Morgunblaðið - 24.11.1989, Síða 13
MORGUNBhAÐlD FÖSTUDAGUR 24. NOVEMBER 1989_
Hellamennska - Hellarannsóknafélag
eftir'Aðalheiði E. As-
mundsdóttur, Önnu
G. Stefánsdóttur,
Björn Hróarsson og
Sigurð Svein Jónsson
Hellafræði (e: speleology) er al-
þjóðleg vísindagrein sem Islending-
ar hafa mjög lítið sinnt. Á íslandi
er mikið af merkilegum hellum;
hraunhellum, íshellum, móbergs-
hellum og manngerðum hellum.
Erlendir vísinda- og ævintýramenn
hafa hins vegar skipulagt marga
leiðangra hingað *til lands. Hafa
þeir kortlagt um tug af okkar
stærstu hellum og stundað þar
margvíslegar rannsóknir. Niður-
stöðurnar hafa birst í erlendum
tímaritum um hellafræði.
Hellafræði var grundvölluð sem
vísindagrein um síðustu aldamót og
er stunduð við marga þekkta há-
skóla. Hellafræði samanstendur
m.a. af fomleifafræði, jarðfræði,
landmælingum, líffræði, vatna-
fræði, veðurfræði og síðast en ekki
síst ævintýramennsku.
Á Islandi er nú vitað um á annað
hundrað hraunhella. Meðal þeirra
eru fegurstu og stærstu hraunhellar
á jörðinni, þó ekki teljist þeir meðal
hinna lengstu. Undir Vatnajökli er
einnig vitað um stóra íshella, t.d.
Kverkfjallahellinn sem er 3,2 km
langur og talið er að stór hellir finn-
ist í undirheimum Grímsvatna. Þá
em ótaldir móbergshellarnir og
manngerðir hellar.
Eggert Ólafsson og Bjarni Páls-
son rituðu um nokkra hella og skoð-
uðu suma þeirra. Þeir könnuðu t.d.
Surtshelli árið 1754 og vom fyrstir
manna svo vitað sé til að ganga
hann á enda. Þorvaldur Thoroddsen
kannaði hella nokkuð á yfirreið
sinni um landið á ámnum í kringum
aldamótin 1900. Sigurður Þórarins-
son jarðfræðingur gaf hraunhellum
örlítið af sínum tíma. Hann skoðaði
m.a. Gullborgarhellana. Guðmund-
úr Kjartansson jarðfræðingur ber
höfuð og herðar yfir íslenska hella-
könnuði fyrr á árum. Guðmundur
lýsir mörgum hellum og ritar um
myndun þeirra. Það er svo ekki
fyrr en á síðustu árum sem íslend-
ingar fara að stunda hellarannsókn-
ir í einhverjum mæli og þá gjarnan
hver í sínu horni. Á síðustu árum
hafa fundist íjölmargir nýir hraun-
hellar, margbreytilegir að gerð.
Höfundar þessarar greinar em
meðal þeirra Islendinga sem stund-
að hafa hellarannsóknir hérlendis á
síðasta áratug. Þeir eru hins vegar
töluvert fleiri sem áhuga hafa á
hellum en gallinn er að á íslandi
eiga hellaáhugamenn sér ekki félag.
í flestum löndum jarðar em starf-
andi hellafélög eða „klúbbar" og
skiptajþau hundruðum í stærri lönd-
um.
Undirrituð sóttu alþjóðlega hella-
ráðstefnu í Búdapest í ágústmánuði
síðastliðnum. Þar hittust á annað
þúsund hellaáhugamenn víðs vegar
að af jörðinni og báru saman bæk-
ur sínar. Fjölmörg erindi vóru flutt,
bæði vísindaleg og frá áhugamönn-
Höfundar greinarinnar.
um, auk þess myndasýningar og
aðrar uppákomur. Á þessari al-
þjóðlegu hellaráðstefnu sóttu undir-
rituð um inngöngu í alþjóðasamtök
hellamanna og á lokadegi ráðstefn-
unnar var íslandi veitt innganga
með öllum greiddum atkvæðum.
ísland er sem sagt orðið aðili að
alþjóðasamtökum hellamanna,
„Union International de Speleo-
logie“.
Betra seint en aldrei og í fram-
haldi af þessum tímamótum er
nauðsynlegt að stofna félag hella-
áhugamanna á íslandi, Hellarann-
sóknafélag íslands, en áform um
stofnun slíks félags hafa lengi verið
uppi.
Á ráðstefnunni í Búdapest náði
íslenska sendisveitin góðum sam-
böndum við hellaáhugamenn í ljöl-
„Nauðsynlegt er að
stofna félag hella-
áhugamanna á íslandi,
Hellarannsóknafélag
Islands, en áform um
stofiiun slíks félags hafa
lengi verið uppi.“
mörgum löndum. Má þar sérstak-
lega nefna Tékka, Svisslendinga,
Bandaríkjamenn, Svía, Hollend-
inga, Búlgara og Breta.
ísland og íslenskir hellar fengu
einnig góða viðurkennirigu á ráð-
stefnunni. Má þar fyrst nefna að
Björn Hróarsson jarðfræðingur
vann til gullverðlauna í samkeppni
13
---------------%---------------S1
um béstu litskyggnurnar mnan úr
hellum. Fjölmargir aðilar sendu inn
litskyggnur frá mörgum löndum
jarðar og bar ísland sigur úr býtum.
