Morgunblaðið - 21.06.1989, Side 26
i;t. is
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JUNI 1989
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Á myndinni eru frá vinstri Erhard Johansen stýrimaður, Oddgeir
ísaksson framkvæmdas1jóri; Gunnar Sigurðsson kokkur, Heiða Björk
með pabba sínum Vilhjálmi Isakssyni og Gísli Jóhannsson skipsljóri.
Sjöfii tíl heimahaftiar
NÝ SJÖFN kom til heimahafhar, Grenivíkur, á föstudag og af því
tilefhi var gestum og gangandi boðið að skoða skipið og þiggja
veitingar og var mikið fjölmenni um borð er blaðamaður Morgun-
blaðsins náði sambandi við Erhard Johansen stýrimann.
Nýstofnað hlutafélag heima-
manna, Hlaðir hf., festi fyrir
skömmu kaup á Akurey frá Horna-
fírði, sem nú ber nafnið Sjöfn ÞH
142. Níu verða í áhöfn skipsins,
sem er 201 tonn af stærð. Gren-
víkingar höfðu ærna ástæðu til að
gleðjast við komu Sjafnarinnar í
Stigamót í golfi
Fyrsta stigamót unglinga í golfi
verður að Jaðri í kvöld, miðviku-
dagskvöld. Mótin verða alla mið-
vikudaga í sumar og verður hið
síðasta 27. september.
Leiknar verða 18 holur. Þátt-
tökurétt hafa allir unglingar í Golf-
klúbbi Akureyrar, sem hafa stað-
festa forgjöf og eru 21 árs eða
yngri. Veitt verða verðlaun fyrir
besta skor með og án forgjafar og
ÍÉiÍ^ Stýrimannadeild
WJP Dalvíkurskóla
Kennara vantar í siglinga- og sjómennskugreinum.
Umsóknarfrestur til 27. júní.
Upplýsingar gefnar í símum 96-61380, 96-61162 og
96-61355.
Skólanefnd Dalvíkur.
DALVIKURBKDLI
Dalvíkurskóli
Yfirkennari
Staða yfirkennara við Dalvíkurskóla er laus til
umsóknar. Umsóknarfrestur til 4. júlí 1989.
Upplýsingar gefnar í símum 96-61380, 96-61162
og 96-61355.
Skólanefnd Dalvíkur.
Kuml fannst við Másvatn
KUML fannst við Másvatn á
Mývatnsheiði í hreinsunarátaki
ungmennafélaganna fyrir
skömmu. Á íostudag fóru þeir
Guðmundur Olafsson fornleifa-
fræðingur á Þjóðminjasafhi og
Hörður Geirsson starfsmaður
Minjasafiisins á Akureyri á vett-
vang og grófii kumlið upp.
Hörður sagði í samtali við Morg-
unblaðið að röð tilviljana hefði ráð-
ið því að kumlið fannst, en bíll
hefði farið út af veginum á þessum
stað og er vörubifreið var að draga
bílinn upp rótaðist jarðvegurinn
upp. Hauskúpa fannst síðan í hjól-
förum vörubílsins.
Sagði Hörður að greinilegt hefði
verið á öllum ummerkjum að átt
hefði verið við kumlið, til dæmis
hefði ekkert haugfé fundist og
ýmislegt annað benti til að ein-
hveijir hefðu komið þama nærri.
Sennilegast er talið að þama
hafi verið grafinn eldri karlmaður,
en nákvæm greining á eftir að leiða
það í ljós. Sjaldgæft er að kuml
fínnist hér á landi, eða að jafnaði
eitt á ári.
Morgunblaðið/Hörður Geirsson
Hér má sjá nokkur beinanna sem fundust við Másvatn á Mývatns-
heiði í hreinsunarátaki ungmennafélaganna fyrir skömmu.
Bæjarstjórn Akureyrar:
gær, því bátar eru allir orðnir
kvótalausir í plássinu. Sjöfn á eftir
um 150 tonn af þorski, 73 af ýsu,
73 af ufsa og um 10 tonn af karfa
auk smávegis af grálúðu. Erhard
sagði að farið yrði á fískitroll eftir
helgina og ættu þá hjólin í frysti-
húsinu að fara að snúast að nýju.
