Morgunblaðið - 24.11.1989, Blaðsíða 9
MökÓWíBlÁÖlÖ FÖSÍCJÖ^GÍJR <24. NÖVEKÍBER' IðÖð
^^lllllllllllllllliiHllliTÍmníinííííiiíí^I^
Verð með söluskatti: Kr. 5.964,- án efnis
Nýtið ykkur þessa ódýru þjónustu og
tryggið gangöryggi bílsins í vetur!
BILABORG H.F.
FOSSHÁLS11 ,SÍMI 68 12 99
ara
Við höldum upp á afmœlið
föstudaginn
24. nóvember
með afmœliskaffi og tertu
í versluninni Laugavegi 29
VELKOMIN
Leitin að
sannleikan-
um?
Ákvörðun Nigels Law-
sons að segja af sér störf-
um fjármálaráðherra í
ríkisstjóm Margaret
Thateher er erfiðasti
flokksvandi sem hún hef-
ur þurft að glíma við á
ferli sinum. í forystu-
grein breska vikublaðs-
ins The Spectator segir,
að allur gangur þess
máls haii orðið til þess
að margir hafi farið að
velta fyrir sér heiðar-
leika og heilbrigði
Thateher. Blaðið segir:
„Þótt orð eins og „geð-
veikur" og „lygari" séu
oft á vörum manna i
stjómmálum em þau nú
notuð af svo mikilum
ákafa, að það verður að
taka þau alvarlega. Sýnir
saga síðustu tveggja
vikna okkur í raun og
vem, að okkur sé stjóm-
að af ljúgandi geðsjúkl-
ingi?“
Orðbragð af þessu tagi
tíðkast ekki í umræðum
um íslensk stjómmál og
þykir þó ýmsum nóg um
það, sem hér er sagt.
Þeir sem fylgjast með
breskum stjómmálaiim-
ræðum vita, að þar falla
mjög þung orð, þegar
mönnum hitnar í hamsi
og hefúr það svo sannar-
lega gerst vegna Thateh-
er síðustu vikumar.
Þeim Margaret
Thatcher og Nigel Law-
son þykir ekki bera sam-
an í lýsingum á aðdrag-
anda þess að haim dró
sig í hlé og hætti sem
fjármálaráðherra. Law-
son segir, að Thatcher
hafi ekki verið í neinum
vafa um það hvers vegna
hann hætti. Af þeim sök-
um virðist hún ekki segja
satt i bréfi sinu til hans,
þegar hún segir „... ég
gat ekki gert neitt til
þess að fá hann ofan af
þessu.“ Hún hefði einfald-
lega getað samþykkt að
reka efnahagsráðgjafa
sinn, sir Alan Walters,
segir The Spectotor.
Blaðið segir að líklega
Thatcher ívanda
Einn þingmanna breska íhaldsflokksins, Sir Ant-
hony Meyer, hefur ákveðið að bjóða sig fram í leið-
togaembætti flokksins gegn Margaret Thatcher
forsætisráðherra. Hann telur að Thatcher sé ekki
lengur í nægilega miklum tengslum við almenning.
Tíu ára seta hennar í embætti forsætisráðherra
hafi einangrað hana og auk þess hafi hún ranga
stefnu í málefnum Evrópu. Meyer er enginn þunga-
vigtarmaður í flokknum en komi fram í þingflokki
íhaldsmanna, til dæmis með því að margir skili
auðu í kosningunni, að Thatcher eigi þar undir
högg að sækja, kunna menn eins og Kenneth Ba-
ker, formaður flokksins, Sir Geoffrey Howe aðstoð-
arforsætisráðherra eða Michael Heseltine, fyrrum
varnarmálaráðherra, að hugsa sér til hreyfings. í
Staksteinum í dag er rætt um stöðu Thatcher.
hafi hvorki Lawson né
Thatcher sagt allan sann-
leikann. Það sé rétt að
sir Alan hafi verið undir-
rót ágreinings á milli
þeirra en deilumar hafi
í raun snúist um annað
en hann. Þau deildu um
það, hvemig ætti að taka
á verðbólgunni. „Að vera
ósammála um það er ekk-
ert smámái í þessari sér-
stöku ríkisstjóm," segir
breska vikuritið. Úr því
að ekki var hægt að leysa
þann ágreining varð ami-
að þeirra að víkja. Law-
son háði baráttuna með
því að beina spjótum
sínum að sir Alan, þegar
hann átti við stefiiu
Thátcher. Hvemig gat
Thatcher þá rekið sir
Alan án þess að viður-
kenna, að hún hefði orðið
undir við mótun efiia-
hagsstefhunnar? Hún
hefði einnig viðurkennt
að hún mætti ekki sjálf
ráða ráðanautum sínum.
