Morgunblaðið - 24.11.1989, Síða 10
gsgi aaat/.avóM .t-s auoAauTgöa uiaAJaMuoaoM
" MORUUNBLAEaETFÖSTUDAGtlR' 247 'NÓVEMBER-1989''
Gissur biskup Einarsson og siðaskiptin
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Tryggvi Þórhallsson: Gissur
biskup Einarsson og siðaskiptin.
reykjavík 1989. XV + 278 bls.
Bók þessi er tilkomin með nokkuð
sérstökum hætti. Svo var mál vaxið
að í júní 1917 var dósentsembætti
í guðfræðideild Háskóla íslands
auglýst laust til umsóknar. Deildin
ákvað að væntanlegir umsækjendur
skyldu þreyta samkeppnispróf. Próf
þetta var þríþætt. I fyrsta lagi
skyldu þeir semja ritgerð um tiltek-
ið efni úr kirkjusögu Islands. í öðru
lagi áttu þeir að flytja tvo fyrir-
lestra um efni úr Nýja testamentis-
fræðum. Og í þriðja stað var þeim
gert að flytja kafia úr kirkjusögurit-
gerð sinni sem þriðja fyrirlestur.
Fimm manna dómnefnd lagði mat
á hæfni umsækjenda. Ritgerðarefn-
ið var tilkynnt um leið og embættið
var auglýst og voru umsækjendum
ætlaðir 90 dagar til að semja rit-
gerðina. Verkefnið var þetta:
Aðdragandi og upptök siðaskipt-
anna hér á Islandi, afstaða Giss-
urar biskups Einarssonar til kaþ-
ólsku biskupanna Ögmundar og
Jóns annars vegar og konungs-
valdsins hins vegar, og viðgangui''
hins nýja siðar á dögum Gissurar
biskups.
Umsækjendur voru þrír: Tryggvi
Þórhallsson, Ásmundur Guðmunds-
son og Magnús Jónsson. Allir voru
umsækjendur metnir hæfir, en
Magnús Jónsson þó hæfastur og
hlaut hann embættið. Um þessa
embættisveitingu varð enginn styrr
að því er segir í formála útgefanda,
ólíkt því sem varð um þau þrjú
samkeppnispróf er síðar voru hald-
in. Eitthvert umtal hlýtur þó að
hafa orðið úr því að Guðni Jþnsson
segir svo í Sögu Háskóla íslands
(bls. 73): „Ekki var sú veiting þó
óumdeildt því að ýmsir töldu að
Tryggvi Þórhallsson hefði verið
órétti beittur." Hvað sem því líður,
fer ekki hjá því að mann fýsi að
lesa ritgerð Magnúsar hafi hún
verið betri en sú sem hér er prentuð.
Engin þessara ritgerða virðist
hafa birst á prenti áður. A.m.k. sé
ég hinna tveggja ekki getið í rita-
skrám viðkomandi manna. Það er
fyrst núna á aldarafmæli Tryggva
Þórhallssonar, 72 árum eftir að rit-
gerðin var samin, að börn hans
hafa gefið þessa ritgerð út til að
heiðra minningu föður síns. Ekki
er heldur að sjá að þau sjónarmið
eða rannsóknir sem um ræðir hafi
orðið fræðimönnum kunnar eða
haft áhrif á sagnfræðiumræðu
þeirra. Fimm árum eftir að Tryggvi
leggur fram ritgerð sína birtist ann-
að bindi af hinu mikla ritverki Páls
Eggerts Ólasonar, Menn og mennt-
ir. Fjallar hann einmitt þar um sama
efni. Hann vitnar tvisvar í Tryggva.
Annað skiptið er tilvitnunin í blaða-
grein í Tímanum, en í hitt skiptið
er heimildin munnleg. Hvergi er
vitnað í hina tvo. Má það raunar
undarlegt heita ef Páll Eggert hefur
ekki vitað um þessar þijár ritgerðir.
Ritgerð Tryggva Þórhallssonar
er 236 bls. í þessari útgáfu. Má það
teljast vel af sér vikið að semja og
ganga frá slíku verki á þrem sumar-
mánuðum, ásamt lestri allra þeirra
heimilda sem sjáanlegt er að höf-
undur hefur notað og grandskoðað.
