Morgunblaðið - 21.06.1989, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.06.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1989 13 Keflavíkurflugvöllur: Verðmætum tækjum var stolið úr gámi Keflavik. BROTIST var inn í 40 feta vöru- flutningagám sem stóð fyrir utan verslun Varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli aðfaranótt fimmtudags í síðustu viku og úr honum stolið hljómflutningstækjum og mynd- bandsupptökuvélum. Ekki er ljóst um hversu mikið magn var að ræða en talið er að andvirði þýfis- ins sé á bilinu 2-300 þúsund krón- ur. Starfsmaður verslunarinnar hafði unnið við að losa úr gámnum, sem var fullur af ýmis konar rafmagns- og gjafavöru, fyrr um daginn. Um kvöldið var gámnum, sem stóð við eina af aðalgötum vallarins, læst en morguninn eftir uppgötvaðist þjófn- aðurinn. Lögreglumenn á Keflavík- urflugvelli hafa unnið að rannsókn málsins og hafa þeir tekið fingraför af fy'ölda manns í leit sinni að þjófn- um eða þjófunum en þeir hafa ekki fundist. B.B Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson Laugardaginn 24. júní verður þess minnst, að 100 ár eru liðin síðan fyrsti nemandinn kom í Hvanneyr- arskóla. Bændaskólinn á Hvanneyri 100 ára Hvannatúni í Andakíl. Næstkomandi laugardag, 24. júní, verður þess minnst, að 100 ár eru liðin síðan fyrsti nemandinn kom í Hvanneyrarskóla. Hátíðarhöld verða allan þann dag og ætla gamlir Hvanneyringar að hittast þá helgi og samfagna aldaraftnæli skólans. Um kl. 13.30 hefst hátíðarsamkoman og verður aftnælisins minnst. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadótt- ir, verður heiðursgestur hátíðarsamkomunnar. Frá kl. 16 til 18 verða bornar fram veitingar í boði skólans og á sama tíma er opið hús og starfsemi skólans kynnt eins og hún er í dag. Um kl. 17 munu tamninga- menn, sem allir eru gamlir nemendur Bændaskólans, standa fyrir skrautreiðsýningu. Morgunblaðið/Bjöm Björnsson. Aðalheiður Arnórsdóttir tekur við embætti forseta bæjarstjórn- ar af Þorbirni Arnasyni. Forseti íslands mun gróðursetja nokkrar tijáplöntur og öðrum göml- um Hvanneyringum gefst tækifæri til að minnast afmælisins með því að gróðursetja plöntur í sérstakan afmælislund og skjólbelti. Að und- anförnu hefur undirbúningur aldar- afmælisins mikið beinst að því að fegra staðinn með plöntun skjólbelta. Um kl. 20.30 hefst kvöldvaka og Aðalheiður Amórsdóttir forseti bæj arstj órnar Sauðárkróks Sauðárkróki. Á FUNDI bæjarstjórnar Sauðár- króks þann 13. júní fóru fram, samkvæmt reglugerð, kosningar sem eru árlegar til hinna ýmsu trúnaðarstarfa á vegum Sauðár- krókskaupstaðar. Þá eru einnig kjörnir forseti og varaforseti bæj- arstjómar. Þorbjörn Árnason lét af störfum sem forseti bæjar- sljórnar, en í hans stað var kjörinn annar maður af D-lista, Aðalheið- ur Arnórsdóttir. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem kona gegnir störfum forseta bæjarstjórnar Sauðárkróks. Gegnir Aðalheiður þessu starfi út kjörtímabilið sem lýkur á næsta ári. Nokkur átök urðu innan meiri- hluta bæjarstjórnar, um embætti for- seta, þar sem fulltrúi K-listans sem skipað hefur sæti fyrsta varaforseta gerði tilkall til þess. Samkvæmt viðtali við Þorbjörn Árnason var mál þetta leyst á þann veg að upprunalegur málefnasamn- ingur var látinn ráða, enda í honum ekki gert ráð fyrir tilfærslum milli lista af þessum toga, og einnig hitt að aðrir fulltrúar K-listans gerðu ekki kröfu um breytingar á málefna- samningi. Sagði Þorbjörn að með til- liti til þess hversu skammt er til næstu kosninga, og einnig hins að fyrir liggur að hann gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bæjar- stjórn á næsta kjörtímabili, væri það mjög heppilegt að fleiríhcæmu til trúnaðarstarfa á vegum flokksins. - BB munu eldri og yngri Hvanneyringar standa að henni. Þar flytja m.a. nem- endur skólans á liðnum