Morgunblaðið - 24.11.1989, Qupperneq 22
S£
22rz
e8ex «aaMavðH as HUOAau'rsö'-i giaAjanuoflOM
Líbanon:
Friðarumleitun-
um haldið áfram
Morðið á Muawad, forseta landsins,
fordæmt víða um heim
Jerúsalem, Baalbeck, Algeirsborg. Reuter.
Arababandalagið hefur boðað
að áfram verði reynt að binda
enda á átökin í Líbanon. Hátt-
settur ísraelskur embættismað-
ur sagði í viðtali við Reuters-
fréttastofima í gær að stjómvöld
í Israel hefðu ekkert að athuga
við viðleitni Sýrlendinga til að
koma á stöðugleika í Líbanon.
Sagði hann ísraelska ráðamenn
harma dauða Rene Muawad, for-
seta Líbanons, sem óþekktir
hryðjuverkamenn myrtu í Beir-
út á miðvikudag.
Yossi Olmert yfirmaður Qöl-
miðlaskrifstofu ísraelsku ríkis-
stjómarinnar sagði að Israelar
hugsuðu fyrst og fremst um eigin
öryggishagsmuni í Suður-Líbanon.
Sýrlendingum væri fijálst að leita
leiða til að koma á stöðugleika í
þessu stríðshijáða iandi svo fram-
arlegu sem sú viðleitni þeirra færi
saman við alþjóðalög og hagsmuni
líbönsku þjóðarinnar. Kom þéssi
yfirlýsing nokkuð á óvart en 01-
mert lagði áherslu á að hann tal-
aði í nafni ríkisstjómar Israels.
Arababandalagið hyggst halda
áfram friðarumleitunum sínum í
Líbanon að því er talsmaður þess
sagði í gær en sá lét þess getið
að ný áætlun hefði ekki verið sett
saman. Almennt er iitið svo á að
morðið á Muawad sé mikið áfall
fyrir þá sem reynt hafa að stilla
til friðar í landinu. Muawad var
kjörinn þann 5. þessa mánaðar í
samræmi við friðaráætlun Araba-
bandalagsins og hafði því aðeins
verið 17 daga í embætti er hann
var myrtur. Morðið hefur verið
fordæmt víða um heim en jafn-
framt hafa þjóðarleiðtogar hvatt
til þess að áfram verði reynt að
koma á friði í landinu og þjóðarein-
ingu þrátt fyrir illvirki þetta.
Líbanskir þingmenn komu sam-
an í gær til að ræða hvemig standa
skuii að kjöri næsta forseta lands-
ins. Er talið liklegt að eftirmaður
Muawad forseta verði valinn í
næstu viku.
Reuter
Hústökumenn flæmdirá brott
Lögreglan í Amsterdam í Hollandi skipaði í gær um 200 hústöku-
mönnum sem tekið höfðu sér bólfestu í gömlum byggingum við
höfnina, að hafa sig á brott. Flestir þeirra sem bornir voru út
voru Bretar en ákveðið hefur verið að rífa gömlu byggingarnár
og reisa þar íbúðahús. Hústökumenn hafa mótmælt þessum áform-
um harðlega og á mánudag neyddust lögregíumenn til að nota
jarðýtur er þeir brutu sér leið gegnum vegatála sem hústöku-
menn höfðu hlaðið og síðan borið eld að. Á myndinni bera tveir
Bretar eigur sínar út úr einu húsinu.
Grikkland:
Boða hækkan-
ir og stóraukið
skattaeftirlit
A^enu. Reuter.
ÞJOÐSTJÓRN nýdemókrata, só-
síalista og kommúnista í Grikk-
landi tók við völdum í gær og
boðaði hækkanir á ýmsum nauð-
synjum almennings.
Fjárlagahalli er orðinn geigvæn-
legur enda lítt verið tekið á efnahags-
vandamálum að undanförnu vegna
upplausnarástands í stjórnmálum.
Verð á rafmagni, gasi, vindlingum
og fargjöldum í samgöngutækjum
hins opinbera hækkar þegar í stað.
Samkvæmt áætlun stjórnvaida
verður hækkunum á allri opinberri
þjónustu hrundið í framkvæmd og
fer umfang hækkananna eftir því
hve illa hvert ríkisfyrirtæki stendur
fjárhagslega. Einnig verður skatta-
eftirlit hert stórlega en reiknað, er
með því að milli 30 og 35% af þjóðar-
framleiðslunni komi hvergi fram á
skýrslum.
Fundur leiðtoga risaveldanna í næsta mánuði:
Tímabært að stórveldin
bindi enda á kalda stríðið
- segir George Bush Bandaríkjaforseti
Washington. París. Rcutcr.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti
sagði í ræðu er hann flutti á mið-
vikudagskvöld að hann hygðist
hvetja Míkhaíl S. Gorbatsjov Sov-
étforseta til að íjarlægja allar þær
hindranir sem enn væru í vegi
eðlilegra samskipta austurs og
vesturs er forsetarnir koma sam-
an til fundar við Möltu í næstu
viku. Þannig gætu Sovétmenn og
Bandaríkjamenn í sameiningu
bundið enda á kalda stríðið.
