Morgunblaðið - 24.11.1989, Side 2
•'ttöi H3ÖM3VÍM .tó HUDAŒJThm (HGAJaVLUOflOM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1989
Saltsíldarsalan til Sovétríkjanna:
Samningnr um sölu 150.000
tunna staðfestur í Moskvu
Verðmæti samningsins um einn milljarður króna
FULLTRÚAR Síldarútvegsnefiidar og sovézku stofhunarinnar
Sovrybflot undirrituðu í Moskvu í gær samning um sölu saltsildar
til Sovétríkjanna að fenginni staðfestingu stjórnvalda í Kreml. Samn-.
ingurinn var gerður þann 4. nóvember síðastliðinn, en staðfesting
dróst í nær þrjár vikur. Samningurinn er i meginatriðum samhljóða
samningi síðasta árs. Söluverð, magn og afhendingarskilmálar eru
óbreyttir, en samkomulag varð um að veita kaupendum 3% afslátt
til frekari kynningar á íslenzkri saltsíld innan Sovétríkjanna. Heild-
arverðmæti samningsins, 150.000 tunna, sem staðfestar hafa verið,
er rúmlega einn milljarður króna. Afslátturinn til kynningar á
síldinni nemur því rúmum 30 milljónum króna. Samingalota þessi
er lengsta samfellda lotan í sögu síldarsölunnar til Sovétríkjanna,
en hún stóð alls í 5 vikur.
Samningurinn hljóðar upp á
150.000 tunnur af hausskorinni og
slógdreginni síld. í honum er sér-
stakt ákvæði um að sovézku kaup-
endurnir muni athuga möguleika á
kaupum á 50.000 tunnum til við-
bótar og gefa svar þar að lútandi
eins fljótt og unnt er. Síldina skal
afhenda á fyrsta fjórðungi næsta
árs. Síldin er greidd í dollurum, en
•hækkun þess gjaldmiðils gagnvart
krónunni milli síldarvertíða (23.
nóvember hvort ár) er 38,24%.
Hækkun vísitalna sama tímabil er
í kringum 20% og því má reikna
með að framleiðslukostnaður hafi
hækkað meira að teknum áhrifum
gengisbreytinga inn í dæmið.
Framleiðslukostnaðurinn gæti því
hafa hækkað um 25% frá síðustu
vertíð.
Ekki liggur ljóst fyrir, hve mikið
hefur veiðzt af síld í haust, en kvót-
inn er alls um 100.000 tonn. í októ-
ber veiddust á milli 15.000 og
16.000 tonn og áætla má að veiðin
í nóvember sé orðin um 35.000
tonn. Alls eru því veidd um 50.000
tonn, helmingur leyfilegs afla. Til
söltunar á 150.000 tunnum af
hausskorinni og slógdreginni síld
þarf um 20.000 tonn upp úr sjó
Viðskiptaráðherra:
Fagna stað-
festingunni
JÓN Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra kvaðst í gær fagna því að
samningurinn um sildarkaup
Sovétmanna frá 4. nóvember sl.
hefði verið staðfestur.
„Ég lýsi ánægju minni með að
þetta samkomulag hefur tekist og
fengið staðfestingu sovéskra
stjórnvalda. Þetta sýnir að íslensk
stjórnvöld héldu alveg rétt á málum
með því að gera olíukaupasamning-
inn og byggja framhald síldarsölu-
málsins á gerðum samningi aðila
um viðskipti landanna,“ sagði við-
skiptaráðherra.
„Ég er fyrst og fremst ánægður
fyrir hönd þess fólks sem hefur
framfæri sitt af síldarsöltun," sagði
viðskiptaráðherra.
og því ætti að vera næg síld eftir
óveidd til að vinna upp í samning-
inn. Sjái sovézku kaupendurnir sér
fært að bæta við sig 50.000 tunn-
um, þarf til framleiðslu á þeim um
7.000 tonn upp úr sjó. Lítið hefur
veiðzt af stærstu Síldinni til þessa,
en hana skortir til dæmis í fryst-
ingu fyrir Japansmarkað. Taki hún
að veiðast úr þessu, gæti komið til
samkeppni um hráefnið eða aukn-
ingar á kvóta.
