Morgunblaðið - 13.06.1989, Síða 58
MÖRGÚSSLaÖIÐ : ÞfilÉijUDÁ'GÚK Í3' -JÚ® í §89
Torfærukeppni á Hellu:
Arni Kópsson sigr-
aði með yfírburðum
ÁRNI Kópsson sigraði torfæru-
keppnina á Hellu sl. laugardag
með yfirburðum, en hann ók
heimasmíðuðu ftirðutæki í
flokki sérútbúinna jeppa. Öku-
tækið minnti helst á öfluga
dráttarvél, en aksturseiginleik-
arnir eru þó mun betri og lagði
Árni þekkta andstæðinga að
velli. Hann hefur nú góða for-
ystu í Islandsmeistarakeppninni
eftir tvö mót. I flokki óbreyttra
jeppa vann Stefán Gunnarsson
á Willys og leiðir hann meistara-
keppnina í sínum flokki.
Rúmlega þrjú þúsund áhorfend-
ur fylgdust með tilþrifum öku-
mannanna, þrátt fyrir sandrok á
keppnissvæðinu. Margir söknuðu
margfalds sigurvegara í þessari
keppni, Bergþórs Guðjónssonar
frá Hvolsvelli. Samkvæmt reglum
átti hann að mæta í skoðun íjórum
tímum fyrir keppni, en mætti fimm
mínútum síðar sökum þess að kerti
í vélarsalnum ofhitnuðu á leiðinni.
Hann varð því að fylgjast með
keppninni sem áhorfandi.
i/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Furðusmíð Árna Kópssonar skilaði sér vel áfram og hann átti hug
og hjörtu áhorfenda fyrir tilþrif. Árni hefur nú forystu í íslands-
meistarakeppni sérútbúinna jeppa.
Árni Kópsson ók vel á leið til
sigurs. Heimasmíðuð grind hans
virkaði vel í flestum þrautum, en
helsti keppinautur hans var Guð-
bergur Guðbergsson á Jeepster.
Hann var í sinni fyrstu keppni og
á örugglega eftir að láta að sér
Langt ferðalag frá Höfii í Horna-
firði til Hellu endaði með ósköp-
um þegar Gunnar P. Pétursson
varð að lúta í lægra haldi fyrir
þessu barði í flórðu þraut. Willys
hans endaði á hvolfi og hann
varð að hætta keppni. Barðið
reyndist öllum ókleift og mjög
varasamt.
kveða í sumar. Stefán Gunnarsson
vann í flokki óbreyttra jeppa, sem
fyrr sagði.
Staðan í íslandsmeistarakeppn-
inni er nú þessi, í flokki sérút-
búinna jeppa: Árni Kópsson er
með 640 stig, Haraldur Ásgeirsson
á Jeepster með 460 stig, Asmund-
ur Guðmarsson á Willys með 440
stig, Gunnar Guðjónsson á Willys
með 420 stig og Sturla Jónsson á
Wagoneer með 400 stig.
I flokki óbreyttra jeppa eru efst-
ir Willys-mennirnir Stefán Gunn-
arsson með 640 stig, Magnús
Ástráðsson með 540 stig og Stefán
Sigurðsson með 480 stig.
G.R.
Tónleikar
Mótettu-
kórsins
MÓTETTUKÓR Hallgríms-
kirkju heldur á næstunni til Nice
og Marseille í Frakklandi, þar
sem kórinn syngur á tónlistar-
hátíðum. Á morgun, miðviku-
dagskvöld, heldur kórinn tón-
leika í Hallgrímskirkju, þar sem
flutt verða nokkur þeirra verka
sem kórinn syngur Frökkum.
Auk þess að syngja á tónlistar-
hátíðunum tveimur heldur kórinn
sjálfstæða tónleika, í Nice, Mar-
seille og víðar í Frakklandi.
Varaflugvöllur í Að-
aldal:
Listar með 454
nöfíium sendir
ráðherra
Undirskriftasöfnun til stuðn-
ings byggingu varaflugvallar í
Aðaldal er nú lokið. Starri Hjart-
arson, sem stóð að söfnuninni,
segir að undirskriftalistum með
um 120-130 nöfnum hafi verið
stofið úr söluturnum og víðar
þar sem þeir lágu frammi. Að
öðru leyti er Starri ánægður
með útkomuna og listar með 454
nöftium hafa verið sendir ut-
anríkisráðherra.
„Undirtektimar við þessu máli
voru mun betri en ég átti von á í
upphafi. Hinsvegar finnst mér hart
að nokkrir listar hurfu af þeim
stöðum sem þeir lágu frammi,“
segir Starri.
Rætt um „mann-
úðarsálfí*æði“
FYRIRLESTUR um eðli tilfinn-
inga og orku mannsins út frá
skilningi „mannúðarsálfræði"
verður haldinn í stofu 101 í
Odda, félagsvísindadeild Háskól-
ans, fimmtudaginn 15. júní. Fyr-
irlesari verður Leifiir Leopolds-
son.
í fréttatilkynningu, sem Morg-
unblaðinu hefur borist, segir að í
fyrirlestrinum verði farið ftjálslega
í grunnhugmyndir um upplifun
mannsins, þ.e. tilfínningar og orku,
gerðar einfaldar æfíngar, hug-
myndir Tao-isma um samspil kyn-
orku og ástar reyfaðar o.s.frv. Fyr-
irlesturinn verður frá 20-22. Áð-
gangseyrir er greiddur við inn-
ganginn.
Þarfír sjúkra
barna
AÐALFUNDUR Umhyggju,
áhugafólks um þarfir sjúkra
bama, verður haldinn miðviku-
daginn 21. júní klukkan 20.30 í
fundarsal Hjúkmnarfélags ís-
lands Suðurlandsbraut 22.
