Morgunblaðið - 13.06.1989, Side 51
51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989
NEW YORK
Suiigið hjá Sameínuðu þjóðunum
Elsa Waage söngkona hélt í
síðasta mánuði tónleika' hjá
Sameinuðu þjóðunum í New York,
að viðstöddum rúmíega 150 gest-
um. Elsu var tekið forkunnar vel
og eftir tónléikana var hún sæmd
heiðursmerki Síbelíusarféiagsins.
Fyrir rúmum tveimur vikum tók
hún svo við tvö þúsund dollara styrk
frá Skandinavísk-ameríska félaginu
í New York.
Elsa Waage er altsöngkona og
fyrir rúmlega ári iauk hún meistara-
prófi hjá Kaþólska háskólanum í
Washington í Bandaríkjunum og
núna stundar hún nám við óperu-
skólann í New Jersey. Hún er dótt-
ir Steinars og Klöru Waage. Elsa
útskrifaðist úr Menntaskólanum við
Hamrahlíð árið 1980, stundaði
söngnám hjá Elly Ameling og Dal-
ton Baidwin í Reykjavík en hélt
síðan til Washington. Á námsárun-
um hélt hún nokkra konserta, en
sá sem hún hélt hjá Sameinuðu
þjóðunum var sá fyrsti eftir að nám-
inu lauk í Washington.
í New York léku þau John Walt-
er og Svava Bernharðsdóttir undir
með Elsu, en á efnisskránni voru
sönglög eftir Brahms, Richard
Strauss, Kurt Weill, Grieg, Jón
Þórarinsson, Hallgrím Helgason og
Síbelíus. Tónleikarnir voru öðrum
þræði haldnir til að kveðja sendi-
herrahjónin Ástríði og Hans G.
Andersen, en hann lætur nú af
störfum fyrir aldurs sakir.
Þarna hjá Sameinuðu þjóðunum
var staddur Martin Riskin, formað-
ur Síbelíusarfélagsins í Banda-
ríkjunum. Hann sagði að það væri
leitun að færum altsöngkonum og
var í sjöunda himni yfir frammi-
stöðu Elsu. Hann sagði að hún syngi
af mikilli innlifun, hefði góða
kímnigáfu en gæti líka tjáð alvöru-
þunga þegar það ætti við. Riskin
spáði henni glæstri framtíð og
sæmdi hana heiðursmedalíu Síbel-
íusarfélagsins, en hún er veitt efni-
legu, ungu tónlistarfólki sem flytur
tónlist frá Norðurlöndum.
Fyrir rúmum tveimur vikum voru
menningarstyrkir Skandinavísk-
ameríska félagsins í New York af-
hentir á Waldorf Astoria-hótelinu
að viðstöddum 140 félagsmönnum.
Þessir styrkir eru árlega veittir
listamönnum frá öllum Norðurlönd-
um og Bandaríkjunum, en Elsa
Waage hlaut íslenska styrkinn í ár.
Söngunnendur á íslandi fá að njóta
þess að hlýða á þessa ungu og vel
metnu altsöngkonu í haust, en hún
heldur tónleika í október í
Reykjavík.
Elsa Waage þakkar fyrir styrk-
inn við athöfiiina á Waldorf-
Astoria.
Þijár blómarósir sem voru í hófi Skandinavísk-ameríska félagsins:
Edda Birna Kristjánsdóttir sendiráðsritari, Meg Beaty Ijósmynda-
nemi og Fríða Ólafsdóttir fatahönnuður.
^on c°n°
KRUMPUGALLAR
fyrir herra og dömur
Nýsending
Útsölustaðir:
Akrasport - Akranesi
Aþena - Höfn, Hornafirði
Bikarinn - Reykjavík
Bjólfsbær - Seyðisfirði
Borgarsport - Borgarnesi
Don Cano búðin - Reykjav.
Hverasport - Hveragerði
Kaupfél. Þing. - Húsavík
Kaupfél. Steingrfj. - Hólmav.
Maraþon - Akureyri
Músík og sport - Hafnarfirði
Nes-sport - Seltjarnarnesi
Skógar - Egilsstöðum
Sparta - Sauðórkróki
Sportbúð Oskars - Keflavík
Sportb. Laugav. 97 - Rvík.
Sporthlaðan - Isafirði
Versl. Ara Jónss. - Patreksfirði
Versl. Steina & Stjóna - Vestm.
Versl. Vísir - Blönduósi
SPORTLAND HF.
Álfheimum 74, sími 82966.
STJORNIN
Þau þágu verðlaun Skandinavísk-ameríska félagsins á Waldorf-Astoria-hótelinu: Peter Aastrom, Mic-
hael Halpem, Mary Ann Brown, Virginia Brewer, Eero Richmond, Dorrit Mason og Elsa Waage.
LANDSLAGSSVEITIN STJÓRNIN HEFUR
NÚ SLEGIÐ í GEGN SVO UM MUNAR.
BANDALÖG
Stjórnin/Hljómleikar og
dansleikir
Laugard. 17.júnf
Föstud 23-júnf
Laugard. 24.júní
Föstud 30.júní
Laugard. 1-jÚIÍ
Föstud 7.júlf
Laugard. S.júlí
Föstud 14.júlf
Laugard. 15.júlí
Föstud 21.JÚIÍ
Laugard. 22.júlí
Föstud 28.júli
Laugard. 29.júlf
Verslunarmannahelgi?
Föstud 11 .ágúst
Laugard. 12.ágúst
Laugard. 19.ágúst
Laugard. 26.ágúst
Benidorm - Spánn
Sjallinn * Akureyri
Sjallinn - Akureyri
Krúsin - ísafiröi
Krúsin - ísafiröi
Sævangur * Hólmavík
Bíldudaiur
Valaskjálf - Egiisstaöir
Freyvangur - EyjafirÖi
Sogn hátíö - ölfusi
Sogn hátfö - ÖHusi
Hótel ísland
Hótel Island
Sjallinn - Akureyri
Sjallinn - Akureyri
Breiöablik - Snæfellsnesi
Hornafjöröur
ER SAFNPLATA
SUMARSINS.
INNIHALDUR 14 SUMARS-
MELLI Þ.Á.M."ÉG FINN
ÞAÐ NÚ" OG "ÉG FLÝG"
MEÐ STJÓRNINNI
ÚTGÁFA 20. JÚNÍ.
S T E l N A R
PANTAÐU
STRAX
í PÓSTKRÖFU!
SIMAR 11620
OG 18670
SERTILBOÐ
50%
afsláttur af
þ'vottabjamar'pelsurn
(rac
FJÁRFESTIÐ í YNDI OG YL
LÁTIÐ DRAUMINN RÆTAST
FYRIR 17. JÚNÍ
Jraccoon)
Bjóóum síóa íkomapelsa
á aöeins kr.
25.000,- PELSINN
KIRKJUHVOLI SÍMI 91-20160