„Nú fer allt á fullt, enda veitir
ekki af. Allir saltendur hafa fengið
orðsendingu um undirskrift samn-
ingsins og geta því byijað að salta
af fullum krafti. Sumir áttu síld í
húsi, aðrir í bátum í höfninni. Þeir
bátar, sem ekki eru búnir með kvót-
ann streyma væntanlega út, séu
þeir ekki á miðunum, en síldin veið-
ist nú milli Ingólfshöfða og Horna-
fjarðar. Síldin, sem þar veiðist
hentar mjög vel í söltun fyrir Sovét-
menn,“ sagði Gunnar Jóakimsson,
hjá Síldarútvegsnefnd, í samtali við
Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Bílvelta í Ölfusi
Lítil bifreið valt eina veltu síðdegis í gær skammt vestan Kögunarhóls
í Ölfusi. Ökumaður var einn í bifreiðinni og sakaði ekki. Hann ók
vestur Suðurlandsveg er hann missti bifreiðina út í kant og síðan
út fyrir veg. Bifreiðin er talin ónýt.
Fasteignamat:
Hækkunin mest á Kjalamesi
og minnst á Suðurnesjum
eftir miklar raunverðshækkanir
1987. Á Suðurnesjum hafa engar
raunverðshækkanir orðið á árunum
1986 til 1988. Frá seinni árshelm-
ingi 1987 til sama árstíma í fyrra
Atvinnuhúsnæði hækkar um 5%
MATSVERÐ íbúðarhúsnæðis og íbúðarlóða á landinu öllu hækkar
frá fyrra ári um 18%, reiknað samkvæmt framreiknistuöli sém ákveð-
inn hefur verið af Fasteigmamati ríkisins. Undantekningar eru í
þéttbýli í Kjalarneshreppi, þar sem matið hækkar um 35%, í Mos-
fellsbæ og á Húsavík um 25% og í Keflavík, Njarðvík, Grindavík og -----
á Akranesi þar sem matið hækkar um 12%. Atvinnuhúsnæði hækk-
ar um 5% og er þetta þriðja árið í röð sem það hækkar minna en Jp lUfflGlOin
íbúðarliúsnæði. Þetta kom íram í erindi Magnúsar Ólafssonar for- -—----
stjóra Fasteignamats ríkisins á ráðstefhu Sambands íslenskra sveit-
arfélaga í gær.
hækkaði fermetraverð á Akureyri
um 19,8% og á Suðurnesjum um
22,8%. Á sama tíma hækkaði bygg-
ingarvísitala um 18,8% og láns-
kjaravísitala um 24,8%.
í erindi Magnúsar kom fram að
offramboð hafi verið á atvinnuhús-
næði síðastliðið ár á höfuðborgar-
svæðinu og verð þess hafi staðnað
í krónum talið. „Þrátt fyrir minnk-
andi atvinnu og kaupmátt hefur
íbúðarhúsnæði hér á þessu svæði
hins vegar nánast fylgt verðbólgu
mældri eftir gildandi lánskjaravísi-
tölu,“ sagði Magnús. •
Hann sagði að nærtækasta skýr-
ingin á því að verð íbúða hafí ekki
lækkað miðað við verðbólgu,. þrátt
fyrir minni kaupmátt, sé sú, að
nægilegt framboð hafí verið af
hagkvæmu lánsfé. „Aðflutningur
fólks af landsbyggðinni kann einnig
að hafa haft áhrif á eftirspurn og
þar með verðið."
Niðurstöðutala fasteignamats í
heild á landinu öllu er 615 milljarð-
ar króna og hefur hækkað úr 528
milljörðum í fyrra, eða um 16,5%.
„Þetta er í fyrsta sinn um langt
árabil,“ sagði Magnús, „sem hækk-
un fasteignamats á landinu öllu er
minni en verðbólga." í Reykjavík,
Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfírði og
Seltjarnamesi er heildarfasteigna-
mat 393 milljarðar og hefur hækk-
að úr 336, eða um 16,9%. Annars
staðar á landinu er matið 222 millj-
arðar og hefur hækkað úr 192, eða
um 15,5%.
í fréttabréfi Fasteignamats
ríkisins er greint frá því að sölu-
verð íbúðarhúsnæðis á Akureyri
hafi náð jafnvægi á síðasta ári,
Leið yfir sex farþega
DC 8 þota Flugleiða lenti í þremur
óhöppum á tveimur sólarhringum
SEX farþegar féllu í yfirlið í gær í aðflugi DC 8 þotu Flugleiða til
Keflavíkur í gær. Of lítill loftþrýstingur var í vélinni en þó innan
leyfilegra marka að sögn Einars Sigurðssonar blaðafulltrúa Flug-
leiða. Við lendinguna straukst svo búnaður á hreyfli á vinstri væng
vélarinnar við flugbrautina. Þessi vél hefur orðið fyrir þremur óhöpp-
um á tveimur sólarhringum því á þriðjudaginn kom gat á vélina er
stigapallar fuku á hana á Kennedy-flugvelli.
