Morgunblaðið - 10.12.1989, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1989
C 13
DAÐAR BÆKUR
lifandi efni
Birgir Sigurösson segir sögu síldarævintýranna miklu
- Stefán Jónsson lýsir lífsgleði á tréfæti - Ljóðabækur
- Sígildar barnabækur - Minningar tveggja kvenna -
Heimsbókmenntir á íslensku - Sögur eftir Guðberg
Bergsson, Svövu Jakobsdóttur og Birgi Sigurðsson
Birgir Sigurðsson
SVARTUR SJÓR AF SÍLD
Síldarævintýrin miklu á sjó og landi
Síldarárin eru sveipuð ævintýraljóma.
Sfldin var nefnd silfur hafsins, gull
íslands. Hún var óútreiknanleg
kenjaskepna. Hún gerði menn að
milljónerum og beiningamönnum,
réð örlögum manna og efnahagslífi
þjóðarinnar. Hér eru leiddir fram
sfldarspekúlantar, aflakóngar, sfldar-
stúlkur, hásetar og verkamenn.
Furðulegar uppákomur, stór-
skemmtileg og spaugileg atvik,
rómantík og fegurð, þrældómur og
vonbrigði vefjast saman í lifandi og
spennandi frásögn. Sfldarstemmingin
sjálf til sjós og lands í öllu sínu veldi.
Sigrún Eldjánt
KUGGUR, MOSI OG
MÆÐGURNAR
Þriðja bókin um Kugg og
vini hans. Núna bregða
þau sér á skauta og vinda
sér í kökubakstur með
óvæntum afleiðingum.
Dag nokkurn er svo
friðurinn á Þjóðminjasafn-
inu rofinn þegar þau
birtast þar í heimsókn.
Rúmlega 40 litmyndir
eftir höfundinn.
Sól Hrafnsdóttir
FEITI STRÁKURINN
Einu sinni var stór og
feitur strákur sem átti litla
mömmu og lítinn pabba.
Strákurinn var sísvangur
og alltaf þurfti mamma
hans að vera að búa til
mat. En græðgin kann
ekki góðri lukku að stýra.
Söguna samdi Sól þegar
hún var 7 ára.
KUGGURjr
Stefán Jónsson
LÍFSGLEÐI Á TRÉFÆTI MEÐ
BYSSU OG STÖNG
Ævilangt hefur Stefán skoðað
umhverfi sitt augum veiðimanns með
Öllu kviku og kyrru - í öllu starfi sínu
hefur hann athugað viðfangsefnin af
sjónarhóli veiðimannsins og glímt við
þau með aðferðum hans. Oðrum
þræði er þetta lýsing ástríðunnar að
veiða, sem er réttlæting þess að lifa -
þrátt fyrir allt. En utan um þá sögu
íykst önnur saga af sálarháska ungl-
ings sem svipti hann lífsgleðinni um
árabil, uns hann fann hana aftur.
Þetta er margslungin saga - full af
mannviti, hjartahlýju og óborganleg-
um húmor.
Annabel Craig ■ Cliff
Rosney
HEIMUR VÍSINDANNA
Þessi litríka bók hefur að
geyma ógrynni af hagnýt-
um fróðleik um heim
vísindanna. Hvaðan
koma eldingarnar? Hvers
vegna renna árnar niður í
móti? Geta tölvur hugsað?
Fjöldi litmynda gerir
flókna hluti svo auðskilda
að hvert barn getur notið
bókarinnar.
Ævintýri barnanna
ÖSKUBUSKA - STÍG-
VÉLAÐI KÖTTURINN -
ALADDÍN OG TÖFRA-
LAMPINN
Sígild ævintýri sem börn
hafa skemmt sér við
kynslóð fram af kynslóð.
Hér eru þau endursögð
við hæfi yngstu bamanna.
Þorsteinn skáld frá Hamri
þýddi og endursagði.
Ólafur Gunnarsson
FALLEGI FLUG-
HVALURINN
Ævintýrið um litla hvalinn
sem gat flogið um allan
heim. Og þegar sólinni
ofbauð vonska heimsins
og ákvað að hætta að
skína, þá flaug litli
flughvalurinn upp til
hennar... Sagan kemur
samtímis út á íslensku,
dönsku, norsku og
sænsku. „Frábært ævin-
týri“ (Morgunblaðið).
FORLAGIÐ
ÆGISGÖTU 10, SÍMI 91-25188
A (R
H l\A
Birgir Svan Símonarson
Á F ALL ASKIPTUM
Ljóðaunnendum mun
þykja fengur að þessari
bók sem hefur að geyma
úrval ljóða úr átta ljóða-
bókum skáldsins frá
árunum 1975-1988. Birgir
Svan hefur fyrir löngu
skipað sér í fremstu röð
ljóðskálda sinnar kynslóð-
ar fyrir skorinorð og
listfeng ljóð sín.
Jónas Þorbjarnarson
í JAÐRI BÆJARINS
Fyrsta ljóðabók ungs
skálds sem á liðnu ári
hlaut fyrstu verðlaun í
ljóðasamkeppni Morgun-
blaðsins. Svo glæsilegt
byijandaverk sem þetta
sætir vissulega tíðindum í
íslenskum bókmennta-
heimi. í senn fágaður og
íhugull skáldskapur.
Guðbergur Bergsson
ÁSTIR SAMLYNDRA
HJÓNA
Sígilt skáldverk sem vakti
umræður og deilur á
sínum tíma. Margir
töluðu um umbyltingar-
bókmenntir og að með
sögum sínum hefði
Guðbergur skapað hlut-
gengar heimsbókmenntir
á íslensku. Endurútgáfa í
kilju.