Morgunblaðið - 24.11.1989, Qupperneq 31
.11
AUiJT?.n,’i GK
fmiioíLOW
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1989
3h
Hver er William Valgardson?
cflir Sigmar
Þormar
William D. Valgardson er rithöf-
undur frá Nýja Islandi. Smásögur
hans og skáldsaga fjalla tíðum um
fóik af íslensku bergi í Kanada. Höf-
undur nýtur vinsælda í Ameríku,
enda segir hann skýrt og skemmti-
lega frá. Þótt furðulegt megi teljast
er William Valgardson hingað til
lands á Kanadadögum í byijun októ-
ber sl. og fyrsta íslenska útgáfan á
verkum hans, kynningarrit með smá-
sögunni Blóðrót, kom út í tilefni
Kanadadaga.
A ráðstefnu á Hótel Sögu þann
9. október, sem fjallaði um viðskipti
íslands og Kanada, kom fram skýr
niðurstaða; tengsl íslands og Kanada
þarf að stórefla, jafnt á sviði menn-
ingar, sem verslunar og viðskipta.
William Valgardson er kjörinn full-
trúi tii að efla þau tengsl. Þó í æðum
sögupersóna hans renni íslenskt blóð,
segir hann frá atburðum í Kanada
nútímans.
William Valgardson
William D. Valgardson fæddist á
Gimli í Nýja íslandi árið 1939.
Hann hlaut háskólamenntun sína í
Kanada og Bandaríkjunum og hefur
um langt skeið gegnt stöðu prófess-
ors í bókmenntum við Háskólann í
Victoria, British Columbia, Kanada.
Valgardson vakti snemma at-
hygli á sér fyrir smásögur sem
hann birti í ýmsum bókmenntatíma-
ritum í Norður-Ameríku. Með smá-
sagnasafni sínu, Bloodflowers, sem
birtist árið 1973, komst hann í
fremstu röð kanadískra smásagna-
höfunda. Haraldur Bessason, rektor
Háskólans á Akureyri, segir að
Valgardson megi með réttu teljast
höfuðrithöfundur Nýja íslands
þessa stundina. Sögur hans og ljóð
eigi sér þar rætur og fjalla gjarnan
um fólk sem hann lætur eiga þar
heima.
Gentle Sinners í
sjónvarpinu
Kvikmyndir hafa verið gerðar
„William Valgardson er
kjörinn fulltrúi til að
efla þau tengsl. Þó í
æðum sögupersóna
hans renni íslenskt
blóð, segir hann frá at-
burðum í Kanada nú-
tímans.“
eftir sögum Valgardsons og höfum
við íslendingar séð a.m.k. sjón-
varpsleikrit gert eftir skáldsögunni
Gerttle Sinners. Það var sýnt í RÚV
fyrir um ári. í Gentle Sinners er
fjallað um dreng á unglingsaldri,
Eirík, sem flýr að heiman vegna
trúarofstækis foreldra hans. Hann
leitar á náðir móðurbróður síns,
Sigfúsar Vigfússonar, sem Eiríki
hafði verið meinað að hitta. Sigfús
Morgunblaðið/Emilía
William Valgardson heimsótti
nýlega ísland og kynnti ritverk
sín.
íslendingar við
Winnipeg-vatn
Á Kanadadögum á íslandi las
William Valgardson úr verkum
sínum á bókakynningu og hélt fyrir-
lestur við Háskóla Islands. Sérlega -
átakanlegt var að heyra hann lýsa
hvernig lífsbaráttan á Nýja íslandi
hefði mótað sögur hans. Veður eru
válynd _á Winnipeg-vatni, ekki síður
en við íslandsstrendur. Valgardson
kvaðst hafa misst bróður og tvo
frændur við fiskveiðar á vatninu.
