Morgunblaðið - 24.11.1989, Qupperneq 38
MOROUNBltABíÐ, FÖSTUDAGUK 24. NQVKMBEK 1989
fclk f
fréttum
Systir Mary John (t.v) freistar þess að vinna upp forskot systur Simeon sem skömmu síðar fagnaði
sigri í keppninni.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Nunnur keppa um heims-
meistaratitil í biljarði
Nýverið fór fram í Lundúnum
fyrsta heimsmeistarakeppni
nunna í biljarði. 25 nunnur tóku
þátt í keppninni en leikinn var
snóker.
Nunnumar í Tyburn-klaustri
við Hyde Park í Lundúnum hafa
um árabil leikið biljarð en fram
til þessa hefur einungis verið um
áhugamennsku að ræða. Þær
ákváðu hins vegar að gangast
fyrir heimsmeistarakeppninni til
að safna fé til að nauðsynlegar
viðgerðir á klausturbyggingunni
gætu farið fram. Sjónvarpsstöðv-
ar og dagblöð sýndu henni mikinn
áhuga og atvinnumaður í faginu,
Tony nokkur Meo, lýsti keppninni
sem þótti mjög spennandi.
Til úrslita léku systir Mary John
og systir Simeon, sem þykir slyng-
ur biljarð-spilari þrátt fyrir ungan
aldur en hún er aðeins 21 árs.
Kom það fáum á óvart að systir
Simeon skyldi hampa fyrsta
heimsmeistaratitlinum er upp var
staðið.
Barbarito erkibiskup, fulltrúi
páfans í Róm, lagði blessun sína
yfir keppnina og hóf hana raunar
með því að senda hvítu kúluna
með hnitmiðuðu skoti í eitt hom-
ið. Því næst tók hann upp seðla-
veskið og hvatti aðra til að gera
slíkt hið sama. Erkibiskupinn vildi
ekki láta uppi hvort hans heilag-
leika Jóhannesi Páli páfa II hefði
verið skýrt frá keppninni. „Hans
heilagleiki er mikill áhugamaður
um íþróttir. Hann syndir sem sel-
ur væri en ég leik biljarð. Þetta
er undursamleg íþrótt. Hún er
fræðandi, krefst mikilar einbeit-
ingar og sjálfstjórnar og stuðlar
að sönnum íþróttaanda."
FYRSTI KOSSINN
Örlítil ástar-
sag*a frá Tævan
Liao
Tzung-wu
óraði ekki fyrir
því er hann
kyssti vinkonu
sína Tsai
Han-huei í
fyrsta skipti að
kossinn sá
myndi breyta
lífí þeirra
beggja. Þau
höfðu þekkst
lengi og því sá
Tsai ekkert at-
hugavert við
að taka þátt í
fyrstu kossa-
keppninni á
Tævan. Liao
væri jú prýði-
lega geðslegur
maður, þótt
finna mætti
bólur í skegg-
lausu andliti
hans ef vel
væri gáð, og
að auki kom-
inn af vamm-
lausum dugn-
aðarforkum.
Fannst henni
það því ekkert tiltökumál er munn-
ur nálgaðist munn, það yrði gaman
að fá myndir af sér í blöðin. Og
höfðu sjónvarpsmenn ekki boðað
komu sína?
En eftir að hún hafði kysst Liao
í rúma íjóra sólarhringa fór eitt-
hvað að gerast. Tilfinningar sem
hún hafði aldrei fundið fyrir áður,
já og hræddist raunar í fyrstu,
fóru að gera vart við sig. Og það
ótrúlega var að Liao varð fyrir
sams konar hughrifum og neyddist
jafnvel til að losa um bindishnútinn
sökum geðshræringar. Loks er þau
höfðu sigrað í keppninni, þegar
allar myndavélar heimsins beind-
ust að þeim og þeim einum, þegar
þau voru loksins orðinn miðpunkt-
ur veraldarinnar og mannkynssög-
unnar, sögðu þau bæði orðið hljóm-
fagra sem innsiglað hefur framtíð
Þegar þessi mynd var tekin óraði Liao Tzung-wu
ekki fyrir því að stúlkan sem hvílir svo sæl í örmum
hans ætti eftir að verða eiginkona hans.
svo margra hamingjusamra hjóna
á Tævan, íslandi, alls staðar: „Já“.
Liao keypti sér nýtt hálsbindi
en Tsai brá sér í lagningu áður
en fóreldrunum var skýrt frá þess-
ari ákvörðun. Móðir Liao grét af
gleði en feður þeirra beggja lögðu
þegar blessun sína yfir þennan
ráðahag. Tsai brá sér því aftur í
lagningu með systrum sínum en
Liao og fjölskylda hans sá um
undirbúning allan. Þrátt fyrir að
tíminn væri naumur þótti brúð-
kaupsveislan takast með ágætum.
Að henni lokinni óku þau í fagur-
lega skreyttri glæsikerru sem tekin
hafði verið á leigu í tilefni þessa
merkisatburðar hjá bíla- og tækja-
leigu Kungs beint á Sheraton-
hótelið þar sem brúðarsvítan beið
þeirra.
FÖGNUÐUR
Crosby, Stills og Nash
við Berlínarmúrinn
Svo sem alkunna er hafa staðið söng og hljóðfæraslætti tróðu ný-
yfir Iinnulaus hátíðarhöld við verið upp framan við Branden-
Berlínarmúrinn frá því að ráðamenn borgar-hliðið sem enn hefur ekki
í Austur-Þýskalandi ákváðu að gefa verið opnað. Höfðu viðstaddir á
þegnum sínum frelsi til að ferðast orði að þeir piltarnir hefðu engu
eftir áratuga kúgun. Þeir Crosby, gleymt þótt árin hefðu að sönnu
Stills og Nash, sem í eina tíð glöddu leikið þá misjafnlega vel.
vestræna bongó- oggæruhippa með
David Crosy, Graham Nash og Stephen Stills taka lagið framan við
Brandenborgar-hliðið.
Nemendur Broddanesskóla.
HÓLMAVÍK
Morgunblaðið/Baldur Rafn Sigurðsson
Skólaskemmtun í Broddanesskóla
Skemmtun var haldin í Brodda-
nesskóla fyrir skömmu. Nem-
endur skólans buðu foreldrum
sínum og sveitungum upp á marg.
víslega skemmtan.
Samkoman hófst með því að
Anna Björnsdóttir, skólastjóri,
bauð gesti velkomna og kynnti
fyrsta atriðið, sem var flaututleik-
ur yngstu barnanna,
Þar á eftir fylgdu ýmis atriði
eins og lestur frumsaminna verka,
ljóðalestur og söngur. Þá voru
gestir látnir leysa úr stafsetninga-
ræfingu sem börnin höfðu búið til.
Gestum gekk ágætlega að leysa
þrautina, en börnin höfðu m.a.
búið hana til í tilefni málræktar-
átaks.
Nemendur létu gesti taka þátt
í ræðu- og mælskukeppni, en að
henni lokinni var öllum boðið að
þiggja veitingar í boði skólans.
- BRS