Á dagskrá fundarins eru venju-
leg aðalfundarstörf, kosin verður
ný stjórn og gestur fundarins, Birg-
ir Jakobsson, doktor í bamalækn-
ingum, fjallar um sjúkraþjónustu
barna.
I frétt frá Umhyggju segir, að
allir séu velkomnir á fundinn sem
áhuga hafí á velferð sjúkra barna,
jafnt innan stofnana sem utan.
Þriðj udagstón-
leikar í Lista-
safíii Sigurjóns
NÆSTU
þriðjudagstón-
leikar í Lista-
safni Sigur-
jóns Ólafeson-
ar verða ljóða-
tónleikar, en
þá mun Sigríð-
ur Gröndal
sópransöng-
kona flytja
þýskt-franskt
prógramm við
undirleik
Önnu Guðnýj-
ar Guðmunds-
dóttur píanó-
leikara.
Á efnisskránni eru lög eftir Hugo
Wolf við kvæði eftir Eduard
Mörike, Goethe og Paul Heyse (úr
ítölsku Ijóðabókinni) og lög Schu-
berts við hin svonefndu Suleikaljóð,
sem hafa verið birt undir nafni
Goethe í ljóðaflokknum Westöstlic-
her Divan. Löngu seinna kom í ljós
að höfundur Suleikaljóðanna var
Marianne von Willemer, sem Goet-
he hafði kynnst.
Ennfremur verða flutt lög eftir
Debussy og Henri Duparc við
kvæði eftir meðal annarra Paul
Verlaine, Mallarmé og Baudelaire.
Tónleikamir þriðjudaginn 13.
júní hefjast klukkan 20.30 og
standa í um það bil klukkustund.
Sólskin á Húsafelli, olíumálverk
frá 1947.
Landslagsmynd-
ir í saftii Ásgríms
í SAFNI Ásgríms Jónssonar við
Bergstaðastræti hefiir verið opn-
uð sýning á landslagsmyndum
eftir Ásgrím. Sýndar eru 24
myndir, bæði olíumálverk og
vatnslitamyndir.
Þar eru nokkrar eldri vatnslita-
mynda Ásgríms svo sem myndin
Brenna í Rútsstaðahverfi í Flóa frá
1909, sama ári og Heklumyndin
stóra sem nú er sýnd í Listasafni
íslands. Flestar.eru myndirnar frá
Borgarfirði.
Af myndunum úr Borgarfirði
má nefna olíumálverkin Sólskin á
Húsafelli og Úr Húsafellsskógi.
Eiríksjökull lrá 1947 og vatnslita-
myndimar Kiðárbotnar og Strútur
og Eiríksjökull frá 1948.
Sýningin stendur til september-
loka og er opin klukkan 13.30 til
16 alla daga nema mánudaga.
Leiðsögn í Laug-
ardal
Iþróttakennarar munu veita
leiðsögn í tennis, boltaíþróttum,
teygjuæfingum, leikjum ofl. við
gervigrasið í Laugardal í júní-
mánuði klukkan 12.30-16.
Þessi þjónusta er ókeypis og öll-
um opin. Einnig geta þeir sem ekki
telja sig þurfa leiðbeiningu fengið
lánuð áhöld til tennisiðkunar og í
fótbolta, blak, teygjuæfingar og
minigolf.
Hópar sem vilja leika knatt-
spyrnu, börn og fullorðnir, geta
komið milli klukkan 13 til 16 og
em starfsmenn þá tilbúnir til að
annast dómgæslu og aðstoða við
uppsetningu lítilla móta.
(Fréttatilkynning)
Þorlákskirkja
opin ferðamönn-
um
UNDANFARIN tvö sumur hefiir
sóknarnefiid Þorlákskirkju séð
um að kirkjan væri opin ferða-
mönnum um helgar og að þar
væri staðkunnugt fólk, sem veitt
gæti gestum haldgóðar upplýs-
ingar um kirkjuna og byggðina
í Þorlákshöfn.
Ferðamenn virðast hafa kunnað
vel að meta þessa þjónustu því að
á síðasta sumri skráðu á tíunda
hundrað manns nöfn sín í gestabók
kirkjunnar.
í sumar verður sami háttur hafð-
ur á og mánuðina júní, júlí og ágúst
verður hún opin á laugardögum og
sunnudögum frá klukkan 15-19.
Séu einhveijir sem þessi tími
hentar ekki, þurfa þeir ekki annað
en hringja í símanúmer sem hengt
verður upp við kirkjudymar og þá
er hægt að fá að skoða hana hve-
nær sem er þessa tvo daga.
V estmannaeyj ar:
Bjarni seldi allt
Vestmannaeyjum.
MJÖG góð aðsókn var á mynd-
listarsýningu Bjarna Olafs
Magnússonar, sem haldin var í
Eyjum, um sjómannadagshelg-
ina. Bjarni seldi öll verkin og
var mjög ánægður með viðtökur
þær er hann fékk.
Bjarni sagði að tvö verkanna á
sýningunni hefðu verið í einkaeign
og önnur tvö hefði hann ætlað sér
að eiga sjálfur. „Það endaði þó
með því að ég lét þessar tvær
myndir sem ég ætlaði að eiga því
það var gengið hart að mér að láta
þær,“ sagði hann.
Alls seldi Bjarni því 34 verk og
sagði hann að sig hefði ekki órað
fyrir því að fá svona góðar við-
tökur á fyrstu sýningu sinni.
Grímur
Morgunblaðið/Grímur Gíslason
Bjarni Ólafur Magnússon við eitt verka sinna.
Sigríður
Anna Guðný