Morgunblaðið - 21.06.1989, Side 37
37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1989
TÓNLIST
Stefiiir fær
lofí Noregi
Karlakórinn Stefnir, ásamt Sigr-
únu Hjáimtýsdóttur sópran-
söngkonu, hélt nýlega tónleika í
norska bænum Levanger, skammt
norðaustur af Þrándheimi. Kórinn
hlaut afar góðar viðtökur og var
óspart hrósað í dagblöðum í Levan-
ger.
Asamt Stefni tóku tveir kórar,
karlakór Levanger og vísnakórinn
Kjissiln, þátt í tónleikunum. Stefnir
hóf tónleikana með nokkrum íslensk-
um þjóðlögum. Þá voru flutt verk
eftir eftir Wagner, Mozart og Ed-
vard Grieg. Karlakór Levanger söng
nokkur íslensk lög, til heiðurs gest-
unum og kórarnir sungu eitt lag
saman. I lok tónleikanna var kórinn
kallaður upp og flutti eitt aukalag
fyrir áheyrendur.
Yfirskrift Hege Udbye, gagnrýn-
anda við Levanger-Avisa, í umsögn
um tónleikana er „Bravo !!!“. Hann
segir söng kórsins guðdómlegan og
minnist sérstaklega á leik Guðrúnar
Guðmundsdóttur og söng Sigrúnar
Hjálmtýrsdóttur. „Hún fékk tárin til
að spretta fram í augu áheyrend-
anna,“ segir Hege m.a. um söng
Sigrúnar.
Eftir umsögninni að dæma ríkti
fádæma stemming á tónleikunum.
Áheyrendur yfirgáfu tónleikahöllina
með bros á vör og flestir með auma
lófa. Það þurfti mikið klapp til að
þakka tónlistarmönnunum eins og
þeir áttu skilið.
Sigrún Hjálmtýsdóttir söng einsöng með karlakórnum Stefni á tón-
leikunum í Levanger.
FERÐAMÁL
Vann þriggja
vikna ferð
Anna og systir hennar, Bára, á Akureyrarflugvelli, rétt áður en lagt
var uppí ferðina.
til Flórída
Farvís, tímarit um ferðamál, er
nýkomið út. Þetta er þriðja tölu-
blað Farvíss en það kom fyrst út á
miðju síðasta ári. Að venju er ferða-
getraun í tímaritinu og er vinnings-
ferðin að þessu sinni Hollandsferð
fyrir tvo með ferðaskrifstofunni
Sögu. Skilafrestur í ferðagetrauninni
er til 1. júlí næstkomandi.
Síðla vetrar var dreginn út vinn-
ingsferð Farvíss frá því í haust. Upp
kom seðill fimm ára gamallar Akur-
eyrarstúlku, Önnu Jónsdóttur. Anna
bauð fjölskyldu sinni til viku dvalar
á Holiday Inn-hótelinu á Cocoa Be-
ach sem er á Atlantshafsströnd
Flórída. Fjölskyldan er nýkominn frá
Flórída, eftir velheppnaða þriggja
vikna dvöl.
STRANDFLUTNINGAR
FRÁ HAFNARFSRÐI
NÆSTI BROTTFARARDAGUR
25. 6. FRÁ HAFNARFIRÐI
TIL (SAFJARÐAR
TIL SKAGASTRANDAR
TIL DALVfKUR
TIL NORÐFJARÐAR
TIL REYÐARFJARÐAR
FAXAFROST HF.
TRAUSTUR HLEKKUR
ÍNUTÍMA FLUTNINGUM
VÖRUMÓTTAKA HJÁ FAXAFROST HF. ÓSEYRARBRAUT 14B, HAFNARFIRÐI.
SlMAR 652275 / 651214 • TELEFAX 651744
PayDay
með söituðum
hnetum,
engu öðru
líkt.
PayDay
hefur svo
sannarlega
slegið í gegn.
Það gera söltu
hneturnar.
Dreifing: MATA, Sundagörðum 10, sími 91-681300
... á við bestu galdraþulu!
Ef þér fínnst eitthvað vanta upp á bragðið af
súpunni, pottréttinum, heitu sósunni, salatsósunni
eða ídýfunni skaltu einfaldlega bæta við
MS sýrðum rjóma, 18%. Það er allur galdurinn.
Hitaeiningar MS sýrður rjómi Majónsósa
18% (Mayonnaise)
1 tsk (5 g) 9.7 37
1 msk (15 g) 29 112
100 g 193 753