Morgunblaðið - 09.11.1989, Side 41
411
JMÖjtGUNBjABrÐ.FIMMTTjOAGU^g. NÓVEMBER 1989:
*
Sigurður Sævar As-
mundsson — Minning
Fæddur 7. október 1935
Dáinn 31. október 1989
Það verða þung spor, sem við
göngum, þegar við fylgjum honum
Sigurði síðasta spölinn í dag. Hann
hafði verið mikið veikur undanfarið,
en engu að síður kom fregnin um
andlát hans eins og reiðarslag á
okkur. Líklega gerðum við okkur
ekki grein fyrir því, hversu langt
leiddur Sigurður var, því hann var
alla tíð svo jákvæður og kátur, þann-
ig að hann gerði veikindi sín að
aukaatriði. Þar fyrir utan var hann
svo harðduglegur að hann lét hvergi
bilbug á sér finna, sem gerði það
að verkum að við sáum varla þennan
veika mann, sem Sigurður var, held-
ur ávallt hinn brosmilda og vinalega
Sigurð.
Sigurður Sævar fæddist 7. októ-
ber 1935 í Reykjavík. Hann var son-
ur hjónanna Rannveigar Bjarnadótt-
ur, f. 15. febrúar 1897 á Geirlandi
á Síðu í Vestur-Skaftafellssýslu, og
Ásmundar Svanbergs Jónssonar, f.
27. júní 1884 á Hrauntúni í Þing-
vallasveit. Bræður Sigurðar voru
þeir Jón Reykjalín, Björn Reykjalín,
Reynir Reykjalín og Hilmar Svan-
berg. Hann átti einnig tvær hálfsyst-
ur frá fyrra hjónabandi föður síns,
þær Kristínu og Jónínu, sem báðar
eru látnar.
Sigurður ólst upp í Reykjavík og
lærði rafvirkjun í Iðnskólanum.
Hann átti auðvelt með nám og var
sérlega handlaginn maður og ná-
kvæmur.
Sigurður var þrígiftur. Fyrsta
kona hans var Gerður Georgsdóttir
og áttu þau tvö börh, Georg og
Höllu. Önnur kona Sigurðar var
Þorgerður Oddsdóttir og áttu þau
son, Guðmund Veigar. Þriðja kona
Sigurðar er Anna Kristjánsdóttir en
þau áttu son, Sævar Reykjalín, f.
1. mars 1981, auk þess sem Sigurð-
ur gekk Eyvindi Gauta, syni Önnu,
f. 24. júlí 1977, í föður stað.
Árið 1985 stofnaði Sigurður fyrir-
tækið Heimildir samtímans á mynd-
bandi á Suðurlandsbraut 6, hér í
borg. Þar sá Sigurður um allskonar
myndbandavinnslu og var m.a.
brautryðjandi í myndbandstökum
fyrir fólk í heimahúsum. Hin síðari
ár áttu myndatökur hug hans allan
og í lok ársins 1987 _var hann ráðinn
framkvæmdastjóri ísfilm, þar sem
hann vann frábært starf. Meðal ann-
ars lét hann gera kvikmynd um eld-
varnir í heimahúsum, í samvinnu við
Bnmavarðaféiag Reykjavíkur, sem
hefur t.d. verið sýnd í sjónvarpinu
og síðar var afrituð á myndbönd,
sem Sigurður og félagar.hans í Kiw-
anisklúbbnum Kötlu sáu um að selja
og var ágóðanum varið til líknar-
mála.
Undanfarin þijú ár, hafði Sigurð-
ur átt við veikindi að stríða og það
var ekki fyrr en í upphafi þessa árs
að sjaldgæf tegund krabbameins
greindist hjá honum. En þrátt fyrir
hin erfiðu veikindi, hélt hann samt
hinu létta skapi, sem alltaf ein-
kenndi hann og aldrei lét hann deig-
an síga.
Það er með söknuði, sem við
kveðjum hann Sigurð og þakklæti
fyrir að hafa átt hann að vini.
Sá sem eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson: 16,36 Ljóð)
Við sendum ykkur, Anna, Sævar
og Gauti, innilegar samúðarkveðjur
í sorgum ykkar, en minningin um
góðan mann lifir.
Ann og Gunnar Kr.
í dag er til moldar borinn vinur
minn og fjölskyldu minnar Sigurður
Sævar Ásmundsson, Strandaseli 1
Reykjavík. Ég'kynntist Sigga um
það leyti, sem hann kvæntist vin-
konu minnr Önnu Kristjánsdóttur.
-Siggi var gjöi'vilegur maður að velli
og greindur vel. Gott var til hans
að leita og þiggja ráð hans, því liann
bjó yfir víðtækri þekkingu á flestum
sviðum, ekki síst djúpri mannþekk-
ingu. Siggi var með eindæmum lag-
inn maður hvað sem hann tók sér
fyrir hendur og vel listhneigður.