Ritgerðin skiptist í ellefu kafla.
Fyrsti kaflinn fjallar um síra Jón
Einarsson í Odda, sem höfundur
telur fyrsta siðaskiptamanninn á
Islandi. Um Jón þennan hefur verið
býsna hljótt. Páll Eggert gerir lítið
meira en nefna hann. Annar kaflinn
segir frá aðstæðum í Skálholti og
ýmsum aðdraganda siðaskipta uns
Gissur Einarsson er kosinn til bisk-
Ups. Þriðji kafli er um Viðeyjarrán,
víg Diðriks frá Minden og dómi
þeim sem gekk þar á eftir. Það sem
eftir lifir bókar segir frá biskups-
árum Gissurar, tilraunum hans til
að koma á nýjum sið, samskiptum
hans við Ögmund Pálsson og Jón
Arason, konungsvaldi, ritstörfum
Gissurar og ýmsu fleiru. Nokkuð
er sagt frá Oddi Gottskálkssyni og
Nýja testamentisþýðingu hans.
Nokkur fylgiskjöl eru á eftir texta
ritgerðarinnar, t.a.m. eru birtir
textahlutar úr Nýja testamentis-
þýðingu Odds og til samanburðar
nýrri þýðingar sömu texta, þýðing
Lúthers og nýrri þýsk biblíuþýðing.
Þó að textabrotin séu ekki löng er
samanburðurinn fróðlegur. Sem
annað fylgiskjal er birt predikun
úr Corvinuspostillu í þýðingu Odds
Gottskálkssonar, en það var fyrsta
postilla siðaskiptamanna.
Sú spurning hlýtur óhjákvæmi-
lega að vakna er maður opnar þessa
bók, hvort það þjóni yfirleitt nokkr-
um tilgangi að gefa nú út á prenti
72 ára gamla prófritgerð. Er líklegt
að hún hafi nokkuð það fram að
færa sem sagnfræðingar hafa ekki
fjallað um á þeim tíma sem liðinn
er síðan hún var skrifuð? Því fer
auðvitað víðs fjarri að ég sé þaulles-
inn í þeim greinum sem ritgerðin
fjallar um. En úr skólalærdómi
mínum frá fimmta áratugnum og
því sem ég hef hnusað í síðan situr
einna fastast fremur óviðkunnanleg
mynd af Gissuri biskupi Einars-
syni. Mig minnir að mér hafi verið
kennt að hann hafí verið æði blend-
inn og viðsjái'verður undirhyggju-
maður, sem sveik Ögmund velgerð-
armann sinn og reyndist honum illa
Tryggvi Þórhallsson
og hafi verið óþarflega hallur undir
konungsvald. Þetta er hygg ég nú
sú mynd sem margir hafa og hún
getur naumast verið annars staðar
fengin en úr kennslubókum, sem
nemendur voru látnir læra löngu
eftir að þessi ritgerð var skrifuð. í
ritgerð Tryggva Þórhallssonar
kveður óneitanlega við nokkuð ann-
an tón. Enda þótt höfundur hafi
að því er virðist við sömu heimildir
að styðjast og aðrir, virðist mér
hann gegnumlýsa þær öllu vandleg-
ar en sumir aðrir (t.a.m. Páll Eg-
gert) og gera sér meira far um að
íhuga hvaða hvatir hafí legið að
baki gerðum Gissurar og ekki síst
þeim sem hann hefur hlotið ámæli
fyrir. Hann kemst að þeirri niður-
stöðu að Gissur hafi verið sannur
ættjarðarvinur, einstaklega vitur
maður, raunsær og snjall stjórn-
málamaður. Hann horfðist í augu
Bókaforlag Odds Björnssonar:
Ættbók íslenska hestsins, skáld-
sögur, ljóðabók og barnabækur
BÓKAFORLAG Odds Björnsson-
ar á Akureyri sendir frá sér sjö
bækur fyrir jólin, eina íslenska
skáldsögu, þýdda skáldsögu,
þrjár barna- og unglingabækur,
eina ljóðabók og Ættbók íslenska
hestsins.