„Ekki er þess að
vænta, að forsætisráð-
herrar fúti í fægra lialdi
í tilvikum sem þessum,
ef þeir geta með nokkm
móti komist hjá því. Hún
faim leið út úr klemm-
unni og fór hana. Hún
hagaði sér eins og heil-
brigð manneslga," segir
The Spectotor og telur
að í þessu samhengi eigi
að skoða ásakanir um að
Thatcher hafi sýnt óheið-
arleika. Orð hennar um
að hún hafi ekki „getað
gert neitt“ til að halda í
Lawson. verða sönn, ef
menn samþykkja að af-
staða hennar sjálfrar hafi
í raun verið þannig, að
hún gæti ekki gert neitt
tif að verða við kröfúm
Lawsons.
Þeim var báðum ljóst,
að þau vom ósammála
um efnahagsstefnuna og
Lawson sagði af sér en
bæði reyndu þau að gera
sem minnst úr þeim
ágreiningi opmberlega.
Thatcher sagði ósatt til
að hlifa bæði Lawson og
sjálfri sér þegar hún
sagði, að þau hefðu mót-
að sameiginlega stefhu
verið „innilega sammála"
og bætti síðan við í sama
sjónvarpsviðtali: „Ég
studdi hann heilshugar."
Strangar kröfur
Þegar þessi skilgrein-
ing hins enska vikurits
er lesin sjá menn í fyrsta
lagi að þar em orð stjóm-
málamanna vegin og
metin af meiri nákvæmni
en við eigum að vepjast
hér á landi. í öðm lagi
er lögð áhersla á, að
menn standi við skoðanir
sínar í stjómmálum,
standi með þeim og falli.
Þess vegna segir blaðið,
að það hafi verið „rök-
rétt, heilbrigt og í raun
virðingarvert af Lawson
að fara“. Að stjómmála-
menn fylgi skoðunum
sínum eftir með þeim
hætti hér hjá okkur yrði
líklega fremur talið óheil-
brigt en heilbrigt. Nægir
okkur að lita á ágreining-
inn um stórt og smátt
innan núverandi ríkis-
sfjómar til að sannfærast
um það. Hér sýnast menn
oft i kapphlaupi undan
eigin skoðunum til þess
eins að geta setið sem
lengst í ráðherrastólum,
enda er áranguriim í
samræmi við það.
Engiim efest um að
Margaret Thatcher á eft-
ir að standa af sér árásir
innan flokks síns og utan.
Það verður hennar eigin
ákvörðun hvenær liiin
dregur sig í hlé en ekki
annarra. Talið er líklegt,
að þingflokkur íhalds-
manna greiði um það at-
kvæði 5. desember næst-
komandi, hvort Thatcher
verður áfram leiðtogi
Ilialdsflokksins eða ekki.
Þótt Thatcher hafi set-
ið 10 ár í Downing-stræti
og sigrað í þrennum
kosniugum em það ekki
andstæðingar heimar í
öðmm flokkum eða fjöl-
miðlar sem hafe skapað
henni mestan vanda held-
ur flokksbræður hennar,
sem nú em femir að
þreytast á henni. Takist
henni ekki að halda utan
um þami hóp er hún fall-
in og á ekkert erindi í
landsmálaslaginn. Ein-
mitt þess vegna verður
spennandi að fylgjast
með því sem gerist innan
íhaldsflokksúis á næstu
vikum.
Eigum
fyrirliggjandi
AVERY
HUNDRAÐS V GGIR
Hagstcett verö
Leitiö upplýsinga
ÓLAi UR GJ-SIASON
t CO. ílf.
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SlMI 64800
Apollo-hár á íslandi
Viðbótarhár með nýrri, endurbættri hárlínu að framan
(Wisperfront), sem er eins eðlileg og um þína eigin væri að ræða.
Þú notar Apollo viðbótarhár allan sólarhringinn og við allar
aðstæður, sem þitt eigið hár.
Apollo hentar öllum hvað varðar stærð, hárgæði, þykkt, áferð,
hárgreiðslu og að sjálfsögðu geturþú fengið þína óska klippingu.
Hafðu samband og við upplýsum þig um alla kosti Apollo.
Kynning:
Leif Loftsberg, umboðsmaður Apollo í Evrópu, og Ólafur frá
íslandi (20 ára) nota að sjálfsögðu Apollo viðbótarhár og verða
hjá okkur dagana 25.-26. nóvember til ráðleggingar þeim,
'sem þess óska að kostnaðarlausu, i fullum trúnaði og án allra
skuldbindinga.
Pantið í síma 22077.
RAKARA- 0G HÁRGREIÐSLUSTOFAN
GREIFINN
HRINGBRAUT 119 S 22077