Siggi var félagslyndui' maður og
naut sín vel meðal fólks. Hann var
virkur félagi í Kiwanisklúbbnum
Kötlu og var m.a. valinn atorkumað-
ur ársins 1989 innan þess félags-
’ skapar.
Þau hjón Siggi og Anna áttu son-
inn, Sævar Reykjalín, sem er 8 ára
og gekk Siggi syni Önnu, Eyvindi
Gauta, 12 ára í föðurstað. Áður
hafði Siggi átt þijú börn. Siggi var
búinn að heyja langa og harða bar-
áttu við ólæknandi sjúkdóm og stóð
Anna kona hans við hlið hans uns
yfir lauk.
Ég og Ijölskylda mín, vottum eig-
inkonu hans, börnum og braéðrum
samúð okkar og virðingu og biðjum
þeim Guðs blessunar.
Ásthildur Thorsteinsson og
börn
Mig langar til með nokkrum línum
að minnast góðs vinar, Sigurðar
Sævars Ásmundarsonar, er lést þann
31.10. sl. eftir lánga og erfiða bar-
áttu við illvígan sjúkdóm. Það var
fyrir nokkrum árum að kynni okkar
hófust er við vorum um tíma bílstjór-
ar hjá Bifreiðastöð Steindórs sem
þá var. Seinna lágu leiðir okkar sam-
an aftur er Sigurður hóf störf hjá
fyrirtæki sem ég ók oft fyrir eftir
að ég varð sendibílstjóri á eigin bíl.
Svo var það að Sigurður sem farið
hafði á námskeið í myndbandagerð
sagði mér frá þeirri hugmynd sinni
að stofna fyrirtæki þar sem þekking
hans á myndbandagerð. fengi notið
sín. Hann- lét ekki sitja við orðin
tóm, heldur stofnaði fyrirtækið
Heimildir samtímans á myndbandi.
Þar sem ég hafði fylgst með þessu
hjá honum bauð hann mér að gerast
hluthafi hjá sér í fyrirtækinu sem
ég varð. Ekki hafði ég neina þekk-
ingu á myndböndum, en aðalatriðið
var að aðstoða hann við að koma
fyrirtækinu upp og vinna ineð hon-
um sem var mjög gott, því hann var
dagfarsprúður maður, rólegur og
þægilegur. Ekki minnist ég þess að
hafa séð hann skipta skapi þann tíma
er við vorum saman, en hann gat
verið ákveðinn ef því var að skipta,
enda góður stjórnandi. Ég tók fljótt
eftir því hve sérstaklega handlaginn
hann var og vandvirkur. Oft var
hann við vinnu sína langt fram á
nætur og stundum sárlasinn, en
hann kvartaði aldrei, heldur gekk
að sinni vinnu eins og ekkert væri
að. Ekki grunaði mig þá, hve alvar-
leg veikindi hans ættu eftir að verða
seinna. Þar kom að honum var boð-
in staða framkvæmdastjóra hjá ís-
film og fór hann að vinna þar en
meðeigandi okkar sá um fyrirtæki
okkar. Svo kom að Sigurður seldi
honum sinn hluta og ég minn og á
hann fyrirtækið nú. Nú fóru veikindi
Sigurðar að ágerast og varð hann
að fara í erfiðar aðgerðir vegna þess
hve alvarlegur sjúkdómurinn var og
allt reynt til þess að komst fyrir
meinið. Sigurður tók þessu með ein-
stöku æðruleysi og dugnaði og
stundum er við áttum tal sáman,
þá gat hann gert góðlátlegt grín að
sér, enda stutt í gamansemina hjá
honum eins og svo oft áður. Gott
var að leita til hans með góð ráð
þegar á þurfti að halda. En nú er
hann allur þessi Ijúfi maður sem
reyndist mér vel. Nú á ég bara góða
minningu um hann eftir. Minningn
sem gott er að eiga. Nokkru fyrir
andlát hans áttum við tal saman og
þá sagðist hann vera aðeins að hress-
ast, en það var bara stund milli
stríða. Hann var að tala um, að
hann þyrfti að skipta um íbúð, fá
sér aðra þar sem væri lyfta, en hann
var orðinn það þreklítill að hann
varð oft að vera í hjólastól. Þannig
hafði sjúkdómurinn- leikið þennan
stóra og duglega mann. Það var
sárt að sjá. Þótt þrekið væri á þrot-
um lét hann sig ekki muna um
snemma á liðnu sumri að fara út til
Hollands með félögum sínum í Kiw-
anis.
Já, krafturinn var mikill og ekki
átti að gefast upp. En svo fór að
lokum að sjúkdómurinn hafði betur.
Nú er þjáningunni lokið og nú líður
honum vel. Það er huggun harmi
gegn. Hann var að tala um það við
mig, að flytja eins og fyrr var sagt,
en nú er hann fluttur þangað sem
sjúkdómar eru ekki flötur um fót.
