Morgunblaðið - 21.06.1989, Side 14

Morgunblaðið - 21.06.1989, Side 14
14 !89 m 31 I£ • r.íi !/. QIGAjaMJJ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JUNI 1989 AF INNLENDUM VETTVANGI GUÐMUNDUR SV. HERMANNSSON Andstaða gegn hvalveiðum minnkar í hvalveiðiráðinu DINGAR fengu mun mildari umfjöllun á 41. ársfiindi Alþjóðahvalveiðir- áðsins, sem lauk í San Diego um helgina, en á síðustu fundum. Þótt ályktun sú, sem samþykkt var á fúndinum um íslensku vísindaveiðarn- ar, hafi sennilega verið oftúlkuð hér á landi, viðurkenna umhverfis- verndarmenn að ársfúndurinn hafi brugðist vonum þeirra um að hörð afstaða yrði tekin gegn hvalveiðum í vísindaskyni. Alyktun ársfundar ráðsins um vísindaáætlun íslendinga var samþykkt án atkvæðagreiðslu og hún var raunar niðurstaða óform- legra samningaviðræðna milli íslensku sendinefndarinnar og þeirra sem lögðu tiliöguna fram. Útkomuna gátu flestir túlkað sér í hag á ein- hvern hátt. Niðurstaða ályktunarinnar er svo- hljóðandi á frummálinu: Now there- fore the Commission: Invites the Government oflceland to reconsider the proposed take of fin whales in 1989 under Special Permits... (Því óskar ráðið eftir að ríkisstjóm ís- lands endurskoði fyrirhugaða veiði á langreyðum [fyrirhugaðan afla langreyða?] sem þarf sérstakar heimildir...) Þetta orðalag er hægt að skilja á ýmsan veg og er greinilega haft þannig viljandi; auðvelt væri að taka afdráttarlausar til orða á hvom veg- inn sem er. Ályktunin tulkuð átvennanhátt í frétt frá Reuters-fréttastofunni, eftir að ályktunin kom fram, var haft eftir Guðmundi Eiríkssyni þjóð- réttarfræðingi, sem stýrði íslensku sendinefndinni í San _ Diego eftir brottför Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráðherra, að í þessu gætu falist tilmæli um fækkun þeirra hvala sem fyrirhugað væri að veiða. Utanríkisráðuneytið sendi álykt- unina til íslenskra fjölmiðla_ sama kvöld og hún var samþykkt. í með- fylgjandi skýringum sagði orðrétt: „Þá er mælst til þess við íslendinga, að þeir endurskoði íjölda veiddra langreyða í sumar, en áætlunin ger- ir ráð fyrir töku 80 dýra.“ Þannig túlkuðu íslenskir fjöl- miðlar einnig ályktunina. Dagblaðið Tíminn gekk raunar svo langt, að segja á forsíðu, að íslendingum hefði verið selt sjálfdæmi um veiðar á lan- greyð. Ályktunin var síðan samþykkt á fundi hvalveiðiráðSins aðfaranótt 15. júní, og íslenska sendinefndin lýsti því þá þegar yfir, að veiddar yrðu 68 langreyðar í stað 80. Bandaríkjamenn vom meðal flutningsmanna ályktunarinnar. Bill Evans, formaður bandarísku sendi- nefndarinnar, sagðist fagna þessari ákvörðun íslendinga, og gaf þannig til kynna að túlkun Bandaríkja- manna á orðinu endurskoðun færi saman við túlkun íslendinga. En fulltrúar Breta og Hollend- inga, sem einnig stóðu að ályktun- inni, lýstu þvi yfir að þeir væru ekki sammála Bandaríkjamönnum. í þeirra huga þýddi ályktunin, að ósk- að væri eftir að íslendingar féllu alfarið frá veiðunum í sumar. Á þennan hátt vilja umhverfís- vemdarsinnar túlka ályktunina. Þeir hafa einnig mótmælt því, í samtölum við Morgunblaðið, að í ályktuninni felist viðurkenning á vísindaveiðum íslendinga, eins og íslensk stjómvöld hafa haldið fram. Ályktanir um vísinda- áætlun mildast Ályktun um vísindaveiðar íslend- inga var