Ljóðabókin er eftir Braga Sig-
uijónsson og nefnist hún Einmæli.
Ættbók og saga íslenska hests-
ins, IV. bindi, eftir Gunnar Bjarna-
son. í því er fjallað um stóðhesta
nr. 964 til 1140 og hryssum nr.
3400 til 4700. í bókinni er starfs-
saga Gunnars sem ráðunauts til
1973 og segir m.a. frá kynningu á
íslenska hestinum í Evrópu og
Ameríku, stofnun hestaklúbba er-
lendis og alþjóðasambands um
íslenska hestinn.
Við bláa voga, er skáldsaga eftir
Ingibjörgu Sigurðardóttur. Bókín
fjallar ungu elskendurna Ásrúnu
Ijósmóður og Frosta kennara.
Grallaraspóar og gott fólk, eftir
Guðjón Syeinsson, hefur að geyma
sex stuttar sögur um lífið í sveit-
inni og þau mörgu ævintýri sem
börn á aldrinum 10-14 ára upplifa
þar.
Litla systir Depils, eftir Erik Hill
er ný barnabók um Depil sem hefur
eignast systur.
Maríuhænan. Gestur í garðinum,
eftir Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur.
Sagan fjallar um maríuhænuna sem
barst með jólagreninu inn í garð á
íslandi þar sem hún tekur sér ból-
festu í stóru öspinni ásamt fleiri
smádýrum.
Sandkorn tímans, eftir Sidney
Shelton, fjallar um Ijórar nunnur
sem neyðast til að yfirgefa klaustr-
ið og blandast inn í grimmilega
baráttu hreyfingar Baska og
spænska hersins.
Dagur Sigurðarson
Ljóðasafii Dags Sigurðarsonar
Út er komið hjá Máli og menn-
ingu ljóðasafnið Glímuskjálfti
(Ijóð 1958-1988) eftir Dag. í safn-
inu er að finna 11 eldri ljóðabæk-
ur Dags, og auk þess ný ljóð frá
síðasta ári sem ekki hafa áður
birst.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Dagur Sigurðarson varð strax með
sinni fyrstu ljóðabók, Hlutabréf í
sólarlaginu, _ eitt af • umdeildustu
skáldum á íslandi. í ljóðum hans
var talað tæpitungulaust um hvað-
eina og það á ljóðmáli sem oft gat
verið gagnorðara en annar íslensk-
ur kveðskapur um þær mundir.
Ýmsir töldu ljóð Dags marka tíma-
mót. Hann færði út landamæri
íslenskrar ijóðlistar, jók við yrkis-
efni hennar. Dagur þótti stóryrtur
í ljóðum sínum um íslenskan veru-
leika, en hann á líka til viðkvæma
strengi ástarljóða auk þess sem
hann hefur þýtt ljóð heimskunnra
skálda.“
Glímuskjálfti er 339 blaðsíður.
Ingibjörg Eyþórsdóttir gerði kápu.
Bókin er prentuð hjá Steinholti hf.,
en Félagsbókbandið Bókfell sá um
bókband.
við staðreyndir, sem gátu orðið
íslensku þjóðinni þungar í skauti,
og með viturlegri stjórn sinni tókst
honum að afstýra miklum voða.
Hinir örlagaþrungnuscu atburðir
urðu ekki fyrr en eftir dauða hans
(aftaka Jóns Arasonar o.fl.). Menn
geta velt því fyrir sér hvort sagan
hefði kannski orðið eitthvað önnur,
ef honum hefði orðið lengra lífs
auðið. En Gissur andaðist árið 1548
aðeins 33 ára að aldri.
Fyrir mig, sem ekki hef hugsað
um siðaskiptin í þessu ljósi, er þetta
nokkuð ný sýn og íhugunarverð og
ég vona að fáfræði mín sé ekki svo
yfirþyrmandi að ýmsum öðrum þyki
þetta ekki einnig lærdómsrík um-
fjöllun.
