Morgunblaðið - 21.06.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.06.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1989 33 - VIÐGERÐARSTEYPA - ÞURRSTEYPA - PERLUSTEYPA - FLOTSTEYPA - SÉRSTEYPA Allar geróir af steypublöndum í pokum og fötum. SÍ steinprýði Stangarhyl 7, simi: 672777. Tónlistin ákærð Thord Steypa eftir Steinar Berg Isleifsson Fyrir nokkrum vikum hafði versl- unarstjóri í verslun Steina hf. í Austurstræti 22 samband við mig og spurði hvort ég hefði frétt af ákæru vegna tónlistarflutnings í versluninni. Upplýsingar sínar hafði hann frá blaðamanni Þjóðviijans sem hringt hafði til hans til þess að grafast fyrir um viðbrögð hans vegna ákæru þessarar, sem hvorki hann né ég vissi nokkuð um. Viku síðar birtist svo forsíðufrétt í Þjóð- viljanum þar sem skýrt var frá ákæru Sigurðar Baldurssonar á hendur Steinum hf. vegna tónlistar- flutnings verslunarinnar í Austur- stræti 22, sem varpað er út á Aust- urstræti. í þessari grein kom einnig fram að samband hafði verið haft við fulltrúa lögre^lunnar, sem ekki hafði borist ákæran og höfðu þar af leiðandi ekki mikið um málið að segja. ■ Ljóst er að Sigurði Baldurssyni hefur þótt vænlegt við málatilbún- ing sinn að nota aðferðir sem æ algengari verða hjá stjórnmála- mönnum, þ.e. að hefja málaundir- búninginn í fjölmiðlum áður en málsaðilar eða þeir sem um það áttu að fjalla vissu hvaðan á sig stóð veðrið. Til þess að krydda málið enn betur fyrir fjölmiðlana fylgdi það í fyrrnefndri grein Þjóð- viljans að Sigurður hefði heimildir fyrir því að áðurnefndur tónlistar- flutningur truflaði Forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, við störf hennar á skrifstofu sinni í Stjórnar- ráðinu. Með því að „kynda“ málið fyrst i fjölmiðlum og bendla nafn forseta Islands á ósmekklegan hátt við algerlega óstaðfesta sögusögn telur Sigurður væntanlega að hann hafi verið að renna traustum stoð- um undir málflutning sinn. Það skyldi þó ekki vera að Sigurður sé boðberi nýrra tíma í meðferð dóms- mála á íslandi. Tíma, þar sem ákæra, málsmeðferð og dómur fer allt fram á sama stað, í fjölmiðlum. Nú, þar sem málssókn er hafin í fjölmiðlum fannst mér rétt að fara nokkrum orðum um tónlistarflutn- ing þann sem hér er ákærður. Síðastliðinn 13-14 ár hafa verið staðsettir litlir bílahátalarar við inn- gang hússins að Austurstræti 22 þar sem er að finna hljómplötuversl- Steinar Berg ísleifsson „í Kvosinni á ekki að vera skuggi og þögn, heldur ljós og líf. Sig- urður, tónarnir ná þangað sem sólargeisl- arnir berast ekki, stígðu fram úr skugg- anum.“ un Steina hf. ásamt tískuvöruversl- ununum Garbó og Bógart. Á þess- um tíma hefur það nokkrum sinnum gerst að aðilar hafi látið truflast af ómi þeirrar tónlistar sem úr há- tölurunum berst, og fundið hjá sér þörf til að láta skrúfa niður í henni, með því að heija hnútukast í fjöl- miðlum. Það hefur meira að segja átt sér stað einu sinni áður að tón- listarflutningur þessi hefur verið kærður. En eins og trúlega allir Reykvíkingar vita, ómar þessi tón- list þarna enn alla daga þrátt fyrir tilraunir önugra manna við að þagga hana niður. Það má með sanni segja að eftir þann langa tíma sem tónlist hefur borist úr þessum veigalitlu hátölurum, hafi skapast hefð fyrir flutningi hennar og mörg- um myndi finnast eitthvað vanta í Kvosina ef hún hætti skyndilega að hljóma. Svo mikill hluti af mið- bæjarstemmningunni er hún orðin. Tónlistin sem þarna er flutt er af VEIÐIHJOL OG STANGIR Fást í nœstu sportvöruverslun. hægt að telja í sekúndum. Samt er það svo skrítið með suma, að þeir virðast gera í því að láta hluti fara í taugarnar á sér. Þar sem meginþorri Reykvíkinga hefur komið til útlanda er fólki vel kunnugt um að úr hátölurum versl- ana við verslunargötur hljómar alls staðar tónlist. Ástæðan er sú að verslunareigendur, viðskiptavinir þeirra og borgarbúar almennt telja að tónlistarflutningur af þessu tagi lífgi eilítið uppá lífið og tilveruna. Steinar hf. hafa nýverið stækkað verslun sína að Austurstræti 22 verulega og stigið skref í sóknarátt í því skyni að lífga uppá og bæta framboð verslana sem eru í Kvos- inni. En eins og allir vita hefur hægst verulega um slátt í þessu hjarta borgarinnar að undanförnu. Það sem miðbærinn þarf er að sjálf- sögðu fjölbreyttara og betra úrval verslana og veitingastaða til þess að efla streymi fólks til þessa stað- ar og lífið í miðbænum. Greinilegt er á málatilbúningi Sigurðar að honum gengur annað til. I Kvosinni á ekki að vera skuggi og þögn, heldur ljós og líf. Sigurður, tónarn- ir ná þangað sem sólargeislarnir berast ekki, stígðu fram úr skugg- anum. Höfundur erforsljórí Steina hf. mjög ijölbreyttum toga og endur- speglar það úrval sem verslunin hefur uppá að bjóða. Auðvitað er fyrirferðamest sú tónlist sem mestra vinsælda nýtur á hveijum tíma, bæði íslensk og erlend -en auk þess hljóma líka hinar ýmsu gerðir tónlistar s.s. jass, kántrý, diskó, rokk, klassík o.s.frv. Á sumrin, þeg- ar útimarkaðurinn er starfandi, eru eilífar beiðnir um að hækka tónlist- ina og þá vill fólk heyra eitthvað sem lífgar uppá stemmninguna í Austurstræti. Áuk þessa er reglu- lega flutt þjóðleg íslensk tónlist, sem er í sérstöku uppáhaldi hjá erlendum ferðamönnum_ sem arka Austurstræti á sumrin. í desember óma svo auðvitað jólalögin og skapa jólastemmningu í Kvosinni. Omögu- legt er að deila um smekk fólks. Sumum finnst vafalaust allt, sem úr þessum litlu hátölurum heyrist, vera leiðinlegt og óttalegur hávaði, þó fæstir þeirra láti það trufla sig á þeim stutta tíma sem þeir eru innan þess sviðs sem tónlistin nær til. En sá tími sem það tekur að ganga í gegnum það svæði sem tónlistin heyrist er auðveldlega „ VIÐ KLÁRUÐUM KiXIÐ, MAMMA" Svona skilaboðum geta mæður á öllum aldri búist við þegar þær kaupa Hobnobs súkkulaðikex frá McVitie's. Ástæðan er ofur einföld; Hobnobs er svo einstaklega bragðgott. Þar að auki er uppistaðan í kexinu valsaðir hafrar og heilhveiti og ofaná er gæðasúkku- laði, ýmist ljóst eða dökkt. Hobnobs súkkulaðikex er svo gott að það gæti verið heimabakað! Dreifing: Bcrgdal hf ■ Skútuvogi 12 ■ 104 Rcykjavík ■ Sími 91-680888

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.