Morgunblaðið - 21.06.1989, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1989
ÍSLENDINGASÖGURNAR
Sigurvegarar í ritgerðasam-
keppni Verslunarbankans
Urslit í ritgerðasamkeppni
Verslunarbankans voru
kynnt nýlega. Samkeppnin var
haldin meðal nemenda 9. bekkjar
grunnskólans á þjónustusvæði
bankans og tengdist dagatali
bankans en í ár skreyta skopleg-
ar lýsingar úr íslendingasögun-
um dagatalið.
Með samkeppninni vildi Verslun-
arbankinn vekja athygli unglinga á
íslendingasögunum og hvetjá þá til
að kynna sér þær og velta efni
þeirra fyrir sér.
Árangur samkeppninnar var ein-
staklega ánægjulegur. Þátttaka var
góð og verðlaunaritgerðimar bera-
vott um auðugt ímyndunarafl sigur-
vegaranna, næma tilfínningu þeirra
fyrir móðurmálinu og þekkingu á
menningararfi okkar, segir frá
Verslunarbankanum.
Fyrstu verðlaun hlaut Þuríður
Björg Þorgrímsdóttir í Reykjavík.
Verðlaunin vom Kaskó-reikningur
með 50 þúsund króna innstæðu.
Önnur til fímmtu verðlaun, heildar-
útgáfu íslendingasagnanna með
nútímastarfsetningu, hlutu María
Krista Hreiðarsdóttir, Hafnarfirði;
Sigrún Sigurðardóttir, Reykjavík;
Sigurbjörg Þrastardóttir, Akranesi
og Ögmundur Bjamason.Reykja-
vík. Sjöttu til tíundu verðlaun,
Kaskó-reikning með 10 þúsund
króna innistæðu, hlutu Ambjörg
Gunnarsdóttir, Reykjavík; Daði
Ingólfsson, Reykjavík; Einar Þór
Ingvarsson, Kópavogi; íris Val-
geirsdóttir, Álftanesi og Öm Úlfar
Sævarsson, Keflavík.
FLUG
Að fjörutíu árum liðnum
Tæplega Qörutíu árum seinna var þessi mynd tekin af þeim. í
efri röð eru Jón Hannesson, Armann Óskarson, Alfreð Olsen,
Gunnar Valgeirsson og Haraldur Stefánsson. í neðri röð eru
Búi Snæbjörnsson, Halldór Þorsteinsson og Benedikt E. Sigurðs-
son.
Þessir ungu íslensku flugvirkjanemar stunduðu allir nám við
Cal-Aero Technical Institute-skólann í Los Angeles skólaárið
1949-50.
FEGURÐ í KAUPMANNAHÖFN
Linda vakti athygli
Kaupinannahöfn. Frá Grími Frið-
geirssyni fréttaritara Morgnn-
blaðsins
Ungfrú heimur Linda
Pétursdóttir heimsótti
sjávarútvegssýninguna
World Fishing, sem lauk
fyrir skömmu í Bellá Cent-
er í Kaupmannahöfn.
Linda kom á öðrum degi
sýningarinnar og var henni
fylgt um sýningarsvæðið
inn að íslensku sýningar-
básunum, eins og hverri
annarri drottningu sæmir.
Þann tíma sem Linda stóð
vörð um íslenska svæðið,
streymdu sýningargestir
að, svo sem skipstjórar frá
Norður-Noregi, stórkaup-
menn frá Suður-Evrópu, hug-
vitsmenn úr ýmsum áttum og
aðrir sýningargestir. Sumir létu
mynda sig með Lindu og margir
fengu eiginhandaráritun á plögg
sín. Eftir að hafa virt fyrir sér
fegurðina og spjallað við Lindu,
gáfu margir sér tíma til að
kanna nánar annað sem íslend-
ingar höfðu fram að færa.
Fjölmenn móttaka var síðan
haldin sama kvöld í boði sendi-
herra íslands í Kaupmannahöfn,
á einu af veitingahúsum Tívolí
skemmtigarðsins. Enn var Linda
til staðar og vakti nærvera
hennar mikla athygli. Indversk-
ur stórkaupmaður í sjávarútvegi
vék sér að mér og spurði hvem-
ig tilfínning það væri fyrir mig
sem íslending, að hafa átt fyrir
landa tvær fegurstu konur í
heimi með svo stuttu millibili.
Ég ráðlagði manninum að skjót-
ast til íslands og þá mundi hann
skilja hvers vegna mér væri
ekki brugðið.
Nokkur dönsk blöð birtu við-
töl við Lindu í vikunni og sömu
spumingunni var varpað fram
aftur og aftur, hver er leyndar-
dómurinn á bakvið það að vera
eða verða fallegasta kona I
heimi. Svarið er einfalt segir
Linda, borða físk og það íslensk-
an físk, en það ér ekki bara ég
sem geri það heldur hafa for-
eldrar mínir borðað mikinn fisk
alla tíð.
Sérfræðingar í áróðursmálum
em sammála um það að Linda
hafi staðið sig með sóma bæði
á sýningunni sjálfri og í blaða-
viðtölum hér í Kaupmannahöfn.
Morgunblaðið/Bjami
Fulltrúar fermingarbama séra Gunnars Ámasonar 1964 ásamt núverandi sóknarprestum og sóknar-
nefhdarformönnum. Fremri röð frá vinstri: Gyða Sigfúsdóttir, séra Ami Pálsson, Stefán Gunnarsson
formaður sóknamefiidar Kársnesssóknar, Sören Jónsson formaður sóknamefiidar Digranesssóknar,
séra Þorbergur Kristjánsson og Hjálmar Árnason. Aftari röð: Svanhvít Magnúsdóttir, Sturla Þengils-
son, Hjördís Gissurardóttir og Oskar Þórmundsson.
KÓPAVOGSKIRKJA
Fermingarbörn frá 1964
færa kirkjunni gjafir
Fermingarböm séra Gunnars Árnasonar úr Kópa-
vogskirkju 1964 komu nýlega saman til að minn-
ast 25 ára fermingarafmælis. Um 100 úr 169 manna
hópi komu til fagnaðar þar sem einnig var safnað
fyrir gjöf til safnaðarins.
Fénu var varið til að kaupa 40 sálmabækur og sýn-
ingartjalds til minningar um séra' Gunnar og voru
áritaðar gjafirnar afhentar sóknarprestum og sóknar-
nefndarformönnum nýlega.