Morgunblaðið - 21.06.1989, Side 29
MORGÚNBLAÐIÐ MIDVIKUDAGUR 21. ÍÚNíi 198$
29
Buslugangiir og boðaföll
kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Bíóborgin
Hið bláa volduga — „The Big
Blue“
Leikstjórn og handrit Luc
Besson. Tónlist Eric Serra.
Aðalleikendur Rosanna Ar-
quette, Jean-Marc Barr, Jean
Reno, Paut Shenar. Frönsk.
20th Century Fox 1988.
Besson vakti talsverða athygli
fyrir fáeinum árum með mynd-
inni Subway, litlum stemmning-
skrimma þar sem hann nýtti
skemmtilega neðanjarðargöng
Parísarborgar sem umgjörð
myndarinnar.
Efnið var hinsvegar innantómt
og rann að lokum útí myrkur
undirheimanna. En það var stíll
á handbragðinu.
Honum bregður fyrir í Hinu
blá volduga og þá eingöngu í vel
unnum og listilegum neðansjáv-
armyndatökum sem gerast þó
endurtekningargjarnar er til
lengdar lætur.
Söguþráðurinn er harla mjó-
sleginn. Myndin hefst á grískri
smáeyju þar sem þeir Barr og
Reno metast um það í bernsku
hvor geti kafað lengur í bláma
töfrandi undirdjúpanna.
Árin líða og Reno er orðinn
heimsmeistari í köfun er hann
minnist síns gamla keppinautar,
hefur uppá Barr og gengur
myndin síðan mestmegnis útá
köfunarkeppni þeirra á milli.
Þetta dugar ekki Besson, sem
þarf að flækja inní söguna ámát-
legu ástarævintýri þar sem
tryggingarsölukonan Arquette
kemur einsog fjandinn úr sauð-
arleggnum.
Er hlutverk hennar allt svo
illa skrifað og fáránlegt, næstum
kvenfjandsamlegt, að það
stórskaðar myndina.
Aukinheldur er leikur hennar
lygilega slakur, hún minnir helst
á móðursjúka fermingarstelpu
þar sem hún eltist við marbendil-
inn sinn sem virðist mun ást-
fangnari af Reno og höfrungun-
um.
Samtölin eru svo hjákátlega
illa skrifuð að maður þarf að
hlusta á þau til að trúa þeim.
Eitthvað hlýtur að hafa glutrast
niður í ensku þýðingunni.
Tengsl Barrs við undirdjúpin
og íbúa þeirra á' að vera hin
dulræna undirstaða Blámans en
í meðförum Bessons lekur öll
dulúð eitthvað útí ballarhaf og
hjartað vantar.
En höfrungarnir, sem eru í
hæpnum félagsskap, leika listir
sínar og slá öll mannanna verk
gjörsamlega út í þessari furðu-
mynd.
RADAUGÍ YSINGAR
TILKYNNINGAR
Slysavarnakorrur
í Reykjavík
Nokkur sæti laus í sumarferðina 24. júní nk.
Upplýsingar í símum 24240 frá kl. 9-18 og
31241 eftir kl. 19, Eygló.
Til lesenda Húsfreyjunnar
Meinleg prentvilla varð í nýútkomnu 2. tbl.
Húsfreyjunnar. í Heilsuspjalli á bls. 39 stend-
ur: .þurfa meira D-vítamín en aðrir" en á
að vera E-vítamín. Vonum við að þetta komi
ekki að sök og biðjumst afsökunar á þessum
mistökum.
Ritstjóri.
KENNSLA
Háskólinn á Akureyri
Umsóknarfrestur um rekstrardeild framleng-
ist til 26. júní 1989.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veitt-
ar á skrifstofu skólans við Þórunr.arstræti,
sími 96-27855.
Háskólinn á Akureyri
Sjávarútvegsdeild
Ákveðið hefur verið að sjávarútvegsdeild
taki til starfa í janúar 1990.
Kennsla í sjávarútvegsfræði hefst frá. sama
tíma.
Sjávarútvegsfræði er þverfaglegt nám sem
tekur 4 ár. Námið skiptist í 5 meginhluta:
Líffræði/fiskifræði. Efnafræði/matvælafræði.
Rekstrarhagfræði/fiskihagfræði. Tæknigrein-
ar. Félags- og skipulagsmál sjávarútvegs.
Almenn inntökuskilyrði eru stúdentspróf og
minnst eins árs starfsreynsla í sjávarútvegi.
Heimilt er að veita inngöngu þeim, er langa
starfsreynslu hafa í sjávarútvegi ef annar
undirbúningur telst fullnægjandi.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veitt-
ar á skrifstofu skólans við Þórunnarstræti,
sími 96-27855.
Umsóknarfrestur er til 14. júlí.
Aðalfundarboð
Vélbátaábyrgðarfélagið
Grótta
boðar til aðalfundar fyrir árið 1988 í húsi
Slysavarnafélagsins, Grandagarði, föstudag-
inn 30. júní 1989 og hefst fundurinn kl 17.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Fundarboð
Almennur fundur LFH verður haldinn föstu-
daginn 30. júní kl. 15.00 á Hótel Esju 2. hæð.
Málefni: Staða fiskeldis.
Hagskælingar módel 1958
Við ætlum að hittast föstudagskvöldið 23.
júní. .