fyrst lögð fram á ársfundi ráðsins árið 1987. Bandaríkjamenn keyrðu þá í gegn ályktun um að hvalveiðiráðið ætti að meta vísindaá- ætlanir einstakra landa á grundvelli umsagnar vísindanefndar ráðsins. Síðan var samþykkt ályktun, með miklum meirihluta atkvæða, þar sem sagði, að vísindaveiðar íslendinga uppfyiltu ekki að fullu ýmis skil- yrði, sem ráðið og vísindanefndin hefðu sett um slíkar veiðar. í ljósi þess var íslendingum ráðlagt að aft- urkalla sérstök leyfi til vísindaveiða og veita þau ekki meðan ýmsir óvissuþættir væru ekki að fullu skýrðir að mati vísindanefndarinnar. Á fundi hvalveiðiráðsins 1988 var samþykkt önnur ályktun, þar sem ítrekað var að íslenska vísindaáætl- unin uppfyllti ekki enn skilyrði ráðs- ins um vísindarannsóknir. Ekki var þó beinlínis sagt að ísland ætti að hætta vísindaveiðunum. íslenska sendinefndin á fundinum túlkaði það sem skref í rétta átt, og féllst á að ályktunin yrði afgreidd án atkvæða- greiðslu. í ályktuninni nú er rifjað upp, að á fundum sínum 1987 og 1988 hefði ráðið haft þá skoðun, að íslenska vísindaáætlunin uppfyllti ekki sett skilyrði. Og síðan segir: ... ráðið viður- kennir að ísland hefur framkvæmt rannsóknaráætlun sína á nákvæman hátt. Þetta er auðvitað ekki viðurkenn- ing á að ráðið telji öllum skilyrðum vera fullnægt. En í ljósi fyrri álykt- ana er þó ljóst, að þarna er gengið verulega til móts við íslendinga. Breytt afstaða Bandaríkjamanna Breytingin á afstöðu Alþjóðahval- veiðiráðsins, á aðeins tveimur árum, kemur heim og saman við afstöðu Bandaríkjamanna, sem ráða raunar ferðinni innan hvalveiðiráðsins. Þeir voru í fararbroddi gegn hvalveiðum íslendinga fyrir tveimur árum; um- hverfisvemdarsinnar áttu sterk ítök í bandaríska viðskiptaráðuneytinu sem sér um sjávarútvegsmál. Álykt- anirnar, sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins árið 1987, miðuðu að því að Bandaríkjastjórn gæti beitt íslendinga viðskiptaþvingunum samkvæmt bandarískum lögum ef þeir héldu áfram að veiða hvali í vísindaskyni. Bandarísk lög um sjávarútveg gera ráð fyrir því, að grafi önnur ríki undan friðunarmarkmiðum al- þjóðlegra samtaka, geti Bandaríkja- stjórn bæði sett innflutningsbann á sjávarafurðir viðkomandi ríkja og afnumið veiðiheimildir innan banda- rískrar lögsögu. Eftir mikið japl og jaml og fuður og hótanir á báða bóga, sem óþarfi er að rifja upp hér, hefur afstaða Bandaríkjamanna smátt og smátt snúist á sveif með íslendingum, og yfirvofandi viðskiptaþvingunum var afstýrt. Þetta vakti mikla reiði umhverfis- vemdarsinna og á síðasta ári höfð- uðu þeir mál á hendur Bandaríkja- stjóm fyrir að hafa ekki beitt íslend- inga viðskiptaþvingunum þrátt fyrir hvalveiðar sl. sumar. Bandaríkja- stjóm hafði þá lýst því yfir, að vísindaáætlun íslendinga, þar með taldar veiðarnar sl. sumar, bryti ekki í bága við friðunarmarkmið Alþjóðahvalveiðiráðsins. Bandaríkjamönnum var því mikið í mun, ekki síður en íslendingum, að ársfundur ráðsins nú tæki ekki harða afstöðu gegn vísindaveiðum íslendinga. Raunar vildu þeir helst að engin ályktunartillaga yrði flutt um vísindaveiðarnar. Þetta skýrir túlkun Bandaríkja- manna á ályktunínni. Bill Evans bætti því raunar við, að Bandaríkja- stjóm hlakkaði til að sjá niðurstöður íslensku rannsóknanna, sem myndu