Þeir Bush og Gorbatsjov munu
koma saman til fundar um borð í
#HITACHI
Hdgeeöa /eröatœki
Stereo 80 x 3D
Verð frá: 22.100*
Ómetanlegt tœkifœri
til að fjdrfesta í
hljómtœkjum á
viðráðanlegu verði.
Stereo feröatceki
Með fjórum bylgjum
og segulbandi.
Verð frá: 8.100*
Mini samstceöa
2 x 50 wött með geislaspilara.
Verð frá: 51.900*
herskipum á Miðjarðarhafi undan
ströndum Möltu 2. og 3. desember.
Fundurinn verður óformlegur en í
vor eða sumar mun Gorbatsjov halda
til Washington til viðræðna við Bush
forseta.
í ræðunni, sem var sjónvarpað,
sagði Bush að á fundinum hygðist
hann fullvissa Sovétleiðtogann um
það að Bandaríkjamenn fögnuðu
þeim umbótum sem átt hefðu sér
stað í Austur-Evrópu. Forsetinn
sagði að Gorbatsjov yrði heitið
stuðningi Bandaríkjamanna en bætti
við að það væri margra ára verkefni
að koma samskiptum austurs og
vesturs í eðlilegt horf. „Við erum
ekki að koma saman til að ákvarða
framtíð Evrópu því vitaskuld eru það
íbúar Evrópu sem sjálfir móta eigin
framtíð," sagði Bush. Hann bætti
því við að aðildarríki Atlantshafs-
bandalagsins þyrftu ekki að óttast
að teknar yrðu mikilvægar ákvarð-
anir á, fundi þeirra Gorbatsjovs við
strendur Möltu en nokkuð hefur
borið á áhyggjum manna yfír því
að Möltu-fundurinn verði svipaður
fundinum í Reykjavík árið 1986 er
ráðamönnum NÁTO þótti Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti hafa farið
of geyst og án nægilegs samráðs
við þá í viðræðum sínum við Gorb-
atsjov.
Bush vék að uppgjöf kommúnista
í nokkrum ríkjum Austur-Evrópu og
sagði þetta „gleðilegan endi á einum
sorglegasta kafla mannkynssögunn-
ar“. Bandaríkjamenn vildu fá trygg-
ingar frá Gorbatsjov fyrir því að
Sovétmenn hefðu ekki afskipti af
umbótastefnu stjórnvalda í nágrann-
aríkjunum.
Forsetinn lýsti yfir því að hann
myndi hvetja Gorbatsjov til að „fjar-
lægja síðustu hindranirnar" í vegi
frelsisins. Þannig yrði unnt að binda
enda á kalda stríðið í eitt skipti fyr-
ir öll. Þótt Berlínarmúrinn hefði ver-
ið opnaður væru enn til staðar ósýni-
legir múrar sem spilltu samskiptum
austurs og vesturs. Þetta væru hinir
hinir efnislausu múrar efasemda,
misskilnings og mistúlkana.
Hljómtcekjasamstœöa
Midi HIFI 2 x 60 wött
geislasþilara. Án skáps.
Verð frá: 61.900*
STEREO feröatceki.
Með tónjafnara, tvöföldu
segulbandi - hraðaupptöku og
fjórum bylgjum, einstakt tceki.
Verð frá: 13.400*
Vasadiskó.
JSTEREO, FM, AM og
segulband. Góður
. hliómur.
Veröjm: 5.600*
RONNING
mr
Viö erum ekki bara hagstceöir... KRINGLAN ...viö erum betri S: 68 58 68
Zurich:
Dýrustu frímerki
heims enn óseld
ZUrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
EFTIRVÆNTING ríkti þegar
tvö 142 ára gömul eins-pennís
frímerki frá Mauritius á umslagi
til Bombay komu undir hamar-
inn á frímerkjauppboði Christ-
ie’s/Robson Lowe uppboðshald-
aranna í Ziirich á miðvikudags-
kvöld.
Fyrirtækið hafði reiknað með
að þau kynnu að fara á 111 til
155 milljónir ísl. króna. Þau voru
boðin til sölu á 46,2 milljóhir í
upphafi og ruku á augabragði upp
í 100,1 milljón. Enginn í þéttskip-
uðu herberginu bauð betur og
frímerkin voru slegin uppboðsfyr-
irtækinu sjálfu.
Mauritius-merkin eru dýrustu
frímerkin sem nokkurn tíma hafa
verið boðin upp. Starfsmaður
Christie’s, dr. Jeffrey Schneider,
sagði Morgunblaðinu að eigendur
frímerkisins, bræðumir Rodger og
Raymond Weill í New Orleans,
hefðu viljað meira fyrir merkin.
._! :,v
Frímerkin eru einstök fyrir þær
sakir að mistök urðu við gerð
prentmótsins þannig að á jöðrum
frímerkjanna stendur „Pósthús"
(Post Office) í stað „Burðargjald
greitt“ (Postage Paid).