Þeir, sem hafa áhuga, hafi samband við
Hrefnu í síma 12853.
Sumarferð Húnvetninga-
félagsins í Reykjavík
Hin árlega sumarferð félagsins verður farin
í Þórsmörk dagana 15. og 16. júlí.
Grill og gaman á laugardagskvöldinu.
Tilkynnið þátttöku fyrir 30. júní í símum
41150, 681941 og 671673.
Fríkirkjan, Hafnarfirði
Aðalsafnaðarfundur nk. fimmtudagskvöld
22. júní kl. 20.30. Fundurinn verður í safnað-
arheimili kirkjunnar, Austurgötu 24.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Fjallað um væntanlegar breytingar á safnað-
arheimilinu.
Safnaðarstjórn.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Sjálfstæðisfólk á
Sauðárkróki
Tökum landið ífóstur.
FUS Víkingur og sjálfstæðiskvennafélag Sauðárkróks standa fyrir
gróðursetningu fyrir alla fjölskylduna laugardaginn 25. júni. Gróður-
sett verður i reit sjálfstaeðiskvenna í Grænuklauf. Mæting á sama
stað kl. 16.00.
Tökum landið í fóstur og fjölmennum.
Stjórnirnar.
Eyfirðingar
Fundur verður með
alþingismönnunum
Agli Jónssyni og
Halldóri Blöndal i
Steinhólaskála
fimmtudaginn 22.
júní kl. 22.
PwS. 1
T , £
Sjálfstæöisfélagið, Einar þveræingur.
Akureyri - Vörður FUS
Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á
Akureyri, heldur opinn stjórnarfund i Kaup-
angi við Mýrarveg fimmtudaginn 22. juni
kl. 20.30.
Efni fundarins verður gróðursetningarferð
í Ólafsfjörð 1. júlí nk. og starfið í sumar.
Allt ungt sjálfstæðisfólk velkomið.
Gestur fundarins verður Daviö Stefánsson.
Raufarhafnarbúar
Almennur fundur um stjórnmálaviðhorfið og stöðu landsbyggðar
verður í félagsheimilinu Hnitbjörgum miðvikudaginn 21. júni kl. 20.30.
Ræöumenn verða alþingismennirnir Þorsteinn Pálsson og Halldór
Blöndal og menntakólakennarinn Tómas Ingi Olrich.
Sjálfstæðisfélag Raufarhafnar.
smáauglýsingar
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Sumarferð Húsmæðra-
félags Reykjavíkur
verður farin sunnudaginn 25.
júni. Allar nánari upplýsingar og
farpantanir i dag og á morgun
hjá Sigriöi, sími 14617 og Berg-
rósu í sima 39828.
Stjórnin.
Fíladelfía
Almennur bibliulestur verður i
kvöld kl. 20.30. Efni: Grundvall-
aratriði trúarlífsins. Garðar
Ragnarsson. Allir hjartanlega
velkomnir.
M Útivist
M iðvikudagur 21. júní kl. 20:
Sólstöðuferð í Viðey.
Leiðsögumaður: Lýður Björns-
son, sagnfræðingur. Kynnist úti-
vistarparadis Reykvikinga og
fræðist um merka sögu eyjunn-
ar. Verð 400,- kr. fritt f. börn
yngri en 12 ára með foreldrum
sínum. Brottför frá Sundahöfn.
Föstudagur 23. júní kl. 20:
Jónsmessunæturganga Útivist-
ar 1989. Langistígur - Þingvellir.
Létt og skemmtileg gönguleið.
Landnámsganga nr. 14. Brottför
frá BSÍ, bensinsölu. Fjölmennið.
Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDU6ÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Kvöldferðir
Ferðafélagsins:
Miðvikudaginn 21. júní kl. 20.00.
ESJA - sólstöðuferð.
Gengið frá Esjubergi á Kerhóla-
kamb (856 m). Fólk á eigin bílum
velkomið i ferðina.
Verð kr. 600,-.
Föstudaginn 23. júní kl. 20.00.
Jónsmessunæturganga, geng-
ið um Svínaskarð.
Um Svinaskarð lá fyrrum alfara-
leið milli Mosfellsbæjar og Kjósar.
Verð kr. 800,-.
Brottförfrá Umferðarmiöstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bfl.
Fritt fyrir börn í fylgd f ullorðinna.
Ferðafélag islands.
iyjj útjvist
Helgarferðir Útivistar
23.-25. júní:
1. Jónsmessuferð t Núpsstaðar-
skóga. Svæði sambærilegt við
okkar þekktustu ferðamanna-
staði. Tjöld. Brottför kl. Í8.00.
2. Jónsmessuferð í Þórsmörk.
Það verður sannköiluð Jóns-
messustemmning í Mörkinni.
Gist i Útivistarskálunum Básum.
Brottför kl. 20.00.
Sumarleyfi i Básum, Þórsmörk.
Fjöldi daga að eigin vali. Ódýrt
sumarleyfi í fallegu umhverfi og
við bestu aðstæður til gistingar
í óbyggðum. Dvöl milli ferða.
Brottför föstudagskvöld, sunnu-
dagsmorgna og miðvikudaga frá
28. júní.
Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni
1, simar 14606 og 23732.
Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.