutningi á undan- förnum árum. Arið 1988 nam verðmæti útfluttrar vöru til Tékkósióvakíu um 86 milljónum króna, en verðmæti innfluttrar vöru þaðan nam um 268 milljón- um krona. I sameiginlegri fundargerð sem undirrituð var í lok viðræðna full- trúa íslands og Tékkóslóvakíu kemur fram að báðir aðilar lýsa yfir áhuga á áframhaldandi og auknum viðskiptum. Var því sér- staklega fagnað að útflutningur á loðnumjöli til Tékkóslóvakíu hefur hafist að nýju eftir nokkurra ára hlé. Auk hefðbundinna vara var lögð áhersla á kaup Tékka á þorskalýsi, skinnavörum og lambakjöti. Tékkar lýstu yfir áhuga á að kaupa nokkurt magn af fiskimjöli, freðfiski og lagmeti og auk þess að selja hingað frosið grænmeti, ávexti og vélar og tæki vegna byggingar orkuvera og ann- arra verkefna á Islandi auk hefð- bundinna vara. Formaður íslensku viðræðu- nefndarinnar var Sveinn Björns- son sendifulltrúi í utaníkisráðu- neytinu. Ákveðið var að næstu viðræður færu fram í Prag árið 1990.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.