Það sem gerir þenna sigur e.t.v.
stærri er að ráðstefnan í Búdapest,
sem og hellafræðin almennt, snerist
aðallega um kalkhella en myndir
Björns eru innan úr íslenskum
hraunhellum s.s. Arnarkeri, Jörundi
og Vörðuhelli. Bestu hellakvik-
myndina átti Svisslendingurinn
Gerald Favre. Er myndin tekin í
íshelli sem gengur suður undir
Vatnajökul inn frá Kverkfjöllum.
Hellarannsóknafélagið er stofnað
í því augnamiði að örva rannsóknir
og athuganir á ísienskum hellum.
Hafa umsjón með rannsóknum og
leiðöngrum í íslenska hella. í félagi
sem þessu ættu íslenskir hella-
áhugamenn að sameina krafta sína.
Félagið þyrfti að skrásetja hélla á
íslahdi og standa fyrir fundum og
útgáfustarfsemi. Þá þyrfti félagið
að auka þekkingu almennings á
íslenskum hellum. Beita sér sér-
staklega fyrir verndun þeirra og
starfa í nánu sambandi við Náttúru-
verndarráð og aðrar stofnanir er
málið varðar.
Nú er í undirbúningi leiðangur
þriggja þjóða hingað til lands árið
1991 til að skoða íslenska hella.
Þar þyrfti Hellarannsóknafélag ís-
lands að hafa eftirlit og umsjón.
Ákveðið hefur verið að stofn-
fundur Hellarannsóknafélags ís-
lands verði á Öldunni, Hótel Loft-
leiðum, laugardaginn 25. nóvember
nk. og verður fundurinn settur
klukkan 15.00. Þar verða lög fé-
lagsins samin og samþykkt og rætt
um starfsemi félags sem þessa. Þar
verður og kosið í stjórn félagsins.
Allir áhugamenn um hella eru
hjartanlega velkomnir á Hótel Loft-
leiðir til að verða stofnfélagar
Hellarannsóknafélags íslands og
taka þátt í frummótun félagsins.
Höfimdarhafa allir stundaö
hellarannsóknir.
RÍÓ, VALGEIR OG SOLIN
Enn stendur yfir afmælishátíð í Miklagarói og í dag
og á morgun koma til okkar landsþekktir listamenn,
sem leika og syngja lög af nýútkomnum plötum sínum
og árita þær.
RÍÓ - EKKIVILL ÞAÐ BATNA
—i—.
IMIKLAGARÐI
löstudag kl. 16-18
Þér er boóið að hlusta á skemmti-
legustu hljómsveit landsins kynna lög
af sinni bestu plötu hingað til og kaupa
hana áritaða af þeim félögum.
VALGEIR GUÐJÓNSSON
- GÓDIR ÁHEYRENDUR
föstudag kl. 16-18
Valgeir stígur á stokk og spilar ný lög
af splunkunýrri plötu sinni, sem vægast
sagt er einhver sú albesta plata sem
við höfum heyrt í lengri tíma. Valgeir
mun árita plötu sína fyrir kaupendur.
SÍÐAN SKEIN SÓL
- ÉG STEND Á SKÝI
laugardag kl. 1 1.30 - 13.30
Síðan skein sól kemur á laugardag
og kynnir og áritar nýútkomna plötu
sína, sem er eitt vandaðasta verk sem
út hefur komið á íslandi. Plata fyrir þá,
sem vilja aðeins það besta í tónlist.
T O P P
T U
UG U
LP/KASS. CD
1. BUBBI MORTHENS - NÓTTIN LANGA 1.299 1.699
2. SÁLIN HANS JÓNS MÍNS 1.299 VÆNTANL.
3. RÍÓ - EKKI VILL ÞAÐ BATNA 1.299 VÆNTANL.
4. HLH - HEIMA ER BEST 1.299 1.699
5. HALLBJÖRN HJARTARSON - KÁNTRÝ 5 1.299 -
6. ÖRVAR KRISTJÁNSSON - FRJÁLSIR FUGLAR 1.299 -
7. TODMOBILE - BETRA EN NOKKUÐ ANNAÐ 1.299 VÆNTANL.
8. ERIC CLAPTON - JOURNEYMAN 1.099 1.699
9. RÚNAR ÞÓR PÉTURSSON - TRYGGÐ 1.299 -
10. NÝ D0NSK - EKKI VERÐUR Á ALLT KOSIÐ 1.299 VÆNTANL.
11. EIRÍKUR HAUKSSON - SKOT í MYRKRI 1.299 VÆNTANL.
12. LAMBADA - ÝMSIR 1.099 1.699
13. PHIL COLLINS - BUT SERIOUSLY 1.099 1.699
14. BILLY JOEL - STORM FRONT 1.099 1.699
15. ALICE COOPER - TRASH 1.099- 1.699
16. TINA TURNER - FOREIGN AFFAIR 1.099 1.699
17. GIPSY KINGS - GIPSY KINGS 1.099 1.699
18. MÖTLEY CRUE - DR. FEELGOOD 1.099 ' 1.699
19. TRACY CHAPMAN - CROSSROADS 1.099 1.699
20. SYKURM0LAR - ILLUR ARFUR 1.099 1.699
ATH. SAMA VERÐ GILDIR
Í KAUPSTAÐ Í MJÓDD
jyx
MIKLIGJRÐUR