Morgunblaðið - 21.06.1989, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIDVIKÍJDÁGUR 21. JÚNÍ-1989
35
Hjálmar S,
Grindavík
Fæddur 2. mars 1919
Dáinn 30. apríl 1989
Minn kæri félagi og vinur, Hjálm-
ar Thomsen, lést á heimli sínu í
Grindavík að morgni þess 30. apríl
sl., sjötugur að aldri. Þótt Hjálmar
hafi ekki gengið heill til skógar
undanfarið, bar andlát hans engu
að síður brátt og óvænt að. Þetta
varð til þess að sá er þessar fátæk-
legu línur ritar átti þess því miður
ekki kost að fylgja Hjálmari sein-
asta spölinn.
Hjálmar Sigurður Thomsen
fæddist þann 2. mars 1919 í Sumba
á Suðurey í Færeyjum. Hann var
einn níu barna þeirra Elsabetar
Sofiu og Andrasar Thomsen, en
hann var aflasæll skipstjóri á sinni
tíð. Komust átta þeirra til fullorð-
irisára, en fjögur þeirra eru enn á
lífi. í Sumba, sem er syðst byggð
í Færeyjum, ólst Hjálmar upp ásamt
systkinum sínum. Þar er hin mesta
náttúrufegurð, landslag sérkenni-
legt, geysifagurt, í senn seiðþrungið
og kyngimagnað. í norðvestri
gnæfir Beinisvörður, ógnþrungið,
lóðrétt, um 500 metra hátt strand-
berg, ægifagurt og tignarlegt, í
norðri dæmigerð færeysk fjallasýn,
fjöllin grasi gróin í topp, í austri
Ákraberg, en Atlantshafíð í allri
sinni ógn og tign svo langt sem
auga eygir. Þarna mætir mann-
skepnan náttúruöflunum í allri sinni
fjölbreytni og veldi í harðri, oft á
tíðum mannskæðri lífsbaráttu, sjó-
sókn ekki ósjaldan við uggvænlegar
aðstæður, þar sem við var að eiga
sjálft Norður-Atlantshafið, land-
búnaður við þrönga landkosti, þótt
allgóðir séu, auk eggja- og fugla-
töku í björgunum. Þetta allt saman
hlýtur að marka djúpt persónuleika
þeirra einstaklinga er vaxa úr grasi
við slíkar aðstæður, herða þá og
stæla.
Hjálmari hefur verið í blóð borið
það lífsmynstur sem slíkar aðstæð-
ur skapa. Bjargsig, eggjataka,
grindadráp, hörð sjósókn við oft á
tíðum afar erfíð skilyrði, takmörkuð
hafnar- og lendingarskilyrði í
Sumba, harður straumur milli eyj-
anna, ásamt viðsjárverðum veðrum
og úfnum sjó Norður-Atlantshafs-
ins, með tilheyrandi fórnum, hafa
verið hið daglega brauð í lífí hans
í uppvextinum. Snemma beygist
krókurinn og fjórtán ára gamall var
Hjálmar farinn að stunda sjósókn
á færeyskum kútterum, þar sem
sótt var um langan veg á litlum,
illa útbúnum skipum, með segl og
e.t.v. kraftlitla hjálparvél, alla leið
til íslands og jafnvel á Grænlands-
mið. Á því leikur ekki vafi að þetta
hlýtur að hafa reynt verulega á
þolrif ungra manna í þá daga.
Þarna kynntist Hjálmar fyrst Is-
landi og íslendingum því færeyskir
skútumenn höfðu náin og vinsam-
leg samskipti við íslendinga vítt og
breitt um landið, einkum þó í fjörð-
um og á útnesjum á Norður- og
Austurlandi. Þetta stundaði Hjálm-
ar af kappi fram yfir tvítugt, en
upp úr því settist hann á skólabekk
Thomsen,
- Minning
í Þórshöfn og lauk skipstjóraprófi
þaðan 1943 með piýðilegum vitnis-
burði.
Á þessum árum var síðari heims-
styijöldin í algleymingi og fóru
Færeyingar síst varhluta af þeim
ógnum og hörmungum er henni
fylgdu, misstu t.d. þriðjung fisk-
veiðiflotans og fjölmörg mannslíf.
Slíkar búsifjar, ásamt þeim fjörkipp
í atvinnulífi íslendinga, sem hem-
mámsárin ollu, hafa vafalaust orðið
til þess að Hjálmar, reyndar ásamt
íjölmörgum öðrum ungum Færey-
ingum, hélt til Islands þetta sama
ár. Hóf hann störf við hitaveitu-
framkvæmdir í Reykjavík, en réð
sig fljótlega á norskan flutninga-
bát, er flutti ýmis hergögn, vopn,
vistir og hermenn um strendur ís-
lands í þjónustu norska hersins.