Miðað við hversu skamman tíma
höfundur hafði til þessa verks og
að honum var fengið það í hendur
án þess að hann ætti sjálfur hlut
að vali þess, finnst mét' undravert
hversu vel og vandvirknislega það
er unnið. Sjálfsagt hefði hann
snurfusað það eitthvað betur, ef um
prentun hefði verið að ræða. En
textinn er vissulega vel skrifaðui'
og afar áhugaverð lesning. Fram-
setning er í góðu jafnvægi, yfii-veg-
uð og fordómalaus og öll rökfærsla
og tilgátur vendilega studd tilvísun
í heimildir. Þetta er því góð bók,
sem í raun hefði þurft að koma út
löngu fyrr. Að minu viti á hún fullt
erindi til lesenda nú.
Klemens Tryggvason, sonur höf-
undar, hefur annast útgáfuna. Það
hefur hann gert með miklum ágæt-
um. í upphafi bókar ritar hann
gagnlegan formála. Tilvísunum
höfundar og athugasemdum hefur
hann raðað eftir köflum textans í
bókarlok og bætt við ýmsum skýr-
ingum sem eru sérstaklega auð-
kenndar. Þá er í lokin einkar vönd-
uð skrá yfir mannanöfn og staða-
heiti, sem bersýnilega hefur kostað
mikla yfirlegu að vinna. Skrá er
yfír heimildir og skammstafanir.
Þá et' loks þess að geta sem mikil
bókarpi-ýði er að, en það eru hinar
skenímtilegu myndir sem eru á 52
sérstökum myndasíðum auk fá-
einna annarra mynda. Sumum þess-
ara mynda fylgja langir og fróðleg-
ir textar. Þá eru allmörg rithanda-
sýnishorn og myndir af innsiglum
frá siðaskiptatímum. Prófarkir virð-
ast hafa verið afar vel lesnar. Bók-
in er bundin í smekklegt og lát-
laust band.
Það er því full ástæða til að
færa útgefendum þakkir fyrir þetta
ágæta verk og hvernig þeir hafa
að frágangi þess staðið.
Vallarás - til sölu
Hagstætt fyrir handhafa húsnlánsloforða
2ja herb. íbúðir á kr. 4,350 þús.
3ja herb. íbúðir á kr. 5,650 þús. (án þílskýlis)
íbúðirnar afhendast fullbúnar í apríl 1990 án gólfefna.
Sameign og lóð fullfrágengin. Fáar íbúðir eftir.
Einnig fullb. 3ja herb. íb. vA/íkurás. Mikið áhv. Laus strax.
Geymið auglýsinguna.
Fasteigna- og skipasala
Eignahöllin HHKJ
Hilmar Victorsson viöskiptafr.
Kvöld- og helgarsími 672203.
Bók um hugmyndasögu
KK SENPUM í PÓSTKRÖFU
to Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
'Armúla 16 • Reykjavik • sími 38640
MÁL og menning hefúr gefið út
bókina Hugmyndasaga eftir Ólaf
Jens Pétursson. I kynningu frá
útgefanda segir m.a:
„Höfundur rekur sögu hugmynd-
anna allt frá fyrstu menningarríkj-
unum til allra síðustu ára. Les-
andinn er á skýran og einfaldan
hátt kynntur fyrir öllum helstu
hugsuðum sögunnar og hugmynd-
um þeirra um trúmál, stjórnmál,
raunvísindi og hugvísindi. Höfundur
kappkostar jafnframt að rekja þró-
Ólafur Jens Pétursson
un slíkrar umræðu og fræðiiðkana
á Islandi frá miðöldum til nútímans.
Hugmyndasaga er aðgengilegt
yfírlitsrit fyrir skólafólk og aðra þá
sem kynna vilja sér fræðigreinina
í fyrsta sinn.“
Ólafur Jens Pétursson er tækni-
skólakennari. Hann hefur lokið há-
skólaprófum í ísiensku, dönsku og
sagnfræði frá Háskóla Islands og
lagt stund á framhaldsnám í hug-
myndasögu í Danmörku. Bókin er
332 bls. að stærð og unnin í Prent-
smiðjunni Odda hf.