Morgunblaðið - 24.11.1989, Síða 11
Endurminningar
Stefáns Jónssonar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NOVEMBER 1989
I 'MJIUT
! . ,) . s 1 ’ ■ i i ' l ■
BOKAUTGAFAN Forlagið hefiir
sent frá sér bókina Lífsgleði á
tréfæti með byssu og stöng eftir
Stefán Jónsson, rithöfund.
í kynningu Forlagsins segir m.a.:
í þessari bók segir Stefán sögu
ástríðunnar að veiða. Stefán kveðst
hafa vitað það allar götur frá barn-
æsku að honum var ætlað að veiða.
Ævilangt hefur hann skoðað um-
hverfi sitt augum veiðimanns með
öllu kviku og kyrru - í öllu starfi
sínu hefur hann athugað viðfangs-
efnin af sjónarhóli veiðimannsins
og glímt við þau með aðferðum
hans.
„Bókin um lífsgleði á tréfæti er
margslungin saga - full af mann-
viti, hjartahiýju og óborganlegum
húmor. Öðrum þræði er þetta hálfr-
ar aldar lýsing ástríðunnar að veiða,
sem er réttlæting þess að lifa -
þrátt fyrir allt. En utan um þá sögu
lykst önnur saga af sálarháska
unglings sem svipti hann lífsgleð-
inni um árabil, uns hann fann hana
aftur.“
Lífsgleði á tréfæti með byssu og
stöng er 208 bls. Árni Elfar mynd-
skreytti bókina en Guðrún Ragnars-
dóttir hannaði kápu. Prentsmiðjan
Oddi hf. prentaði.
11
í1
Stefán Jónsson
Síldarsaga eftir
Birgi Sigurðsson
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefiir
sent frá sér bókina Svartur sjór
af síld — Síldarævintýrin miklu
á sjó og landi eftir Birgi Sigurðs-
son rithöfund.
í kynningu Forlagsins segir m.a.
um bókina að í henni endurveki
Birgir áhrif síldarinnar á mannlíf
og þjóðlíf í hundrað ár. „Hér eru
leiddir fram á sjónarsviðið síldar-
spekúlantar, stórbrotnir athafna-
menn, aflakóngar, síldarstúlkur,
hásetar og verkamenn. Bókin
geymir ógrynni heimilda um þróun
síldarútvegsins, frásagnir og samtöl
um líf og störf karla óg kvenna sem
upplifðu síldarævintýrin miklu.“
„Birgir Sigurðsson er þjóðkunnur
fyrir áhrifamikil leikrit. Síðasta
leikrit hans, Dagur vonar, var til-
nefnt til Bókmenntaverðlaúna
Norðurlandaráðs og naut mikillar
hylli. Hér segir hann síldarsögu
þjóöarinnar með skáldlegu innsæi.
Furðulegar uppákomur, stór-
skemmtileg og spaugileg atvik, ró-
mantík og fegurð, þrældómur og
vonbrigði vefjast saman í lifandi og
spennandi frásögn. Þetta er ekki
þurr sagnfræði heldur síldar-
stemmningin sjálf til sjós og lands
í öllu sínu veldi.“
Svartur sjór af síld er 362 blað-
síður í stóru broti. Bókina prýðir
hátt á annað hundrað mynda sem
varpa eftirminnilegu ljósi á horfna
tíð. Anna Ágústsdóttir teiknaði
Bókin um bakverki
Bækur
Birgir Sigurðsson
kápu. Prentsmiðjan Oddi hf. prent-
aði.
Katrín Fjeldsted
Höfimdur: John Tanner.
Þýðandi: Sigurður Thorlacius,
læknir.
Útgefandi: Iðunn, Reykjavík,
1989.
Setning og fíhnuvinna: Prent-
smiðjan Oddi hf.
Prentuð í Hong Kong.
Út er komin ný bók í bókaflokkn-
um „Heilsuvernd heimilanna", í
þetta sinn um bakverki. Ég skrifaði
ritdóm um bók um hjartasjúkdóma
fyrir Morgunblaðið í fyrra og fann
henni margt til foráttu.
Undirtitill nýju bókarinnar er
„Hagnýt leiðsögn um forvarnir og
meðferð". Höfundurinn, John Tann-
er, er læknir að mennt og sérfræð-
ingur í bæklunarlækningum eins
og fram kemur í upphafi bókarinn-
ar. Hann hefur kynnt sér óhefð-
bundnari aðferðir og sjúkraþjálfun,
ekki síst endurhæfingu fyrir slasaða
íþróttamenn.
Bókinni er skipt í 15 kafla. Hún
er afar læsileg og fróðleg og þýdd
á lipurt mál. Fyrstu tveir kaflarnir
eru um það hver fái bakverki og
hvernig heilbrigt bak sé. Þar fær
lesandinn prýðilega lýsingu á upp-
byggingu stoðkerfisins með ágæt-
um skýringarmyndum. Þriðji
kaflinn er til þess að hjálpa fólki
að skilja sinn eigin bakverk, greina
að einhveiju leyti hvað sé að gerast
og hvort nauðsynlegt sé að leita
læknis. í fjórða kafla er bráðum
og langvinnum bakverkjum lýst og
í kaflanum á eftir er sagt frá því,
hvernig hægt er að bregðast við
sjálfum sér til hjálpar.