Þetta stundaði Hjálmar til stríðs-
loka og hefur kunnátta hans og
reynsla í sjómennsku þar örugglega
komið í góðar þarfir. Næstu 25
árin stundaði Hjálmar síðan sjó-
mennsku og tengd störf að lang-
stærstu leyti, aðallega á Suðurnesj-
um, í Keflavík, Njarðvík, Sandgerði
og Grindavík. Voru Færeyingar
afar eftirsóttir til slíkra starfa á
þessum árum, enda hörkuduglegir,
samviskusamir og áreiðanlegir. Eru
mörg dæmi þess að þeir hafa ráðið
sig vertíð eftir vertíð á sáma bát
eða hjá sömu atvinnurekendum. Á
þessum árum var atvinnuástand
ótryggt í Færeyjum, en blómlegt á
íslandi, þótt síðar ætti þetta eftir
að breytast og jafnvel snúast við.
Árið 1946 kynntist Hjálmar eftir-
lifandi eiginkonu sinni, bráðhuggu-
legri og myndarlegri Reykjavíkur-
stúlku, Margréti Ingjaldsdóttur.
Margrét fæddist 22. október 1925,
dóttir hjónanna Kristjönu Kristjáns-
dóttur, er lést 1940, aðeins 42ja
ára gömul, og Ingjaldar Jónssonar
frá Stórhólmi í Leiru, húsabygging-
armeistara í Reykjavík, er lifir
tengdason sinn í hárri elli, fæddur
1894. Þau Hjálmar og Magga fluttu
til Færeyja 1948 og bjuggu þar
næstu fimm árin. Þar giftu þau sig
1951. Hef ég fyrir satt, að þar
hafi farið glæsilegt par, enda
Hjálmar hinn mesti fríðleiksmaður.
Magga reyndist honum í hvívetna
hinn vænsti lífsförunautur. Hún
hefur alla tíð verið hörku dugleg
til vinnu ekki síður en Hjálmar og
þau samrýnd og samstillt í lífsbar-
áttunni. Þeim hjónum varð ekki
barna auðið og er það miður, því
bæði voru þau einstaklega barngóð
og hænd að börnum og gagn-
kvæmt. Gestrisin voru þau hjónin
með afbrigðum á færeyska og
rammíslenska vísu og virkilega
huggulegt að sækja þau heim.
Undir lok sjötta áratugarins fór
Hjálmar að fást við ýmiss konar
byggingarvinnu, aðallega þó múr-
verk, samhliða störfum tengdum
sjómennskunni. Múrverkið skipaði
æ stærri sess á starfsvettvangi
hans og undir lok sjöunda áratugar-
ins hafði hann snúið sér alfarið að
því. Þau hjónin fluttust til
Grindavíkur 1969 og ári síðár höfðu
Minning:
Pétur Pétursson
Sást þú hinn heilaga mann,
með ljós í dagsbirtunni,
leitandi að mannveru,
sem var leið á mannlegum dýrum og djðflum
í borg þessari?
(Persneskt ljóð frá 14. öld.)
Það að koma sem ókunnur mað-
ur frá íjarlægu landi og tengjast
fjölskyldu sem tók mér opnum örm-
um og með hlýju í hjarta, er undir-
staða hamingju minnar í þessu
landi.
Mér eru og verða ofarlega í minni
fyrstu jólin mín, er ég dvaldi að
Gautlöndum hjá Pétri og Jónu
ásamt börnum þeirra og bamaböm-
um. Pétur tók á móti mér með sínu
hlýja brosi og bauð mig velkominn
á sitt heimili, sem væri ég eitt af
hans börnum. Þeir em ekki margir
mennimir sem eru svo stórir og
örlátir í hjarta að geta gefið af sjálf-
um sér af einlægni. Það gerðu og
gátu Pétur og hans yndislega kona,
Jóna, og var það mér og er mikill
heiður að hafa kynnst þeim.
Að lokum vil ég þakka Pétri alla
þá umhyggju sem hann hefur sýnt
mér og fjölskyldu minni. Ég efast
um að hann hafi gert sér grein fyr-
ir hversu mikið bros hans og hlýja
vom mér, þegar ég kom sem ókunn-
GRÆÐUM ÍSLAND
LANDIÐ OKKAR
Vinningsnúmer í happdrætti
Ataks í landgræðslu
Um leið og við birtum hér vinningsnúmer í happdrætti Átaks
í landgræðslu 1989, þökkum við öllum þeim einstaklingum
og fyrirtækjum sem keyptu miða eða styrklu átakið með öðr-
um hætti. Við óskum vinningshöfum til hamingju með þátt-
þau reist sér hið myndarlegasta hús
á Mánagötu 25 þar í bæ, þar sem
þau bjuggu síðan. Hjálmar stundaði
múrverkið vítt og breitt um Stór-
Reykjavíkursvæðið og Suðurnesin.