Þýðingar á verkum
Valgardsons
Ekkert hefur, þar til nú, verið
gefið út af yerkum Valgardsons á
íslensku. Þetta hefur væntanlega
komið í veg fyrir að íslendinga?-'
kynntu sér skrif hans. Það er .von
mín að nýútkomin íslensk þýðing
Guðrúnar Guðmundsdóttur á sög-
unni Blóðrót verði hvatning til þess
að önnur verk Valgardsons verði
þýdd og gefin út hér á landi.
býr í smábæ í Manitobafylki, og
lýsir sagan kynnum Eiríks af sér-
kennilegu bæjarlífi.
Höíiindur er þjóðfélagsfræðingur
og starfar ltj& Verslunarráði
íslands.
Tilboð ívíðiplöntur
Framkvæmdanefnd „Átaks um land-
græðsluskóga" auglýsir eftir tilboði í 100
þúsund tveggja til þriggja ára víðiplöntur
til gróðursetningar vorið 1990.
Tegundir sem til greina koma:
Viðja - Salix borealis B. Flod
Strandavíðir - Salix phylicifolia L
Brekkuvíðir - Salix sp.
Gústa - Salix alaxensis (Anderss.) Cov. (áð-
ur brúnn alaskavíðir)
Grænn alaskavíðir - Salix alaxensins (And-
erss.) Cov.
S2A - Salix alaxensis (Anderss.) Cov.
S4 - Salix hookeriana Barratt
S3B - Salix alaxensis (Anderss.) Cov.
Plönturnar verða að uppfylla almenn skilyrði
um gæði og heilbrigði. í tilboðum skal taka
fram:
- Tegund
- Verð
- Fjölda plantna
Tiiboð skulu hafa borist fyrir kl. 14.00, mánu-
daginn 11. desember. Tilboð verða opnuð á
Ránargötu 18, Rvk., kl. 14.00,11. desember.
Félag sjálfstæðismanna
í Fella- og Hólahverfi
- aðalfundur
Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í
Fella- og Hólahverfi verður haldinn í Val-
höll laugardaginn 25. nóvember kl. 13.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Vilhjálmur P. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi,
mætir á fundinn.
St]órnin.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
F É L A G.S S T A R F
Akureyri - Akureyri
Aðalfundur fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfé-
laganna á Akureyri
verður haldinn í
Kaupangi laugar-
daginn 25. nóvem-
ber kl. 14.00.
1. Venjuleg aöal-
fundarstörf.
2. Ávarp flytur
Halldór Blöndal,
alþingismaður.
3. Önnur mál.
Fundarstjóri Jón Kristinn Sólnes.
Stjórnin.
Norðurland - vestra
Ungt sjálfstæðisfólk - herðum sóknina
Aðalfundur Kjördæmissamtaka ungra sjálf-
stæðismanna á Norðurlandi vestra verður
haldinn í Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi
laugardaginn 25. nóvember.
Dagskrá:
Kl. 11.00. Fundarsetning og skýrsla for-
manns.
Kl. 11.45. Ávörp gesta.
Kl. 12.30-13.00 Matarhlé.
Kl. 13.00 Davíð Stefánsson, formaður SUS,
og Belinda Theriault, annar varaformaður
SUS ræða samstarf SUS og aðildarfélaganna og undirbúning sveitar-
stjórnakosninga.
Kl. 14.30 Drög að ályktun fundarins lögð fram og afgreidd.
Kl. 15.30 Kosningar.
Kl. 16.00 Önnur mál.
Kl. 16.30 Fundarslit.
Um kvöldið gefst fundargestum kostur á að sækja árshátíð sjálfstæð-
isfélaganna í Húnavatnssýslum. Aðalfundurinn er opinn öllu ungu
sjálfstæðisfólki og er það hvatt til að mæta. Panta þarf miða á árs-
hátið í símum 95-24401, 95-24301 eða 95-24999.
Stjórnin.
