Morgunblaðið - 13.06.1989, Side 47
■MORGUXBJLAljlÐ,ÞRH).n;i?AOUR Ig, JÚNÍ-1989
er ég þess fullviss að í tímans rás
ná hjörtu okkar að verma hana þann-
ig, að eftir lifir björt og hlý minning
um góðan vin og frænda.
Trausti fæddist á Höfn 5. febrúar
1972 en þá voru foreldrar hans ný-
lega flutt þangað austur. Valdís og
Hreinn eru einstaklega umhyggjus-
amir og góðir foreldrar sem byggðu
börnum sínum gott og fallegt heim-
ili. Það var tæpt ár mili bræðranna,
Péturs og Trausta, en fyrir voni eldri
systkinin, Ásmundur og fjóla.
í hugann koma minningar frá
heimsóknum íjölskyldu minnar aust-
ur á Höfn t.d. mynd af þrem litlum
drengjum að leik við fallega á, kepp-
andi um hver gæti kastað steinum
lengst út í strauminn, en eldri systk-
inin hafa vaðið yfir á næsta bakka.
Þannig mætti minningarnar lengi
telja.
Síðar fluttu Hreinn og Valdís til
Fáskrúðsfjaðar og hafa búið þar
síðan.
Þrátt fyrir að samverustundum
fjölskyldna okkar fækkaði eftir flutn-
ingana austur á land, hafa alla tíð
verið traust og góð tengsl þar á
milli — tengsl vináttu og trúnaðar.
Þetta skildu Trausti og Pétur bróðir
hans, því þó þeir ættu ekki minning-
ar frá heimili sínu í borginni, heil-
suðu þeir okkur ætíð sem nánustu
vinum.
Það var alltaf gaman að hitta
Trausta og sjá hans glaða og bjarta
bros, sem gat vikið svo fljótt fyrir
alvarleik og djúpri íhugun, en var
þó alltaf svo stutt undan. Trausti var
sérstaklega blíður og barngóður enda
er hans sárt saknað af litlu systkina-
börnunum sínum, sem spyija um
hann og skilja ekki hvers vegna hann
er farinn frá þeim.
Það skilur eftir góða minningú í
huga fuliorðins manns að hafa verið
nefndur „Ingi frændi“ af tveim litlum
drengjum sér óskyldum. Ég sakna
þess að hafa ekki notað betur þau
tækifæri sem ég hafði til að kynnast
þessum unga manni sem sýnilega
hafði svo mikið að gefa.
Sú sorg sem fráfall 17 ára pilts
vekur hjá fjölskyldu hans er meiri
en svo, að færð verði í letur.
Elsku Valdís, Hreinn og fjöl-
skylda, megi Guð veita ykkur styrk
og trú í þessari miklu raun svo ykk-
ur auðnist að bera sorg ykkar fram
á veg, vona og minninga — minninga
um soninn og bróðurinn besta, sem
ykkur svo mikið gaf.
Ingjaldur Ásvaldsson
og Qölskylda.
Ég var austur á Selfossi þegar ég
heyrði að góður vinur minn, Trausti
Geir Hreinsson, væri látinn. Ég trúði
þessu varla fyrst en svo smám sam-
an áttaði ég mig á því að hann væri
dáinn og ég sæi hann aldrei framar.
Trausti var skemmtilegur strákur
og gat alltaf komið manni í gott
skap. Við áttum margar góðar stund-
ir smaman; úti á Ítalíu er flölskylda
hans og mín fóru sumarið ’84, einn-
ig þegar við vorum í sumarbústöðum
Landsbankans í Selvík. Það var einn-
ig alltaf tilhlökkunarefni að hitta þá
Pétur og Trausta á ferðalögum okk-
ar frá og til Eskifjarðar meðan við
bjuggum þar. Trausti var með
skemmtilegri drengjum sem ég hef
kynnst og Pétur ekki síðri.
Ég, Trausti og Pétur áttum margt
sameiginlegt þegar við vorum litlir.
Við héldum upp á hljómsveitina Kiss
og breska knattspyrnuliðið Liver-
pool. Aldrei rifumst við eða slógumst.
Ég mun aldrei gleyma Trausta og
bið Guð að geyma hann. Ég sam-
hryggist innilega foreldrum, systkin-
um, ættingjum og vinum.
Kalli
Sorgin er gríraa gleðinnar.
Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar,
var oft full af tárum.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur
hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur
vegna þess, sem var gleði þín.
(Kahlil Gibran).
Lífshlaup 17 ára gamals drengs
er ekki langt, en lífshlaup Trausta
vinar okkar var fagurt.
Hér stöndum við eftir og spyrjum
okkur sjálf og hvert annað, af hveiju?
Af hverju þurfti Trausti að deyja
svona ungur? Við erum ráðþrota og
leitum svars við lífsgátunni miklu.
Einhver hlýtur tilgangurinn að vera,
en hver?
Á hugann leita minningar um allar
þær góðu stundir sem við áttum með
Trausta, því þær voru margar og
yndislegar. Þegar við hugsum um
hann sjáum við hann alltaf fyrir okk-
ur kátan og hressan. Hann var
traustur og góður vinur. Þannig mun
Trausti lifa í minningunni. Nú kveðj-
um við Trausta vin okkar hinsta sinni
með söknuði og þakklæti.
Og þótt í okkar tið sé margt að muna
og margt sé það, sem finnst mér kvöð að
skrifa,
þín minning bregður tærum hlátri á haustið
og hennar vegna er skemmtilegt að lifa.
(Matthias Johannessen).
Við sendum fjölskyldu Trausta
okkar innilegustu samúðarkveðjur
og vonum að minningin um Ijúfan
dreng verði sorginni yfirsterkari.
Kidda, Sölvi og Magga Stína.
H T T A ARNARocÖRLYGS
HANDBÓKIN
eftir Þorstein Einarsson
Greiningarbókum íslenska fugia. Litmyndir af
flestum íslenskum varpfuglum, vetrargestum,
far- og flækingsfuglum. Helstu 'einkenni dreg-
in fram á einfaldan hátt.
ÖRN OG
ÖRLYGUR
SfÐUMÚLA 11 - SÍMl 84866
LANDIÐ OKKAR
TT á það borgar sig að borga miðann strax. Frá 10. til 16.
júní drögum við daglega út glæsilegan Peugeot
I 205, og það í sjónvarpsútsendingu. Útsendingin
V verður alla dagana fjórum mínútum fyrir fréttir í
Ríkissjónvarpinu. Þann 18. kemur svo húsið, báturinn,
jeppinn, mótorhjólið, hestarnir, sæsleðamir . . . og það sem
meira er allur ágóðinn rennur beint til okkar aftur, bamanna
okkar og komandi kynslóða.
GRÆÐUM ÍSLAND
LANDSHAPPDRÆTTI • ÁTAKS I LANDGRÆÐSLU
I