Hann var mjög vandvirkur og eft-
irsóttur fagmaður. Árið 1976 lauk
hann sveinsprófi í faginu með 1.
einkunn, þótt kominn væri af létt-
asta skeiði. Sumarið 1980 veiktist
Hjálmar, en fram að þeim tíma
hafði hann verið hið mesta hraust-
menni. Það varð til þess að hann
neyddist til að draga verulega úr
vinnu upp úr því. Sl. sumar varð
svo Hjálmar fyrir alvarlegu heilsu-
áfalli, er gekk mjög nærri honum.
Engu að síður auðnaðist honum að
halda vinum og venslafólki, sumu
komið um langan veg alla leið frá
Sumba, rausnarlega veislu á sjötíu
ára afmælisdegi sínum í mars sl.
Tæpum tveim mánuðum síðar var
hann svo allur.
Ég kynntist Hjálmari ekki fyrr
en undir árslok 1975, þegar hann
var nokkuð farinn að reskjast. Þótt
æskuárin væru að baki var ljóst,
að þar fór bráðmyndarlegur maður,
virðulegur, hávaxinn og hraustleg-
ur. Hjálmar var hæglátur að eðlis-
fari, þannig að ég sá hann aldrei
skipta skapi, yfirvegaður, vel gefinn
og viðfeldinn. Undir róseminni bjó
þó ákveðni og festa, og þegar hann
hafði tekið ákvarðanir var þeim
ekki auðveldlega breytt. Skilvís var
hann með afbrigðum og stóðu allar
hans skuldbindingar sem stafur á
bók. Hann var fremur dulur og
flíkaði lítt sínum tilfinningum. Þó
var hann einlægur og traustur vin-
ur og hið mesta ljúfmenni. Tókst
með okkur hin ágætasta vinátta og
bar aldrei skugga á og er því skarð
fyrir skildi við fráfall Hjálmars.
Hann átti auðvelt með að semja sig
að siðum okkar íslendinga bæði í
mataræði og í lífsháttum og gerði
sér far um að tala lýtalausa
íslensku, þannig að erfítt var að
greina, að þar fór ekki innfæddur.
Hann bar alla tíð mjög sterkar til-
finningar til heimabyggðar sinnar
og bar Sumba oft á góma. Kunni
hann frá mörgu að segja og var
oft unun á að hlýða.
Kæra Magga, ég og fjölskylda
mín vottum þér okkar innilegustu
samúð við fráfall elskulegs eigin-
manns. Jafnframt sendum við
systkinin Hjálmari og öðrum að-
standendum samúðarkveðjur.
Guðmundur
ugur maður frá fjarlægu landi.
Ég mun minnast Péturs, sem
mannsins með ljósið í hjartanu.
Mahmoud Radmanesh
tökuna — og árangurinn.
Loflorku einbýlishús
87405
Sómabátur
15283
Jeppi Cherokee
96494
Bifreiðar Peugeot 205
23478 64380 103332
177347 179808 186629
Mótorhjól Suzuki GSX 600
192114
Vatnshjól Yamaha
87344 105851 153308
Hestar ásamt náinskeiði
72445 76962 91315
Heimilistæki að eigin vali
4540 6535 7531
102717 115512 132927
Evrópuferðir m/Flugleiðum
17168 17955 23503
46118 51070 56119
124111 137174 140391
186257 194676
Landið þitt
3407 5286 5630
11614 13401 13821
21379 24000 26518
41246 45803 47248
49510 51928 52657
63281 63418 64019
71007 72993 73729
84294 84549 86851
103840 104653 111758
121984 123281 124734
135104 137280 137792
144236 147414 147725
149417 150938 ' 153529
kr. 10.000.000,-
kr. 2.600.000,-
kr. 2.000.000,-
kr. 500.000,-
157126 163977 172990
kr. 500.000,-
kr. 320.000,-
kr. 100.000,-
93752 115928
kr. 50.000,-
12865 20475 38232
189263
kr. 50.000,-
29834 35000 44596
59100 107388 109422
158808 162167 172348
kr. ! 24.900,-
8083 9717 11436
18032 18664 20901
27113 33418 35950
48242 48271 48697
56865 61401 62830
67405 68515 70208
78019 80106 83200
88173 99018 101630
116761 120932 121948
125972 128475 128611
139814 139977 144144
147773 148704 148957
154386 155214 158774
159083 159341 160233 160376 163013 165092
167400 170729 171968 173037 173732 174965
176242 177081 177198 179818 181227 184021
184365 187005 188377 191983
Vinningshafar eru beðnir að snúa sér til skrifstofu Átaks í
síma 91-29711.
LANDSHAPPDRATTI
ÁTAKS í LANDGRÆÐSLU
Laugavegi 120, 105 Reykjavík