Morgunblaðið - 13.06.1989, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13, JÚNÍ 1989
57
RÖNTGENTÆKNI
umhversimála, en þau heyrðu nú
undir 8 ráðuneyti. Vitnaði hún til
þess að sjálfstæðismenn hefðu flutt
frumvörp um þessi efni allt frá því
í stjómartíð ríkisstjómar Geirs
Hallgrímssonar en þau hefðu aldrei
náð fram að ganga. Síðast hefði
slíkt frumvarp verið flutt í vetur.
Sigríður Anna Þórðardóttir
kjörin formaður
Síðari hluta laugardags og fýrri
hluta sunnudags snemst störf
þingsins einkum um stjórnmálaá-
lyktun þess. Mikill hluti umræðn-
anna fór í skólamál og skattamál
og kom fram hörð andstaða við
skattahækkanir vinstri stjórnarinn-
ar. Var á það lögð þung áhersla í
stjórnmálaályktuninni, að Sjálf-
stæðisflokkurinn þyrfti að tefla
fram skýrri stefnu sinni gegn þeirri
skömmtunarstjóm og forsjár-
hyggju, sem einkenndi ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar.
Þegar stjórnmálaályktunin hafði
verið samþykkt, var gengið til kjörs
stjórnar til næstu tveggja ára. Þór-
unn Gestsdóttir, sem verið hefur
formaður í 4 ár, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs og var Sigríður
Anna Þórðardóttir frá Grundarfirði
kjörin í hennar stað. Sigríður Anna
hefur gegnt varaformennsku í
Landssambandinu í tvö ár og var
hún ein í framboði til formanns.
Einnig var sjálfkjörið í önnur
stjórnarsæti. Þær sem sitja munu
í stjórn Landssambands sjálfstæðis-
kvenna til næstu tveggja ára, auk
formannsins, em: Amdís Jónsdótt-
ir, Selfossi, Anna Kristjánsdóttir,
Reykjavík, Ásta Michaelsdóttir,
Hafnarfirði, Björg Þórðardóttir,
Akureyri, María Bergmann,
Keflavík, Hildigunnur Högnadóttir,
ísafirði, Margrét Kristinsdóttir,
Akureyri, Sigurbjörg Axelsdóttir,
Vestmannaeyjum, Kristín Zoéga,
Reykjavík, Guðrún Stella Gissurar-
dóttir, Kópavogi, Aðalheiður Ar-
nórsdóttir, Sauðárkróki, Oddný Vil-
hjálmsdóttir, Reykjavík og Helga
Höskuldsdóttir, Akranesi.
STEYPT
NIÐURFÖLL,
RISTAR,
KARMAR
OGLOK
Sérsteypum einnig annað eftir pöntun.
JÁRNSTEYPAN HF.
ÁNANAUSTUM 3, SlMAR 24407 - 624260
JÁRNSTEYPA - ÁLSTEYPA - KOPARSTEYPA
MEINA
TÆKNI
í Heilbrigöisdeild Tækniskóla
íslands býöst áhugavert nám á
háskólastigi. Fjölbreytt störf
eru í boði að námi loicnu.
Innritun fer fram í Tækniskóla
(slands Höföabakka 9, sími
91-84933.
STÚDENTAR
ATHUGIÐ
Umsóknarfrestur er til
15.JÚNÍ
sjúkrahúsin tækniskóli
íslands
Þörungaverk-
smiðjan:
Tapið um 8
milljónir
Miðhúsum, Reykhólasveit.
Á aðalfundi Þörungaverksmiðj-
unnar sem haldinn var að Mjólk-
urvöllum 10. þessa mánaðar
kom fram að tapið á rekstri
verksmiðjunnar á síðasta ári
nam 8 milljónum króna. Eiginfj-
árstaða fyrirtækisins er því nei-
kvæð um hálfa milljón króna. Á
þriðja tug manna sóttu um stöðu
forstjóra verksmiðjunnar.
Á fundinum urðu snarpar um-
ræður milli fráfarandi sölumanns
verksmiðjunnar Kristjáns Þórs
Kristjánssonar og Einars Ingvars-
sonar fulltrúa Byggðastofnunnar
og sýndist sitt hverjum.
Tveir listar voru í stjómarlqori
og fékk listi Kaupfélags Króks-
fjarðar alla stjórnarmennina
kjörna en listi smærri hluthafa
engan. Þátttaka í kosningunni var
lítil og munu fulltrúar Reykhóla-
hrepps hafa skilað auðu en hrepp-
urinn er annar stærsti hluthafinn
á eftir Byggðastofnun sem á 40%
hlut. Fulltrúar Byggðastofnunar
tóku ekki þátt í kosningunni.
N Sveinn
Steindór Sendibflar
Frá Norrænna mjólkuriðnaðarþinginu sem sett var í Háskólabíói í gær.
Norrænt mjólkuriðnaðarþing:
Morgunblaðið/Sverrir
Fjallað um gæðastýr-
ingu í mjólkuriðnaði
NORRÆNT mjólkuriðnaðarþing
var sett í Háskólabíói í gær, en
það er haldið af mjólkurtæknifé-
lögum frá öllum Norðurlöndunum.
Steingrímur J. Sigfusson land-
búnaðarráðherra setti þingið, og
við setninguna flutti Páll Skúlason
prófessor erindi. Þingið stendur
yfir í þrjá daga, og eru þátttakend-
ur samtals um 530 talsins, en þar
af eru um 480 frá hinum Norður-
löndunum.
Að sögn Þórarins E. Sveinssonar,
formanns Tæknifélags mjólkuriðnað-
arins, sem er undirbúningsaðili
þingsins af íslands hálfu, eru sam-
norræn mjólkuriðnaðarþing haldin á
þriggja ára fresti, en hér á landi var
það síðast haldið 1973. Á milli þinga
starfa undirnefndir í hveiju landi
fyrir sig, sem taka fyrir ákveðið við-
fangsefni og kryfla það til mergjar.
Afraksturinn er síðan gefinn út í
sérstakri bók, sem kemur út í tengsl-
um við þinghaldið hveiju sinni, og
er efni bókarinnar síðan rætt á þing-
inu.
„Efnið sem fjallað er um að þessu
sinni er „Gæðastýring í mjólkuriðn-
aði“, og er meðal annars fjallað um
bragðgæði vöru og kostnað við
gæðaframleiðslu. Einnig verður fjall-
að um þá spurningu hvort hætta eigi
að gerilsneyða og fitusprengja mjólk,
og jafnframt þá hvort selja eigi hana
í einnota umbúðum, en í Danmörku
og Svíþjóð hefur orðið vart við til-
hneigingu í þessa átt. Þarna er um
að ræða er einskonar afturhvarfs-
hugsun, og menn munu taka á því
á þinginu hvort mjólkuriðnaðurinn á
Norðurlöndunum eigi að þróast í
þessa átt eða ekki, en þetta er í raun-
inni spurning um hvort við séum
komnir of langt í tækninni. Mjólku-
riðnaðurinn er sennilega kominn
hvað lengst tæknilega séð á Norður-
löndunum, og til dæmis hafa Danir
fækkað mjólkursamlögum úr 600 í
37 á undanfömum tíu árum, og
Norðmenn ætla að fækka sínum
mjólkursamlögum úr 120 í 100 á
næstu árum, en þetta eru þau lönd
sem komin eru langlengst í þessum
iðnaði," sagði Þórarinn.
APGUS/SlA