Morgunblaðið - 13.06.1989, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989
43
að komandi gestir auk heima-
manna. Þetta voru mjög góðir dag-
ar. Flestir gestanna voru komnir
um langan veg og margir hikuðu
ekki við að fara fótgangandi 20—30
km leið og klífa brött fjöll til að
geta verið með. Dagurinn hófst með
biblíulestri á morgnana. Síðan var
fólki skipt í hópa og sent um landið
til að ganga í hús cg segja frá hin-
um kristna boðskap. Var gengið
sleitulaust til kl. 4—5. Því var alls
staðar vel tekið og víða boðið í
hús, þar sem því var boðið upp á
te. Þegar hóparnir hittust síðdegis,
höfðu flestir frá opnu landi og opnu
fólki að segja.
Á kvöldin voru samkomur. Svo
margir komu, að litla skólahúsið
varð fljótlega allt of lítið. Heilir
þrír kórar voru á staðnum og tveir
til viðbótar voru stofnaðir af þátt-
takendum. Það var mikið sungið
að hætti Afríkumanna af innlifun,
þar sem allur líkaminn var með. Inn
á milli vitnuðu menn um gildi hinn-
ar kristnu trúar fyrir þá og hvernig
hún breytti lífi þeirra. Innfæddir
prédikarar héldu svo ræður kvölds-
ins. Að lokum var sýnd kvikmynd,
fyrirbrigði, sem ekki sést á hverjum
degi á þessum slóðum. Á fjórða tug
manna óskaði eftir hjálp til að geta
orðið kristnir. Miðaldra maður bað
um fyrirbæn á einni samkomunni.
Hann hafði verið kúaræningi í mörg
ár. „Biðjið fyrir mér, því að ég hef
drepið ijölda manns,“ sagði hann í
örvæntingu sinni, þegar hann leit
yfir ævi sína. Líf hans var fullt af
misgjörðum, en hin kristna trú stóð
honum til boða, fyrirgefning alls
hins liðna og tækifæri til að hefja
lífið upp á nýtt.
Hér um slóðir talar enginn um,
að kirkjan eigi að láta menn í friði,
heldur er hún stöðugt beðin um að
reyna að ná víðar, því að boðskapur
hennar hefur bara góð áhrif á fólk.
Það eru bæði yfirvöld og almenn-
ingur, sem kemur með þessar óskir.
Ekki er hægt að verða við öllum
beiðnum.
Útbreiðsluherferðir á
íslandi?
Fólk í frumkristninni var sér
mjög meðvitandi um ábyrgð sína á
að útbreiða hinn kristna boðskap.
í hvaða stétt, sem menn voru, vitn-
uðu þeir um trú sína. Á þann hátt
barst hinn nýi boðskapur með mikl-
um hraða um allt Rómaveldi. Mann-
eskjan hefur ekki breyst hið innra
síðan þá, og enn stendur boð Krists
um að gera allar þjóðir að lærisvein-
um. Þar er einnig átt við hveija
nýja kynslóð i kristnum löndum.
Fáir meðlimir íslensku kirkjunnar
sækja kirkju að staðaldri. Kannski
við ættum að hefja útbreiðsluher-
ferðir og ónáða fólk meir?
Höfundur er kristniboði.
Hótel, sjúkrahús, mötuneyti,
fisk- og kjötvinnslur o.fl. Hjá
RV fáið þið létta vinnuklossa
(hvíta eða svarta) og hvít
stígvél sem ekki veröa hál.
REKSTRARVÖRUR
Draghólsi 14-16 • 110 Rvlk • Slmar: 31956 - 685554
hiiiÉBÍ
SPORTJAKKAR
Höfum fengið í sölu hina
þekl<tu sportjakka frá
Vestur-þýska fyrirtækinu MeÍMSÉSsK
Fjölbreytt ún/al
allar stærðir
verð frá kr. 5.390.-
ÁLAFOSS-ó/ÍJ/h
---------- FATADEILD -------
VESTURGÖTU 2, RVK, SlMI 9I-I3404 - IÐAVELLIR I4B KEFUAVlK SlMI 92-I279I
IDE ■hurðirnar frá Bústofni með fræstum
„fullningum" prýða heimilið og gefa því virðu-
legan blæ. Þær fást gegnheilar eða með
„frönskum" gluggum, sem hleypa birtu á milli
herbergja. Frönsku hurðirnar eru einnig fram-
leiddar tvöfaldar.
Hurðirnarfaravel í nýtízku húsakynnum sem
og til endurnýjunar í eldri húsum. Þær eru þv(
hvarvetna aðlaðandi og hagnýt lausn.
Arkitektar og iðnaðarmenn hafa lokið lofs-
orði á hurðirnar fyrir vandaða smíði.
Tré er lifandi efni, sem rakastig loftsins hefur
áhrif á. IDÉ-hurðirnar eru hannaðarog smíðað-
ar til að þola 70% sveifluaukningu á rakastigi.
• Hurðarfleki samlímdurog karmurúrmassívri
furu eða greni með innfræstum spjöldum.
• Allir karmar m/þéttilista
• Allar hurðir fulljárnaðar með sterkum, sér-
smíðuðum lömum.
• Allar breiddir fáanlegar af ýmsum gerðum.
• Verðið er vitaskuld hagstætt eins og á öllu
öðru hjá BÚSTOFNI.
Biðjið um bækling.