Fluttur þangað sem við öll flytjum
hvort sem við viljum eða ekki.
Með virðingu og þakklæti kveð
ég hann nú. Svo þegar að mínum
flutningi héðan kemur, tekur hann
kannske á móti mér og gefur mér
góð ráð eins og svo oft áður. Innileg-
ar samúðarkveðjur sendi ég og fjöl-
skylda mín, eiginkonu hans, börnum
og ástvinum öðrum. Guð gefí ykkur
styrk á erfiðum stundum.
Guðmundur Þ. Guðmundsson
Snemma vors 1987 vorum við
félagarnir í Kiwanisklúbbnum Kötlu
þeirrar gæfu aðnjótandi að fá gést
í klúbbinn okkar. Þessi gestur var
Sigurður Ásmundarson. Fljótlega
varð hann einn af okkur, þ.e. gekk
í klúbbinn og varð strax mjög virkur
félagi, með nýjar hugmyndir og það
sem þarf þegar nýir félagar koma:
að vera strax virkur þátttakandi.
Fljótlega eftir að Sigurður var
orðinn Kiwanis-maður, færði hann
okkur verk að vinna. Verk, sem
gæti fært okkur tekjur í styrktarsjóð
klúbbsins. Það var fjölföldun og sala
á myndbandi um brunavarnir, í sam-
vinnu við Brunavarðafélag
Reykjavíkur. Alltaf þarf fé til líknar-
mála, verkefnin eru mörg ög það
er takmarkað hvað einn klúbbur
getur hjálpað til í samfélaginu. Að
þessu verkefni vann Sigurður ihvað
mest sjálfur.
Það var sárt að frétta þegar Sig-
urður sagði okkur fcá veikindum
sínum. Þrátt fyrir þau, dvínaði ekki
áhuginn og kraftana notaði hann,
sem hann átti til. Er við félagarnir
í Kiwanisklúbbnum Kötlu lítum til
baka, þá er margs að minnast á
stuttri samverustundu. Það var ekki
sjaldan, sem Sigurður fékk að
skreppa af Landspítalanum á Kiw-
anis-fund og ef hann komst ekki,
þá spurði hann einhvern félagann
daginn eftir, hvað hefði gerst. Eftir
eina meðferðina á spítalanum, heim-
sótti hann Kiwanisklúbbinn í Fær-
eyjum, en sá klúbbur er í íslenska
umdæminu og á síðasta sumri fór
hann sem fulltrúi Kötlu á Evrópu-
þing Kiwanisklúbba í Haag í Hol-
landi. Það er minnisstætt þegar full-
trúar á umdæmisþingi, sem var hald-
ið á Akureyi'i í haust, komu heim.
Þá bað Sigurður um að fá að líta á
þinggögn, því þó kraftarnir væru
ekki miklir hjá honum, þá var hugur-
inn við starf Kötlu og Kiwanis-
hreyfíngarinnar.
Það var ekki erfitt fyrir stjóm
Kiwanisklúbbsins Kötlu að velja at-
orkumann starfsársins 1988 til
1989, en þann titil átti Sigurður svo
sannarlega skilinn.
Við félagarnir í Kiwanisklúbbnum
Kötlu, sendum Önnu og drengjunum
okkar samúðarkveðjui' og Guð styrki
þaij og blessi.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Ur Hávamálum.)
Kiwanisfélagar í Kötlu,
Reykjavík.
SIEMENSgæð/
STÓRGLÆSILEG
NÝ ÞVOTTAVÉL
FRÁ SIEMENS!
Enn á ný ryður Siemens brautina í þróun
og hönnun heimilistækja.
í þetta skiptið með nýrri þvottavél, sem slegið hefur I
gegn og mun vafalaust verða öðrum þvottavélaframleið-
endum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluð
tímamótavél í hönnun og notkun tölvustýribúnaðar, sem
býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur
þekkst.
Mikil fjölbreytni í þvottakerfum, þeytivinding í áföngum og
þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast óendanlegt
svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og
þann hámarkshita sem hann þolir.
Sjálfvirkur magnskynjari skammtar vatn inn á vélina
í samræmi við magn og gerð þvottar og það kerfi sem er
í gangi og aðlagar þannig vatnsnotkunina sjálfkrafa því
sem þvegið er.
Sérþróuð þvottatromla með þremur áföstum vatns-
hripum heldur vatninu á stöðugri
hreyfingu og tryggir þannig jafnt
gegnumstreymi á vatni um
þvottinn. Þessi nýjung sér til
þess að þvotturinn fær bestu
hugsanlegu meðhöndlun.
SIWAMAT PLUS 4200 uppfyllir allar ítrustu kröfur og
óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er
mjög þægileg í notkun með aðgengilegt, upplýst
stjórnborð. ítarlegur leiðarvísir á íslensku og greinargóð
tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með.
Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar
og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viðhald og langa
endingu.
Gæði á gæði ofan frá SIEMENS
SMITH&
NORLAND