„Það var gert við vélina í New
York og viðgerðin var rannsökuð
ítarlega. Til öryggis var ákveðið að
hafa jafnþrýstibúnaðinn ekki á full-
um krafti á leiðinni heim. Loft-
þrýstingur var þó innan leyfilegra
Umferðarslys
í Staðarsveit
Staðarsveit.
HARÐUR árekstur varð í ljósa-
skiptunum í gær á Ólafsvíkur-
vegi, rétt vestan við afleggjarann
að bænum Hraunsmúla í Staðar-
sveit. Þar lentu saman jeppabif-
reið og fólksbifreið. Einn maður
var í jeppabifreiðinni og slasaðist
hann nokkuð.
Læknir kom fljótlega á slysstað
úr Ólafsvík og var ökumaður jepp-
ans fluttur í sjúkrabifreið á sjúkra-
húsið á Akranesi. í fólksbifreiðinni
voru tveir ungir menn og munu þeir
vera tiltölulega lítið meiddir, því
þeir komu gangandi um eins kíló-
metra leið að bænum Hraunsmúla
til að gera viðvart um slysið.
ÞB.
Framkvæmd nýrrar verkaskiptingar ríkis og sveitarfélaga:
Lægri laun, verri starfs-
kjör, skertur lífeyrisréttur
- sögðu gagnrýnendur 1 þingræðum
STARFSMENN þeirra stofnana, sem lagðar verða niður með
nýrri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, ■ verða táðnir til ríkis-
ins, ef þeir kjósa svo, og ganga þá í meginatriðum inn í kjarasamn-
inga sem gilda á þeirra nýja vinnustað, sagði Ólafur Ragnar
Grímsson, fjármálaráðherra, í þingræðu um tilfærslu starfsfólks
Sjúkrasamlags Reykjavíkur til Tryggingarstofnunar ríkisins.
Guðrún Helgadóttir og fleiri þingmenn gagnrýndu harkalega að
starfsfólkið lækkaði í launum, missti ýmis kjararéttindi og hlyti
Iakari eflirlaunarétt eftir en áður, þótt störfin yrðu áfram hin
somu.
„Starfsmennirnir hafa frjálst
val,“ sagði fjármálaráðherra, „um
það, hvort þeir vilja_ganga inn á
hinn nýja starfsvettvang og
ganga þá inn í þá kjarasamninga
sem þar eru gildandi“. Ráðherra
sagði að þetta gilti um þær stofn-
anir, sem lagðar yrðu niður, sam-
kvæmt nýrri verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga, með nýjum lög-
um þar um frá Alþingi.
Guðrún Helgadóttir sagði það
ekki „frjálst val“, eftir áratuga
störf og starfsreynslu, sem væri
mikilvæg, að vera stillt upp við
vegg tveggja kosta: annað hvort
að missa atvinnuna eða sæta verri
kjörum á alla lund. Birgir Isleifur
Gunnarsson tók í svipaðan streng
og mæltist til þess, að Sjúkrasam-
lag Reykjavíkur starfaði áfram,
sem útibú frá Tryggingastofnun-
inni, á sama hátt.og verið hafi,
a.m.k. ár til viðbótar. Karvel
Pálmason sagði það koma sér í
opna skjöldu, ef framkvæmd ríkis-
stjómar og ráðherra á þessu máli
fæti í sér verulega kjaraskerðingu
fyrir fólk. Framkvæmd af- þessu
tagi dragi ekki úr óvinsældum
ríkisstjórnarinnar.
marka,“ sagði Einar Sigurðsson,
blaðafulltrúi Flugleiða. „Félagið
harmar að svona skuli hafa tekist
til og mun kanna með hvaða hætti
er hægt að koma í veg fyrir að
þetta endurtaki sig,“ sagði Einar.
Við lendingu straukst svo búnað-
ur á hreyfli á vinstri væng vélarinn-
ar við jörðu. „Það var smávægilegt
og áhöfnin tók reyndar ekki eftir
því fyrr en eftir lendingu," sagði
Einar. Hann sagðist gera ráð fyrir
því að vélin færi aftur í loftið í dag.
Úrval/Út-
sýn kaupir
43% í Sögu
Ferðaskrifstofan Úrval/Útsýn
keypti í gær 43% hlutafjár í
Ferðaskrifstofunni Sögu. Þrátt
fyrir kaupin verða fyrirtækin rek-
in sitt í hvoru lagi og engin áform
eru um sameiningu en þeir sem-
rekið hafa Sögu eiga enn meiri-
hluta í fyrirtækinu.
Saga og Úrval/Útsýn munu taka
upp nánara samstarf og semja sam-
eiginlega um leiguflug og hótela-
leigu auk þess affvinna sameiginlega
að söluherferðum. Þá er talið að
með kaupunum náist veruleg hag-
ræðing í rekstri fyrirtækjanna.