styrkja það vemdarstarf sem unnið væri innan Alþjóðahvalveiðiráðsins. Evans er forstöðumaður Sjávarút- vegs- og veðurfræðistofnunar Bandaríkjanna, NOAA, og mun hafa sýnt íslenskum stjórnvöldum mikinn skilning í hvalveiðimálinu. Hann tók við þessu embætti snemma á síðasta ári, en er nú að láta af því aftur, að sögn vegna óánægju með laun. Hvalveiðiráðið brást umhverfisverndarsinnum En það eru ekki aðeins íslending- HRINGFERÐ ISLENDINGA UM ÍSLAND 22. JÚLÍ Skoðaðu ísland í skemmtilegri tíu daga hringferð. Brottför frá Reykjavík 22. júlí. Stansað er á fallegum útsýnisstöðum, þekkt náttúrufyrirbæri og sögustaðir skoðaðir. Ferðin er þægileg og sérlega fróðleg. Þessi ferð kostar 59.500 kr. og innifalinn er morgunverður, kvöldverður og gisting í tveggja manna herbergi á Reykjum í Hrútafirði, Siglufirði, Akureyri, Laugum, Eiðum, Hornafirði, Kirkjubæjar- klaustri og Skógum. Leiðsögumaður er: Guðmundur Guðbrandsson. Pantaðu sæti strax í dag. Visa og Euro greiðslukjör. Ellilífeyrisþegar fá 10% afslátt. % FERDASKRIFSTOFA Skógarhlíð 18 101 Reykjavík sími 91-25855 ISLANDS Nííján sæmdir fiílkaorðunni FORSETI íslands sæmdi að til- lögn orðunefndar eftirtalda ís- lendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á þjóðhátíð- ardaginn 17. júní: Áma Helgason, fv. símstöðvar- stjóra, Stykkishólmi, riddarakrossi fyrir störf að félags- og atvinnu- málum, Árna Jónasson, erindreka, Reykjavík riddarakrossi fyrir störf í þágú landbúnaðarins, Árna Sig- uijónsson, fulltrúa, Kópavogi, riddarakrossi fyrir löggæsiustörf, Áslaugu Friðriksdóttur fv. skóla- stjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að skólamálum, Björg- vin Vilmundarson, bankastjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að bankamálum, Brand Stef- ánsson, fv. vegaverkstjóra, Vík, riddarakrossi fyrir störf að sam- göngumálum, Daníel Ágústínus- son, fv. bæjarstjóra, Akranesi, riddarakrossi fyrir störf í þágu ungmennafélagshreyfingarinnar, Eðvarð Sigurgeirsson, ljósmynd- ara, Akureyri, riddarakrossi fyrir forgöngu í Ijósmyndun og kvik- myndagerð, Friójón Þórðarson, alþingismann, Reykjavík, riddara- krossi fyrir störf í opinbera þágu, Gísla Pálsson, bónda, Hofi í Vatns- dal, Austur-Húnavatnssýslu ridd- arakrossi fyrir störf að félags- og framfaramálum, Gísla Jónsson, menntaskólakennara, Akureyri, riddarakrossi fyrir kennslu- og fræðistörf, Guðmund Jónsson, for- seta Hæstaréttar, Reykjavík, stór- riddarakrossi fyrir störf í opinbera þágu, Guðnýju Guðmundsdóttur, konsertmeistara, Kópavogi, ridd- arakrossi fyrir störf að tónlistar- málum. Dr. Guðrúnu P. Helgadóttur, fv. skólastjóra, Reykjavík, stjörnu stórriddara fyrir skóla- og fræði- störf, Gunnar Flóvenz, fram- kvæmdastjóra, Kópavogi, stór- riddarakrossi fyrir störf að mark- aðsmálum sjávarútvegsins, Her- mann Pálsson, fv. prófessor, Edin- borg, riddarakrossi fyrir fræði- störf, Sigurð Ólafsson, lyfsala, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að heilbrigðismálum, Sigur- jón Óskarsson, skipstjóra, Vest- mannaeyjum, riddarakrossi fyrir björgun mannslífa og skipstjórnar- störf og Þórð Kristleifsson, fyrrum menntaskólakennara, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að fræðslu- og söngmálum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.