Frá og með 6. kafla er komið
að hlutverki læknisins og annarra
heilbrigðisstarfsmanna sem þátt
eiga í meðferð. Sagt er frá þeim
aðferðum sem heimilislæknir getur
gripið til, bæði hvað varðar grein-
ingu og meðferð og í framhaldi af
því hvers er að vænta þegar heimil-
islæknirinn sendir sjúkling til sér-
fræðings. Þá er rætt um sjúkra-
þjálfun, ekki bara um heita og kalda
bakstra, nudd og tog, heldur að-
ferðir eins og þá sem kennd er við
Maitland og miðar að því að losa
um liðamót í hrygg og víðar. Skýrð-
ur er grundvöllur undir ýmsum að-
ferðum sem beita rafeindatækni,
þar á meðal hljóðbylgjum, stutt-
bylgjum og víxlbylgjumeðferð.
I 8. kafla er því lýst hvernig lið-
losun og hnykkingar (osteopathia
og kírópraktík) fara fram. 9. kafli
er um lyf og sprautumeðferð og sá
10. um skurðaðgerðir. Síðan er
fjallað um nálarstunguaðferðina og
um aðrar aðferðir, svo sem dá-
leiðslu, hugleiðslu, aðferð Alexand-
ers og aðferð Feldenkrais, líforku-
þjálfun og hómópatíu.
Það sem mér finnst jákvæðast
við þessa bók er hve vel efninu er
komið til skila og hve fróðlegt er
að lesa hana, bæði fyrir bakveika
og líka fyrir fagfólk, hvað þá fyrir
bakveikt fagfólk. Allir vita hve al-
gengir bakverkir eru og að þeir
valda umtalsverðu vinnutapi hér á
landi. Fróðleg bók af þessu tagi er
til þess fallin að hjálpa fólki að
skilja þreytuna eða verkinn í bak-
inu, vita hvenær rétt er að leita
læknishjálpar og við hveiju er að
búast af lækninum og þeim sem
hann kann að vísa sjúklingnum til.
Hjálp fyrir sjúklinginn gegnum
myrkviði heilbrigðiskerfisins og
veitir víst ekki af.
Þetta er bók sem bókasöfn ættu
að eiga í mörgum eintökum og
stilla upp á áberandi stað.
Hershöfðinginn í
völundarhúsi sínu
Sagan kom fyrst út á Spáni
haustið 1988 og hefur hlotið ein-
róma lof gagnrýnenda. Guð-
bergur Bergsson rithöfimdur
þýddi.
I kynningu frá Forlaginu segir:
„Með sannrmá segja að heimurinn
bíði í ofvæni eftir hverri nýrri bók
frá hendi Nóbelsskáldsins frá Kól-
umbíu. Hershöfðinginn í völundar-
húsi sínu íjallar um frelsishetjuna
Símon Bolívar sem frelsaði heila
heimsálfu undan nýlenduvaldi
Spánveija. Sagan lýsir síðustu ævi-
dögum hans þar sem hann hrekst
um dauðveikur, rúinn valdi og vin-
um, rifjar upp íiðna tíð og spyr sjálf-
an sig um tilgáng baráttunnar.
Gabriel García Márquez dregur
upp magnaða mynd af þeim veru-
leika sem liggur að baki sögunnar
um byltingarhetjuna. Hann afhjúp-
ar dýrðina sem sagan sveipar frels-
ishetjur á hverri tíð. Vekur spurn-
ingar um eðli valdsins og afleiðing-
Ný skáldsaga
eftir Gabriel
García Marquez
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið heftir
sent frá sér skáldsöguna Hers-
höfðinginn í völundarhúsi sínu
eftir Gabriel García Márquez.
Fyrsta bók Barnabókaútgáfunnar
OVÆNT heimsókn nefnist ný
frumsamin barnabók sem Barna-
bókaútgáfan gefur út en útgáfan
var stofiiuð í janúar 1989 og er
þetta fyrsta bókin frá henni.
Höfiindur texta er Árni Árnason
en Anna Cynthia Leplar höfund-
ur mynda.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Sagan greinir frá því hvernig hall-
arbúar í Skuggabjörgum hrökkva
upp við það að Hugi kóngssonar
hefur horfið á dularfullan hátt. Frá
örófi alda hafa þeir búið um sig
innan múra hallarinnar í þeim til-
gangi að veijast hugsanlegum óvin-
um. Sagan fjallar um leitina að
Huga og hvað gerist þegar brotist
er úr ’ einangruninni, en umfram
allt er þetta saga Huga og hvernig
gerðir hans verða til þess að koma
ráðamönnum ríkisins í samband við
annað fólk.“
Óvænt heimsókn er 64 síður.
Litgreining, prentun og band er
allt unnið í prentsmiðjunni Odda hf.
(Frcttatilkynning)
Árni Árnason
ar þess fyrir einstaklinga og þjóðir."
Hershöfðinginn í völundarhúsi
sínu er 208 blaðsíður. Guðrún
Tryggvadóttir hannaði kápu. Prent-
smiðjan Oddi hf. prentaði.
Þ.ÞORGRÍMSSON &C0
rARMA
W PLAST
ARMULA 16 OG 29, S. 38640
KAUPTU NÚNA - BORGAÐU Á NÆSTA ÁRI
Afgreitt beint af lager!
HÚSHLUTIR HF.,
Hringbraut 119, sími 625045
Opið frá 9-18, laugardaga frá kl. 11-15.