vetri sam- fellda dagskrá með leik og lestri um sögu skólans. Margir árgangar búfræðinga hafa boðað komu sína og er þeim boðin gisting í heimavist skólans eða á tjaldstæðum. Þess má geta að rútu- ferð verður með Sæmundi frá Um- ferðarmiðstöðinni í Reylqavík kl. 11.00. Vonast er til að afmælisrit Hvann- eyrarskólans verði tilbúið fyrir hátí- ðarhöldin. Bjarni Guðmundsson kennari sér um útgáfuna. Fyrsta skref til undirbúnings skóla á Hvanneyri mun vera átak Björns Bjarnasonar, síðar bónda í Grafar- holti, þegar hann keypti jörðina 1882 en honum auðnaðist ekki sjálfum að hrinda skólastarfi af stað. Suðuram- tið kaupir síðan jörðina 1889 og inn- ritast það vor fyrsti nemandi í Búnað- arskóla Suðuramtsins, eins og skól- inn hét þá. Hjörtur Hansson, síðar bóndi á Gijóteyri í Andakíl var eini nemandinn fyrsta árið. Næstu árin voru aðeins fáir nemendur í skólan- um, enda skólinn rekinn nánast sem einkaframtak skólastjóra. Fyrstur þeirra var Sveinn Sveinsson en að- eins átta skólastjórar hafa setið Hvanneyri þessa öld. Halldór Vil- hjálmsson var lengst við stjórn, í 29 ár frá 1907 til 1936. Elsta hús sem stendur enn úr tíð skólans er „skemman“, reist 1896, 16x12 álnir að stærð. Ekki hefur tekist að fá fé til endumýjunar á henni. Bæði gömlu skólahúsin hafa hins vegar verið færð í upprunalegt útlit og eru sannkölluð staðarprýði. Leikfimihús var reist 1911 og mun Hvanneyrarskóli vera einn sá allra fyrsti skóli hér á landi, er tekur upp leikfimikennslu, og hefur hún ávallt verið iðkuð í því húsi síðan. Sögu Hvanneyrarskólans má skipta í 3 kafla: Búnaðarskólinn frá 1889 til 1907, Bændaskólinn eins og hann heitir síðan 1907 til 1947, og frá 1947 ásamt búvísindadeild (fyrst framhaldsdeild). Námið hefur yfirleitt verið 2 vetur með mislangri verknámskennslu. Láta mun nærri að nálægt 3.000 nemendur hafí sótt Hvanneyrarskóla þessa liðnu öld. - D.J. 70 ára afmæli Vestmaniiaeyjakaupstaðar: Saga Vestmanna- eyja endurútgefin í TILEFNI af 70 ára afinæli Vestmannaeyjakaupstaðar hefur Fjöl- sýn forlag endurútgefið Sögu Vestmannaeyja eftir Sigfús M. Jo- hnsen, rithöfund og fyrrverandi bæjarfógeta í Vestmannaeyjum. Saga Vestmannaeyja kom fyrst út árið 1946 en hefur verið ófáan- leg um margra ára skeið. Að sögn Þórs Sigfússonar, útgefanda, töldu ýmsir fræðimenn er bókin kom fyrst út að þar væri á ferð nýjung í ritun héraðssagna. Hafi það fyrst og fremst verið vegna ýtarlegrar haglýsingar, þjóðlífslýsinga og at- vinnusögu og annarra frásagna, sem beindust fremur að almennri sögu Eyjanna en persónusögu. Þór sagði að ein ástæða þess að forlag- ið hefði ráðizt í endurútgáfu sög- unnar væri sú að eftir hið mikla umrót, sem orðið hefði í eldgosinu Saga Vestmannaeyja er endur- útgefin í tveimur bindum, sem eru saman í öskju. á Heimaey, væri ritið merk heimild um horfínn heim, sem yngsta kyn- slóð Eyjamanna gæti kynnzt betur. Meðal annars væru í því margar myndir frá fyrri tíð, bæði af ýmsu fólki, sem sett hefði svip á mannlíf- ið, en einnig af staðháttum, til dæmis þeim hluta eyjarinnar, sem hefði farið undir hraun. í endurútgáfunni hefur verið bætt við íjölmörgutn myndum, þar af fjölda litmynda, sem ekki hafa birzt á prenti áður. Megintexti bók- arinnar var ljósmyndaður og prent- aður upp á nýtt með áorðnum leið- réttingum. Eyjasagan er í tveimur bindum og alls um 800 blaðsíður. Formála að ■ endurútgáfunni skrifar Haraldur Guðnason, fyrr- verandi skjala- og bókavörður í Eyjum. Nýjung í sólarferðum. Dagflug 5 sinn- um í viku til Costa del Sol. Stórborgar- stopp á útleið eða heimleið, í London eða Amsterdam. Saga hefur einkaumboð fyrir vinsæl- ustu gististaðina á Costa del Sol. LAUST Á NÆSTUNNI: FRÁ 22. JÚNf: Principito Sol 6 íbúðir Sunset Beach Club 4 íbúdir FERÐASKRIFSTOFAN / Suöurgötu 7 S.624040

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.