Orkufrekur iðnaður
aftur til umfjöllunar
reiknuð verða stig fyrir 10 efstu
sætin með og án forgjafar hvern
miðvikudag.
Að öllum mótunum loknum verða
stigahæstu unglingunum veitt veg-
leg verðlaun fyrir í hvomm flokki.
Þátttökugjald er kr. 150 í hvert
skipti og renna þeir peningar
óskiptir til unglingastarfs G.A.
Umsjón með mótunum hefur
David Barnwell og gefur hann nán-
ari upplýsingar.
„BÆJARSTJÓRN samþykkir að beina þeim tilmælum til atvinnumála-
nefndar að hún taki höndum saman við Héraðsnefnd Eyjafjarðar um
athugun á þeim kostum sem styrkt geta atvinnulíf við EyjaQörð, þ. á m.
á orkufrekum iðnaði. Ekki síst verði skoðaður sá möguleiki hvort
sveitarfélög við EyjaQörð eigi að móta sameiginlega stefiiu um upp-
byggingu atvinnulífs og þjónustu á svæðinu." Þannig hljóðar tillaga
fúlltrúa Alþýðubandalagsins í bæjarstjórn Akureyrar sem lögð var
fram á fúndi hennar í gær, en stóriðja á svæðinu var mikið til umræðu
á fúndi bæjarstjórnar. Samþykkt var að vísa tillögunni til atvinnumála-
nefndar til umíjöllunar.
Tilefni umræðna um stóriðju við
Eyjaíjörð var að meirihluti bæjar-
ráðs fól bæjarstjóra í samráði við
fulltrúa Héraðsnefndar Eyjafjarðar
og annarra sveitarfélaga á svæðinu
að taka upp viðræður við iðnaðarráð-
herra um uppbyggingu orkufreks
iðnaðar við Eyjafjörð. Sigfús Jóns-
son bæjarstjóri upplýsti á fundinum
að iðnaðarráðherra væri væntanleg-
ur til frekari viðræðna um málið
seinnipart ágústmánaðar eða í byij-
unseptember.
í greinargerð með tillögunni segir
að Alþýðubandalagsmenn séu ekki
andvígir orkufrekum iðnaði í Eyja-
firði, sem einum þætti í þeirri við-
leitni að treysta atvinnulíf á svæðinu
og auka þar með á nauðsynlega fjöl-
breytni ef fullnægt er þeim skilyrð-
um sem flokkurinn setur sem skil-
yrði fyrir stuðningi við slíkar fram-
kvæmdir, um mengunarvarnir, for-
ræði Islendinga og raunverulega
þjóðhagslega hagkvæmni.
Björn Jósep Arnviðarson (D) sagði
ánægjulegt að þessi umræða hefði
farið af stað og fagnaði hann því
að Alþýðubandalagsmenn skyldu
ekki vera afdráttarlausir andstæð-
ingar hugmyndarinnar um orku-
frekan iðnað. Hann sagði að í raun
væri eina ágreiningsefnið það er
varðaði eignaraðildina og hið sama
sagði Freyr Ofeigsson (A). Bæjar-
fulltrúar sem þátt tóku í umræðunni
töldu rétt að ræða þetta mál æsings*
laust og af skynsemi og Heimir Ingi-
marsson (G) varaði við samskonar
múgseíjun og orðið hafi fyrir nokkr-
um árum er mikið var rætt um álver
í Eyjafirði, en sú múgsefjun hefði
degið máttinn úr mörgum atvinnu-
rekandanum.
Nýtt fyrirtæki viðmalbikun
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Stofiiað hefiir verið fyrirtækið Bæjarverk hf, sem
hefiir fest kaup á malbikunarvél, valtara, hitapotti
til viðgerða á malbiki og vörubifreið. Reiknað er
með að fyrirtækið veiti um fimm manns vinnu og
er ætlunin að taka að sér verk víðsvegar um Norður-
lúndv.M_mun Akureyrarbær einnjg ætla að taka
malbikunarvélina á leigu til gangstéttagerða og
viðgerða á malbiki. Fjárfesting í vélum og tækjum
nemur um sjö milljónum króna. Á myndinni eru
eigendur Bæjarverks hf., frá vinstri: Kristinn Ein-
arsson, Ásdís Jóhannsdóttir, Vignir Jónasson og Jón
Gestsson við vélarnar sem þau eru nýbúin að kaupa.