®Föstudags-
rabbfundur Týs
I kvöld ætla Týsarar að mæta á skrifstofuna og velta vöngum yfir
úrslitum skoðanakönnunar, sem gerð var í gær um val á fólki til fram-
boðs i næsta prófkjöri.
Helgi Helgason, formaður Týs, verður á staðnum og tekur á móti
nýjum félögum
________________________________Týr.
Pólitísk markaðssetning
Stefnir, félag ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, gengst fyrir há-
degisverðarfundi laugardaginn 25. nóvember kl. 12.00 í veitingahús-
inu Firðinum við Strandgötu í Hafnarfirði. Fundarefni: Hvernig geta
stjórnmálamenn og flokkar nýtt sér nútímaaöferðir við markaðssetn-
ingu til að koma sér á framfæri?
Framsögumenn verða: Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Lýður
Friðjónsson, Árni Sigfússon, Ólafur Hauksson og Ólafur Ingi Ólafs-
son. Fundarstjóri verður Magnús E. Kristjánsson.
Fundurinn er öllum opinn. Allir velkomnir.
FUS Stefnir, Hafnarfirði.
Akranes
Bæjarmálefni
Fundur um bæjar-
málefni verður hald-
inn i Sjálfstæöis-
húsinu við Heiðar-
gerði, sunnudaginn
26. nóvember kl.
10.30.
Sólveig Reynisdóttir
félagsmálastjóri
Akraneskaupstaðar
gerir grein fyrir
málaflokknum: Almannatryggingar og félagshjálp í rekstri bæjarins.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins mæta á fundinn.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin á Akranesir
Kópavogur - Kópavogur
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda
Okkar vinsæli laufabrauðsfundur verður haldinn sunnudaginn 26.
nóv. kl. 13.00 í Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1, 3. hæð.
Eddukonur fjölmennið.
Stjórnin.
Stjórnarfundir Týs
eru haldnir á sunnudagskvöldum kl. 21.00 í Hamraborg 1, 3. hæð.
Fundirnir eru haldnir í nýrri og vistlegri fundaaðstöðu sjálfstæðis-
félaganna i Kópavogi, þar sem áður var skrifstofa Voga. Einnig viljum
við minna unga sjálfstæðismenn á skrifstofu- og félagsherbergi okkar,
sem einnig er vistlega útbúið. Þar fer fram margvísleg starfsemi s.s
föstudagsrabbfundir í hverri viku kl. 20.30 með góðum gestum.
Félagar, sýnið virkni og takið þátt í starfsemi Týs.
Stjórnin.
ÍÞjónusta
Rafl. og dyrasímaþj.
Gestur rafverkt. s. 623445,19637.
Vélagslíf
I.O.O.F. 1 = 17111248’* =
E.T.H., 9.II*
I.O.O.F. 12 = 17111248’* =
E.T.II.
YWAM - ísland
i Grensáskirkju á morg-
un laugardag kl. 10.00. Helga
Björg Guðmundsdóttir leiðbeinir
um árangursríka aðférð við
bíbliulestur. Bænastund
kl. 11.15. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Samkoma í kvöld kl. 20.30. Ræðu-
maður: Gunnar Sameland.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 0919533.
Dagsferð sunnud. 26. nóv.
Kl. 13 Helgafell (338 m)
. Helgafell er í suöaustur frá Hafn-
arfiröi. Gengið upp fjallið á rana
norðaustan í því. Létt fjallganga.
Verð kr. 800.-
Brottför frá Umferöarmiöstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bil.
Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna.
Ferðafélag Islands.
Frá Guöspeki-
fólaginu
IngótfastrSBti 22.
Aakrtftarsfml
Ganglera er
39673.
í kvöld kl. 21.00 verður flutt af
myndbandi samræða J. Kris-
hnamurti við David Bohm og
David Shainberg. (slensk þýð-
ing.
Laugardag er opiö hús frá kl.
15.00-17.00 með fræðslu og
umræöum kl. 15.30.
Allir velkomnir.